Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1984, Blaðsíða 7
DV. MIÐVIKUDAGUR1. ÁGUST1984.
23
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
Framarar mæta Skagamönnum í bikarúrslitum:
Þessi sigur var kær-
kominn glaöningur...
— fyrir stuðningsmenn okkar, sagði Sverrir Einarsson, fyrirliði Fram, sem vann KR, 3:1
„Þetta er búiö að vera keppnistíma-
bil mikilla vonbrigða og þessi sigur er
því kærkominn til að gleðja það fólk
sem hefur komið til að horfa á okkur á
vellinum,” sagði Sverrir Einarsson,
fyrirliði Framara, eftir ieikinn við KR
í gærkvöldi í undanúrslitum bikar-
keppninnar. Framarar sigruðu 3—1 í
spennandi leik og tryggðu sér þar með
sæti í úrslitunum 26. ágúst. Mótherj-
arnir eru Skagamenn. Sverrir heldur
áfram: „Við munum nota fríið til að
byggja okkur upp fyrir fallbaráttuna.
Við lítum á bikarúrslitin sem eins
konar bónus á þetta, þó munum við
ekki gefa neitt eftir í þeim leik. Og það
er eitt sem við komum til með að
græða á, þaö er að allir munu reikna
með Skagamönnum sem sigurvegur-
um.”
Leikurinn í gær var feikilega harður,
fimm gulum spjöldum var veifað,
þrem á KR og tveim á Framara. Bar-
áttan sat í fyrirrúmi og ekki mikið um
fallegt samspil. En leikurinn var engu
að síður fjörugur og sveiflukenndur.
Síðasta kortérið bauð upp á allt sem
bikarleikur getur boöið upp á.
Leikurinn fór fremur hægt af stað og
var hægur fyrsta hálftímann. Jafnræði
ríkti með liðunum, það hallaði kannski
ögn meira á Framarana, en ekki svo
neinu næmi.
Á 36. mínútu náöu þeir samt forystu
eftir vafasaman aukaspyrnudóm
Sævars Sigurössonar dómara. Hafþór
tók spyrnuna, gaf fyrir í þvöguna þar
r Framararí 1
{Evrópukeppnij
i bikarhafa ■
■ 1
IÞað er óhætt að bóka það að I
Framarar taka þátt í Evrópu-
I keppni bikarhafa næsta keppnis- |
i timabil. Þeir mæta Skagamönnum .
I i úrslitaleik bikarkeppnmnar 26. |
Iágúst, en það er nokkuð ljóst að |
Skagamenn verða íslaudsmeist-1
Iarar og leika því í Evrópukeppni I
mcistaraliða, þannig að Framarar ■
I fara í Evrópukeppni bikarhafa, |
* þótt þeir tapi úrslitaleiknum gegn _
I Skagamönpum.
-SOS.|
tv mm bh ■ ■■ mm mm mm mm
Guðmundur Steinsson — sést hér koma Fram á bragðið. Sendir knöttinn fram hjá Haraldi Haraldssyni og
Stefáni Jóhannssyni, markverði KR.
sem Guðmundur T. náöi boltanum og
sendi hann á nafna sinn Steinsson sem
skoraði, 1—0.
Stuttu seinna tók Gunnar auka-
spyrnu fyrir utan Framteiginn, skaut
framhjá múrnum en Guðmundur
Baldursson varði vel. Það sem eftir
liföi hálfleiksins voru Framarar sterk-
ari.
Hafi KR-ingar haft uppi einhverjar
hugmyndir um að taka leikinn í sínar
hendur í upphafi seinni hálfleiks þá
voru þær kæfðar í fæðingu. Fallegur
bolti kom inn fyrir vörn KR-inga,
Guðmundur Torfa stakk alla af og
þrumaði boltanum inn, óverjandi fyrir
Stefán í markinu, 2—0. Nú fór í hönd
mikill baráttukafli þar sem Framarar
höfðu yfirhöndina og allt stefndi í örugg-
an sigur þeirra, vilji KR-inga til að
jafna virtist ekki fyrir hendi, án þess
aö þeir hefðu tapað leiknum úr hönd-
um sér. Á 22. mínútu sóttu KR-ingar,
skyndilega var boltinn gefinn aftur á
Sævar sem sendi hann inn fyrir Fram-
vörnina og þar stóð Sæbjörn fyrir, en
honum brást bogalistin.
KR-ingar komu meira inn í leikinn
og á 29. mínútu geröu þeir mark,
svolítið skrítið mark. Hálfdán fékk
boltann fyrir utan teig og þrumaöi inn í
þvögu manna á teigslínu og þaðan fór
boltinn í markið. 2—1.
Nú var allt á útopnu. KR-ingar tóku
leikinn í sínar hendur og pressuðu
mjög stíft, án þess að Guömundur í
markinu þyrfti að reyna mikiö á sig.
Mark frá þeim lá í loftinu þegar á 44.
Eyjamenn lágu
á Siglufirði
— þar sem þeir töpuðu 1:2 í 2. deild
mín. Framarar náðu skyndisókn.
Guðmundur Torfason sendi boltann frá
vinstri kantinum inn í teiginn á Viðar
Þorkelsson sem var í opnu færi. Hann
missti boltann frá sér, Stefán kom út,
náði boltanum og Viðari líka. Víti var
sanngjarn dómur en Stefán var hinn
mesti klaufi að renna sér á Viðar. Það
var Kristinn Jónsson sem tók vítiö,
Stefán veöjaði á vitlaust horn. Kristinn
skoraði af öryggi og bikardraumur
KR-inga var úti.
Þrátt fyrir hinn nauma tíma sem
eftir var gáfust KR-ingar ekki upp og
sóttu þar til flautan gall.
I heildina var leikurinn góöur, þó
ekki hafi hann verið áferðarfallegur,
það er fyrst og fremst spennan sem
ríkir í svona bikarleikjum. KR-ingar
DV-mynd: Brynjar Gauti.
hefðu átt að jafna leikinn í lokin, þeir
sýndu fádæma baráttu en uppskáru
ekki samkvæmt því.
Þrír fremstu menn Framara,
Guðmundur Steinsson og Torfason,
ásamt Emi Valdimarssyni, voru bestu
menn Framara. Sverrir Einarsson var
einnig góður á meðan hans naut við, en
hann meiddist og þurfti að fara út af er
spennan stóð sem hæst. Sverrir hélt
sjálfur að þetta væri ekki alvarlegt, en
hann fékk þungt högg á brjóstkassann.
Hjá KR-ingum voru Gunnar Gísla-
son og Sævar Leifsson bestir. Gunnar
var bókstaflega alls staðar á vellinum.
Sævar Leifsson er í gíf urlegri sókn sem
leikmaður. Willum Þórsson átti einnig
ágætan leik, en hann kom seint inn á.
SigA.
Pétur Ormslev.
Pétur
Ormslev
til
Bocholt?
— Það er alveg óráðið hvað ég geri,
en það gæti þó farið svo að ég gei gi til
liðs við áhugamannafélagið FC
iiocholt, sem er mjög fjársterkt félag
og var í úrslitakeppninni um sæti í 2.
deiid sl. keppnistimabil, sagði Pétur
Ormslev, landsiiðsmaður tslands i
knattspyrnu, sem hefur leikið með
Fortuna Diisseldorf sl. tvö ár.
Pétur sagöist ræða við þjálfara
félagsins fyrir næstu helgi og þá kæmi í
ljós hvort hann myndi slá til. — Það
fer allt eftir því hvaö þeir bjóða mér,
sagði Pétur.
— Ef ég gerist leikmaður með
Bocholt mun ég fara í þriggja mánaða
keppnisbann, en allir þeir leikmenn
sem gerast aftur áhugamenn hér fara í
bann um tíma, sagði Pétur.
Pétur sagðist ekki vera orðinn góður
af meiðslum í læri, en hann vonaði að
það færi að styttast í þaö að hann yrði
góður.
-SOS
Frá Kristjáni Möller — fréttamanni
DV á Siglufirði:
Fjögur hundruð manns sáu Siglfirð-
inga leggja Eyjamenn að velli, 2—1,
hér í gærkvöldi í mjög góðum og
skemmtilegum leik. Það var Björn
Inglmarsson sem skoraði fyrst fyrir
Siglfirðbiga, 1—0, á 7. mín. með glæsi-
iegu skoti — knötturinn hafnaði uppi í
samskeytunum'
Eyjamenn náðu að jafna metin á 55.
mín. þegar Kári Þorleifsson skoraði
með lúmsku skoti. Það var svo Frið-
finnur Hauksson sem skoraði sigur-
mark Siglfiröinga á 61. mín. eftir aö
markvörður Eyjamanna hafði varið
óbeina aukaspyrnu Bjöms Ingimars-
sonar — sló knöttinn í stöng — en
þaðan fór knötturinn til Friðfinns.
Eftir það voru Siglfirðingar nær að
auka forskot sitt heidur en Eyjamenn
aðjafna.
Bjöm Ingimarsson átti snjallan leik
meö Siglufjarðarliöinu og þá var Colin
Packer eins og klettur í vöminni.
-KM/-SOS.
íþróttir
Iþrótti.
%
s1- .
,nA^c°PkCVÞM",Ó,'d
Metft|C
tta
_rteeöet'
oVö,^V®9'v
V.fe<lU Vt0tt''a*‘ 631.'
st6WA'
St
i».
so°
\nð
Vt\a'5pat
Os
AA
uatss
oð
A0330
pós4
tseo
dotn