Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1984, Síða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGUST1984.
3
Byggt af kappi í Reykjavík
— haf in bygging á hátt á f immta hundrað íbúða f ár
Veitinga-
húsin
blómstra
— þó að þeim f jölgi
stöðugt
„Hér er alltaf fullt um helgar og fólk
þarf aö panta meö löngum fyrirvara,”
sagöi einn viömælanda blaösins á einum
af dýrari matsölustööum borgarinnar.
„Aðsóknin hefur aukist frá því í fyrra,
ef eitthvaö er,” bætti hann viö.
í sama streng tóku aðrir þeir er
starfa aö veitingahúsarekstri og blaöiö
talaði við.
Á matsölustööunum, einkum þeim í
dýrari kantinum, er yfirleitt allt fullt
um helgar, aðeins minna virka daga.
Þar var aðsóknin sögö ósköp svipuð og
í fyrra. Á ódýrari matsölustöðum var
aösóknin sögö jöfn alla daga vikunnar.
„Hún gæti ekki orðið meiri hjá okkur.
Það er alltaf hvert borö skipað,” sagöi
einnþeirra.
Á skemmtistööunum, þaö er aö seg ja
diskótekunum, var aösóknin sögð góð.
„Viö þurfurn ekki aö kvarta. Hér er
alltaf fullt um helgar. Minna hina dag-
ana,” sagði einn. A bjórkránum er hins
vegar alltaf fullt út úr dyrum.sam-
kvæmt upplýsingum blaösins, virka
daga sem um helgar.
Þrátt fyrir mikla aukningu veitinga-
staöa síöustu mánuöi virðist því enginn
bera skarðan hlut frá boröi á þeim
vettvangi. -KÞ
Talsverö aukning hefur oröiö í bygg-
ingu húsnæöis á höfuðborgarsvæðinu
undanfarin þr jú ár og aö sögn Gunnars
Sigurössonar, byggingafuUtrúa hjá
borgarverkfræöingi má búast við enn-
frekari aukningu á þessu ári.
„Þaðernúífyrstasinníáratug að
alUr hafa fengiö lóö hér í Reykjavík
semsótt hafa um,”sagöiGunnar.
I Grafarvogi hefur veriö úthlutaö
363 lóðum undir einbýhs- og raöhús og
er þegar búiö aö samþykkja um 80—
90% bygginga á þeim lóöum. Annað
aöalbyggingarsvæöið í Reykjavík er í
Selásnum. Þar voru samþykktar
blokkir í fyrra sem eru nú í byggingu.
Á þessu ári var enn fremur úthlutað í
Selásnum 430 lóöum undir einbýlis- og
raöhús og er búiö að samþykkja um
20% af byggingum á þeim lóöum. Þá
hafa einnig veriö samþykktar tvær
blokkir á þessu svæði í ár sem í eru 56
íbúðir. Auk þess er búið aö úthluta
10—20 lóöum í Ártúnsholtinu sem
þegar hafa veriö samþykktar. Auk
þeirra lóða sem gert var ráö fyrir í
Grafarvogi er búið aö úthluta 80 við-
bótarlóðum en byggingar á þeim hafa
ekki enn veriö samþykktar.
Heildartala þeirra íbúöa sem hefur
veriö úthlutaö á þessu ári er 949 en
heildartala þeirra bygginga á þessum
lóðum, sem hafa veriö samþykktar og
byggingaframkvæmdir eru hafnar viö,
er á bilinu 450—500. Ef litið er til
heildarfjölda nýbygginga á síöasta ári
þá voru þær 674 talsins. Má því búast
viö aö umtalsverð aukning veröi í
íbúöabyggingum á þessu ári.
Samdráttur í
byggingastarfsemi úti á landi
Þrátt fyrir aukna byggingastarf-
semi á höfuöborgarsvæðinu er sam-
dráttur í íbúðabyggingum úti á landi.
Á árunum 1981 til 1983 var hafin bygg-
ing á 1053 nýbyggingum aö meöaltali í
Reykjavik og nágrenni en á lands-
byggöinni allri var meðalfjöldi ný-
byggingal702.
Samkvæmt upplýsingum Þjóðhags-
stofnunar er skipting nýbygginga á
milli ára þannig:
NágrenniRvk. Reykjavík Landiftallt
1979 299 536 1932
1980 335 479 1758
1981 230 631 1648
1982 418 744 1829
1983 462 674 1630
I fréttabréfi Húsnæðismálastofn-
unar kemur fram að byggingafram-
kvæmdir miöaö viö rúmmetra hafi
aukist um 14,6% og nýbyggingastarf-
semi í Kópavogi, Hafnarfiröi og
Garðabæ hafi verið meiri áriö 1983 en
árið á undan. Á nær öllum béttbvlis-
stööum úti á landi, aö Vesturlandi
undanteknu, hafi verið um samdrátt
aö ræða.
Meðafstærð nýbyggðra
íbúða hefur aukist
1 sama fréttabréfi kemur einnig
fram aö meöalíbúö í nýbyggingum hafi
veriö 497 rúmmetrar og hafi hún aldrei
veriö stærri. Þá gefi upplýsingar um
íbúðir sem nú séu í byggingu vís-
bendingu um að á næstu árum muni
frekar stórar íbúöir bætast við húsa-
kost landsmanna. Meöalfermetraf jöldi
sérbýlisíbúða á árunum 1981—1983 var
183,3 fermetrar en í f jölbýlishúsum var
meðalfermetrafjöldi á sama tímabili
85 fermetrar. Þaö eru fyrst og fremst
nýbyggð sérbýlishús sem eru stærri en
áöur og hefur þeim jafnframt fjölgaö
meðan bygging fjölbýlishúsa hefur
dregist saman. Síöastliðin 3 ár hafa aö
meðaltali 26,3% nýrra íbúða verið í
fjölbýlishúsum. Samsvarandi hlutfall
árabilið 1971 til 1975 var 44,6%
Byggingartími
styttri?
Ekki var hægt aö fá uppgefiö hver
áætlaður meöalbyggingartími á
íbúöarhúsnæöi er en fyrir tíu árum var
hann áætlaður tvö og hálft ár á fjöl-
býlishús og þrjú og hálft ár á einbýlis-
hús. Nýrri upplýsingar liggja ekki
fyrir en gera má ráö fyrir aö hækkun
vaxta ýti undir byggingarhraöa. Þá
breytir tilkoma einingahúsanna
nokkru í sambandi við byggingarhrað-
ann en þess munu dæmi aö einungis
hafi tekið eitt ár aö koma upp slíku
húsi. Mjög mikiö er byggt af
einingahúsum í Grafarvogi. ÞJH
Fjölbýlishús í byggingu.
Brautryðjendur í bílaviðskiptum í yfir hálfa öld.
Örugg viðskipti við leiðandi fyrirtæki í verslun með notaða bíla.
HJAAGLI
AMC Concord st. 79.
Við erum löngu ordnir landsþekktir
fyrir okkar frábæru greiðslukjör á
notuðum bílum. Hér fást bílarán __
útborgunar og kaupverðið mnmwn
lánað til 6—12 mánaða.
STAÐGREIÐSLU-
AFSLÁTTUR
'"*«**•'* \%
VW Golf 78.
FIAT127 Special '80.
til þess að þeir sem hafa handbæra peninga
geti gert hér hagkvæm viðskipti eins og aðrir.
1929
Sífefíd bfíasaia.
BÍLAÚRVALIÐ
ER SÍBREYTILEGT
FRÁ DEGITILDAGS.
Sífefíd þjónusta.
1984
EGILL ?
VILHJALMSSON HF
Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Sími 79944—79775
MUNIÐ EV-KJÖRIN
VINSÆLU,
AÐ ÓGLEYMDRI
SKIPTIVERSLUNINNI.
notodir bílor í eigu umbodssins