Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR 7. JULÍ1984.
3
Samkeppnisstaða íslensks iðnaðar:
Sjaldan betrí en í
ár og í fyrra
— iðnaðurinn seldi þá meira en hann framleiddi
oggekk þvíábirgðir
Samkeppnisstaöa íslensks iönaöar
hefur sjaldan veriö betri, miðað viö
síðustu ár, en einmitt nú. Þrátt fyrir
þaö rýrnaði hún á fyrsta árs-
fjóröungi þessa árs miöaö viö sama
tímaífyrra.
1 nýjasta tölublaði Hagtalna
mánaðarins er raungengi krónunnar
sýnt á línuriti fyrir siöustu sex árin
en þaö sýnir hvort samkeppnis-
staöan sé aö batna eöa versna.
Raungengi er fundiö út meö því aö
reikna hlutfall á milli verölags á
tslandi, mælds í dollurum, og
verölags í helstu viðskiptaríkjum
okkar, einnig mælds í dollurum.
Sem dæmi má nefna aö hafi
verðbólga veriö 10% á Islandi á
ákveönu tímabili, gengi krónunnar
óbreytt, og verö og gengi erlendis
óbreytt, er sagt aö raungengi
krónunnar hafi hækkað um 10%.
Fram kemur í Hagtölum
mánaöaríns að gengi íslensku
krónunnar hafi ekki lækkaö nema
um 3,3% frá því í byrjun júní 1983, en
á sama tíma hefur verðlag hækkað
um 28% og laun um 13%. Þetta þýöir
aö raungengi krónunnar hefur
hækkaö um 7% á þessu tímabili og
samkeppnisstaðan því rýrnaö.
Þaö er athyglisvert aö sam-
keppnisstaöa iðnaðarins hefur aldrei
veriö betri á síðustu sex árum en á
vormánuöum í fyrra. Sem fyrr segir
hefur samkeppnisstaöan örlitið
Ársfjórðungslegt raungengi
krónunnar
versnað frá því þá en er samt mun
betri en öll árin f rá 1978 til sumarsins
1982.
Samkvæmt upplýsingum Hag-
deildar Seölabankans, sem gefur
Hagtölur mánaöarins út, þarf
raungengið þó ekki aö mæla stööuna
í sjávarútveginum sérstaklega. Þar
koma fleiri þættir inn í, eins og afla-
brestur, sem veldur að staöa sjávar-
útvegsins er ekki góð, þó raungengiö
sé óvenju lágt.
DV hefur aflaö sér upplýsinga hjá
Félagi íslenskra iönrekenda um
framleiösluna í fyrra. Hjá þeim
kemur fram aö 46% framleiöenda
töldu sig hafa framleitt meira í fýrra
en áriö 1982, 14% minna og 40%
svipað.
Einnig segja iðnrekendur að út-
flutningur iðnaðarvara hafi aukist í
fyrra og þaö hafi orðið meiri sölu-
aukning en framleiösluaukning.
Þetta kemur heim við samkeppnis-
stöðuna, mælda á raungengi.
-JGH.
Albert borgaði
sektina
—og sleppur þvf við tukthúsvist
Albert Guömundsson fjármála-
ráöherra þarf ekki að fara í tukthús
vegna Lucy. Hann er búinn aö greiða
6.500 króna sekt fyrir ólöglegt hunda-
hald.
,,Eg sendi ávisun inn á lögreglustöö
29. júní,” sagði Albert í samtali viö DV.
„Það er ekkert mál aö greiða gjald
fyrir hund. En þaö er leiðinlegt aö
þurfa aö borga sektir fýrir aö halda
besta vin mannsins,” sagöi Albert.
Hann kvaöst ekki óttast aö fá aöra
kæru fyrir hundahald, eins og hent
hefur marga hundaeigendur í
höfuöborginni, þar sem borgaryfirvöld
væru að setja nýjar reglur sem leyföu
hundahald.
-KMU.
i
íslenskur skriðjökull og jökullón munu prýða upphafsatriði næstu James
Bond-myndar. Ljósmyndina tók Gunnar V. Andrésson af Breiðamerkurlóni
fyrir hálfum mánuði.
James Bond-myndatökum lokið við Breiðamerkurlón:
Broccoli ánægður
með upptökurnar
„Framleiöandi James Bond-mynd-
arínnar, Albert Broccoli, er búinn að
sjá upptökur héöan og hann er mjög
ánægöur meö þær,” sagöi Jón Þór Har-
aldsson, framkvæmdastjóri Saga
Film, í samtali við DV.
Kvikmyndatökum viö Breiða-
merkurjökul vegna James Bond-
myndarinnar lauk í gær. Erlendu kvik-
myndatökumennirnir halda af landi
brott umogeftirhelgina.
Síðasta kvikmyndatakan var í gær.
Þá var tekin upp sprenging við ísvegg
þegar þy rla skellur utan í hann.
Kvikmyndatökur hér á landi hófust
fyrir hálfum mánuöi. Þær gengu mjög
vel, aö sögn Jóns Þórs, og hjálpaöi
óvenjugott veöur þar til. Myndin
veröur fnnnsýnd næsta vor.
-KMU.
VUJ-UÁLMSSON HF.
HINN MARGEFTIRSPURÐI
UNO BASIC
NÚ AFTUR FÁANLEGUR
-OGÁ ÓTRÚLEGU VERÐI