Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Page 15
hQnrtn'TT r cTTTrv^ rrty f a t x»rr DV. LAUGARDAGUR 7. JtJLl 1984. 15 I •tmStif '■ F jaðrárgl júf ur í Vestur-Skaftaf ellssýslu: Nt FLUTTIR! Bergveggurinn skagar í háifhríng út i gijúfríð. Hríkalegt er að horfa niður. Gatklettar og tröllkeríingar eru i berginu. Lengst niður frá sést brúin yfir Fjaðrá. Enn fjær er Eidhraun. flestir bruna fram hjá Nú þegar aðalferöamannatíminn fer í hönd er vert að vekja athygli þeirra sem fara um Skaftafellssýslur í fríinu á að örskammt frá Kirkjubæjar- klaustri er að finna náttúruperlur, sem allt of fáir vita um og hafa séð. I stað þess að æða áfram hringveg- inn ættu menn að gefa sér tíma til að skoöa Fjaðrárgljúfur og Holtsborg, tvö fögur náttúrufyrirbrigði rétt við þjóð- veginn. Þar sem Eldhraunið stöðvaðist vest- an við Kirkjubæjarklaustur er afleggj- ari af þjóðveginum að bænum Hunku- bökkum. Ekið er fram hjá Hunkubökk- um, ekki beygt upp að bænum Heiðar- seli, því þá eru menn komnir á leiðina upp að Lakagígum, heldur haldið áf ram áleiöis aö bænum Holti. Yfir Holti gnæfir Holtsborg, fagur stuðlabergshnjúkur. Að borginni er fárra mínútna gangur frá bænum. A leiöinni að Holti fara menn yfir brúna yfir Fjaðrá. Þeir sem í fyrsta sinn aka yfir þessa brú hljóta ósjálf- rátt að stöðva á henni. Við blasir nefni- lega eitt stórfenglegasta gljúfur á Is- landi, Fjaðrárgljúfur. Islendingurinn, sem þama horfir í fyrsta sinn inn í gljúfrið, spyr trúlega sjálfansig: Hefégekkiséðþetta áður? Þá rifjast upp fyrir honum að mynd af gljúfrinu var á frímerki, sem Póst- og símamálastjóm gaf út fyrir meira en áratug. Bíllinn er skilinn eftir en myndavélin tekin með. Um þrjár leiðir er að velja: Inn í gljúfrið, eftir vesturbrúninni eöa eftir austurbrúninni. Inn í gljúfrið fara menn ekki nema í háum vaðstígvélum. Vænlegast er að fara austanmegin, ganga eftir barminum og horfa niöur í gljúfrið. Gengið er upp vel grónar brekkur. Ferðamaðurinn sér fljótt kynjamyndir í berginu. Sérkennilegur bergveggur, sem skagar út í gljúfrið í hálfhring, rétt eins og hann hafi verið steyptur af mannahöndum er of freistandi til að hægt sé að sleppa því að ganga út á hann. Fyrir neðan má sjá drauma- tjaldstæöi. Afram er haldiö. Leiðin er upp á við og gljúfrið dýpkar. Ahorfandinn finnur hvernig stígandi er í göngutúrnum. Ut- sýnið verður sífellt magnaðra. Hann sér gatkletta og tröllkerlingar. Manns- myndir og dýrahöfuð. „Ef álfar og huldufólk er til þá er höfuöborgin þeirra héma,” segir ljós- myndarinn, Gunnar V. Andrésson, sýnilega heillaður. Utsýnið er orðið hrikalegt. Lengst niðri beljar áin. Menn freistast fram á ystu nöf til að sjá betur en fara verður varlega. Til suðurs sér yfir Eldhraun. Hámarki nær gangan þegar skyndi- lega birtist foss. Reyndar tveir fossar. Og ofar sér í úöann af þeim þriðja. Fossamir tveir eiga sameiginlegan hyl. Sá vatnsmeiri fellur niður vestur- vegg gljúfursins. Hinn frussast niður austurvegginn. Fiðringur fer um ferðalanginn. Þriðji fossinn reynist vera upphaf gljúfursins. Ofar rennur áin fremur ró- TW. 742 TW . 742 A I stærri og bjartari sýningarsal að Auðbrekku 9, Kópavogi. Vorum að taka upp mikið magn af reyrhús- gögnum í miklu úrvali og verðið er hreint ótrúlegt. Sendum í póstkröfu. ^rtrið AUÐBREKKU 9, Kópavogi, sími 46460. lega meðfram túnum Heiöarsels. Þarna er snúið til baka og gengíð rösklega niður í móti að bílnum. Það tekur um fimmtán mínútur að ganga til baka. Fjaðrárgljúfur er um einn kílómetri að lengd. Ógleymanleg skoðunarferð sem þessi þarf því ekki aðtaka nema klukkustund. -KMU. „Efálfar og huldufólk eru tílþá er höfuðborg þeirra hérna. TW. 822 A Munið nýja heimilisfangið. Hrikalegt kynjagljúfur sem

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.