Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Page 23
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAl 1985.
23
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Skosku leikmennirnir á œfingu ó Laugardalsvelli i gœr. Þeir æfðu tvisvar i gær, ekkert 6 sunnudag. Jock
Stein annar fró vinstri. _ DV-mynd Brynjar Gauti.
„TEK ENGA AHÆTTU
GEGN ÍSLENDINGUM”
— sagði Jock Stein, landsliðseinvaldur Skota. Verður með sömu leikmenn
og sigruðu England á laugardag
„Þetta verður erfiður leikur og ég
tek enga áhættu. Verð með sama
byrjunarlið og sigraði England á
laugardag. Auk þess Everton-lelk-
mennina Graeme Sharp og Andy Gray.
Að vísu er Gray ekki alveg heill en
reiknar með því að allt verði í lagi með
hann fyrir leikinn,” sagði Jock Steln,
landsliðseinvaldur Skotlands í knatt-
spyrnunni, á blaðamannafundi á Hótel
Sögu í gær. Þar var fjölmenni, 26
skoskir blaðamenn og það kom þeim
greinilega ekki á óvart að Stein velur
þá 11 sem sigruðu England á Hampden
Park á laugardag.
Skoska landsliðiö æfði á Laugardals-
velli í gær og Stein sagöi. „Völlurinn er
mjög góöur — mjög góður” og bætti
við: „Eg reikna með mjög hörðum leik
við Island en reikna ekki með að
leikurinn þróist eins og leikurinn á
Hampden Park. Það var breskur
leikur og ég veit að íslenska liðið leikur
ekki eins og það enska. Viö leikum ekki
sama leik og þar. Við verðum að haga
okkur eftir aðstæðum á Laugardals-
velli.”
í sömu stöðu
„Leikurinn er mjög þýðingarmikill
fyrir Skotland. Við verðum að sigra —
en íslenska liðiö er í sömu stöðu og við.
Það á einnig möguleika í riðlinum. Að
vísu er Island án tveggja mjög sterkra
leikmanna, Asgeirs Sigurvinssonar og
Arnórs Guðjohnsen. Þetta eru öflugir
leikmenn — mjög snjallir. En Island
hefur samt sterkum leikmönnum á að
skipa.
Það er enginn leikur í heimsmeist-
arakeppni auðveldur. Það verður að
reikna með löndum eins og Islandi,
Finnlandi, Irlandi og Wales en ef
skoska liöiö leikur eins og á laugardag
gegn Englandi verður allt í lagi fyrir
okkur meö leikinn á Laugardalsvelli.”
Skosku fréttamennirnir spurðu
auðvitað mest um sína menn — um
Sharp og Gray, Englandsmeistarana
hjá Everton. Greinilegt á Stein að hann
hafði mikinn hug á að nota Sharp i
leiknum við Island en „það er
áreiðanlega betra að hafa Gray með
honum. Þeir þekkja hvor annan. Þeir
hafa skorað mikið fyrir Everton en það
er langt síðan þeir hafa leikið lands-
leiki, stórléiki með landsliði. Þeir hafa
að vísu mikla reynslu úr Evrópukeppn-
inni með Everton og það hefur sitt að
segja. Eg var ánægður með leik minna
manna í vöm og á miðjunni gegn
Englandi en framlínumennimir
sköpuðu sér ekki nógu góð tækifæri,”
sagði Stein á blaðamannafundinum.
Það var létt yfir honum, skiljanlega
eftir fyrsta sigur Skotlands á Englandi
í níu ár og það mátti greina að ef hann
gerði einhverjar breytingar á liði sínu
þá yrði það Everton-leikmönnunum í
hag. Leikmenn eins og Johnston og
McStay, báðir Celtic, virðast ekki hafa
mikla möguleika h já Stein nú.
Liö Skotlands i leiknum á Laugar-
dalsvelli í kvöld verður því þannig
skipaö: Leighton, Aberdeen, Gough og
Malpass, Dundee Utd., Miller og
McLeish, Aberdeen, Souness,
Sampdoria, Bett, Lokeren, Strachan,
Man. Utd., Aitken, Celtic, Archibald,
Barcelona, ogSpeedie, Chelsea.
-hsím.
3. deild—A riðill:
Fljúgandi start hjá
Ármenningum
Ármenningar, nýllðamir í A-riðli 3.
deildarinnar, hafa fengið „fljúgandi
start” í upphafi tslandsmótsins. Á
laugardaginn sigraðu þeir lánlaust lið
ÖC með tveimur mörkum gegn einu og
eru því eitt þriggja f élaga með fullt hús
í riðlinum þegar tveimur umferðum er
lokið.
Leikur Armenninga og IK einkennd-
ist af mikilli baráttu beggja liðanna
sem oft var á kostnaö knattspym-
unnar. Kópavogsbúamir voru sterkari
aðilinn lengst af en Armenningunum
tókst að ná öllum stigunum, mest-
megnis fyrir snilldarmarkvörslu
Heimis Gunnarssonar sem meðal
annars varði vítaspyrnu. Bragi
Sigurðsson og Smári Jónatansson
gerðu mörk Ármenninga en Guðjón
Guðmundsson mark K.
Selfyssingar áttu ekki í neinum
vandræðum með Olafsvíkur-Víking-
ana. Hilmar Hólmgeirsson kom Selfossi
á bragðið en gestimir svöruðu með
marki. Og við það sat í hálfleik. I
seinni hálfleiknum náðu heimamenn
síöan öllum tökum á leiknum og bættu
þremur mörkum við markareikning-
inn. Gylfi Sigurjónsson, Hilmar Hólm-
geirsson og Daníel Gunnarsson sáu um
þau og lokatölur því 4—1.
Leikur Stjörnunnar og Grindavíkur
bar lélegum aðstæðum glöggt vitni.
Stjörnumenn þó mun sterkari aðilinn
og mörk þeirra Jóns Áma Bragasonar
og Rúnars Sigurðssonar gerðu út um
vonir Grindvíkinga.
HV fékk Reyni, Sandgerði, í heim-
sókn og þurfti aö sjá á bak öllum
stigunum til Sandgerðis. Ari Haukur
Arason og Ævar Finnsson skoruðu
mörkin er réðu úrslitum og HV er því
enn án stiga.
Fjórir leikir áttu að vera á dagskrá
B-riðilsins um helgina en þeim var öll-
um frestað vegna slæmra skilyrða.
Staðan í A-riðlinum er nú þessi:
Selfoss
Stjaman
Armann
Reynir.Sandg.
Grindavík
IK
HV
Víkingur, Olafsv.
2 2 0 0 6-2 6
2 2 0 0 3-0 6
2 2 0 0 3-1 6
2 10 13-23
2 10 12-33
2 0 0 2 2-4 0
2 0 0 2 0-3 0
2 0 0 2 1—5 0
-fros.
Belgíumet
íhástökki
Eddy Annijis setti í gær nýtt belgískt
met i hástökki. Stökk 2,36 metra á móti
í Antwerpen. Það er besti árangur
utanhúss í hástökkl i ár. Heimsmet
Kinverjans Zhu Jianhua er 2,39
metrar. hsím.
Diadora Magic pro
Stærðir: 36—47.
Verð kr. 2.190,-
Diadora Rio.
y Stærðir: 31-43.
Litir: hvítur/blár.
Verð kr. 890-990
Diadora BMX
Stærðir: 27—3
Litir: blár og
rauður.
Verð kr.
990,-
Adidas
Hamburg
Stærðir:
Verð kr.
890,-
Adidas Topten,
Stærðir: 36—46
Verð kr. 2.650,-
Adidas
Universal
Stærðir:
Verð kr
1.530,-
Ensku liðasettin frá
MERKI MEISTARANNA
Liverpool —
enska landsliðið
Arsenal — Sheff ieli
Wednesday
Breiðablik.
SPORTVORUVERSLUN
Háaleitisbraut 68
Sími 8-42-40
Austurver