Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1985, Page 14
Fyrirtæki til sölu Til sölu fyrirtæki sem verslar með vörur fyrir sjávarútveg, tilvalið fyrir einn til tvo aðila. Fyrirtækið hefur mikla vaxt- armöguleika. Verðhugmynd 1.500,000 — 2.000.000, góðir greiðsluskil- málar. Lysthafendur vinsamlegast leggi nafn og uppl. inn á af- greiðslu DV, Þverholti 11, fyrir 1. maí merkt F—12. HÖGGl DEYFAR í EFTIRTALDA JEPPA: j BROIMCO Einnig SCOUTI1 stýrisdemparar PÓSTSENDUM BLAZER JEEP OGFLEIRI !__________________________________________________________________________________________________________________________________________, iaayB^B p, HABERG HF, Skeifunni Sa — Simi 8»47»88 Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar skemmdar eftir umferðaróhöpp: Subaru 1800 st. Volvo 244 turbo Daihatsu Charmant Mazda 323 Wagoneer Dodge Monaco Datsun Cherry DX árg.1984. árg. 1982. árg. 1979 (tveir bílar). árg. 1980. árg. 1974. árg. 1977. árg. 1983. Bifreiðarnar verða til sýnis að Smiðjuvegi 1, Kópavogi, laugardaginn 27. apríl frá kl. 13.00 til 17.00. Tilboðum skal skilað til aðalskrifstofu, Laugavegi 103, fyrir kl. 17.00 mánudaginn 29. apríl. Brunabótafálag íslands. SVEFNSÓFAR Verð f ró kr. 10.800,- Eigum enn nokkra tveggja manna svefnsófa á lager. BORGAR- húsq&qn Hreyfilshúsinu á horni Grensásvegar og Miklubrautar. Sími 68-60-70. Úrvalid hjá okkur er meira en þig grunar. / DV. FÖSTUDAGUR 26. APRÍL1985. Menning Menning Menning Símon H. ivarsson og Siegfried Kobilza eru lagflir upp i þriðju reisu sina um landið. DV-mynd VHV LANDSREISA — gítaríeikaranna Símonar H. ívarssonar og Siegf ried Kobilza, hin þriðja, er haf in Gítarleikaramir Símon H. lvarsson og Siegfried Kobilza eru nú lagöir upp í þriöju tónleikaferö sína um landiö. 1 kvöld halda þeir tvenna tónleika á Akranesi en siöan stefna þeir austur á land og þaöan norður og vestur um. Alls ætla þeir að halda um 20 tónleika. Efnisskráin er töluvert frábrugðin því sem verið hefur í fyrri tónleikaferöum þeirra félaga. Símon sagöi DV aö ,,áöur lögöum viö áherslu á flamengó- tón'Jst. Nú munum við einbeita okkur aö klassískum verkum. Aö vísu eru þar meö spánskir höfundar sem hafa orðiö fyrir miklum áhrifum frá flamengótónlistinni. Verkin eru eftir Bach, Bethoveen, Falla og Bocherini. Þar að auki ætlum við aö kynna verk eftir nútímatónskáldiö John Duarte, góðan höfund en litt þekktan. Kynning á klassík Ástæöan fyrir þessari breytingu er m.a. sú aö áður þurftum við að hafa með okkur tvo gítara hvor. Nú ætlum viö aö minnka farangurinn. Aðal- ástæöan er reyndar sú að tilgangur tónleikanna nú er aö kynna klassiska gítartónlist og gitarleik”. Fram til þessa hafa þeir félagar haldið um 40 tónleika víös vegar um landiö. Fyrsta tönleikaferöin var farin áríö 1979. Síðan lögöu þeir aftur land undir fót árið 1982 og nú er komiö aö þriðju ferðinni. Ævintýraferð Siegfried sagði aö fyrir sig væri þaö „miklu meira ævintýri að leika hér en i Evrópu. Eg undrast hvaö landsmenn eru hrifnir aö klassískum gítarleik. Það eru þessar undirtektir sem valda því aö ég hlakka alltaf til aö koma og spila hér. Skipulagið er líka ekki eins rígbundiö og í Evröpu. Hér gerist alltaf eitthvað óvænt. Erlendis veit maður meö margra ára fyrirvara hvað mun gerast á þessum og þessum tónleikum. Síðast þegar ég var hér lék ég á fyrstu gítartónleikunum sem haldnir hafa verið á Breiðdalsvík. Hálf um mánuði síðar spilaði ég í Carnegie Hall. Þetta eru ólíkir staðir en ég veit ekki á hvorum þeirra var skemmtilegra aðspila”. Og nú tekur Símon viö: „Þaö samdist meö okkur fyrir ári síðan að leggja í nýja tónleikaferð. Ég hef séö um skipulagiö. Það er ævintýri út af fyrir sig. Eg byrjaði á aö senda út um 20 bréf til kynningar. Aðeins einn áræddi að svara. Síöar komst ég að því aö margir óttuðust aö kostnaöur viö tónleikana yröi of mikill því þaö þyrfti að borga okkur. Yfirieitt leikum viö á vegum tónlistarfélaga eða tónlistarskóla sem ekki hafa úr miklu að spila. Við komumst þó aö samkomulagi um kostnaöinn þannig aö við sleppum sléttir út úr ævin- týrinu. Þeir sem viö leikum fyrir greiöa útlagöan kostnaö en viö leggjumtilvinnuna. Á stööum sem eru fjarri Reykjavík er greinilega mikill áhugi fyrir aö fá einhverja til að halda tónleika. Þeir sem búa nær höf uðstaðnum eru aftur á móti vantrúaðri á að til nokkurs sé að bjóða upp á menningarlegar sam- komur. Nálægðin viö alla menninguna í Reykjavik viröist draga úr þeim kjark. Áhugi fyrir austan Eg get nefnt tónleika sem viö höldum á morgun á Borgarfiröi eystra sem dæmi um hvernig þetta gengur fyrir sig. Við gleymdum að gera ráö fyrir tónleikum þar þegar við skipulögöum feröina um Austur- land. Fyrir nokkrum dögum var hringt að austan og viö beðnir aö hafa Borgfiröinga ekki útundan, þaö gerðist alltof oft. Með tilfæringum tókst þó aö finna tíma enda voru heimamenn tilbúnir til aö gera allt fyrir okkur. Ég haföi heyrt það áður að menningarsamkomur væru vel sóttar þar. Þeir á Borgarfirði eystra höföu aftur á móti mestar áhyggjur af að við kæmumst ekki ef hann gerði norðaustan átt meö snjókomu. En svona er þessi tónleikaferð skipulögð. Sveitarstjórinn í Hrísey sér um tónleikana þar. Tónlistar- félögin á Egilsstöðum og i Olafsvfk á sínum stööum og þannig mætti lengi halda áframaönefna dæmi. ’ ’ Frumlegt skipulag Siegfried er greinilega hrifinn af skipulaginu. „Svona nokkuð þekkist hvergi annars staöar. Erlendis eru umboösskrifstofur. Eg hef umboðs- mann sem sér um allt skipulag og semur um tónleika með árs fyrir- vara og þaðan af meira. Ég læt hann taka þessa daga til að koma til tslands frá. Fyrst þegar ég kom hingað hélt ég að þetta yröi þægilegt sumarleyfi til aö prófa einu sinni. Kynni mín af þjóöinni og vináttan við Símon valda því að ég er nú komin í þriöju feröina. Þeir sem ætla sér aö lifa af tónlist verða helst að spila í stórum húsum, annaö borgar sig ekki. Þaö sem er ómótstæðilegt við aö koma hingað er ánægjan af aö spila þar sem svo vel er tekiö á móti manni. ” „Ef vonin um gróða ætti að ráða,” bætir Simon við, „þá væri þetta aumasti bissnes sem um getur. Ein af ástæðunum fyrir að ég fer í svona ferðir er þörfin fyrir að halda sér við í greininni. Tónlistarmenn verða engu siður en íþróttamenn aö halda sér i formi. Nú svo er ódýrara að halda marga tónleika því ákveðinn grunnkostnaður er alltaf sá sami. Ur því að á annað borö er byrjað er eins gott aö nýta tækif ærið til f ullnustu. Siegfried á þá líka kost á að sjá meira af landinu. Hann lítur á þetta sem ævintýri. Erlendis spilar hann fýrir 40 þúsund á kvöldi en hér fýrir ánægjuna eina.” Að lokinni ferðinni um landið eru líkur á að þeir Símon og Siegfried haldi til Færeyja og leiki í Norður- landahúsinu. Ástandið þar á bæ er reyndar þannig um þessar mundir að enginn getur ákveöið hvað á að gera í húsinu. Það ætti þó ekki að hefta för þeirra félaga lengi. GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.