Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Side 29
DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER1984.
77
Prestsfrúin, Beatrice Toombe,
vissi að sonur hennar gat ekki
hafa gert neitt af sér.
Frú Thomas Ernest Dyer lenti á
köldum klaka eftir lát eiginmanns
sins.
Sérstæð sakamál
Edith Jones og Eric Toombe voru trúlofuð. Mún var falleg og geðþekk
stúlka sem fór alveg i baklás eftir að kærastinn hennar dó. Hún giftist
aldrei öðrum.
Séra Toombe og sveitalögreglu-
þjónninn veltu dálitla stund fyrir
sér þessum merkilegu draumum.
Sveitalögregluþjónninn náði í
skýrslur um máliö og ákvað að
rétt væri að líta einu sinni enn á
þaö. Hann taldi málið einnig það
alvarlegt aö hann kvaddi til Scot-
land Yard og frá þeim kom
Francis Carlin leynilögreglumað-
ur.
Stór hópur lögreglumanna fór
yfir svæðið á bænum. Sérlega var
svæðið í kringum brunninn gamla
skoðað vandlega. Carlin gerði sér
ekki miklar vonir. Málið var í bók-
staflegum skilningi orðiö svo
mosavaxið að það var trauðla
hægt aö reikna með neinu.
Á Welcome Farm voru auk
gamla brunnsins fimm brunnar
sem áttu að taka við rigningar-
vatni. Allt brunnakerfið var skoð-
að vandlega. Lögreglumaður sem
hafði verið niðri í brunninum
sagði að vatnið væri einkennilegt
á bragðið. Það væri kannski
eitrað.
En lögreglumennimir komust
einnig að annarri niðurstööu. A
botni brunnsins, að hluta falið
undir múrsteinum og grjóti, fundu
þeir lík. Það var ótrúlega vel varð-
veitt eins og það hefði verið smurt.
Það kom síðar í ljós að það var
óvenjuhátt magn arseniks í brunn-
vatninu og það hindraði þaö aö lík-
ið leystist upp.
Orsök dauðans var auðfundin.
Maðurinn í brunninum hafði verið
skotinn í gegnum höfuðið með
haglabyssu og höfuðið var næstum
horfið. Það var ekki hægt að bera
kennsl á hinn látna á hefðbundinn
hátt. Hins vegar hafði morð-
ingjanum yfirsést það að hinn
dauði var með skyrtuhnappa sem
vom auðþekkjanlegir. Hann var
auk þess með bindisnál úr gulli og
armbandsúr og gullhring með
upphafstöfunum E. J. og E.G.T. —
Edith Jones og Eric Gordon
Toombe. Prestshjónin þekktu alla
hlutina þegar og Edith Jones gerði
það líka.
Finnið morðingjann
Nú var það að finna mórðíngj-
ann Ernest Dyer. Hann hafði
greinilega verið slæmur félagi
hinum óharðnaða prestssyni.
Dyer hafði oft afplánað dóma fyrir
þjófnaö, svik og önnur auðgunar-
brot.
Mönnum tókst að rekja slóð
hans til Scarborough í Yorkshire.
Þar hafði hann vakið athygli lög-
reglunnar með því að falsa
ávísanir. Nú vildi lögreglan
gjarnan fá að ræða við hann um
morðið. Hann neitaði ákveðið við
handtökuna en hann var yfirbug-
aður og settur í handjárn. Á
herbergi hans fann lögreglan tvö
tékkhefti sem voru á nafni Eric
Toombe. Dyer hafði tekið út 3300
pund af reikningi sem var á nafni
Toombe.
Málið var ljóst. Við réttarhöld í
Sussex var Dyer sekur fundinn um
morð og dæmdur til hengingar.
Hvorki vitnin né dómarinn trúðu
þeirri skýringu hans að skotið
hefði fyrir slysni hlaupið úr hagla-
byssunni. Því næst hefði Dyer orð-
ið skelfingu lostinn og kastað líki
Toombe í brunninn til að forðast
morðákæru.
Nákvæmlega fjórum mánuðum
eftir óhugnanlegan draum frú
Toombe var Emest Dyer látinn
dingla í gálganum í Pentonville
fangelsinu í London.
Edith Jones giftist aldrei. Hún
flutti til gömlu prestshjónanna.
Herra Toombe dó 1937 og konan
hans árið 1939.
1 júlí 1970 birtist viðtal í dag-
blaði í Oxford við Edith Jones um
gamla harmleikinn. Hún sagðist
hafa hlakkað allt sitt líf til að hitta
aftur hinn unga Eric Toombe sem
hún hefði aldrei fengið tækifæri til
að deila jarðneskri tilveru með.
Viku eftir viðtalið dó hún í rúmi
sínu. Hún fannst um morgun og
um varir hennar lék friðsælt bros.
NORÐDEKK
hetlsólud radíal dekk
BESIA SNJÓMUNSTUR
SEMVÖLERÁ
Hjá okkur að RÉTTARHÁLSI 2
komast allir í hús, stórir sem smáir.
Stærsta og tæknilega fullkomnasta
dekkjaverkstæði landsins.
Þú slappar af í setustofunni á meðan
við skiptum um fyrir þig.
GÚMMÍ
VINNU
STOfAN
HF
RÉTTARHÁLS 2 Símar: 84008 - 84009
SKIPHOLT 35 Símar: 31055 - 30360
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND