Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Blaðsíða 12
12 DV. FÖSTUDAGUR 26. APRlL 1985. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HAR ALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SlOUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI ll.SÍMI 27022. Simi ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf„ Skeifunni 19. Áskriftarveröá mánuöi 330 kr. Verð í lausasölu 30 kr. Helgarblaö35 kr. Þríhöföa þursinn 1 ævintýrum eru algengar frásagnir af þursum, sem höföu þá náttúru, að væri af þeim höggvinn hausinn, þá spruttu jafnskjótt þrír hausar í staðinn. Slíkt ævintýri á nú að gerast hjá þursanum Framkvæmdastofnun ríkisins samkvæmt þremur nýjum lagafrumvörpum ríkisstjóm- arinnar. I stað Framkvæmdastofnunar ríkisins eiga samkvæmt frumvörpunum að koma Býggðastofnun, Framkvæmda- sjóður Islands og sérstakt fyrirbæri, sem er nafnlaust, af því að stjómarflokkamir gátu ekki komið sér saman um, hvort heita ætti Þróunarsjóður eöa Þróunarfélag. Samkvæmt frumvörpunum er ekki gert ráð fyrir, að lögð verði niöur nein starfsemi, sem nú er á vegum Fram- kvæmdastofnunar. Ekki er einu sinni vikið að dæmum um slíkt í greinargerðunum, sem fylgja. Þvert á móti er gert ráð fyrir auknum umsvifum eins og hjá þursum ævintýranna. Stærsti hausinn af hinum þremur nýju er Byggðastofn- un, sem á að taka við Byggðasjóði, svo og áætlanadeild og lánadeild gamla þursins. Samkvæmt opinberri hefð á Is- landi fylgir þessu nafnbreyting. Áætlunardeild verður áætlunargerð og lánadeild verður lánastarfsemi. Auk þess á hin nýja stofnun aö fá ný verkefni, því að of- angreind atriði eru bara „hluti” af fyrirhugaðri starf- semi þessa hauss þursans. Ekki kemur þó fram, hver þau verkefni skuli vera, enda talið heppilegast að takmarka sem minnst vaxtarmöguleika haussins. Enda er mikið í húfi. Byggðastofnun á ekki að sporna gegn, heldur beinlínis „koma í veg fyrir”, að „óæskileg” byggðaröskun eigi sér stað. Þetta á að gerast með lánum, ábyrgðum og óafturkræfum framlögum. Hið síðasta er stofnanamál og þýðir styrkir á íslenzku. Til að koma í veg fyrir byggðaröskun á stofnunin að hafa til ráðstöfunar, og þaö verðtryggt, 0,5% af þjóðar- framleiðslu hvers árs. Núna mundi þetta nema 385 millj- ónum króna, ef standast spár um þjóðarframleiðslu árs- ins. Þetta skilst bezt í samanburði við þriðja hausinn. Hinn nafnlausi þróunarsjóður eða -félag á að fá hjá rík- inu, ekki í styrk, heldur að láni, 200 milljónir króna, ekki árlega og verðtryggt, heldur í eitt skipti fyrir öll. Enda á örverpið að kosta göngu þjóðarinnar inn í tölvuöld og ann- að slíkt, sem raskað gæti byggð. Stærð miðhaussins er svo einhvers staðar á milli hinna tveggja, sem þegar hefur verið sagt frá. Framkvæmda- sjóður á að taka við hlutverki Mótvirðissjóðs og annars sjóðs, sem raunar heitir Framkvæmdasjóður. Á því sviði virðist hafa gleymzt að skipta um nafn. I heild má segja, að hinn þríhöfða þursi sé verðugur árangur af markvissum og þrautseigum undirbúningi helztu vitringa stjómarflokkanna. Myndast nú góðir möguleikar á frekari útþenslu í atvinnu hjá ríkinu, betri en núna eru í gamalli Framkvæmdastofnun. Þá marka frumvörpin þrjú þá grunnmúruðu stefnu, að ríkið skuli fara með fjármagn þjóðarinnar til að tryggja, að það lendi í sem minnstum mæli í greinum, sem horfa til framtíðar, og í sem mestum mæli í greinum, sem horfa til gullaldar fyrri tíma. Stjómarflokkamir tveir vita vel, eins og raunar fleiri stjómmálaflokkar, að framtíðin er óvisst og hættulegt fyrirbæri, sem ber að forðast, en fortíðin er traust og ör- ugg. I faðm hennar liggur því leiðin. Jónas Kristjánsson. „Svo »afjandl stemmning sam Hkir A landsfundum Sjálfstesðisfiokksins kom i vag fyrir afl venjulegir landsfundarfulltrúar gerflu sér grain fyrir afl þeir höfflu verið notaflir sem tilraunadýr." F ramsóknarmennska Mikiö öryggisleysi kallar oft fram hjá mönnum og konum ofsakótínu. Þannig var landsfundarfulltrúum Sjálfstæöisflokksins fariö, en lokahóf landsfundarins var eitthvert þaö fjörugasta sem menn hafa upplifaö. Landsfundarfulltrúar fundu aö þessi landsfundur var ööruvísi en þeir áttu aö venjast. öryggisleysi þeirra skapaðist af því aö þeir áttu erfitt með að átta sig á í hverju þessi landsfundur hafði veriö ööruvísL Tilraunadýr Svo sef jandi stemmning sem ríkir á landsfundum Sjálfstæöisflokksins kom í veg fyrir aö venjulegir lands- fundarfulltráar geröu sér grein fyrir því aö þeir höföu veriö notaöir sem tilraunadýr. Þorsteinn Pálsson, talsmaöur þjööarsáttarinnar, haföi notaö þá sem tilraunadýr i þjóðar- sáttarmálinu. Landsfundurinn var kallaður saman undir sósíalísku víg- orði: Allir sem einn. Tillögum lands- fundarmanna, sem beindust gegn SlS eöa framsóknarlegu fýrirkomu- lagi kosninga hér á landi, var um- svifalaust vísað frá eöa i saltkistu miöstjómar Sjálfstæöisflokksins. Að lokum var samþykkt stjórn- málaályktun svo almennt oröuö, aö hver einasti allaballi heföi getaö skrifaö undir hana, eins og einn landsfundarf ulltrúi orðaöi þaö. Þar meö höföu landsfundarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins sannað þaö aö þeir eru reiðubúnir að taka þátt i þeirri tegund þjóðarsáttar sem Þorsteinn Pálsson stefnir að, þ.e.a.s. ekki þjóöarsátt heldur floldcasátt. Allir flokkar sem einn. Og þá er Þor- steinn Pálsson fýrst og fremst að hugsa til gamla flokkakerfisins. Framsóknarhlýðni Þor- steins Pálssonar Þorsteinn Pálsson, formaöur Sjálf- stæöisflokksins, sagöist hafa oröiö var við áhyggjur flokksmanna sinna af áhrifum SIS á rikisstjórn Sjálf- stæöisflokksins og Framsóknar- flokksins. Það er greinilegt af orðum formannsins aö hann áttar sig ekki á því að þessa dagana er Þorsteinn Pálsson vinsælli maður hjá SlS en hjá Sjálfstæöisflokknum. Fram- sóknarhlýðni formanns Sjálfstæöis- flokksins er alger. Þegar Steingrímur Hermannsson, fram- kvæmdastjóri rfkisdeildar SIS, ætlar að úthluta 500 nýsköpunarmilljónum í gegnum bitlingastjóm Fram- kvæmdastofnunar hefur Þorsteinn Pálsson ekkert við þaö aö athuga. Hann hefur ekkert viö þaö aö athuga aö SlS, Framkvæmdasjóðsdeild, sjái um úthlutun þessara peninga sem Kjallarinn STEFÁN BENEDIKTSSON ALÞINGISMAÐUR I BANDALAGIJAFNAÐARMANNA. ætlaö er aö renna nýjum stoöum undir atvinnulíf Islendinga. Þorsteinn Pálsson hefur þegar áunniö sér mikla viröingu hjá SlS. Af hegöun hans mætti stundum ætla aö hann væri ungur maöur ó uppleið í Framsóknarapparatinu. Þorsteinn Pálsson hlaut nýlega hæstu einkunn í kjördæmapoti fyrir þá hugmynd að niðurgreiða sunnlenskar kartöflur svo frainleiða mætti kartöfluflögur úr þeim fyrir noröan. Hann hefur líka hlotiö afreksmerki fyrir sanna framsóknarmennsku vegna tillagna sinna um breytta peningastjórnun í þessulandi. Rikisdeild Framsóknar- flokksins Það hefur verið vandamál hjá SIS aö erfitt er að stjórna ríkisdeildinni f gegnum Framsóknarflokkinn vegna þess hve undirdeildirnar eru marg- ar. Þorsteinn ætlar aö leysa þaö með þeim eldhug sameiningarinnar sem jafnvel gæti lyft augabrúnunum á Albaníu-komma. „Sameinaðir stönd- um vér, sundraðir föllum vér,” er slagorð dagsins. „Allir sem einn,” „sameinum sjóðina”, „sameinum ríkisbankana” og næst kemur vænt- anlega „sameinum flokkana”, því þaö er ólíkt auöveldara aö sinna póli- tískri sjóöastjórn og bankastjórn meö einum f lokki en mörgum. Þegar íslenskt launafólk á þess kost að ferðast meö hollensku flug- félagi til Evrópu fyrir minna gjald en meö Flugleiöum eða Arnarflugi, þ.e.a.s. fyrir viðráöanlegt gjald fyrir launþega, þá situr Þorsteinn Pólsson meö Albert Guömyndssyni og öörum framsóknarmönnum í rQcisstjórninni viö að kanna á hvern hátt sé hægt aö koma í veg fy rir þetta fyrirbæri, sem gengur í framsóknarmunni undir nafninu „óheilbrigösamkeppni”. Maður báknsins Menn skyldu ekki gleyma því aö hin fyrsta dáð þessa unga formanns aö nýloknu kjöri hans var þaö aö reyna að pota fyrrverandi þing- manni í bankastjórastól. Telja menn slíkan verknaö bera vott um baráttu fyrir minnkim ríkisafskipta? Telja menn slikan verknaö bera vott um áhuga á auknu sjálfstæði ríkisstofn- ana? N Þó tekur steininn úr þegar Þor- steinn Pálsson fer aö tala um hug- takið stétt meö stétt og leggja út af þvi. Hálf er ég hræddur um aö for- verar hans í formannsstóli myndu margir hverjir ranghvolfa í sér augunum ef þeir gætu til hans heyrt. Hér sýnir Þorsteinn Pólsson ekki einungis sanna framsóknar- mennsku heldur verður hann hér aö svo hreinræktuðum allaballa aö ekki gengur hnifurinn á milli hans og Ásmundar Stefónssonar. „Allir sem einn,” segir formaðurinn og stingur. síðan upp á því aö leysa öll fram- tíðarvandamál þjóðarinnar i einni allsherjarnefnd ríkisstjómar, vinnu- veitenda og launþega. KjaramóL at- vinnumál og húsnæöismáL öll mál skuli rædd og leyst í þessari nefnd. Ef ekki næst samkomulag um þessa nefnd og tillögur til úrbóta þá finnst Þorsteini Pálssyni rétt að kjós- endur fói aö segja álit sitt. En hvaö ef samstaöa næst um þessa nefnd og störf hennar? Hvað ef Sjólfstæðis- flokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag mætast sáttir í þessari nefnd? A þá aldrei f ramar að kjósa, Þorsteinn Pálsson? Stefán Benediktsson. a „Þorsteinn Pálsson hefur þegar ^ áunnið sér mikla virðingu hjá SlS. Af hegðun hans mætti stundum ætla að hann væri ungur maður á uppleið í Framsóknarapparatinu. ’ ’

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.