Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1985, Page 19
DV. LAUGARDAGUR 5. JANÚAR1985.
47
<£ARTfi
Walt Disney kvikmyndaf yrirtækið hef ur snúið vörn í sókn og haf ið f ramleiðslu
kvikmynda sem hættar eru að falla undir f jölskylduhugtakið
Þaö má segja aö þaö sé árlegur at-
burður hér í kvikmyndahúsum borg-
arinnar aö einhver endursýnd mynd
frá Walt Disney-kvikmyndageröar-
félaginu skjóti upp kollinum. Þetta er
mjög eölilegt þar sem Walt Disney hef-
ur skapað margar ógleymanlegar
teiknimyndapersónur eins og Mikka
mús og Plútó. 1 55 ár hefur nafn Walt
Disneys veriö nátengt hugmyndum
markaöi einnig nýja braut þegar hann
hóf aö selja ýmsar neysluvörur sem
voru tengdar teiknimyndahetjum
hans. Má þar nefna skyrtur,
tannbursta og úr sem voru merkt í bak
og fyrir meö t.d. Mikka mús. Hápunkt-
urinn var þegar hann byggöi
Disneyland þar sem hluta þess er skipt
niöur í minni einingar sem tengdar eru
k vikmyndum hans.
semþeirhafs
söngva- og dansmyndarinnar Popeye
um hina frægu teiknimyndafígúru.
Síðan fylgdi galdramyndin Dragon-
sleyer en líkt og áöur nutu þessar
myndir ekki jafnmikilla vinsælda og
ætlast var til. Aöaltekjur Disney-kvik-
myndaversins voru fyrir gamlar
myndir sem höfðu verið dregnar fram
í dagsljósið og dustaö af rykið. Sem
dæmi um hve kvikmyndadeild þeirra
UMBROTASAMIR
TÍMAR
Hvað varö af hinum góða starfsanda innan Disney-fyrirtækisins?
Ein nýjasta myndin sem Walt Disney-kvikmyndaveriö stendur aö er myndin
COUNTRY með Jessica Lange og Sam Shepard í aöalhlutverkum.
manna um góöa fjölskylduskemmtun,
annað hvort í formi kvikmyndar eða
sem heimsókn á einhvern skemmti-
garð og útivistarsvæði sem Walt
Disney-félagiö hefur látiö gera. Hver
man ekki eftir auglýsingum íslenskra
dagblaöa þar sem Walt Disney-myndir
voru auglýstar sem „skemmtun fyrir
allafjölskylduna”?
En fyrirtæki á borö viö Walt Disney-
kvikmyndaverið þarf fleira en aö
endursýna myndir til aö geta dafnað
og stækkaö. Undanfarin ár hafa verið
því erfið í skauti því aðsókn aö
skemmtigöröum þeirra hefur staöið í
staö og kvikmyndadeildin hefur tapaö
miklum fjármunum vegna mynda sem
gerðar voru og enginn vildi sjá. Auk
þess hefur verið hart barist bak við
tjöldin um völd í Walt Disney-fyrirtæk-
inu sem hefur gert stjórnendum þess
enn erfiöara fyrir að leysa öll þau
vandamál sem blasa viö.
Erfið ár
Astæðuna fyrir lélegri útkomu hjá
Walt Disney-fyrirtækinu má rekja til
20 ára tímabils sem einkenndist af
getuleysi og hikandahætti stjórnenda
þess. Þetta á þá sérstaklega viö um þá
deild sem framleiöir kvikmyndir. Walt
Disney, er stofnaöi fyrirtæki sitt upp
úr 1920, stjómaði því af mikilli rögg-
semi og dafnaði þaö vel undir fram-
sýnni og dugmikilli stjórn hans. Þegar
Walt Disney lést 1966 myndaðist áöur-
greint tómarúm. Svo virðist sem
stjórnendur fyrirtækisins hafi ekki
fylgst meö þeim breytingum sem voru
aö gerast í þjóöfélaginu og haldiö aö
gamla formúlan sem Disney haföi not-
aö meö góöum árangri myndi gilda um
ókomna tiö.
Disney sjálfur haföi lagt grunninn að
þeirri framtíöarborg sem Disney-fé-
lagið byggöi og nefnist Epcot Center.
Síöan hefur fátt nýtt komið fram hjá
Walt Disney-fyrirtækinu. Er þetta
mjög sorglegt þar sem Disney-fyrir-
tækiö varð fyrst til aö framleiða teikni-
myndir með samhæfðum tóni, fyrst til
að framleiða teiknimynd sem var í lit
og einnig má segja aö Disney-félagið
hafi rutt brautina fyrir því að gera
teiknimynd í fullri lengd. Walt Disney
Kvikmyndadeildin
En lítum aöeins nánar á kvikmynda-
deild fyrirtækisins. Eftir aö Walt
Disney féll frá hélt kvikmyndaver
hans áfram á sömu braut og hann haföi
markað, þ.e. aö framleiöa myndir sem
höfðuöu til allrar fjölskyldunnar.
Fyrstu árin gengu mjög vel, ekki síst
vegna þess aö einhver hugvitssamur
handritahöfundur haföi komið fram
meö tillögu um að gera kvikmynd um
lítinn fólksvagn sem væri gæddur
mannlegu eðli. Þannig varö til myndin
The Love Bug sem varö söluhæsta
myndin 1969.
En árið 1976 gerðist það í fyrsta sinn
í 9 ár aö tekjur vegna sölu kvikmynda
minnkuöu miðað viö áriö á undan. Svo
virtist sem gamla formúlan gengi ekki
lengur. Ákveöiö var því aö kynna
„nýja Disneylínu” og fólst hún í þvi að
reynt var að höföa til eldri og breiðari
aldurshóps. Þessi ákvöröun var tekin
með þaö í huga aö á síðastliönum 20
árum haföi börnum á aldrinum 5—13
ára fækkaö úr 18,2% niður í 13,6% af
bandarísku þjóðinni. Ein fyrsta
myndin sem gerð var eftir þessari nýju
línu var Peter’s Dragon og Freaky
Frlday sem Barbara Harris og Judy
Foster léku í. En þessi lína virtist held-
ur ekki ætla að veröa vinsæl. Þaö var
e.t.v. vegna þess aö á svipuðum tíma
kom ný tegund fjölskyldumynda fram
á sjónarsviðiö meö stjörnustríðs-
myndir Georges Lukas í fararbroddi.
Svo virðist sem Disney-kvikmynda-
verið hafi ekki fylgst nógu vel með og
séö hver þróunin var. Þaö var ekki fyrr
en 1979 aö kvikmyndaveriö ákvaö aö
taka þátt í leiknum og gerði sína
dýrustu mynd sem gerðist um borö í
geimskipi úti í himingeimnum og hlaut
nafniö The Black Hole. En Disney-
kvikmyndaveriö kom of seint meö
þetta framlag sitt og því náöi þessi
mynd ekki þeim vmsældum sem menn
höföu gert sér vonir um og nauðsynleg-
ar voru til að ná inn kostnaði.
Breyting á stjórn
Disney-kvikmyndaveriö reyndi
síðan næst fyrir sér í samvinnu við
Paramount-kvikmyndaveriö með gerö
gekk illa þá voru tekjurnar af henni
1979 20% af öllum tekjum fyrirtækisins
en 1983 eöa fjórum árum síðar var
tapiö um 33 milljónir dollara. Þar
munaði mest um myndirnar
Something wicked this way comes og
Throne sem báöar voru mjög dýrar en
genguilla.
Nú virðist ætlunin aö hleypa nýju
blóði í kvikmyndadeildina. 1983 var
ráöinn sem framkvæmdastjóri kvik-
myndaversins Richard Berger sem
áður starfaði sem yfirmaður hjá
Twentieth Century Fox-kvikmynda-
verinu. Hans tillaga var aö stofna nýja
einingu sem skýrð var Touchstone
Films. Berger fékk fyrirskipun um aö
framleiöa kvikmyndir fyrir eldri
áhorfendur en á sama tíma aö
viðhalda ímynd Walt Disneys út á viö.
Disney-félagið haföi einnig nýlega
stofnaö kapalrás sem nefnist Disneý
Channel og ætlunin er aö sýna myndir
þeirra á þeirri rás. Því miöur hefur
þessi rás heldur ekki gengiö eins vel og
menn vonuöu.
Betri tímar
Ein af fyrstu myndunum er Touch-
stone Films-deildin framleiddi var hin
gífurlega vinsæla mynd Splash sem
sýnd var nýlega í Bíóhöllinni. Myndin
varð vinsæl og gekk vel vegna þess aö
hún var gerð eftir góðu handriti, góðir
leikarar voru í öllum hlutverkum og
góð leikstjórn. Þótt Splash gengi vel þá
voru aðstandendur kvikmyndaversins
hikandi en eftir aö næsta mynd á eftir,
Never Cry Wolve varö næstum því
jafnvinsæl og Splash þá fór aö lyftast á
þeim brúnin. Nú er stefnan oröin sú hjá
fyrirtækinu aö Walt Disney-kvik-
myndaverið framleiöir kvikmyndir
sem höfða til allrar fjölskyldunnar en
Touchstone Films-deildin framleiöir
myndir sem höfða til eldri áhorfenda-
hóps. Samt sem áður er þess gætt aö
myndir frá Touchstone séu ekki of
blóðugar né klámfengnar. „Viö
myndum aldrei gera eins blóðuga
mynd og Scarface,” var haft eftir
aðstoðarmarkaðsfulltrúa fyrirtækis-
ins. „Við viljum gera kvikmyndir sem
eru álíka og Ordinary People, Kramer
Vs Kramer, The Right Stuff og The Big
Kill.”
En þaö eru ekki allir jafnsannfæröir
um aö Disney-kvikmyndaveriö sé á __
réttri leið þó að þaö sé farið að græða
peninga aftur. Margir segja aö vel-
gengni þess með Splash myndina sé
líklega það versta sem gat komið fyrir
kvikmyndaverið. „Þegar öll önnur
kvikmyndaver eru aö reyna aö gera
kvikmyndir fyrir börn eins og t.d. Star
Wars og E.T. þá er Walt Disney-kvik-
myndaveriö aö reyna að fara í hina átt-
ina. Ástæðan fyrir því aö myndir þess
gengu illa áður fyrr var ekki sú aö þær
báru merki Disney. Þær uröu ekki
vinsælar vegna þess að þær voru ekki
geröar í anda Walt Disneys. Heldur þú
t.d. aö fólk heföi ákveðið að sjá ekki
Star Wars ef hún heföi verið gerö af
Walt Disney?” Þetta eru rök þeirra
sem halda aö Disney-kvikmyndaverið
sé ennþá á rangri hillu.
Það nýjasta í pokahorninu hjá Walt
Disney er kvikmyndin Retum To Oz
ásamt myndinni The Black Cauldron.
Þessar myndir munu skera úr um þaö
hvort þessi breyting á stjóm kvik-
myndaversins sé aö skila sér eða hvort
vinsældir þessara mynda frá 1983 hafi
verið tilviljun ein. Walt Disney-kvik-
myndaveriö er einnig aö gefa mörgum
nýjum leikstjórum tækifæri til að
spreyta sig og er þaö vel. Einnig hefur
heyrst nefnt að einn af þekktustu leik-
stjómm Hollywood, sjálfur Steven
Spielberg, hafi gefiö vilyrði fyrir því að
leikstýra einni Walt Disney-mynd. Það
verður því gaman að fylgjast meö
hvaö gerist hjá Walt Disney-fyrirtæk-
inu á næstunni og hvort því tekst aö
snúa vöm í sókn. Hvað sem gerist þá
munu hinar gömlu teiknimyndir þeirra
ieins og Fantasia.og Mjallhvít og dverg-
.arnir sjö lifa í hug og hjarta okkar um
ókomna framtíð.
-Baldur Hjaltason.