Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Page 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAl 1985. 15 Háttvísi og fávísi Tilveru menningarþjóðar mó likja við sifeilda samræðu fortíðar, sam- tíðar og framtíðar, við sífellda samræðu visinda, lista og hagnýtra fræða. I þessari samræðu iáta óiikar raddir í sér heyra, og hver hefur sitt að segja. En þessar ólíku raddir verða allar að lúta sömu reglum — ekki um, hvað þær segja, heldur hveraig þær segja það, sem þær hafa að segja. Ein röddin má ekki hækka sig úr hófi, samræðan má ekki breytast í einræðu. Og raddimar verða að nota orð í nægilega líkri meikingu, til þess að þær getí ræðst við, þótt þær kunni að horfa á sama hlutínn hver frá sínu sjónarmiði. Þær hafa ólíkar skoðanir — enda er samræðan ekki skemmtileg nema skoðanir þeirra séu ólikar. En þær veröa allar að tala sömu tunguna, ella hættír samræðan að vera samræða og ummyndast í kappræðu, þar sem hver hrópar upp i annan. I slíkri samræðu er stráks- skapur bannaður. Menn verða að kunna mannasiöi, svo að tekið sé mark á þeim. Þeir verða að gæta fullkominnar háttvísi. Það telst að vísu ekki til tíðinda, að þessar reglur menningarlegrar samræðu séu brotnar. Það gerist á hverjum degi, ekki síst í þeirri hörðu stjórnmáiabaráttu, sem háð er á Islandi. Hitt kann að vera i frásögur færandi, þegar menn, sem taldir eru sæmilega viti bornir, þverbrjóta þessar reglur, en þetta hefur því miður gerst hvað eftir annað síðustu mánuði. Eg á með þessu auðvitað við nýleg skrif þeirra Jóns Ottars Ragnarssonar næringarfræöings í DV og Ama Björnssonar læknis í Morgunblaðinu um frjálshyggju. Þeir hafa brotið tvær reglur menningarlegrar samræðu, því að þeir misnota orð og uppnefna fólk. Þessir tveir menn tala fóvíslega, ekki háttvíslega. Hvað er frjálslyndi? Jón Ottar Ragnarsson gerir í DV greinarmun á frjálslyndi sínu og frjálshyggju Miltons Friedmans, sem sé öfgakredda, meö öllu óskyld skoðun sinni. Jón Ottar misnotar hér mjög orðið „frjálslyndi”. Hvaö merkir það orð? Jón Þorláksson, verkfræöingur og forsætisráðherra, svaraöi þvi svo í Eimreiðinni 1926, að frjálslyndi væri „vöntun á tíl- hneigingu til aö gerast forráðamaður annarra”. Jón Þorláksson hafði síðan orðið „stjómlyndi” um það viðhorf, sem andstætt væri frjáls- lyndi. Þessi skilgreining er hvort tveggja, hygg ég, upphafleg og eðlileg (þótt þeir séu að vísu til, sem noti oröið í annarri og ólikri merkingu: í máli þeirra er „frjáls- lyndi” haft umörlætíá annarra fé). Það vita allir, sem vita vilja, að Milton okkar Friedman er frjáls- lyndur í hinni upphaflegu og eðlilegu merkingu orösins. Hann er jafnvel allt of fr jálsly ndur að margra manna dómi! Hann vill ekki meina öðrum mönnum neins — að því tilskildu að þeir skaði ekki aðra með verkum sinum. Menn mega hans vegna skaða sjólfa sig, en ekki aðra. Hann er þess vegna ekki síður á móti banni við eiturlyfjaneyslu og á móti lög- leiðingu bílbelta en verðlagsá- kvæðum. Um það má auðvitaö deila, hvenær menn skaði aðra með verk- um sínum. Friedman kann að hafa rétt fyrir sér um sumt, rangt fyrir sér um annaö. Getur til dæmis ekki verið, að menn skaði aðra með neyslu sumra eiturlyfja? Þaöbreytir því þó ekki, að hann er frjálslyndur maður, ekki stjómlyndur. En hvað um Jón Ottar sjálfan? Ég get tekið undir margt það, sem hann segir í grein sinni: ríkið á að hætta öllum at- vinnurekstri, og það á að lóta ein- staklinga veita þá þjónustu, sem þeir eru hæfari um að veita en ríkið. Jón Ottar er að þessu marki frjólslyndur. En síðan segir blessaður maðurinn, að stórauka eigi framlög islenska rikisins til vísinda og lista. I þvi efni vill hann með öðrum orðum gerast forráöamaður annarra. Hann vill ekki leyfa skattgreiðendum Kjallarinn HANNESH. GISSURARSON CAND. MAG. sjálfum að ráða því, hvort þeir leggi fram fé til þeirra móla, sem hann ber fyrir brjósti. Að þessu marki er Jón Ottar auðvitað stjómlyndur. Spurningin er hins vegar sú, hvort hann sé sjálfum sér samkvæmur, þannig að hann geti með gildum rökum réttlætt framlög til lista og vísinda, en ekki framlög tíl aukinnar sauðfjárframleiðslu. Ég efast um, að henni geti Jón Ottar svarað, en um hitt efast ég ekki, að hann hafi mis- notað orðið „frjálslyndi”. Miiton okkar Friedman á þá einkunn mikiu f remur skilið en hann. Frjálshyggja ogfasismi Sú grein Jóns Ottars, sem ég hef hér gert að umtalsefni, er þó öllu spaklegri en ein fyrri grein hans, þar sem hann lét að því liggja, að frjóls- hyggja væri náskyld fasisma. En því minnist ég á þessa illræmdu fyrri grein hans, að nýiega varð annar maður tíl þess að jafna frjálshyggju við fasisma í Morgunblaðinu, Ámi Björnsson læknir. Með slíkum hrópum og köllum sýna menn það auðvitað, að þeir kunna ekki þá mannasiði, sem kref jast má af þeim i menningarlegri samræðu. En þeir sýna það líka, að þeir hafa ekkert vald á þeim orðum, sem notuð eru í slíkri samræðu. Þeir kunna ekki þá tungu, sem við hin tölum. Þeir em f á- vísir og þeir eru óhóttvísir. Eg ætla því aö leyfa mér að reyna að fræða þá litillega um merkingu orðsins „fasismi”. Þeir, sem hafa haft fyrir því að kynna sér kenningar Mússólinis, Hitlers og annarra postula fasism- ans, vita, að fótt hötuöust þeir fremur við en frjálshyggju. Fasistar höfnuðu einstaklingshyggju frjóls- hyggjumanna, því að þjóðin eða kyn- þátturinn skipti að þeirra sögn miklu meira máli en einstaklingurinn. Þeir vora hlynntir mjög víðtækum ríkis- afskiptum, ekki sist tíl þess að tryggja að borgararnir höguðu sér „siðlega”, og þeir Mússólíni og Hitl- er ráku báðir áætlunarbúskap. Ekki er heldur úr vegi aö minna á þaö, að Hitler kenndi flokk sinn, Nasista- flokkinn, við þjóðernisstefnu, sam- hyggju og verkalýð (Die National- Sozialistische Arbeiterpartei Deutschlands), og stefnuskrá fiokks- ins var mjög fjandsamleg atvinnu- frelsi og einkaframtaki. Olíkari frjálshyggju gat stefna þeirra satt að segja varla verið! Það er síðan ekkert annaö en arg- asta mógðun við þá Ludwig von Mis- es, Karl Popper og marga aðra fr jálshygg jumenn, sem urðu á sinum tíma að flýja undan hinni brúnu vofu, að kenna skoðun þeirra viö fasisma. Við Islendingar erum svo gæfu- samir, að við höfum aldrei reynt fas- ismann á sjálf um okkur. En hvað um íslenska menntamenn? Jón forseti Sigurðsson var hreinn frjálshyggju- maður, hafði lesið rit þeirra Jean- Babtiste Say (helsta lærisveins Adams Smiths) og Johns Stuarts Mills með mikilli velþóknun. Var Jón forseti fasisti? Þeir Olafur Björnsson prófessor, Matthías Johannessen skáld og Jónas H. Haralz bankastjóri eru í hópi kunnustu frjálshyggju- manna hérlendis. Eru þeir meö sömu rökumfasistar? Skýring kann að visu að vera til á því, að fullorðnir menn geti í góðri trú jafnaö frjálshyggju viö fasisma. Þessi skýring er í sem fæstum orðum sú, að þeir hafi óhyggjur af því, með hvaða hætti menn noti það frelsi, sem þeir hafi í frjálshyggjuskipu- lagi. Við þvi er auðvitaö að búast, að sumir misnoti þetta frelsi, hugsi tíl dæmis ekki vel um heilsu sína. Og verið getur, að menn eins og Jón Ott- ar og Ami kenni um þeim mönnum, sem aðhyllast þetta frelsi. Verið getur, að þeir telji frjálshyggjumenn bera ábyrgð á öUum þeim afleiöing- um, sem frelsið kann að hafa fyrir einstaka menn. En sú skoöun er fráleit. Þeim, sem misnota frelsi sitt, er auðvitað um misnotkun þess að kenna, ekki öðrum. Menn hljóta að bera ábyrgð á sjálfum sér, standa eða falla með verkum sinum. (Og skyldi misnotkun rikisvaldsins ekki hafa haft verri afleiðingar en mis- notkun frelsisins?) Menningarleg samræða Okkur getur greint á um, hvenær menn skoði aðra með verkum sínum og hvort góðar afleiðingar af frelsinu vegi upp á móti illum afleiðingum af því. Um þetta og margt annað skulum við svo sannarlega ræða saman, hlusta á ólikar raddir, læra hvert af öðru. Eg hef í þessu greinarkorni í rauninni ekki gert athugasemd viö það, hvað þeir Jón Ottar og Ámi hafa að segja, heldur hvernig þeir segja það, sem þeir hafa aö segja. Þeir eiga ekki að misnota orð og uppnefna fólk. Þeir eiga ekki að kalla stjómlyndi „frjáls- lyndi” og frjálslyndi „stjórnlyndi” eða frjálshyggju „fasisma” og fas- isma „frjálshyggju”. Þeir mega það auðvitað, því að við lifum sem betur fer í réttarríki, þar sem frelsi þeirra til þess að gera þetta er lögvarið, en þeir eiga ekki að gera það, ef þeir ætla að leggja sitt af mörkum til hinnar sífelldu samræðu, sem fram fer meö menningarþjóö. En við hin skulum reyna að halda samræðu okkar áf ram, ótruflaðir af orðastrák- um.. . Hannes H. Gissurarson. Bjórumbúðir, bjórmerkingar Nú er bjórframvarpið búið að fá á sig endanlega mynd — mér er sagt, að stuðningsmenn frumvarpsins þori ekki að leggja til neinar breytingar á frumvarpinu af ótta við að einhverj- ar þingkellingar noti það sem tylU- ástæðu tíl aö fella það. Tekið skal fram að ég nota ekki þingkeUing í stað þingkonu heldur er hér um að ræða lýsingu á manni, sbr. orðið her- kerling. Samkvæmt frumvarpinu má nú selja tvenns konar öl á Islandi. Ann- ars vegar verður til sölu svonefnt létt öl, þ.e. öl meö áfengisinnihald allt að 2,5%, hins vegar öl meö áfengis- styrkleika mUU 4 og 5%. Og ÖU með- ferð er með mis jöfnum hætti. Sterka öUð má einungis selja í margnotaumbúðum og aUar áletran- ir á umbúðunum fyrir utan vöra- merkið sjálft verða að vera á ís- lensku. Er því auðvelt fyrir menn aö þekkja öltegundimar að. Ef flaskan er með erlendum texta er öUð vænt- anlega af veikari tegundinni, og víkj- umþvífýrstaðþví. tslenskar leiðbeíningar Um nokkurt skeið hefur það verið ósk manna að innflytjendur vöru settu fslenskar leiðbeiningar á um- búðir eöa létu islenska leiðbeiningar- badtlinga fylgja ef framleiðandi teldi sUkra leiöbeininga þörf. Þetta á sér- staklega viö um ýmis hættuleg efni eins og t.d. Umefni, eiturefni eða dýra hluti eins og myndavélar, elda- vélar eöa kæiiskápa. Eitthvað hefur áunnist i þessum efnum, enn er þó langur vegur tíl góðra viðskipta- hátta. Er ég þess þó fullviss að þeir innflytjendur sem þýddu á fullnægj- andi hátt leiöbeiningar með vörum sinum nytu þess margfalt í meiri sölu. Má i þessu sambandi benda á að nær vonlaust er að selja mynd- band á leigu ef islenskan texta vant- ar. Ekki veit ég til þess að nokkur al- þingismaður hafi lagt tíl að íslenskar leiðbeiningar yrðu lögboðnar, fyrr en nú. Og mér er spum: Hvaða upplýs- ingar eru það á flöskumiöum sem er lífshættulegt og refsivert (því refsi- vert verður það)aö hafa ó dönsku?Af hverju er nauðsynlegra að hafa upplýsingar um áfengt öl af styrk- leikanum 4—5% á íslensku en af öli, sem hefur minna en 2,25% styrk- leika? Og af hverju nær þessi upplýs- ingaskylda ekki til annarra ófengis- tegunda t.d. rauðvins, en oft eru bráðnauðsynlegar upplýsingar á rauðvínsflöskum, en þvi miður ritað- ar á frönsku eða einhverju enn óskiljanlegra máli. Og ég spyr: Standast þessi ókvæði prentfrelsisgrein stjórnarskrórinn-, ar? Menn hafa litið svo á að prent- frelsi á Islandi næði til hvaöa tungu- máls sem er. Þannig væri t.d. gegn prentfrelsisákvæöunum aö banna Andrés önd ef hann væri á finnsku. Alþingi getur út af fyrir sig kraflst þess að leiðbeiningar um neyslu og annað slikt séu jafnframt á íslensku en ekki bannað birtingu þeirra ó öðr- umtungumálum. Margnota umbúðir Og skal þá vikið aö margnota um- Kjallarinn HARALDUR BLÖNDAL HÆSTARÉTTARLÖGMADUR búðum. Til er sú stefna í umbúða- mólum að aldrei skuli geyma drykkjarvökva í einnotaumbúðum. Era færð til þess rök, annars vegar sparnaöarrök en hins vegar náttúru- verndarrök. Því er einlægt haldið fram að menn, sem drekki úr ein- notaflöskum, hafi það fyrir sið aö henda flöskunum að þeim tæmdum, einkanlega á tjaldstöðum og í þjóð- görðum. Nú veit ég ekki til þess að farið hafi fram nokkur könnun á því hvort menn fleygja frekar einnota flöskum eða margnota, allavega voru fiösku- brot oröin vandamál á Islandi löngu óður en einnota umbúðir voru fundn- ar upp. Er enda sú flaska einnotaum- búðir gagnvart þeim sem brýtur hana eða hendir tómri. Og bjórdósir era óreiðanlega ekki meira vanda- mól en t.d. ávaxtadósir, mjólkur- fernur eða floridanapelar og verður ekki leyst nema með einum hætti að skapa þann sið að fólk hendi ekki frá sér sorpi á víðavangi. Það er best gert með áróðri og með því að hafa sorpkirnur á feröamannastööum svo að ferðafólk geti losnað við sorp, bæði bjórflöskur, beinarasl og plast- flát. En ef menn vilja endilega tak- marka drykkju á öli, sem er 4—5% að styrkleika, við ákveðna tegund umbúða, þá held ég, að skynsam- legra væri að hafa umbúðirnar úr öðra en gleri, menn losna þá a.m.k. við glerbrotin. Og enn má spyrja: Af hverju má selja öl, sem er minna en 2,25% að áfengisstyrkleika, í einnota umbúð- um? Hræsni Það sjá vitanlega allir, aö laga- ákvæðin um áletranir og umbúðir eru ekkert annað en hræsni. Nokkrir þingmenn eru svo miklir aumingjar að þeir þora ekki að vera með bjór án þess og þora hvorki að vera með bjór né á mótí honum. Þeir hafa reynt að svæfa mólið — ekki vegna þess að þeir séu á mótí því og gilti einu hvemig því væri komið fyrir kattar- nef og er út af fyrir sig lofsvert, — heldur vegna þess, að þeir óttast ekk- ert meira en að segja sannfæringu sina í máli þar sem ekki liggja fyrir flokkslínur. Skoðanalaus maöur greiðir atkvæöi eftir flokkslinum eins lengi og hann getur. Hann reynir stundum að greiða atkvæði gegn flokknum sínum ef hann er viss um að það skaði engan — svona tíl þess að sýna sjálfstæði sitt! En þegar óflokksleg mál koma til umræðu er gripið tfl hinna furðulegustu úrræða til að komast hjá ákvörðun. Það er lagt tíl að svæfa málið, fresta mál- inu, og þegar allt annaö bregst er gripið til þess ráðs að grípa á lofti all- ar breytingartfllögur, sem gætu túlk- ast sem einhvers konar hömlur. Til- lagan um íslenskan texta á 4—5% öli telst til takmörkunar á meðferð öls, sömuleiðis tillagan um margnotaum- búðirnar. Þetta er sú dúsa sem nokkrir þing- menn hafa stungið upp í sjálfa sig tíl þess að geta sofnaö rólegir á kvöldin. En hvað um það. Loksins hafa þingmenn tekið öl- frumvarp til afgreiðslu í þinginu og það verður vonandi samþykkt. Gallarnir eru vitanlega miklir, — en þaö er ekki óstæöa til þess aö kvelja þá menn sem era málinu með- mæltir. Framfarir af þessu tagi verða aldrei meiri en sá sem skemmst vill fara ákveður. Og svo má hugga sig við það að í frumvarpinu er ókvæði um að endur- skoða skuli lagaákvæðin fyrir árslok 1988 í ljósi fenginnar reynslu. Þá verður búið að kjósa og þá verða fleiri nútímamenn á þingi. Þá veröa ákvæðin löguð — og raunar áfengis- lögg jöfin i heild sinni. Haraldur Blöndal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.