Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1984, Page 3
DV. FÖSTUDAGUR17. ÁGUST1984.
3
NEYTENDUR BÚNIR AÐ
BORDA „HAUGAGRÆNMETIД
Nú er ljóst að grænmetið, sem svo oft
hefur verið fjallað um, frá Eggert
Kristjánssyni hf., fer aldrei á haugana
því aö líklegt er að neytendur séu þeg-
ar búnir að borða það.
Eins og kunnugt er af fyrri skrifum í
DV ákvað landbúnaöarráðuneytiö að
gefa ekki út tilskilin leyfi fyrir inn-
flutningi á grænmeti sem heildverslun
Eggerts Kristjánssonar flutti inn.
Ástæðan var sú að talið var að innlend-
ir framleiðendur önnuðu þegar eftir-
spurn á þeim tegundum sem ekki
fengu afgreiöslu í ráðuneytinu.
Það grænmeti sem hér um ræðir er
um 2 tonn, eöa réttara sagt var 2 tonn,
aöallega gulrætur, blómkál og hvítkál.
Síðan hefur veriö skrifað um þetta
grænmeti og beðið eftir því að landbún-
aðarráðuneytið léti til skarar skríöa og
skipaði fyrirtækinu að kasta grænmet-
inuáhaugana.
En meðan á þessum skrifum stóð
voru ánægðir neytendur líklega byrj-
aðir að gæða sér á þessu forboðna
grænmeti. Við birgðakönnun hjá fyrir-
tækinu kom í ljós að ekki eru eftir
nema um 200 kíló.
Til að gera langa sögu stutta kom
þetta grænmeti til landsins og var af-
greitt með svoköHuöum „neyðarleyf-
um”. Slík leyfi eru notuð þegar um við-
kvæmar vörur er að ræða og þegar svo
er getur varan f arið strax í sölu og toll-
skjöl afgreidd síðar. Eins og kunnugt
er dróst áritun tollskjala á langinn.
Fyrst vegna sumarfría hlutaðeigandi
aðila og svo vegna neitunar landbún-
aðarráöuneytisins um að árita skjölin.
Þaö hefur ekki verið gert ennþá og
óvíst að það verði gert fyrst grænmetiö
er þegar selt.
Hjá landbúnaðarráðuneytinu hefur
ekki verið tekin afstaða til þess hvem-
ig bregðast eigi við þessu. I gær var
ráðherra farinn úr bænum en unnið
var að því að kanna málavexti.
„Ég tel að innlendir framleiðendur
verði ekki fyrir tjóni af þessum sökum
vegna þess að grænmetið var selt áður
en framboðs þeirra fór að gæta á
markaðinum,” segir Gísli V. Einars-
son hjá Eggert Kristjánssyni hf. Gísli
sagði að ný tilhögun á innflutningi á
kartöflum og grænmeti hefði sýnt og
sannaö ágæti sitt. Það væri ekki alvar-
legt mál né óeölilegt aö smáágreining-
ur kæmi upp vegna þess að þessi mál
væru á byrjunarstigi. En það er ljóst
að sú umfjöllun, sem verið hefur um
þessi mál nú í vor og sumar, hefur vak-
ið neytendur til umhugsunar um holl-
ustu þessara afuröa og stuölað að auk-
inni neyslu kartaflna og nýs grænmetis
í framtíðinni og það er hreint ekki svo
lítiö hagsmunamál innlendra framleið-
enda.
APH
Flugleiðir og Arnarf lug:
Umfangsmikiö
pílagrímaflug
Islensku flugfélögin, Flugleiðir og
Aniarflug, eru þessa dagana aö hefja
flug með pílagríma til Jedda í Saudi-
Arabíu. Flugleiðir flytja um tuttugu
þúsund pílagríma frá Aisír. Amarflug
flytur um niu þúsund pílagríma frá
Líbýu.
Þetta er umfangsmesta pílagríma-
flug Amarflugs til þessa. Pílagríma-
flug Flugleiöa er hins vegar mun um-
fangsminna nú miðað við síðastliðið ár
en þá flutti félagið 35 þúsund píla-
gríma.
Flugfélögin nota eingöngu leiguþot-
ur til verkefnisins. Flugleiðir hafa leigt
þrjár DC-8 þotur og tekur hver þeirra
249 farþega í sæti. Amarflug hefur
leigt tvær Boeing 707 þotur. Hvor
þeirra ber 189 f arþega.
Fyrri hluta pílagrimaflutninganna
lýkur um mánaðamótin. Um miðjan
september byrja flugfélögin síðan að
flytja pílagrímana heim til sín aftur.
Því verður lokið um mánaðamótin
september—október.
Ovenjufáir Islendingar, innan við
tuttugu, vinna að þessu sinni við píla-
grímaflug Flugleiða. Af hálfu Amar-
flugs annast um fjöratíu starfsmenn
verkefnið. Þeir eru flestir Islendingar.
Flugleiðir fá f jórar milljónir Banda-
ríkjadala fyrir flugið og þurfa ekki að
greiða eldsneyti. „Þetta er okkur hag-
stæður samningur,” sagði Sæmundur
Guðvinsson blaðafulltrúi.
-KMU
Yfirlýsingar forstjóra Rainbow Navigation:
„LÍTIÐ AÐ
MARKA ÞÆR”
— segir forstjóri Hafskips
, ,Eg tel að lítið sé að marka yfirlýs-
ingar forstjóra bandaríska skipafé-
lagsins um minnkandi flutninga á
þess vegum til Vamarliðsins fyrr en
þær hafa veriö staðfestar af banda-
rískum stjórnvöldum,” sagði Ragn-
ar Kjartansson, stjórnarformaður
Hafskips, í samtali við DV í morgun
í tilefni yfirlýsinga forstjóra Rain-
bow Navigation Inc. þess efnis.
Forstjóri Rainbow Navigation Inc.
sagöi i Morgunblaðinu í gærmorgun
að flutningar á vegum fyrirtækisins
myndu minnka um 40% með því að
hætt yröi að flytja fragt frá New
York og vegna samdráttar í flutning-
' um frá Norfolk og til Islands. Væri
þetta gert til að auka viðskiptavel-
vild fyrirtækisins á Islandi.
Ragnar sagði að Rainbow hefði
aldrei siglt til New York en New
York fragtin hefði verið flutt land-
leiðis til Norfolk og þaöan hefði Rain-
bow siglt með hana til Islands. „Við
höfum frétt að það stæði til að taka
þessa flutninga af þeim en við höfum
ekki heyrt að þeir ættu að draga úr
flutningum frá Norfolk,” sagði
Ragnar Kjartansson. „Eina lausnin
fyrir Islendinga er að fullt jafnræði
fáist milli íslensku skipafélaganna
og annarra sem byggist á tiðni skipa
og flutningsgjöldum.”
ÞJH
FLUGLEIÐIR KAUPA
TVÆR DC-8 ÞOTUR
Stjóm Flugleiöa hefur ákveðið að
nýta sér kauprétt á tveimur DC-8 þot-
um sem félagið hefur að undanfömu
haft á leigu frá hollenska flugfélaginu
KLM. Vélamar eru þegar á íslenskri
skrásetningu sem TF-FLU og TF-FLV.
Hvor þeirra ber 249 farþega.
Flugleiðir sömdu í vor um sölu á DC-
8 þotunum TF-FLB og FLE til banda-
rísks félags og fékkst gott verð fyrir.
Hollensku þotumar fá Flugleiöir á
mjög hagstæðum kjörum, að sögn
Sæmundar Guðvinssonar blaöafull-
trúa.
Nýju þoturnar fullnægja ekki ákvæð-
um hávaðareglna sem taka gildi i
Bandaríkjunum um næstu áramót.
Flugleiðir stefna að því að búa þær
hljóðdeyfum sem væntanlega koma á
markaö um mitt næsta ár.
Að sögn Sæmundar Guðvinssonar
verða þotur þessar liklega ekki aðal-
vélar félagsins á Norður-Atlantshafs-
leiðinni heldur númer tvö og þrjú. Þota
númer eitt verður hugsanlega breið-
þota.
Pflagrimar um borð i Fluglelðaþotu.
-KMU