Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1984, Síða 23
DV. LAUGARDAGUR16. JUNl 1984. 23 Heim í heiðardalinn „...en víst er að verk Steinunnar gerðu mikið fyrir auga og eyra, þar sem þau glóðu þarna í hátfrökkrinu við austursalinn." Menning Menning Menning Kennara vantar aö Hafnar- og Heppuskóla, Höfn: 2 sérkennara, kennsla í 1.—9. bekk, smíöakennara, kennsla í 1.—8. bekk, kennara í ensku og íslensku í 7.-9. bekk. Húsnæði til staðar. Upplýsingar veitir skólastjóri Heppuskóla í síma 97-8321. SKÓLASTJÓRI. Um sýninguna „10 gestir” að Kjarvalsstöðum Islenskir myndlistarmenn hafa alla tíö sótt menntun sína, og e.t.v. listrænan þroska, til erlendra stór- borga: Kaupmannahafnar, Oslóar, Dresden, Parísar, Lundúna, New York og Amsterdam, af landfræðilegum ástæöum sem öðrum. Sumir þeirra hafa dvalið þar árum saman, en þó er eins og þeir hafi sjaldnast tapað heim- þránni, lönguninni til að varðveita eitt- hvað af litla Islandi í myndlist sinni, hvemig svo sem hún hefur þróast. Síðan hefur álitlegur hópur erlendra myndlistarmanna sest að á Islandi til að samsamast íslenskum menningar- straumum. Því er það út af fyrir sig vel til fundið að efna til sýningar á „útlendingun- um” í íslenskri myndlist, eins og gert er aö Kjarvalsstöðum í tengslum við listahátíð. Samsafn En sýning af því tagi verður aldrei annaö en samsafn af einkasýningum ólíkra listamanna, ef ekki er reynt að búa til úr þeim einhvers konar heild, sem varpað gæti ljósi á ofangreinda togstreitu (eða samsömun) hins íslenska og hins erlenda í myndlist brottfluttra sem innfluttra lista- manna. Slíkt mætti t.d. gera meö því að fela listamönnunum að vinna til- brigði í kringum sömu stef, eða tjá sig bæði í máli og myndum um stööu sína og markmið, svona á „milli vita”. En sýning af því tagi krefst fyrir- hyggju og mikils undirbúnings, og þetta tvennt virðist hafa verið af skornum skammti þegar litið er á þessa listahátíð í heild sinni. Því stöndum við sem sagt andspænis tíu litlum einkasýningum hinna „10 gesta” að Kjarvalsstöðum, og svo langt sem þær ná eru þær ekki óásjá- legar, sem ekki er síst aö þakka hagan- legri uppsetningu. Misræmi Vegleg sýningarskrá hefur einnig verið gefin út í tilefni sýninganna. Ekki er laust við að misræmi sé milli þessara sýninga innbyrðis, bæði hvað varðar magn og gæði. Auk þess eru verkin Islendingum misjafnlega kunnugleg. Verk þeirra Errós og Tryggva Olafssonar hafa t.d. verið talsvert í sviösljósinu hér heima undanfarin ár og hafa ekki tekið breyt- ingum síðan síðast. Hins vegar hefur lítið sést eftir þau Eyfellshjón, Louisu Matthiasdóttur, SUM-kvartettinn (Sigurð, Kristján, Hrein og Þórð Ben) og Steinunni Bjarnadóttur á stærri list- stofnunum landsins, og hefðu þessir listamenn því verðskuldað meira rými Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson en þeir fá aö sinni. Það getur heldur ekki verið annaö en málamyndalausn að sýna fimm málverk eftir Erró á móti tugum myndverka annarra. Kærkomið Eg man ekki eftir að hafa áður séð „alvöru” sýningu á myndbandalist hér á landi þar sem hvorttveggja nauðsynlegur tæknibúnaður og list- rænn metnaður hafa verið fyrir hendi. Framlag Steinunnar Bjarnadóttur er þar af leiðandi sérstaklega kærkomið. Ég skal játa að mig skortir þekkingu á tæknilegum forsendum myndbanda- listar og innviðum sjálfra tækjanna, en víst er að verk Steinunnar gerðu mikið fyrir auga og eyra, þar sem þau glóðu þarna í hálfrökkrinu við austursalinn. Þau verk sem ég sá voru afstrakt að því leyti að þekkjanleg fyrirbæri úr daglega lífinu voru endurtekin í síbylju, með breyttum formerkjum, uns þau náðu að koma áhorfandanum í eins konar dáleiösluástand, en samt ekki sofandaskap. Fátt hefur verið tíöinda af þeim Eyfellshjónum á síðustu árum, sem þýðir þó ekki að þau hafi setið auðum höndum. Upplýsingar í sýningarskrá benda til hins gagnstæöa. Jóhann heldur sig enn við málmsteypur af ýmsu tagi, þar sem sjálf náttúran er hans helsti hjálparkokkur. Náttúrukraftar Skúlptúr hans hefur þróast í takt við ýmsar forsendur amerískrar láðlistar (land art), þar sem náttúrukraftar eru virkjaðir í þágu myndlistar, amb. Smithson, Heizer o.fl. Gaman væri að sjá Jóhann koma aftur til liðs við íslenska náttúru og myndlist, þótt ekki væri nema í stuttan tíma. Hins vegar veit ég ekki hvað Kristín Eyfells er að fara í verkum sinum. Þau virðast angi á meiði súperrealisma, ljósmyndaraunsæis, t.a.m. eins og það kemur fyrir í verkum Bandaríkja- mannsins Chuck Close, en þó eru í þeim sjálfstæðir expressjónískir til- burðir sem miða aöallega að því að sýna fram á það hvemig aldurinn leikur andlitsdrætti fólks. Um þann þátt mannlegs lífs hefur listamaöurinn tæpast neitt nýtt að segja. Fyrir tíu árum hefði það þótt hneykslunarefni að halda sýningu á fjórum SUMurum að Kjarvalsstöðum. Nú þykir það sjálf- sagt mál. Þaö eru ekki myndlistar- mennimir sem eru á undan sinni samtíð, heldur er almenningur ævin- lega á eftir samtíðinni. Hugarburðir Þeir Sigurður, Kristján, Þórður Ben og Hreinn sýna hér mestmegnis verk sem koma glóðvolg af sýningum erlendis. I verkum þeirra allra ráða hugarburðirnir og draumórarnir ríkjum, í allra jákvæðasta skilningi þeirra hugtaka. Skúlptúrar Sigurðar Guðmundssonar gætu verið steingerv- ingar drauma, ekki ósvipaöir þeim sem súrrealistar vildu gera að veru- leika hér á árum áður, en teikningar hans eru hins vegar jarðbundnari, bæði hvað andagift og efnistök snertir. Hreinn Friðfinnsson er margrætt og gott skáld, sem starfar á myndrænum vettvangi einhvers staðar milli svefns og vöku. Verk hans em endalaust uppörvandi, makalaust blæbrigðarík. Kristján Guðmundsson er e.t.v. mesti raunhyggjumaður þessa kvart- etts, en þó er í þeirri ströngu lógík sem hann byggir upp svigrúm til alls konar ljóðrænna eftirþanka. Slagkraftur Þórður Ben reisir draumahallir úti í íslensku hrauni, en er þó í tengslum við veraleika pípulagna, tvöfalds glers og þakhellna. Um verk Louisu Matthiasdóttur hef ég þegar rætt á öðram vettvangi og get litlu bætt við þá umræðu. Það hefur öragglega reynst erfitt að koma smærri myndum hennar fyrir í gím- aldi austursalarins, en bjartir og tærir litir þeirra hafa þann slagkraft sem dugir til að yfirvinna alla öröugleika. SJÁLFSTÆTT OG LIFANDI STARF VIÐ ÚTGÁFU • Okkur vantar starfskraft til að annast blaðaviðtö/ og greinar. • Góð og almenn menntun áskilin. HæfHeiki í mannlegum samskiptum. • Við bjóðum góð laun og frjálslegan vinnutíma. Sumarstörf gætu komið til greina. • Umsóknir sendist til D V, Þverholti 11, fyrir 21. júní 1984 merkt„Sjálfstætt og lif- andi". Ákveðið hefur verið að kanna áhuga fatlaðra á skólavist veturinn 1984—1985. Fyrirhugað er að byrja á nýjum áfanga í tölvu- og bókhaldsnámi 3. september 1984. Upplýsingar veitir Hólmfríður Gísladóttir í skrifstofu Rauða kross íslands að IMóa- túni 21, sími 91-26722. Tekið verður á móti umsóknum til 1. júlí nk. RAUÐI KROSS ÍSLANDS. SKÓLI FATLAÐRA Opið AFMÆLISAFSLATTUR ■*, kl. 16.00 VORUM VERSLUNARINNAR iBBBBtayUUHBUHUUUIii

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.