Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.1985, Blaðsíða 1
DV. FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR1985. 19 ús — Myndbönd o.fl Dansstaðir — Matsölustaðir — Leikhús — Sýningar Ferða- kynning 1 Þórs- café Aö vanda veröur ferðahátíð í Þórs- kaffi á sunnudagskvöld. Kynntar verða ferðir á vegum ferðaskrifstof- unnar Terru á Laugavegi 28 til ítölsku Rivierunnar, Gardavatns og Mílanó og þá flug og bíll innifalið. Þórskabarett veröur á fjölunum að vanda og gómsætur matur. Farið verður í samkvæmisleiki og munu þeir snjöllustu fá vinning. Spilað veröur bingó um ferðirnar til Italíu en stjórn ferðahátíðarinnar verður í höndum Guðlaugs Tryggva Karls- sonar eins og vant er. -klp- Shanghai — nýr kínverskur veitingastaður í Reykjavík 1 dag verður opnaöur í Reykjavík nýr kínverskur veitingastaður sem hlotið hefur nafnið Shanghai. Er hann til húsa á Laugavegi 28, í kjall- aranum. Veröur þar á boöstólum ekta kínverskur matur, að sögn eig- enda. Þetta er vínlaus veitingastað- ur — í það minnsta til að byrja með. Við munum segja nánar frá þessum nýja stað, sem verður, eins og fyrr segir, opnaður í dag, í næsta helgar- kálfi. -klp- WHAM! hátíð Mikið hefur verið fjallað um Wham! og Duran Duran og eins og flestir muna var nýlega haldin Dur- an Duran hátíð í Traffic með pomp og prakt. Vegna fjölda áskorana frá aðdá- endum hljómsveitarinnar Wham! ætla þeir í Traffic að verða við þeirri ósk að halda Wham! hátíð laugar- daginn 23. febrúar fyrir 16 ára og eldri og á sunnudaginn milli kl. 3 og 6 fyrir yngri krakkana. Þar verður boðið upp á dans og tískusýningu, lukkumiða, sérstakan Wham! drykk, veittur veröur glaön- ingur fimmtánda hverjum gesti, svo verður videoband í gangi með Wham! Einnig er áætlaö að stofna Wham! klúbb. Má geta þess að nú þegar eru 2000 meðlimir í Duran Duran kiúbbnum svo nú þýðir ekkert annaö fyrir Wham! aðdáendur en aö fjölmenna í Traffic og styðja sína súkkulaðidrengi. Taka skal fram að verslunin hjá Hirti leggur fram plaköt og glaðn- ing. Sg/ESS Bítlasyrpa — f rumsýnd 1 Sjallanum í kvöld Þorvaldur Halldórsson á sviðinu í Sjallanum um síðustu helgi. Þorvaldur Halldórsson gerði held- ur betur lukku í Sjallanum á Akur- eyri um siðustu helgi en þá kom hann fram opinberlega þar í fyrsta sinn í 12 ár. Var honum geysilega vel fagn- að og þakið ætiaði nánast af húsinu þegar hann tók topplagiö sitt frá þvi í gamla daga, Á sjó. Þorvaldur verður ekki á sviðinu þar aftur um þessa helgi þó margir Akureyringar óskuöu þess. Þar verð- ur frumsýnt á föstudaginn nýtt dans- atriði frá dansstúdíóinu Alice. Ber þetta nýja dansatriði nafnið Bítla- syrpa og er þá að sjálfsögðu dansað við undirleik laga frá bítlatímabil- inu. Þá mætir hinn glæsilegi Bjössi bolla Sveinsson á sviöið í Sjallanum á föstudaginn. Hann átti afmæli í vik- unni — á bolludaginn — og verður ör- ugglega í ofsaformi í SjaUanum eins og jafnan þegar hann er þar. Á laug- ardagskvöldið er Sjallinn lokaður vegna einkasamkvæmis. -klp- Ef þú vilt dansa NAUST Vesturgötu 6—8 Reykjavik, simi 17759. Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar leikur á föstudags- og laugardagskvöld. ÓÐAL v/Austurvöll Reykjavik, simi 11630. Diskótek á föstudags- og laugar- dagskvöld. RlÓ, Smiðjuvegi 1 Kópavogi, sími 46500. Gömlu dansarnir föstudagskvöld, Jón Sigurðsson og félagar leika. Einkasam- kvæmi laugardagskvötd. Samkvæmis- dansar + diskó sunnudagskvöld. SAFARi Skúlagötu 30 Reykjavík, sími 11555. Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. SIGTÚN v/Suðurlandsbraut Reykjavík, sími 685733. Diskótek föstudags- og laugar- dagskvöld. ÁRTÚN, Vagnhöfða 11 Reykjavík, simi 685090. Gömlu dansarnir föstudags- og laugar- dagskvöld, hljómsveitin Drekar ásamt söngkonunni Mattý Jóhanns. BROADWAY, Álfabakka 8 Reykjavík, sími 77500. Ríó- kvöld á föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar leikur fyrir dansi. GLÆSIBÆR, v/Álfheima Reykjavík, sími 685660. Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi á föstudags- og laugardagskvöld. Ölver opið. HÓTEL BORG, Pósthússtræti 10 Reykjavík, sími 11440. Diskótek föstudagskvöld. Einkasam- kvæmi laugardagskvöld. Á sunnudags- kvöld leikur hljómsveit Jóns Sigurðssonar fyrir gömlu dönsunum. HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL, Suðurlandsbraut 2 Reykjavik, sími 82200. Á föstudags- og laugardags- kvöld leika Haukur Morthens og félagar fyrir dansi. Ástandið og Guðmundur Haukur leika á sunnudags- kvöld. Tiskusýning öll fimmtudags- kvöld. HOLLYWOOD, Ármúla 5 Reykjavík, sími 81585. Diskótek á tveim hæöum föstudags- og laugardagskvöld. HÓTEL SAGA v/Hagatorg Reykjavik, sími 20221. Einkasamkvæmi á föstudagskvöld, hljómsveit Magga Kjartans leikur fyrir dansi. Einkasamkvæmi á sunnudags- kvöld. Dúett Andra og Sigurbergs leikur á Mimisbar alla helgina. Grillið opið. KLÚBBURiNN, Borgartúni 32 Reykjavik, sími 35355. Diskótek á þrem hæðum á föstudags- og laugardagskvöld. KÓPURINN, Auðbrekku 12 Kópavogi, simi 46244. Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar leikur fyrir dansi á föstudags- og laugar- dagskvöld. Bjórbúllan opin öll kvöld. LEIKHÚSKJALLARINN v/Hverfisgötu Reykjavik, simi 17759. Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. SKIPHÓLL, Strandgötu 1 —3 Hafnarfirði, sími 52502. Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi á föstudagskvöld og Fjörorka á laugardagskvöld. Kráarhóll opinn frá kl. 18 bæði kvöldin. TRAFFIC, Laugavegi 116 Reykjavík, sími 10312. Diskótek fyrir alla 16 ára og eldri á föstudags- og laugardagskvöld. YPSILON, Smiðjuvegi 14D Kópavogi, sími 72177., Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. ÞÓRSKAFFI, Brautarholti 20 Reykjavík, sími 23334. Þórskabarett á föstudags- og laugar- dagskvöld. Hljómsveitirnar Pónik og Einar og Dansband Önnu Vilhjálms leika fyrir dansi. Ferðakynning frá ferðaskrifstofunni Terru á sunnudags- kvöld. Akureyri SJALLINN Hljómsveit Ingimars Eydals leikur fyrir dansi á föstudagskvöld, dansstúdíóið Alice frumsýnir bítlasyrpu, Magnús Ólafsson (Bjössi bolla) sprellar. H-IOO. Diskó í gangi á öllum hæðum hússins föstudags-, laugardags- og sunnu- dagskvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.