Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1984, Blaðsíða 33
DV. LAUGARDAGUR 7. JULI1984. 33 legt aö sjá, sérstakalega ef hún er opin íhálsinn. En þaö er ekki nóg með létta fatnað- inn sem gleöur augun, heldur er einnig margt spaugilegt að sjá sem eykur hiö góða skap þeirra léttklæddu aö mun, eins og konumar í leöurstígvélunum upp aö hnjám, eöa skinnbrókum niöur á ökkla og aðrar aftur á móti á þönum meö loöhúfur. Þaö má meö sanni segja aö ýmist er i ökkla eða eyru. Aö lokum lá nærri aö sólin hrapaöi í haf niöur af hneykslun þegar konan i strætó kvartaöi undan þessum óskaplega hita og klykkti út meö þeim orðum að borgarbúar gætu átt á hættu aö fá sólsting í allri þessari sól... Já, þaö er sannariega erfitt aö geraöllumtilhæfis. Sigrún Schneider. Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa að Droplaugar- stöðum, heimili aldraðra, Snorrabraut 58, sem rekið er af Reykjavíkurborg. Þeir hjúkrunarfræðingar sem áhuga hafa á að kynna sér heimilið með tilliti til starfs eru velkomnir mánudaginn 9. júlí kl. 16.30. IMánari upplýsingar gefur forstöðumaður á staðnum eða í síma 25811. Bara húsmóðir: Veður- blíða Veöriö hefur svo sannarlega leikið viö okkur þaö sem af er þessu sumri, miðaö viö sumariö síöastliöiö ár. Þá var fólk nauöbeygt til þess aö halda sig innan dyra vegna gjafmildi himin- hvolfsins á regndropum er gegnbleyttu allt utan dyra og einnig þá sem voguðu sér út til nauðsynlegra starfa og ann- arra erindagerða. En þrátt fyrir alla rigninguna var hiö liöna vætusumar alls ekki svo af- leitt því fjölskyldan hélt sig meira inn- an dyra og bara húsmóöir reyndi aö hafa það sem huggulegast, meö ýms- um uppákomum, sem varð til þess aö oft á tíðum var spjallað saman vel og lengi. Meira aö segja var grundvöllur lagöur aö sjóði til sameiginlegrar sól- arlandaferöar og skyldi lagt land undir fót þegar sjóðurinn væri oröinn nógu digur til þess aö þola slíkan „munaö”. Eins og allir auövitaö kannast viö. þá liggja peningar ekki á lausu þegar húsbóndinn er eina fyrirvinna heimilisins og húsfreyjan ríkir aöeins innan veggja þess. Hins vegar getur hún ver- ið býsna stjómsöm og um leið lagin viö ýmsa hluti og gerir ýmislegt fyrir f jöl- skyldu og heimiliö sem hún mætti ekki einu sinni láta sig dreyma um ef hún væri á þönum í einhverju starfi utan sinna fjögurra vegg ja. En þetta var nú útúrdúr, því góða veðrið, sem hefur leikið viö okkur und- anfarið, er á dagskrá. Þaö er yndislegt aö vakna á morgnana við glampandi sólskin og hlýju. Þá eru húsverkin af- greidd meö hraði til þess aö hægt sé aö njóta hlýindanna og sóiarinnar sem best. Þótt heimavinnandi húsmóðir sé bundin bæði fjölskyldu og heimili þá á hún daginn sjálf og getur skipulagt hann eftir sinu eigin höföi og þaö gerir hún meö glöðu geöi þegar sólin er ann- ars vegar. Hvaö er á viö útitekna, glaö- lega og skapgóða húsmóður sem tekur á móti eiginmanni og fjölskyldu án þess aö vera uppfull af streitu? Með hollt, bætiefnaríkt grænmeti á borðum, öllum til góös. Já, það er stórt ævintýri aö sækja grænmetismarkaöi heim á góðviðrisdegi. Það eru ekki aö- eins hinir marglitu bætiefnag jafar sem gleöja augun, heldur einnig mannfólk- ið á götum borgarinnar. Það er jafnvel margbreytilegra en allt það grænmeti og ávextir sem eru á boðstólum. Þaö er sönn ánægja aö líta á létt- klæddar stúlkur og konur sem fá loks- ins tækifæri til þess að sýna öllum þann fína sólarfatnaö sem þær luma á á kistubotninum. Eöa þá karlmennina, sem flestir spóka sig í ljósum fötum, jafnvej á skyrtunni, sem er skemmO- AVARP framkvæmdanefndar alþjóðasambands samvinnumanna á alþjóðadegi samvinnumanna 7. júlí Góðir samvinnumenn Samstaða í samvinnu 1984 felst staðfestingá spakmælinu kunna, „samein- aðir stöndum við, en sundraðir föllum við". Með þvíer jafnframt viðurkennt, að tugur manna sem vinnur saman, fær meiru til leiðar komið með þeim hætti en þeir gerðu samanlagt, ef hver ynni fyrir sig. Þetta á einnig við um starfsemi samvinnufélaga framleiðenda, hvort sem um er að ræða samvinnufélög verka- manna eða samvinnufélög í landbúnaði eða sjávarútvegi. Þessu er sömuleiðis þann vegfarið í viðleitni samvinnufélaga neytenda við að bæta kjör manna og gildir þá einu hvort um er að ræða samvinnufélög, sem fást við vörusölu, tryggingar, byggingar, lánastarfsemi eða annað. Sarrrtaða er samvinnumönnum í blóð borin. Frelsi í samvinnu 1984 felst frelsi til þess að velja í stað þess að láta neyða upp á sig skoðunum eða sannfæringu annarra. I því felst að móta ákvarðanir. jafnframt felur þetta í sér, að fólk getur sjálft valið milli samvinnufélaga. Við eigum líka að leggja fram okkar skerf við stefnumörkun og stjórn samvinnufélags okkar. Það er siðferðileg skylda, sem leiðir af þeirri ákvörðun okkar að ganga í samvinnufélag. Sam- vinna leggur mönnum skyldur á herðar jafnframt því sem hún felur í sér frelsi, því að innan samtaka samvinnumanna er sú ábyrgð sem menn taka sjálfviljugir á sig, forsenda frelsisins. Réttlæti í samvinnu 1984 felst einnig, að menn vilji eúdurheimta þá hug- sjón sem birtist í því, „að það sem þú viit, að aðrir menn gjöri þér, það skalt þú og þeim gjöra". Þessi réttlætishugsjón á að sjálfsögðu við það að hver bæti annan upp, þannig að jöfnuður í samskiptum miðist við gildi þess sem hver gerir fyrir annan. Samvinna er líka réttlæti. Eigi réttlæti að ríkja í veröldinni, hljótum við að leitast við að vinna saman í daglegu lífi, jafnvel án þess að gera okkur alltaf grein fyrir því. En í heimi eins og þeim sem við búum í, þar sem margt orkar tvímælis, háttar þó öðru vísi til. Þessvegna erokkur nauðsyn að halda vöku okkar. Með því að leitast við aðefla samstöðu, frelsi og réttlæti styrkjum við friðinn. Samvinna og þróun Nú eru íheiminum 370 milljónir karlaogkvenna, sem tekið hafa höndum saman í samvinnufélögum, stórum og smáum, og vinna saman að margvíslegum efnahags- og félagslegum verk- efnum. Þetta fólk á sér sömu hugsjónirogfrumkvöðlarnir í Roch- dale, og margir aðrir á síðustu öld. Samvinnufélög hafa á lýðræðislegan hátt lagt mikið að mörkum til þess að draga úr vöruverði og bæta starfsskilyrði - og keppi- nautar þeirra hafa orðið að fara að dæmi þeirra. Leggja verður áherslu á, að trú á samvinnuhugsjónina er jafnframt trú á lýð- ræði. Samvinnufélög hafa myndað landssamtök, eftir viðfangsefnum, til þess að auka styrk sinn. Þessi samtök hafa aftur myndað með sér sambönd. Með því að beita aðferðum, sem hæfðu við lausn þeirra vanda- mála sem við var að etja á þeim tíma kom þar 1895, að stofnað var alþjóðasamband samvinnumanna. Meginmarkmið þess er að tryggja, að grundvallarreglum samvinnumanna sé fylgt á öllum sviðum. Enginn sigur er endanlegur og hvert mannlegt samfélag þarf sífellt að bæta, ef það á að eiga sér lífs von. Sam- vinnuhreyfingin á að vera í stöðugri þróun. 1984 Alþjóðasamband samvinnumanna — ICA — heldur þing sitt á þessu ári - og það tækifæri þarf að nota til þess að efla samvinnuhugsjónina. í október koma um 1000 fulltrúar hvað- anæva úr heiminum saman í Hamborg með þetta markmið í huga. Þeir munu fjalla um lög og áætlanir sambandsins og þau vandamál sem samvinnuhreyfingin á við að etja um þessar mundir, og ræða mögulega lausn á þeim, til þess að efla þrótt samtakanna og búa þau undir framtíðina. Hver einstaklingur getur lagt sinn skerf að mörkum í þessu efni með því að glöggva sig á þeim hugsjónum sem hann tengir sam- vinnunni og gera grein fyrir þeim og deila þeim með öðrum samvinnumönnum á fundum í hverju samvinnufélagi. „Draum- ar eins manns verða aðeins draumar — en þeir eru upphaf nýs veruleika, ef menn deila þeim með öðrum". í samvinnu felst sameining. Með þeim hætti eiga menn saman vonina um heim, þar sem ríkir meiri jöfnuður, frelsi og friður en nú gerist. jafnframt vinna þeir að því að gera þessa von að veru- leika. Alþjóðasamband samvinnumanna, sérnefndir þess, að- ildarfélögin og þær 370 milljónir manna sem í þeim eru um heim allan, munu helga þessari hugsjón krafta sína. Megi 62. samvinnudagurinn verða til þess að efla starf og umræðu sem beinist að þessu marki. Framkvæmdanefnd ICA Alþjóðasamband samvinnumanna SENDUM ÍSLENSKU SAMVINNUFÓLKI ÁRNAÐARÓSKIR í TILEFNI ALÞJÓÐADAGS SAMVINNUMANNA Alþjóðasamband samvinnumanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.