Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Blaðsíða 5
DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984.
53
TÍTLA
Lárus og Signý Jónsson eru
eigendur Títlu, tíkar af skosk-
íslensku kyni, sem hér sést ásamt
þeim hjónum og yngsta syni þeirra,
Lars Ivari. Títla er 3ja ára síðan í
ágúst, hún „er góð, gæf og yndisleg”,
sagði Signý, „en ekki nema miðlungi
velvið ókunnuga”.
MOLLÝ
Björn Þórhallsson, annar varaforseti ASI, er eigandi Mollýjar. Mollý er
púðluhundur og enn á fyrsta ári. Stoltur eigandinn lýsti því yf ir, er leyf ið var
veitt, aö hún væri „full af góðvild, tryggð og hlýju”.
LUKKA
Þórður Gíslason er eigandi Lukku sem er tveggja ára gömul og, að sögn
eigandans, líklega af rússnesk-skoskum ættum. „Hún er mjög blíð og
skemmtileg eins og hundur á aö vera,” segir Þórður sem situr til vinstri á
myndinni. Til hægri er faðir Þórðar en Lukka situr í miðið.
GLOI
Gunnar Már Pétursson er
eigandi „golden retriever” hunds
sem kallaður er Glói. Glói er 2ja
ára og að sögn Gunnars „einstak-
lega vingjarnlegur gagnvart
jafnt kunnugum sem ókunnug-
um, jafnvel um of gagnvart hin-
um ókunnugu. Hann er einnig
mjög barngóður enda er „'golden
retriever” svokallaður „family
dog”.” Á myndinni sést Glói
ásamt dóttur Gunnars, Margréti.
SARA
Sigríður Karlsdóttir á tíkina Söru sem er labrador-hundur með eitthvað af
aðskotablóði í æöum sér. Sara er að verða tveggja ára, hún er „heimarík og
mikill varðhundur”, segir Sigríður, „og afskaplega skynsöm”.
TINNA
Kristborg G. Aðalsteinsdóttir varð fyrst allra til þess aö sækja um leyfi
fyrir hund í Reykjavík og þaö hefur nú skilaö þeim árangri að Tinna hennar
telst löglegur borgari í bænum. Tinna er púðluhundur, tæplega fimm ára
gömul. „Við erum öll hér á heimilinu ánægð með hana,” sagöi Kristborg.
„Þarf að hafa fleiri orð um það? ”
LAPPI
Lappi heitir
hundur Einars B.
Eymundssonar og
eru þeir félagar að
skeggræða ein-
hver mál á með-
fylgjandi mynd.
Lappi er 3ja
blendingur með
mikið collie-blóö í
æðum; hann er
sagður „ósköp
geðgóður og ekk-
ert áreitinn”.
KUBBUR
Guðni Olafur Brynjólfsson á einn
hinna sautján hunda, púöluhundinn
Kubb. Kubbur er orðinn 4ra ára og er
„geðug skepna. Hann er vinalegur
og geltir alls ekki, sem ég vil þakka
geldingu þegar hann var ársgam-
all,”sagði GuöniOlafur.
i