Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Qupperneq 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI1985. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Flóttamenn i Chatila biöa og vona að þeir verði ekki fyrir sprengjum eða kúlum eins og fjölmargir vinir þeirra. BardagarniríBeirút: Líkin hrannast upp Óvist er hvort yfirlýsingar Agca um að hann só Jesús Kristur muni hafa óhrif ó róttarhöldin gegn honum og fimm öðrum grunuðum samsæris- mönnum i R6m. AgcaíRóm: „Ég erJesús Kristur" — réttarhöidin hef jast yf ir grunuðum tilræðismönnum Páfa Rauði krossinn hefur gert enn frek- ari tilraunir til að koma særðum Palestínumönnum í flóttamannabúð- um í Beirút til sjúkrahúsa. I gær náði hjálparstofnun að koma 14 alvarlega særðum mönnum út úr búöunum. Flóttamannabúðimar hafa verið umsetnar skæruliðum shíta, sem ætla sér aö ganga milli bols og höfuðs á eftirlifandi palestínskum skæruliðum. Björgunaraðgerð Rauöa krossins í gær stóð aðeins yfir í hálftíma vegna „öryggisvandamála. ” Rauði krossinn reyndi að komast inn í búðirnar tvisvar í síðustu viku, en varð frá að hverfa þegar skotið var á bíla hjálparstofnunarinnar. Palestínumenn segja að hundruð manna séu lokuð inni í búðunum, margir særðir. Að minnsta kosti 250 manns hafa látið lífið í bardögunum og 1.000 særst. Skæruliöar shita sögðu í gær að hætt hefði verið við björgunaraðgerðina vegna þess að Palestínumenn hefðu neitað að sleppa sex shíta-föngum. En talsmaður Palestínumanna sagði þetta vera tylliástæðu til að eyðileggja björgunarleiöangurinn. Hann sagðist ekki vita um neina fanga sem hans menn héldu. Talsmaðurinn sagöi aö lík hefðu byrjað að hrúgast upp í útskotum flóttamannabúöanna. Hann sagöi að Amal-hreyfing shíta héldi nú þúsund- um Palestínumanna föngnum. I Túnis ásakaði Yassir Arafat, leið- togi Frelsissamtaka Palestinumanna, shíta um að hafa myrt 60 Palestínu- menn, konur og börn. Amal segir aö shítar og Líbanonher hafi náð völdum svo að segja í öllum hlutum Sabra og Shatila flóttamanna- búðunum en að bardagar haldi enn áfram viö palestínska skæruliða sem hafi f alið sig í göngum. Frakkland: Vegghrun varð 11 manns að bana Frá Friðriki Rafnssyni, fréttarltara DVíParís: Ellefu manns fórust og átta slösuðust er steinveggur hrundi á tjaldstæði í smábænum Saint-Cyr-Sur- Mer í Suður-Frakklandi á sunnudags- morgun. Meðal þeirra 11 sem fórust vorufimmböm. Allt var þetta fólk á ferðalagi og hafði tjaldaö eöa lagt húsvögnum sínum nærri þriggja metra háum steinveggnum sem hrundi snemma á sunnudagsmorguninn. Engar fullnægjandi skýringar hafa fengist á því hvers vegna veggurinn hrundi, en giskaö er á jarðskrið. Ovenju rigningasamt hefur verið á þessum slóöum undanfarið og jarðvegur því gljúpur. Eins er talið h'klegt að veggurinn hafi einfaldlega verið illa byggður en veggur þessi var reistur fyrir fáum mánuðum. Yfirstandandi rannsókn í málinu mun leiöa það í ljós. Umsjón: Þórir Guðmundsson Mehmet Ali Agca, Tyrkinn sem á- kæröur er fyrir að hafa gert tilræði við páfa, verður í dag spurður í þaula í rétti í Róm um sinn hlut í samsærinu gegn Jóhannesi Páli páfa fyrir fjórum árum. 1 gær lýsti Agca því yf ir að hann væri Jesús Kristur. ,,Eg er Jesús Kristur. Eg er almáttugur. Eg tilkynni heims- endi. Veröldin verður eyðilögð,” hrópaöi Agca frá búri sínu í dóm- salnum. Sakborningarnir eru í fjórum slíkum búrum i salnum. I gær lýsti Agca því úr vitnastúku hvemig honum hefði verið gefin 9 mm Browning byssa f jórum dögum áður en páfi var skotinn. Hann sagði að Omer Bagci, veitingahúseigandi frá Milano, hefði látið sig fá byssuna. Bagci er einnig ákærður fyrir hlutdeild í tilræðinu. 1 búri á milli Bagci og Agca var Musa Serdar Celebi, fyrrverandi yfir- maður Tyrkjafélags í Vestur-Þýska- landi, í fjórða búrinu var Sergei Antonov, hinn búlgarski starfsmaður búlgarska flugfélagsins sem einnig er ákæröur fyrir hlutdeild í tilræðinu. Tveir aðrir búlgarskir sakborningar verða dæmdir að þeim f jarstöddum. I ítalska réttarsalnum voru meðal annarra systir Antonovs, dóttir og móðir, auk búlgarska sendiherrans í Róm. Búlgarar hafa neitað því að nokkrir Búlgarar hafi átt aðild aö morðtilræðinu. Allar fjölskyjdur sem ætla í sumarfrí til útlanda eiga erindi við Úrval, því barnaafsláttur okkar í leiguflugi jafnt sem öðrum ferðum er óviðjafnanlegur. Par að auki eru svo sérstakar fjölskyldu ferðir þar sem 1 barn í 4ra manna fjölskyldu eða stærri fær frítt. DAUN EIFEL Brottföralla sunnudaga ísumar, mjög fá hús eru eftir í júlí og ágúst. Verð frá kr. 11.455.-á mann í 1 viku, frá kr. 14.870.- ítvær vikur, miðað við hjón með 3 börn, eittyngra en 2ja ára og tvö 2ja til 12 ára. MALLORCA Fjölskylduferðir 29/5, 19/6, 10/7 (uppselt) Verð frá kr. 18.830.-á mann, miðað við hjón með 3 börn, eitt yngra en 2ja ára og tvö 2ja til 12 ára. Úrval er ferðaskrifstofa fjölskyldunnar. FERÐASKRIFSTOFAN ÚRVAL Ferðaskrifstofan ÚrvalviðAusturvöll, sími (91)-26900.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.