Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Page 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAl 1985.
Úrslitin kunn i Fegurðarsamkeppni íslands 1985. Efst til vinstri Helga Melsteð, ungfrú Reykjavfk 1985. Sitj-
andi frá vinstri: Hólmfriður Karlsdóttir, er varð númer tvö, Halla Bryndis Jónsdóttir, fegurðardrottning ís-
lands 1985, og Sif Sigfúsdóttir er varð númer þrjú. Fyrir aftan Sif er Halla Einarsdóttir fró Vestmannaeyj-
um en yst til hsagri hvíslast þeir ó, Rod Stewart og Davið Oddsson. DV-myndir: GVA.
„Sannkallað
ævintýri”
— sagði Hólmfríður
Karlsdóttir
„Mér líður alveg ofsalega skringi-
lega, skrítin tilfinning að lenda í öðru
sætinu, ég er auðvitað alveg himinlif-
andi, bjóst alls ekki við því. Þetta er
sannarlega búið að vera mikil lífs-
reynsla að standa í þessu, afskap-
lega gaman, búinn að vera samstillt-
ur og góður hópur, sannkallað ævin-
týri að vera meö í þessu öllu saman,”
sagði Hólmfríður Karlsdóttir, sem
varð í öðru sæti í keppninni.
hhei.
Halla Bryndis ósamt foreldrum sinum Jóni Bjarnasyni og Hildi Marfu
Unnarsdóttur. „Ég trúi þessu ekki, óg er svo hissa," sagði Hildur
Marfa. „Ég óska henni alls góös, að hún verði öllum til sóma, þetta var
stórkostlegt allt saman."
Mikið um dýrðir á Broadway í gærkvöldi:
Tvítug Reykjavíkur-
mær f egurðar-
drottning 1985
„Þetta er glæsilegasta kvöld sem
haldið hefur verið á Islandi fyrr og
síðar með alheimsstórstjörnum,”
sagði Baldvin Jónsson, umboðsmað-
ur erlendra fegurðarsamkeppna
hérlendis og skipuleggjandi Fegurö-
arsamkeppni Islands.
Og sannarlega var mikiö um dýrð-
ir á Broadway á krýningarkvöldinu í
gærkveldi.
Fegurðardrottning Islands 1985
var kosin Halla Bryndís Jónsdóttir,
tvítug Reykjavíkurmær. I öðru sæti
varð Hólmfríður Karlsdóttir, 21 árs
Garðbæingur og í þriðja sæti varð Sif
Sigfúsdóttir, 17 ára Garðbæingur en
ættuð úr Vestmannaeyjum.
Á milli skemmtiatriða komu hinir
þrettán þátttakendur í fegurðarsam-
keppninni fram í baðfötum og síð-
kjólum auk þess sem hver og ein
svaraði einni óundirbúinni spumingu
er dómnefnd lagði fyrir þær.
Er nálgaðist lokaathöfnina, sjálfa
krýninguna á fegurðardrottningu Is-
lands 1985, kynnti Baldvin Jónsson
einn heiöursgestinn og líklegast þann
er gestir biðu eftir með hvað mestri
eftirvæntingu, sjálfan rokkkónginn
Rod Stewart. Björgvin Halldórsson
söng tilbrigði úr nokkrum þekktum
lögum kappans og fékk ekki einung-
is góðar undirtektir áheyrenda held-
ur einnig rokkkóngsins sem ekki
bara tók undir með Björgvin Hall-
dórssyni heldur söng þrjú lög sjálf-
ur, Swinging Rock and Roll, To-
night’s the Night og I’m Sailing, við
geysileg fagnaðarlæti gesta í Broad-
way. Það var auöséð aö Rod Stewart
kunni vel að meta veisluhöldin á feg-
urðarsamkeppninni í gærkvöldi og
hreint ótrúlegar undirtektir gesta.
„Meira en bjartsýnustu menn
höfðu þorað að vona, þið segið barna-
börnunum frá þessu,” sagði Páll
Þorsteinsson, kynnir keppninnar,
himinlifandi.
Nú var klukkan farin að nálgast
miðnættiö og eftirvænting í salnum
farin að aukast, brátt skyldi kiýna
ungfrú Reykjavík og síðast en ekki
síst ungfrú Island 1985. Davíð Odds-
son, einn heiðursgesta kvöldsins,
krýndi Helgu Melsteð, 17 ára versl-
unarmær, ungfrú Reyk javík.
Eftir krýningu ungfrú Reykjavík-
ur kom loks að hápunkti kvöldsins,
krýningu ungfrú Island 1985.
..Feguröardrottning Islands 1985
er Halla Bryndís Jónsdóttir,” hljóm-
aði í Páli Þorsteinssyni og mikil
fagnaðarlæti brutust út. Rod Stewart
kyssti Höllu Bryndísi lauflétt á vang-
ann og færði henni blómvönd en feg-
urðardrottning Islands 1984, Berg-
lind Johansen, tók síðan ofan kórón-
una og krýndi hina nýju fegurðar-
drottningu, Höllu Bryndísi Jónsdótt-
Davið Oddsson krýnir Halgu Mel-
steð ungfrú Reykjavík 1985.
ur,
—sjá einnig myndir á bls. 38
„Hiyllilega er kalt héma,” sagði Rod Stewart við komuna:
VINKONUNA
VANTAÐISOKKA
„Hryllilega er kalt héma,” sögðu
þau Rod Stewart og vinkona hans,
Kelly Emberg, þegar þau stigu út úr
flugvélinni frá Glasgow á Keflavíkur-
flugvelli um fjögurleytið í gær. Rod
Stewart var sólbrúnn og sællegur en
vinkona hans virtist illa haldin af
kulda.
Blaðamaður DV átti stutt spjall við
þau skötuhjúin á flugvellinum:
— Viltu spá einhverju um úrslitin í
landsleiknum á morgun?
„Ja, ég veit ekki? Skotland vinnur
ömgglega. Ætli það fari ekki 2—0 fyrir
okkur.
— Ætlar þú aö troöa upp á meöan þú
ert hérna á Islandi?
„Eg efast um að ég verði í stuði til
þess. Það stendur ekkert um það í
samningnum.”
Kelly Emberg var afskaplega illa
klædd viö komuna í gær; í minipilsi og
peysu einum fata. Stewart virtist vera
umhugað um heilsufar hennar: „Hana
vantar aö komast niöur í bæ til að
kaupa sér sokka,” sagði hann og
spuröi hvort ekki væru einhverjar
verslanir opnar.
— Er hún bara í þessu?
„Nei, hún er með kápu í
farangrinum, en það er svo ótrúlega
kalt héma,” sagði hann.
Rod Stewart sagðist ætla að skella
sér á völlinn og sjá unglingalandsleik
Skota og Islendinga í Kópavogi þá um
eftirmiðdaginn, og virtist hann vera
sannur fótboltaunnandi. Vinkona hans
ætlaöi heim á hótel aö undirbúa sig
f yrir kvöldiö í Broadway.
Nokkur mannfjöldi hafði safnast
saman á flugvellinum til að fylgjast
með komu Rod Stewart. Stewart og
föruneyti hans biðu hvorki eftir
töskunum sínum né heldur lögðu þau
leið sína í Fríhöfnina. Þau brunuðu
beinustu leið út úr flugstöövar-
byggingunni og inn í gljáfægðan BMW
sem beið fyrir utan. Þaðan var förinni
heitið á Hótel Loftleiðir, þar sem
Stewart mun búa á meðan á dvölinni
stendur. Að loknum landsleik Skota og
Islendinga á Laugardalsvelli í kvöld
flýgur hann heimleiðis í einkaþotu.
-EH
Rod Stewart rœðir við blaðamann DV og spyr hvar sé hœgt að kaupa sokka.
DV-mynd GVA.
Aðdóendur Rod Stewart biðja um eiginhandaréritun fyrir utan
flugstöðvarbygginguna.