Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1985, Side 15
DV. LAUGARDAGUR 5. J ANOAR1985.
Bílar
Bflar
Bflar
Bflar
Bflar
Ford Sierra XR4i eða Merkur XR4 Ti, eins og ameríska útgáfan heitir.
Ford Sierra:
■oro oierra: •
eiga Bandaríkjamenn
að kaupa evrópskan Ford
Til þess að bílar teljist vera „heims-
bílar” eða með öðrum orðum seljist
um allan heim þá verða þeir að seljast
jafnt í Bandaríkjunum, „landi
bílsins”, sem og í öðrum heimshlutum.
Nú hafa þeir hjá Ford tekið þá
stefnu að gera Ford Sierra að sh'kum
heimsbíl og þar með ná upp sölu á
bílnum á Bandaríkjamarkaði.
Vissulega er griuidvöllurinn fyrir
hendi því undanfarin ár hafa banda-
rískir bílaframleiðendur og einnig
kaupendur snúið sér æ meir aö
evrópsku línunni í bílaiönaöinum og
margt af því besta sem boöiö hefur
verið fram hjá bandarísku bíla-
smiðjunum hefur borið svip frá
Evrópu.
Ford Sierra er kynntur á Banda-
ríkjamarkaði sem sportútgáfa undir
nafninu Merkur XR4 Ti en er í reynd
sérútgáfa af Sierra XR4i sem verið
hefur á markaði í Evrópu.
Bíllinn er seldur hjá um 800
söluaðilum Mercury-Lincoln í Banda-
ríkjunum en framleiddur hjá Ford í
Vestur-ÞýskalandL
Hugmyndin á bak við Sierruna á
Bandaríkjamarkaði er af hálfu Ford
að mæta samkeppninni frá öðrum
evrópskum gæðabílum, svo sem BMW.
XR4 Ti er búinn fjögurra strokka,
2,3 lítra vél með forþjöppu og
elektrónískt stýrðri beinni innspýt-
ingu. Með fimm gíra kassa eru um 175
hestöfl til ráðstöfunar en sjálfskipta
útgáfan (þriggja þrepa) er 145 hö.
Mótorinn uppfylhr strangar kröfur
Bandaríkjamanna um mengunar-
vamir, en samt er hér verulegur
kraftur aukalega miðað við þau 150
hestöfl sem evrópska Sierran hefur
yfir aö ráða. Reynsla Bandaríkja-
manna sýnir nefnilega aö um 30% af
vélaraflinu hverfur þegar búiö er aö
útbúa bilana mengunarvarnarbúnaði
,J5mission Control” og blýlaust bensin
er notað.
Ford í samkeppni
við sjálfan sig
Nokkur samkeppni við Sierra kemur
frá eigin framleiðslu Ford, eða Ford
Tempo, sem einnig er með 2,3 htra vél
og er í raun ekki svo ólíkur Sierra í út-
liti, og má í raun segja að með Tempo
sé sambærilegur bíll nú þegar á
Bandarikjamarkaöi þótt Tempo sé
mun fátæklegar búinn búnaöi en Sierra
XR4Ti.
Aukin gæði
Bandarísku bílasmiðjumar hafa
undanfarín ár barist fyrir hærri gæða-
staðli á framleiðslu sinni og nú segjast
þeir hjá Ford geta mælt 55% bata á
þessu sviði hjá sér, og raunar má
einnig merkja þaðá sölunni.
Ford Tempo fékk að vísu ekki mikiö
Ford Mustang er enn góður sölubíll í Bandarikjunum. Hér er Mustang GT með fimm lítra V-8 vél og fimm gíra
kassa. t Bandaríkjunum kostar slíkur bill um 9500 dollara, eða um 386 þúsund krónur. Heldur yrði billinn dýrari
kominn hingað til lands.
Bandaríkjamenn sækjast nú aftur eftir stærri og kraftmeiri bílum eins og þessum
Lincoln Continental Mark VIILSC. Vélin er V-8,5 lítra og með beinni elektrónískt
stýrðri innspýtingu.
hrós þegar hann kom fram á sjónar-
sviðið og í umfangsmiklum saman-
burði hjá bandaríska blaðinu
„Consumer Guide” fékk Tempo 3,3
stig (en gefið er frá 1 upp í 5 og 5 er
hæst). Þetta samsvarar meðalbílnum.
16 mismunandi atriði voru skoðuð og
dæmd.
Ford Sierra er annars að verða
meiri háttar sölubíll hjá Ford. Fram-
leiðslan um allan heim er nú að ná 700
þúsund bílum.
Bandaríkjamenn vilja
stærri bíla
Ford Escort er einnig til sölu á
Bandaríkjamarkaöi en hefur ekki náð
eins góðri fótfestu. Þaö væri hægt aö
framleiða fleiri bíla í samsetningar-
verksmiðjunni í Wayne í Michigan, en
eftirspumin er ekki næg. Ástæðan er
sú að Bandaríkjamenn hafa aftur
snúist til stærri bíla, eftir japanska —
og evrópska „smábílaævintýrið”.
Þetta á sér margar orsakir en þær
helstar að stöðugleiki á bensínverði í
Bandaríkjunum hefur aukist og heldur
hefur verðið dalað undanfarið og er að
komast undir einn dollar fyrir gallonið
(3,785 htrar) sem samsvarar um tíu
krónum fyrir lítrann.
-JR
(Politiken)
Hér er Mustanginn í blæjuútgáfu.
Umsjón:
Jóhannes Reykdal
Prófun:
BRYNGUÁI
HEIMA í
BÍLSKÚR
Það kann mörgum að þykja skrýtið að I
fara að ræða um bón á bílum á þessum I
árstima. Flestir setja vel bónaða og fall-1
ega bíla í samband við sumar og sól en [
staðreyndin er sú að nú á þessum árs-1
tima reynir fyrst verulega á að verja [
lakkið fyrir skemmdum miklu frekar en á
sumrin.
Saltausturinn á götumar og tjaran sem [
af honum leiðir er einn helsti óvinur |
lakksins á bílunum. Tjaran sest á lakkiö |
og veldur þvi að óhreinindin setjast enn [
frekar á bílinn, saltið hreiðrar um sig i |
óhreinindunum og byrjar að tæra lakkið.
Því sterkari bónhúð sem er á lakkinu [
því frekar getum við varnað tæringar-1
áhrifum saltsins og því vænst lengri líf-1
daga lakksins og þar með bílsíns.
Mikið af því bóni sem á markaði er |
byggist á þvi að nægilega létt sé að vinna [
það svo að mönnum fallist ekki hendur að |
bóna bilinn og nái jafnframt fallegum |
svip á bilinn.
Á undanförnum árum hafa komið fram |
nýjar tegundir bóns, svonefndur „bryn-
gljái” sem gefið hefur lakkinu aukna [
vemd og myndað húð yfir lakkið sem |
langvarandi gljáa. Fyrst var hér um að |
ræða bón sem sett var á á sérstökum bón-
stöðvum en síðar hafa komið fram teg-1
undir sem eru þannig að venjulegir bil-
eigendur geta bónað með slíkum „bryn-
gljáa” heima hjá sér.
Umsjónarmaður bílasíðunnar tók sig til |
nú i haust og reyndi ágæti einnar siikrar |
bóntegundar og nú fimm mánuðum
seinna ætti að vera komin reynsla á það [
hvort slikt bón stenst þær kröfur sem til |
þess eru gerðar.
Bónið sem hér um ræðir er af tegund-1
inni „Ultra Gloss” og segjast framleið-
endurnir ábyrgjast ágæti þess i allt að 18
mánuði.
Á brúsann hefur innflytjandinn Háberg I
Skeifunni látið setja íslenskar leiðbein-
ingar um meðferð bónsins sem eru til |
fyrirmyndar um slíka vöru.
Bíllinn, sem bónið var reynt á, er Benz I
á fermingaraldri og til að tryggja sem
besta útkomu var farið nákvæmlega eftir
leiðbeiningunum á brúsanum. Gamla
bónið var hreinsað vel af og siðan borin á
fyrri umferðin af tveimur af bóninu. I
fyrri umferð er bónið nuddað vel inn eða [
þar til lakkið fer að gljá vel undan bón-
áferðinni. Þegar einni slíkri umferð var [
lokið þá var seinni umferðin borin á og '
nú eins og venjulegt fljótandi bón. Bónið |
látið þorna og siðan þurrkað vel yfir.
Útkoman:
Nú, þegar saltaustur hefur veriö á göt-1
ur og umhleypingar, var kominn tími til I
aö skoöa útkomuna. Á bílstjórahliö, eöa
þeirri hliö sem snýr aö umferö, var komin
dálítil tjaraísem auövelt var aö þurrka áf I
en á þeirri nliö sem frá umferöinni snýr I
var nær engin tjara. Ein létt umferö meö
því sem afgangs var í bónbrusanum frá [
því í sumar nægöi til aö gera lakkiö aftur I
sem nýtt. Greinilegt er þó aö þvi meiri
vinna sem lögö er í undirbúning bónsins [
því betri verður útkoman og endingijn.
Nú, þegar aöalsalttíminn gengur i garö !
er því tilvalið að drífa bílinn inn í skúr eöa I
á næstu bílaþjónustu og gefa honum eina
yfirferö af einhverju þvi „bpýngljáabóni” I
sem völ er á. Þaö er hálfs dags puö sem |
borgarsig vel.
-JR I
Einn svona brúsi dugar til aö gefa bílnum
góöa vörn í nokkra mánuöi og reynslan
sýnir aö mun auðveldara er að þvo |
óhreinindin af.