Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1984, Blaðsíða 8
24
DV. MIÐVIKUDAGUR1. ÁGUST1984.
i
Danir lögðu
Spánverja á
lokaspretti
— komust yfir, 15:14, þegar 8 mín. voru til
leiksloka og unnu 21:16
Danir lögðu Spánverja að velli með
frábærum endaspretti í handknatt-
ieikskeppni OL og unnu 21—16. Spán-
verjar voru yfir, 6—8, í leikhléi og var
það ekki fyrr en 8 mín. voru til leiks-
loka að Danir náðu að komast yfir með
marki Hendrik Hattesen, 15—14, og
rétt á eftir skoraði hann aftur, 16—14.
Þar með brotnuðu Spánverjar og
Danir sölluðu á þá mörkum. Erik Veje
Rasmussen var markahæsti leik-
maður Danmerkur — með sex mörk.
Eugenio Serrano skoraði sjö mörk
fyrir Spánverja og Jaime Puig skoraði
Sjö marka
sigur Sviss
— vann Japan, 20-13,
íB-riðli handboltans
Sviss sigraði Japan, 20—13, eftir 7—6
í háifleik í B-riðli handknattleiksins á
ólympíuleikunum í gær í Fullerton.
Japanir höfðu ekki úthald síðustu tíu
mínútur leiksins og þá röðuðu Sviss-
lendingar inn mörkunum.
Norwin Platzer var markahæstur
Svisslendinga með sex mörk — fjögur
þeirra í síöari hálfleik. Max Schaer og
Peter Jehle skoruðu fjögur mörk hvor.
Kiyoshi Nishiyama var markahæstur
Japana með 4 mörk, Shinji Yamamoto
og Seimei Gamo skoruðu 3 mörk hvor.
-hsím.
fjögur mörk.
Svíar unnu öruggan sigur yfir S-
Kóreu, 36—23, eftir aö hafa haft yfir,
16—11 í leikhléi. Danny Augustsson og
Björn Jilsen skoruðu fimm mörk hvor
og voru markahæstir Svía. -SOS
Rúmenía
vann Alsír
Rúmenar unnu sigur, 25—16, yfir Alsír
í B-riðli handknattleiksins á OL í gær-
kvöldi og V-Þjóðverjar lögðu Banda-
ríkjamenn að velli, 21—19, í A-riðli.
'1 ‘s
w msmmm -
íslensku landsliðsmennirnir Guðmundur Guðmundsson, Sveinn Sveinsson og Brynjar Kvaran, sem léku ekki með
gegn Júgóslövum, létu ekki sitt eftir liggja á áhorfendapöllunum. Hér eru þeir með íslenska fánann — fagna einu
marki Islendinga.
DV-símamynd: Þórir Guðmundsson
Fyrsta gull USA
í fimleikum í
— karlasveitin bandaríska varð ólympíumeistari
Bandariska sveitin í fimleikum
karla bar sigur úr býtum í gær og er
það í fyrsta sinn i 80 ár sem Bandaríkin
hljóta gull í fimleikum. Fyrir síðustu
keppnina í gær hafði USA-sveitin
aðeins forskot á heimsmeistara Kina,
Japan og Vestur-Þýskaland og tókst að
halda forskoti sínu.
Tíu sinnum fengu keppendur hæstu
einkunn, eða tíu, í sveitakeppninni,
þrír Bandaríkjamenn, Mitch Gaylord,
Bart Conner og Tim Daggett, þrír Kín-
verjar og einn Japani. Þeir Tong Sei og
Li Ning hlutu 10 í hringjum og Lou Yun
í stökki. Japaninn, sem fékk 10, heitir
Shinji Morysue.
Bandaríska sveitin hlaut samanlagt
591,40 stig rétt á undan kínversku
sveitinni, sem hlaut 590,80 stig. Japan
hlaut bronsverðlaun. Hlaut 586,70 stig.
Sveit V-Þýskalands varð í fjórða sæti
meö 582,10 stig, Sviss í fimmta með
579,95 og Frakklands í sjötta sæti með
578,25 stig.
-hsim.
Italía í 8-
liða úrslit
ítalía sigraði Bandaríkin, 1—0 (0—
0), í D-riðU í knattspyrnukeppni
óly mpíuleikanna í gær. í C-riðU sigraöi
Egyptaland Costa Rica, 4—1 (2—0).
Með sigrinum tryggöu Italir sér rétt
í átta liða úrslit, fyrst Uöa. Pietro
Fanna skoraöi eina mark leiksins á 53.
mín. Ahorfendur voru rúmlega 63
þúsund í Los Angeles og studdu vel við
bakið á liöi USA. Þjálfari ítalska liös-
ins er Enzo Bearzot, sem gerði Itali að
hehnsmeisturum á Spáni 1982. -hsím.
Nefndin setti
fyrsta metið
Alþjóðlega ólympíunefndin var fyrst
aUra til að setja ólympíumet í Los
Angeles. Fjórir nýir meðUmir voru
teknir í nefndina og er hún þar með
skipuð 91 einstaklingi. Aldrei hefur
nefudin verið stærri í sniðum. Af
þessum 91 meðUm eru fjórar konur og
af nýliðunum fjórum var ein kona,
Nora prinsessa frá Liechtenstein.
Gunnlaugur
og Jón í
19. sæti
— í siglingakeppninni á OL eftir fyrsta dag af sjö
Los Angeles
QPP
Los Angeles
Los Angeles
Bjarni Guömundsson — er hér kominn fram hjá tvcimur hávöxnum Júgóslövum og vippar knettinum (sjá ör) yfir
markvörð þeirra, 8—5 fyrir ísland.
DV-símamynd: Þórir Guðmundsson
Frá Þóri Guðmundssyni — frétta-
manni DV í Los Angeles:
íslensku siglingamennirnir, Gwm-
laugur Jónasson og Jón Pétursson, eru
í 19. sæti eftir fyrsta keppnisdaginn í
siglingunum. 28 keppendur hófu
keppnina.
Þeir Gunnlaugur og Jón hlutu 25
refsistig en sá telst sigurvegari sem
fæsthlýtur stigin.
Þjóðverjar eru í fyrsta sæti eftir
fyrsta keppnisdaginn af sjö, hlutu
ekkert refsistig í gær. Frakkar eru í
öðru sæti með 3 stig og Spánverjar í
þriðja sæti með 5,70 stig.
Þó.G/SK.
geles
Q9P
geles
QPP
LosAngeles