Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1984, Side 11
DV. FÖSTUDAGUR17. AGUST1984.
11
frá byrjun, njóta enn svipaðs fylgis.
Sömuleiöis sænsku jafnaöarmennirnir
sem ólikt suðlægari flokksbræðrum
sínum hafa haldið sig við vinstristefn-
una.
Lexían, sem draga mætti af því, er
sú að það borgi sig að sigla stöðugan
kúrs. — Kúvendingamar eru verr
þokkaðar.
SÆNSKUR
SÓSÍALISMI
Sænskir sósíaldemókratar hafa
þrjóskast við að láta efnahagsörðug-
leika landsins sveigja sig til hægri.
Síðan Olof Palme kom aftur til valda
1982 hefur hann aftekið að skera niður
nema sáralítið af opinberum útgjöld-
um eða draga úr velferðarbákninu, al-
mannatryggingakerfi S víþ jóðar.
Eins hefur hann ríghaldiö í hina um-
deildu áætlun varandi „launþegasjóð-
ina” þar sem sjóðir verkalýðs-
félaganna eiga aö kaupa hlut í fram-
leiðslufyrirtækjum og hlutdeild í
stjómun rekstrar þeirra. Þó hefur
hann ögn- slegið af upphaflegu hug-
myndinni.
Ástand í efnahagsmálunum verður
þó aö kallast sæmilegt sem að mestu
má rekja til þess er Palme snarfelldi
gengi sænsku krónunnar, skömmu eft-
ir að hann kom til stjórnar. Það jók út-
flutninginn.
Helst hefur angrað stjórn Palmes
hneisan af því að geta ekki stöðvað ráp
sovéskra kafbáta inn og út um land-
helgi Svíþjóðar og síðan innanflokks-
erjur milli hægri og vinstri afla, sem
gárungarnir erufamiraðkalla „Rósa-
stríðið” (vegna rósartákns jafnaðar-
manna).
Leiðtogi hægri armsins, Kjell-Olof
Feldt fjármálaráðherra, hefur í nýút-
kominni bók lagt til að tekjuskattur
verði lækkaður og að fyrirtækjum
leyfist að hagnast „sæmilega”.
Ennfremur að einkaaðilum verði leyft
að reka skóla og sjúkrahús. Hann hef-
ur opinskátt haldið því fram aö bar-
áttan gegn verðbólgunni sé í þann veg-
inn að tapast vegna óbilgirni í launa-
kröfum þar sem verkalýösfélögin hafi
ekki haldiö sig undir 6% hámarkinu
sem stjómin ætlaðist til.
Áætlunin var að koma veröbólgunni
niöur í 4% í árslok, en hún er enn yfir
6%. Launahækkanir eru í kringum 10%
og búist er við því að áhrif gengisfell-
ingarinnar verði uppétin á næsta ári.
Verkalýðsleiðtoginn Stig Malm
gagnrýnir stjómina fyrir aögerða-
leysi gagnvart atvinnuleysinu þrátt
fyrir nýsköpunaráætlanir sem fela í
sér atvinnutækifæri fyrir 4% vinnu-
aflsins.
Palme hefur þó haldið vinsældum
sínum og skoðanakannanir sýna aö
hann mundi sigra ef kosið yrði aftur í
dag.
Ágætt f iskirí
á Gjögrí
Frá Regínu á Gjögri:
Axel gamli grásleppukarl á
Gjögri, hin fræga sjónvarpsstjama,
fékk fyrstu sildina í reknet á þriðju-
daginn. Var síldin mjög misjöfn að
gæðum til. Annars hefur verið ágætt
á Gjögri undanfarið þegar gefið
hefur á sjóinn.
Hafnargerðá
Norðurfirði
Frá Regínu á Gjögri:
Hafnargerð á Norðurfirði á Strönd-
um gengur vel, enda unnið af kappi
og fyrirhyggju eins og alls staðar þar
sem verk eru boðin út. Aðra sögu er
að segja þegar unnið er í tímavinnu.
Búið er að gera 200 metra langan
veg að hafnargarðinum, traustan og
sterklegan veg. Hafnargarðurinn
verður 120 metra langiu og er allt
útlit fyrir að verkið klárist á tilskild-
um tíma, um mánaðamótin nóvem-
ber og desember.
Stálþilið veröur um 50 metrar aö
sögn Jóns Björgvinssonar verk-
stjóra. Þess má geta að fimm vikur
eru síöan byrjað var á verkinu og að-
eins einu sinni hafa verkamennirnir
farið í frí. Þykir það undrum sæta
því þegar menn koma hingað á tíma-
kaupi er farið í frí á hálfs mánaðar
fresti. Guðmundur Sigurbjömsson
frá Hofsósi sagðist ekki vilja hafa frí
oftar en á fimm vikna fresti því það
væri svo dýrt.
Jón Loftsson hf.
HRIIVIGBRAUT121 SÍM110600
Sr. Jón Helgi
kosinn á
Dalvík
Séra Jón Helgi Þórarinsson hefur
veriö kjörinn prestur í Dalvíkur-
prestakalli. Atkvæöi voru talin á
Biskupsskrifstofu í gær og hlaut sr.
Jón Helgi 527 atkvæði. Sr. Jón Þor-
steinsson hlaut 349 atkvæði. Fleiri
sóttu ekki um.
Mikil þátttaka var í prestskosning-
unni. Á kjörskrá voru 1087. Þar af
kusu 884 eða 81,3%. Auðir seðlar voru
fjórir og ógildir fjórir. Kosningin
telst lögmæt.
Frystihússtjóri á
Stöðvarfirði
Stjórn Hraðfrystihúss Stöðvar-
fjarðar hf. hefur ráðið Helga Þóris-
son útgerðartækni til þess að gegna
starfi framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins frá 1. september nk. að telja í
stað Guöjóns Smára Agnarssonar
sem hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. í
Neskaupstaö f rá sama tíma.
Helgi útskrifaðist frá útgerðar-
deild Tækniskóla Islands áriö 1980.
Hann hefur verið framkvæmda-
stjóri Krossvíkur hf. á Akranesi, sem
gerir út samnefndan skuttogara, frá
árinu 1981.
ITT Digivision.
Fyrsta stafrænaCDigital)
Stafœnt eða Digital ei tækni sem þii
þekkit eflaust fr,í tölvum. Nti hefur
ITT tekist fytst allta t heiminum að
framleiða Litasjónvaip með þessan
t'VKni Það er ekki aðeins f|arstýnngin og
val ,i i.isum semei tölvustýit hefdureinníg
stjómun myndgæða og hþóðs fió b stereo
hátöluium sem etu 40 musik wött. hetta
eiu kóstir sem munar um.
IH' Digívision HiFI 57S6 cr sjónvarp
framtiðannnai. stjómað af Mioo kuhb
isem scsr héi fynr ofanl. sem hefut að
geyma hundmðir þusuntb rafeindarása i
5ELLIR?
SJÓNVARPSDEILD
Sklpholli 7 - Simar 26800 og 20080 Reykjavik.
stað 300 sem ent í öðmm sjónvaipst.vkj-
nm. hað er Digltal taeknin sem genr þetta
sjónvarp fríbmgðið öðmm taekjum á
maikaðnum.
Hver er mummnn .1ITT Digivision og
öðtum sjónvðipum? Mununnn er geysi-
lega mlklll, m.a hljöð og myndblöndun fer
nú fram með stafracnum (Digital) ha.HU.
þannig að myndflasðln em hreint út s.tgi
frát>*i og hl|óð nefur aldrei verið betia.
Digivision 3780 HiFi getii ráð fyrir teng-
ingu við teletext þegar þar að kemur.
ITT Digiviston er frába.'rlega hannað
sjonvarjistjeki. Fremst á skjánum er ein
staeður ..Controst Filter" sem bætir mynd-
gtoðln enn frekar. þegármikil birta er i her-
bergi þar sem sýnt er. Þá em líka allir
glampar úr sögunni!
Audio Video Elektionik
Töekni um allan Helm
fiSrDIGIVISION
Auk þessa em fjölmargir áhugaverðir
kostir við þetta ný|a litasjónvarp frá ITT
ITT Dígivisíon HiFi hefur venð lýst sem
upphafi á nýrri þróunarsögu í framleiðsiu
sjónvaipsta.'k|a.
ITT
íheiminum,
.