Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1985, Síða 10
38
DV. LAUGAHDAGUR 5. JANUAR1985.
FÆDDUR
ÍUSA
„Tónlist ni ín er sennilega betri en ég,”
segir rokkarinn Bruee Springsteen
Bruce Springsteen hefur undanfarið verið á
hljómleikaferöalagi um Bandaríkin. Uppselt.
Platan hans, Bom in the USA, hefur runniö út
eins og heitar lummur urn allan heim. I rúm tíu
ár hefur Springsteen átt sína dyggu aðdáendur
en nú fyrst viröist hann hafa slegið í gegn svo að
um munar. Hann leggur lika hart að sér. Blaða-
maöur frá tímaritinu Rolling fylgdist meö
tónleikum hans í bænum Tacoma í Washington-
fylki og lauk miklu lofsorði á þá. 1 Tacoma er
svo mikil mengun aö Springsteen og félagar
hans í E Street bandinu veiktust allir undir eins
og þeir komu til bæjarins en ekki gáfust þeir
upp. Springsteen steig á sviðiö fölur sem nár og
eftir tónleikana var hann gersamlega búinn aö
vera, en allan tímann hafði hann sungið og leikið
af fullum krafti. Og það er mikill kraftur.
Raunar höfðu skipuleggjendur tónleika-
ferðarinnar beðiö Springsteen að spila ekki í
Tacoma, heldur í stórborginni Seattle í næsta
nágrenni. Þar er loftiö hreint og tónleikasalirnir
stærri. En í Seattle býr „fínna” fólk og Spring-
steen vildi ná sambandi viö verkamennina í
Tacoma. Á milli laga hvatti hann þá óspart til að
láta ekki traöka á sér og hann gagnrýndi harð-
lega fyrirætlanir ríkisstjórans sem mun gera
eftirlit meðmengun frá iðnfyrirtækjum erfiðara
en nú er. Springsteen lýsti yfir stuðningi við
samtök sem berjast gegn þessu. „Þeim finnst að
fólk eigi aö ganga fyrir gróða og aö samfélagið
eigi að ganga fyrir stórfyrirtækjunum,” til-
kynnti Springsteen og bætti við: „This is your
hometown.” Tók svo lagið My Hometown af
Born in theUSA.
Springsteen hefur aldrei látið deigan síga.
Hann hætti menntaskólanámi til þess að helga
sig rokktónlistinni en fyrstu árin voru erfiö.
Ix)ks náði hann vinsældum en ýmislegt varö til
þess að trufla hann. I heilt ár á síðasta áratug
mátti hann ekki koma nálægt plötuupptökum
vegna þess að hann átti í málaferlum við fyrrum
umboðsmann sinn. Þegar hann tók loksins upp
næstu plötu, The River, seldist hún í tveimur
milljónum eintaka. Síðan kom Nebraska, nakin
og hrá plata um sársauka og trylling í bakgörð-
um Bandaríkjanna, og nú í sumar kom Born in
the USA. Lögin á henni fjalia um svipuð efni og á
„Á The Wild, the Innocent £t
the E Street Shuffle reyndi ég
að láta lögin mynda eina
heild. Ég reyndi að fylgja
nokkrum persónum smáspöl
á lífsferli þeirra."
Nebraska en á fyrri plöturini var Springsteen
einn á ferö meö gítarinn sinn. Á nýju plötunni er
E Street bandiö fullskipaö að baki honum.
Grípum niður í viðtal sem tímaritiö Rolling
Stone átti fyrir skömmu viö þennan hugsjóna-
mann í amerísku rokki.
Titillagið á nýju plötunni þinni, Born in the
USA, er hvort tveggja í senn: ákaflega grípandi
en tekur um leið á sársaukafullu málefni fyrir
Bandaríkjamcnn, nefnilega reynslu hermann-
anna sem fóru til Víetnam. Hefur reynsla þeirra
lengi verið þér hugleikin?
Eg efast um aö nokkur maður geti í rauninni
skilið reynslu þeirra. Ég tel það alla vega ekki.
En þegar maður hugsar um alla þessa ungu
menn sem létu lífið í Víetnam, og alla þá sem
hafa dáiö síöan þeir sneru aftur, þá hlýtur
maður að álykta aö Iandið hafi notfært sér
óeigingirni þeirra. Oft voru þeir mjög örlátir á
líf sitt.
Hvernig snerti Víetnam-stríðiö þig sjálfan?
Afskaplega lítið. Ég ólst upp í Freehold í New
Jersey og þar var pólitísk vitund fátækleg.
Stríöið virtist fjarlægt. En sumir vina minna
fóru og trommuleikarinn í fyrsta bandinu mínu
var drepinn í Víetnam. Hann skráði sig í herinn
og var drepinn. Bart Hanes hét hann. Hann var
einn þeirra sem alltaf eru meö spaugsyrði á vör,
alltaf aö leika trúðinn. Eg man aö hann kom til
rrún einn daginn og sagði: „Jæja, ég er að fara
til Víetnam.” Hann vissi ekki einu sinni hvar
Víetnam var. En þetta var allt og sumt. Hann
fór og kom ekki aftur. Og þeir sem komu aftur
voru ekki samir menn.
Hveraig komst þú undan því að fara í herinn?
Ég stóöst ekki læknisprófunina. Eg fékk heila-
hristing þegar ég lenti í mótorhjólaslysi sautján
ára gamall. Auk þess lék ég sama leikinn og svo
ótal margir aðrir; skrifaði eintóma vitleysu á
herkvaðningarblaðið mitt, mætti ekki í sum
prófin. Ég var nítján ára og ekki örlátur á líf
mitt. Þegar ég fór í læknisrannsóknina hugsaði
ég með mér: „Ég fer ekki neitt! ” Ég hafði farið
í menntaskóla og þar passaði ég ekki inn í. Ég
hætti. Svo var hópur af menntaskólanemum í
rútunni sem flutti mig í læknisrannsóknina og ég
man að ég hugsaði: „Af hverju er mitt líf ódýr-
ara en þeirra, bara af því að þeir fara í skóla?”
Þaö var bara ekki sanngjarnt. Og þetta var
skrýtið vegna þess aö faðir minn hafði tekið þátt
í seinni heimsstyrjöldinni og hann var alltaf að
staglast á því hvað ég heföi gott af að fara í her-
inn. „Bíddu þangað til herinn nær í skottið á þér.
Þeir eiga sko eftir að klippa af þér allt þetta hár.
Ég get ekki beðið eftir því. Þeir gera úr þér
mann.” Samband okkar pabba var mjög slæmt
um þessar mundir. En ég var í burtu í þrjá daga
og þegar ég kom aftur spuröu foreldrarnir:
„Hvar hefuröu verið?” „Nú, ég varð aö fara í
læknisprófunina,” ansaði ég. „Og hvernig fór?”
spurðu þau. „Tja, þeir vildu mig ekki,” svaraði
ég og þá sat pabbi lengi hreyfingarlaus og starði
fram fyrir sig. Loksins sagöi hann: „Það var
gott.” Þetta var. . . ja, ég gleymi þessu aldrei.
Aldrei.
Það er kaldhæðnislegt að nú hafa ýmis íhalds-
söm öfl hér í Bandaríkjunum tekið þig upp á
sina arma. íhaldssami dálkahöfundurinn
George Will hóf tónleika þína í Washington DC
upp til skýjanna og í kosningabaráttunni minnt-
ist Ronald Reagan þín hlýlega í New Jersey,
heimariki þínu.
Þaö sem nú er að gerast er að þjóðin vill
gleyma. Fyrst var hún sigruö í Víetnam, síðan
svikin við Watergate og loks niðurlægð í Iran.
Nú þarf fólk að finna til stolts yfir landi sínu á
ný. Sú þörf er í sjálfu sér góð en um leið notfæra
alls konar aðilar sér hana. Auglýsingar Reag-
ans í kosningabaráttunni segja sína sögu. „Þaö
er morgunn í Ameríku,” og allt það. Það er eng-
inn morgunn í Pittsburgh. Það er enginn morg-
unn fyrir ofan 125. stræti í New York. Þar er
miðnætti og „there’s a bad moon risin’ ”. Þegar
Reagan minntist á mig í New Jersey var þaö
angi af sama meiði. Ég kann ekki við að láta
nota mig og þess vegna hlaut ég að afneita
vinsamlegum orðum forsetans.
Máttirðu ekki búast við því að atvinnuföður-
landsvinir gleyptu þig með húð og hári? Á
kosningaári gefur þú út plötu sem heitir Bora in
the USA og á albúminu er bandaríski fáninn.
Fáninn var þarna bara vegna þess að fyrsta
lagiö heitið Born in the USA. Sem tákn er fáninn
sterkur og maöur veit svo sem aldrei hvernig
fer ef maöur notar svona tákn.
Hefur þú kosið í forsetakosningum?
Mig minnir að ég hafi kosið McGovern árið
1972.
Hvað finnst þér annars um Ronald Reagan?
Ja, ég þekki manninn ekkert. En hann stendur
fyrir ákveðna ímynd og það er ímynd sem
afskaplega margir vilja trúa á. Ég veit ekki
„Þetta hélt áfram á næstu
plötum. Grunnur Born to Run
var eiginlega trúarlegs eðlis.
Sú plata var um leitina að von
og trú í tilverunni."
hvort hann er vondur maður. En hitt veit ég að
hann hefur lítinn áhuga á draumum og þrám
stórra hópa í þessu landi, að hann ýtir þeim
bara til hliðar. Ég vil líta svo á aö Bandaríkin
eigi aö láta sér annt um alla þegna sína. En það
virðist ekki vera í tísku lengur. Á. sjöunda
áratugnum var þjóðfélagsvitundin rík en nú
hugsar hver um sig. Og það er taliö allt í lagi.
Ástand þjóöfclagsins á hverjum tíma skin í
gegnum plöturnar þínar. Fínnst þér þær
tengdar út frá þjóðfélagslegu s jónarmiði?
Ég hef alltaf haft áhuga á verkum sem heild.
Að plöturnar stæðu ekki bara hver fyrir sig og
að lögin á þeim mynduðu líka eina heild. Á
fyrstu plötunni, The Wild, The Innocent and the
E Street Shuffle sagöi þetta strax til sín, einkum
á hlið tvö. Þar var ég að reyna að fylgja
nokkrum persónum smáspöl á lífsferli þeirra.
Og þetta hélt áfram á Born to Run, Darkness on
the Edge of Town og The River. Grunnur Born
to Run var eiginlega trúarlegs eölis. Sú plata
var um leit að von og trú í tilverunni. Og á
Darkness fjallaöi ég um árekstur milli manns
nokkurs og heimsins umhverfis hann. Á The
River var hann að reyna að snúa til baka eftir að
hafa verið barinn niður á Darkness. Á plötunni
eru nokkur lög um sambandið milli fólks —
Stolen Car, The River, I Wanna Marry You,
„Darkness on the Edge of
Town fjallaði um árekstur
milli manns nokkurs og
heimsins umhverfis hann.
Maðurinn var barinn niður."
Drive All Night og jafnvel Wreck on the
Highway. Þetta fólk reynir aö finna huggun
hvert hjá öðru. Áöur en ég tók upp The River
hafði ég varla samið lög um samband fólks. Þau
voru mjög fá. En síðan, á Nebraska. . . Ég veit
ekki hvað geröist á henni. Hún kom bara sisona.
Hafði ekki kvikmynd Terrence Malicks, Bad-
lands, mikil áhrif á Nebraska? Myndin sem
fjallar um fjöldamorðingjann Charles Stark-
weather og vinkonu hans, Caril Fugate?
Ja, ég var tilbúinn með lagið Mansion on the
Hill. En svo sá ég Badlands og um svipað leyti
las ég bókina um þau Caril og hvort tveggja
hafði mikil áhrif á mig á þeim tíma. Ég leigði
hús í Colts Neck, New Jersey, og fór ekki mikið
út og af einhverjum ástæðum fór ég upp úr
þurru að semja fullt af lögum. Það tók mig ekki
nema tvo mánuöi að semja allt efnið á
Nebraska. Ég var að reyna að semja öðruvísi
lög en áður, meiri smáatriöi, eins og ég hafði
reyndar byrjað á meö The River. Og myndin
hafði áhrif á mig og líka sögurnar hennar
Flannery O’Connor. Þær eru ótrúlegar.
Hvað sagði mál Starkweathers þcr um Banda-
ríkin?
Ég held að allir menn geti náð þeim punkti að
níhilisminn veröur allsráðandi, grundvallarlög
þjóðfélagsins verða að sama skapi merkingar-
laus. Það verður allt svart. Ég veit ekki vel
hvaða öfl stjórna þessu. Þaö er einhvers konar
örvænting eöa skortur á sambandi við fólk, við
eitthvað sem maöur getur haldið sér í.
Einangrun er það hættulegasta. Nebraska var
um þessa amerísku einangrun, um fólk sem er
einangrað frá vinum sínum og samfélaginu og
stjórnvöldum og atvinnu. Þessir hlutir halda
mönnum heilum á geöi, þeir færa tilverunni ein-
hvers konar merkingu. Og ef þeir láta undan og
maður fer aö halda til í einhverju tómi þar sem
grundvallaratriði þjóðfélagsins eru bara brand-
ari — þá verður lífið sjálft fljótlega bara brand-
ari. Og þá getur allt gerst.
Á Nebraska ertu einn á ferð með gítarinn.
Hæfði það bölmóöugum söngvunum best?
Ja, upphaflega átti bandið að flytja þessi lög.
Eg tók þau upp á kassettu jafnóöum og ég samdi
þau en þegar til kom hæfði þetta form þeim best.
Mér skilst að Iagið Bora in the USA hafi verið
samiö um svipað leyti og lögin á Nebraska.
Já, reyndar var meira en helmingurinn af
lögunum á nýju plötunni saminn um þetta leyti.
Þegar við vorum aö reyna aö taka upp
Nebraska með öllu bandinu tókum viö upp alla
fyrri hliðina á Born in the USA. Þau lög eru
mjög áþekk lögunum á Nebraska. Þau eru bara
spiluð öðruvísi.
Var ekki lögð mun minni vinna í upptökur á
Bora in the USA en vanalega hjá þér?
Jú. Born in the USA er „live”, tekið upp í ann-
arri atrennu. Fæst lögin tókum við oftar en
fimm sinnum. Darlington County er „live”,
Working on the Highway er „live”, Downbound
Train, I’m on Fire, Bobby Jean, My Hometown
— næstum öll platan er „live”. Glory Days líka.
Bandið er orðið svo samæft að viö getum leyft
okkur þetta. Born to Run er eina platan sem
virkilega mikil vinna hefur verið lögð í. Fyrir þá
plötu samdi ég líka aðeins einu lagi meira en
endaði á plötunni, en fyrir Born in the USA
tókum við sennilega upp ein fimmtíu lög. Þaö
eru ekki sjálfar upptökurnar sem taka langan
tíma, heldur hitt að semja sjálf lögin.
Þeir sem kaupa „bootlcg” plötur halda því
fram að sum þeirra laga sem ekki ná á plötur
þinar séu meðal þeirra bestu.
Ég á engar „bootleg” plötur sjálfur. Það
hefur lengi staðið til að gefa út upptökur meö
lögum sem ekki pössuðu á plöturnar og kannski
geri ég það einhvern tíma.
Vendum nú okkar kvæði í kross. Þú hefur
aldrei verið nærri þvi að kvænast, cr það?
Nei. Eg bjó einu sinni með stelpu. Ég hafði
aldrei búið með stelpu áöur. Eg var rétt rúm-
lega tvítugur og haföi eiginlega aldrei búið meö
neinum.
Hvers vegna ekki?
Ég veit það eiginlega ekki. Sennilega vildi ég
bara vera frjáls, laus og liðugur. Þaö er líklega
kjánalegt. Þaö hljómar allavega kjánalega nú
þegar ég segi það. Sérstaklega vegna þess aö ég
sækist ekki markvisst eftir þessum hlutum.
Þvert á móti held ég að fullnægjuna sé á endan-
um aö finna í fjölskyldulífi. Þaö hefur bara ekki
verið mitt líf.
„Á The River reynir hann að
snúa til baka. Á plötunni eru
nokkur lög um sambandið
milli fólks. Þetta fólk reynir
að finna huggun hvert hjá
öðru."
En nú ertu alltaf að semja lög um samband
karls og konu. Hvað finnst móður þinni um
þetta?
Ég á ítalska ömmu og þetta er þaö eina sem
hún hefur áhuga á. I hvert sinn sem ég heimsæki
hana spyr hún: „Hvar er kærastan þín? Hvenær
ætlarðu að gifta þig?”
Geturðu yfir höfuð staðið í venjulegu
ástarsambandi?
Því ekki þaö. Ég hef verið á föstu ööru hvoru.
Ég var með stelpu sem ég hitti í Clarence
klúbbnum. Eg er bara ekki að sækjast eftir
hjónabandi núna. Núna ætla ég aö sinna minni
vinnu og annað verður að sitja á hakanum. En
ebihvera tíma ætla ég að fá mér konu, krakka og
allt heilagalleríiö.