Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1985, Side 6
28
DV. FÖSTUDAGUR1. FEBRUAR1985.
Leikhús — Leikhús — Leikhús — Leikhús
Aljona og Ivan
var vel tekið
Þjóðleikhúsið
Gæjar og píur
Þessi söngleikur virðist ætla að slá
öll aðsóknarmet og tala áhorfenda er
nú komin yfir 30.000. Tvær sýningar
veröa um helgina og er þegar upp-
seit á þær báðar. Þessar sýningar
eru á föstudags- og laugardagskvöld.
Karimommubærinn
Barnaleikritið gefur söngleiknum
ekkert eftir hvað aðsókn varðar og
hefur verið uppselt á allar sýning-
arnar til þessa. Tvær sýningar um
helgina og uppselt á þær báðar, á
laugardag kl. 14.00 og á sunnudag kl.
14.00. Sýningin á sunnudag er 20.
sýningin á ieiknum.
Skugga-Sveinn
Leikrit Matthíasar Jochumssonar
um Skugga-Svein og félaga hans í út-
legöinni verður í allra síðasta sinn á
fjölum Þjóðleikhússins á sunnudags-
kvöld. Síðast var uppselt og því viss-
ara að tryggja sér miða tímanlega.
Gertrude Stein
Nýjasta sýning Þjóðleikhússins er
þessi uppfærsla á merkilegu banda-
rísku leikriti eftir Marty Martin.
Helga Bachmann leikur ötilhiut-
verkið, Gertrude, og er það reyndar
eina hlutverkið í leiknum.
Leikfélag Akureyrar
sýnir um helgina verkið Ég er gull og ger-
semi eftir Svein Einarsson. Sýning verður á
laugardag kl. 20.30.
Revíuleikhúsið
Litli Kláus og stóri Kláus
Sýningar á laugardag og sunnudag
kl. 14. 1 aðalhlutverkum eru Júlíus
Brjánsson og Þórir Steingrímsson.
Sýningum fer að fækka vegna
húsnæðisleysis. Miöapantanir allan
sólarhringinn í sima 46600.
Leiklistarskóli
fslands
Aljona og Ivan
Sýningar þriðja bekks Leiklistar-
skóla Islands og nemenda Tónlistar-
skóla Reykjavíkur verða í Lindarbæ
á föstudag og sunnudag kl. 17. Sjálf-
virkur símsvari 21971.
Um síðustu helgi frumsýndi þriðji
bekkur Leiklistarskóla Islands og
nemendur úr Tónlistarskólanum í
Reykjavík bamaleikritið Aljona og
Ivan í Lindarbæ.
Unga fólkið þótti standa sig mjög
vel á fyrstu sýningunni og var vel
fagnað. Leikritiö Aljona og Ivan er
sovéskt ævintýri. Segir í því frá
töfratré einu sem er m.a. gætt þeim
eiginleikum að geta talað og læknaö
alla sjúkdóma.
Þórunn Sigurðardóttir er leikstjóri
en tónlistina samdi Finnur Torfi
Stefánsson, nemandi í tónfræöideild
Tónlistarskólans. Búninga gerði
Anna Jóna Jónsdóttir. Einn gesta-
leikari er í sýningunni og er það
Jóhann Sigurðarson.
Aljona og Ivan verður sýnt tvisvar
um þessa helgi i Lindarbæ. Á
morgun og sunnudag kl. 17.00 en
einnig er leikritið sýnt á þriðju-
dögum.
-klp.
Eirikur Guðmundsson í hlutverki
sínu í barnaleikritinu Aljona og
Ívan.
Leikhús — Leikhús
Leikfélag
Reykjavíkur
Félegt fés
Annað kvöld veröur aukasýning á
skopleiknum Félegt fés eftir Dario
Fo í Austurbæjarbíói.
Agnes — barn guðs
Sýning í kvöld. Með hlutverk fara
Guðrún S. Gísladóttir, Guðrún Ás-
mundsdóttir og Sigríður Hagalín.
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdótt-
ir.
Dagbók önnu Frank
Sýning annaö kvöld. Guðrún Krist-
mannsdóttir leikur önnu Frank.
Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson.
Gísl
Á sunnudagskvöldiö er svo Gísl.
Fimmtán leikarar leika, syngja og
spila í sýningunni.
íslenska óperan
Óperan Carmen
Hún verður sýnd í kvöld og annað
kvöld kl. 20.1 sýningunni eru á annað
hundrað manns með hljómsveit. Sig-
ríður Ella syngur í Carmen á ný og
er Olöf Kolbrún aftur í hlutverki
Micaelu.
I
Kvikmyndahús — Kvikmyndahús
Bíóhöllin
I fullu fjörl (Reckless) er dæmi-
gerð unglingamynd meö tilheyrandi
tónlist. Fjallar hún um strák og
stelpu er koma úr ólíku umhverfi.
Hann er fátækur og uppreisnargjam
ungiingur. Hún er falleg og af fínu
fólki. Samt falla hugir þeirra saman.
I sal 2 er öllu merkilegri kvikmynd,
1984. Mynd ársins í fyrra má með
sanni kaila þessa spádómsmynd sem
gerð er eftir hinni frægu skáldsögu
George Orwells. Þama gefst kvik-
myndaáhorfendum tækifæri til að
sjá Richard Burton í sínu síðasta
hlutverki. Meðal annarra leikara er
ágætisleikarinn John Hurt.
Háskólabíó
I Háskólabiói er gamanmyndin
Vistaskipti (Trading Places). Vista-
skipti er víðfræg gamanmynd sem
farið hefur sigurför um hinn vest-
ræna heim. Fjallar hún um tvo
menn, annar er ríkur og virtur kaup-
sýslumaður, hvítur á hörund. Hinn
er svartur öreigi. Kaupsýslumaður-
inn er neyddur til að hafa skipti á
vinnu við öreigann. Það eru þekktir
gamanleikarar í aðalhlutverkum.
Dan Aykroyd, sem við þekkjum úr
Ghostbusters, leikur kaupsýslu-
manninn og „undrabarnið” Eddie
Murphy leikur öreigann.
Laugarásbíó
Firestarter er mynd sem gerð er
eftir skáldsögu eftir Stephen King. Á
undanförnum tveim árum hafa
a.m.k. fjórar sögur hans verið kvik-
myndaðar. Sögur Kings fjalla oftast
um einhverja dulræna atburði. Svo
er einnig fariö með Firestarter.
Fjallar hún um unga stúlku sem
gædd er þeim eiginleikum aö geta
með augunum kveikt í hverju sem
er.
Nýja bíó
Dómsorð (The Verdict) er lög-
fræðidrama af betri gerðinni. Paui
Newman leikur lögfræðing sem má
muna tímana tvenna. Hann tekur að
sér mál sem í fyrstu virðist vonlaust,
en með þrautseigju tekst honum að
vinna málið. Myndin er sérstaklega
eftirminnileg vegna leiks Paul New-
man. Hefur hann líklega aldrei gert
betur á sinum langa leikferli. Dóms-
orði er stjómað af Sidney Lumet.
Regnboginn
Þaðeruað' venju nokkrar athyglis-
verðar kvikmyndir í Regnboganum.
I vikunni frumsýndi Regnboginn
Cannonball Run II, sem er framhald
samnefndrar kvikmyndar er naut
mikilla vinsælda á sínum tíma,
enda hin besta skemmtun. Cannon-
Prince ásamt Apollonia Kotero er leikur aflalkvenhlutverkið í Purple
Rain.
Austurbæjarbio:
Purple Rain
I gær tók Austurbæjarbíó til sýn-
ingar víðfræga tónlistarmynd,
Purple Rain. Myndin er ekki ein-
göngu fræg vegna gæða sinna kvik-
myndalega séð, heldur er hún fyrst
og fremst fræg vegna þess að aðal-
stjarnan og einn af framleiöendum
myndarinnar er ungur maöur,
Prince að nafni. Prince þessi er
kannski sá eini í dag sem kemst eitt-
hvað nálægt Michael Jackson aö
frægð í Bandaríkjunum sem popp-
stjama. Aftur á móti er það eina sem
þeir eiga sameiginlegt fyrir utan tón-
listina það að þeir eru báðir svartir.
Það er yfirleitt litið á Michael sem
góða barnið. Prince aftur á móti er
hinn villtasti og eru ekki allar gerðir
hans jafnsakleysislegar. Með Purple
Rain hefur hann samt skapaö sér
nafn sem listamaður sem vert er að
taka mark á.
Eitt er merkilegt við kvikmyndina.
Innanborðs er nær eingöngu fólk sem
ekki hefur komið nálægt kvikmynd-
um áður. Er þar meðtalinn handrits-
höfundurinn og leikstjóri Purple
Rain, Albert Magnoli. Purple Rain er
upplögð kvikmynd fyrir alla þá er
hafa gaman af popptónlist. -hk.
Kvikmyndahús
ball Run II þykir nokkru síðri en
fyrirrennari hennar. Þó er þarna
saman kominn heill hellingur af
frægum nöfnum. Má nefna Burt
Reynolds, Shirley MacLaine, Dean
Martin og Sammy Davis Jr.
Ulfadraumar. Hin ágæta kvik-
mynd Neil Jordans er hin besta
skemmtun. Gömlu ömmuævintýrin
fá nýja úttekt í merkilegri kvik-
mynd. Síðasta mynd franska meist-
arans Francois Truffaut, Nágranna-
kona, veldur fáum vonbrigðum sem
hana sjá.
Stjðrnubíó
Stjörnubió sýnir nýjustu kvikmynd
leikstjórans John G. Avildsen, The
Karate Kld. Fjallar hún um ungan
strák sem hefur löngun til að verða
bestur í karate. Eftir strangar æfing-
ar og sjálfsögun verður honum að
ósk sinni. I Stjörnubíói eru tvær
aðrar úrvalsmyndir þótt ólíkar séu,
gamanmyndin Ghostbusters og leik-
húsmyndin The Dresser.
Tónabíó
Rauð dögun (Red Dawn). Fjallar
hún um ímyndaöa innrás austur-
blokkarinnar inn í Bandaríkin og
unga menn sem fara úr háskólanum
í skæruhemað. Leikstjóri er John
Milius sem á að baki nokkrar ágætar
myndir. HK.
Hvað er á seyði um helgina? — Hvað er á seyði um helgina? — Hvað er á seyði um helgina?
Tilkynningar
Viltu hætta að reykja?
Námskeið fyrir þá sem vilja hætta að
reykja byrjar í hugvisindahúsi Há-
skóla Islands, stofu 101, sunnudags-
kvöldiö 3. febrúar kl. 20.30. Þar segja
læknar frá skaðsemi reykinga.
Stjórnandinn, Jón Hjörleifur Jónsson,
kennir fólkinu að f ást við reykingavan-
ann. Sýndar verða kvikmyndir, lit-
skyggnur, fjölbreyttu fræðsluefni
dreift út — raunar allt gert sem hægt
er til að tryggja fólki sigur á reyking-
unum. Þetta er vel í samræmi við nýju
löggjöfina og breytt almenningsáiit
varðandi reykingamar.
Opið hús hjá AFS á íslandi
AFS á Islandi (alþjóöleg fræðsla og
samskipti) halda „opið hús” sunnu-
daginn 3. febrúar nk. kl. 15.30 í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi í Breið-
holti. Skiptinemar sem eru nýkomnir
frá Suður-Ameríku mæta og segja frá
reynslu sinni. Allir velkomnir.
Skaftfellingamót
Skaftfellingamót 1985 verður haldiö á
Hótel Borg laugardaginn 9. febrúar og
hefst með borðhaldi kl. 19.30. Rósa
Þorbjamardóttir, endurmenntunar-
stjóri KHI, flytur hátíðarræðu, kór
Söngfélagsins syngur og Magnús
Gunnarsson stjórnar almennum söng.
Síöan dunar dans. Það er tríó Þor-
valdar sem heldur fjörinu uppi til kl.
03.00. Aðgöngumiðar verða seldir í
Skaftfellingabúö, Laugavegi 178,
sunnudaginn 3. febrúar kl. 14—16.00.
Þar verða sömuleiðis veittar nánari
upplýsingar um samkomuna í síma
39955.
Flóamarkaður Félags
einstæðra foreldra
verður haldinn í Skeljanesi 6, kjallara,
á morgun, laugardaginn 2. febrúar og
sunnudaginn 3. febrúar milli kl. 14 og
17. Leið 5 að endastöð. ATH., á laugar-
dag kosta allar flíkur 10 kr. A
sunnudag verða sértilboð á stór-
glæsilegum fatnaði, leðurjökkum, ind-
verskum kjólum og fleiru.
Kvennahúsið, Hótel Vík
Laugardagskaffi og umræður kl. 13.
Nomlr og galdratrú. Eru tengsl á milli
nornaofsókna miðalda og kvennabar-
áttu nútímans. Lisa Smalesche segir
frá hugmyndum um það.
Neskirkja — samverustund
aldraðra
verður á morgun laugardag kl. 15.
Heimsókn í athvarf aldraðra í Ármúla
32. Kynnt verða réttindi ellilífeyris-
þega á afslætti af ýmiss konar þjón-
ustu á höfuðborgarsvæðinu, kaffiveit-
ingar. Farið frá Neskirkju. Þátttaka
tilkynnist kirkjuverði í síma 16783 milli
kl. 17 og 18.
Sr. Frank M. Halldórsson.