Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Qupperneq 7
7 DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAl 1985. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Mörk: Stjúpur og f jóla vinsælustu blómin „Þaö eru stjúpumar og fjólan sem eru vinsælustu sumarblómin. Þær hafa alltaf verið þaö og verða þaö alltaf,” sagði Pétur Olason í Mörk í samtali við DV. I Mörk voru sumarblómin á 18 kr. Þau stærri, eins og dalíur og tóbaks- hom, á 90 kr. Þar var til gott úrval af fjölærum plöntum, margar á 60—80 kr.,einnigál00kr. Mörk hefur sérhæft sig í runnum og trjáplöntum og er úrvalið af þeim gifurlega mikið. Gróðrarstööin er umvafin einkagarði þannig að bæði runna- og trjátegundirnar njóta sín mjög vel og smekklega. Nú býður Möric upp á stilkrósir eftir nokkurt hlé og eru þær allar á 250 kr. „Þetta hefur verið þægilegt vor en ræktunin samt ekki mikið fyrr á ferðinni. Kannski þaö hafi verið heldur þurrt,” sagði Pétur í Mörk. -A.Bj. -.V: Gróflrarstöðin Mörk ar umvafin fallegum gróðri og allt umhverfi hennar mjög snyrtílegt. DV-mynd Vilhjólmur Olían hæsti gjaldaliðurinn „Þá koma hér tölumar úr april- uppgjörinu. Þær eru heldur hærri en siöast en sumt ætti líka að duga í nokkra mánuöi,” segir m.a. í bréfi frá konu á Vestfjörðum sem lengi hefur verið með okkur í heimilisbókhaldinu. Matur og hrónlætisvörur eru upp á rúmL 6400 kr. en heimilismenn eru aðeins tveir. Meðaltalskostnaöur er þvíuppárúml. 3200 kr. „Liðurinn annaö er upp á 9300 kr. Er olían þar hæst eins og alltaf eða tæpl. 1900 kr.” Þá sendir þessi kona okkur verðkönnun sem verkalýðsfélagið gerði í febrúar og færum við henni þakkir fyrir. -A.Bj. ALLAR STÆRÐIR HðPFERÐABfLA SÉRI.EYFISBlLAR akureyrar h.f. FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR H.F. RÁRHÚSTORGI 3. AKUREYRI StMI 25000 Hi-sound Takkasími m/skífuvali og 10-númera minni. Vegghulstur og kló innifalið í verði. 1.700.- kr. 5 metra framlengingar- dós á 590,- kr. Höfum einnig síma - tengla og -klær fyrir- liggjandi á lager. Útsölustaðir um allt land. Sendum í póstkröfu. RRFEIHu 5F. Síðumúla 4, s. 91-687870 Athugi Fresturinn er renna út TUR AF SKATTSKYLDUM TEKJUM AF AIYTN N UREKSTRl Fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa tekjur af atvinnurekstri er nú heimilt að draga 40% frá skatt- skyldum tekjum til að leggja í fjárfestingarsjóð. Frádrátturinn er bundinn því skilyrði að helm- ingur fjárfestingarsjóðstillagsins sé lagður inn á bund- inn 6 mánaða reikning fyrir 1. júlí n.k. vegna tekna árs- ins 1984. Ef reikningsárið er annað en almanaksárið skal lagt inn á reikninginn innan 5 mánaða frá lokum reikningsárs. Innstæður á reikningunum eru verðtryggðar sam- kvæmt lánskjaravísitölu og bera sömu vexti og aðrir 6 mánaða reikningar. Reikningsinnstæðum má ráðstafa að loknum 6 mánaða binditíma, en innan 6 ára. Enn er hægt að njóta þeirra skattfríðinda sem að framan er lýst, við álagningu tekjuskatts og eignaskatts á árinu 1985 vegna tekna ársins 1984. Fresturinn a<5 þessu sinni er til 1. júní n.k. Upplýsingar um stofnun fjárfestingarsjóðsreikninga eru veittar í sparisjóðsdeildum og hagdeild Landsbankans. LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.