Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Síða 26
26 DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI1985. íþróttir Kþróttir íþróttir íþróttir Ljóshærða sprengikúlan á m m — __ ■■ m Love Street „Það er miklu betra að hafa hann með sér en á móti. Tottie hefur yfir miklum hæfileikum að ráða — hann er mjög leikinn, hefur næmt auga fyrir samspili og skot- harka hans er geysileg”... þetta skrifaði Jimmy Baxter, fyrrum fyrirliði Glasgow Rangers, um Þóróíf Beck, er Þórólfur fór að leika með Rangers í lok árs 1964. Þá var sagt að Þórólfur hefði verið besta jólagjöf- in sem Rangers gat fengið. V 9 „Eigíð þið ekki fleiri slíka leikmenn á íslandi—það væri ekki ónýtt að fá þá íliðið hjá sér,” sagði framkvæmdastjóri Stirling Albion eftir fyrsta leik Þórólfs Beck með St. Mirren Beck Þaö þarf ekki aö fara mörgum orö- um um að Þórólfur er einn besti knattspymumaður sem Island hefur átt. Hann lék aðeins fjögur keppnis- tímabil meö KR, áöur en hann hélt til Skotlands 1961 — 21 árs. Hann skoraði 46 1. deildar mörk í aöeins 35 leikjum með KR. — Þaö var alltaf draumur minn, er ég var strákur, aö gerast atvinnumaöur, sagði Þórólfur í viötali við DV í sl. viku, þegar viö heimsóttum hann. Þeim sem fylgdust meö Þórólfi Beck, þegar hann var aö byrja aö leika sér meö knöttinn ungur á knatt- spyrnuvellinum viö Framnesveginn, varö fljótt ljóst aö þessi litli, ljós- hæröi strákur ætti eftir að ná langt sem knattspyrnumaöur. Þórólfur náði mjög fljótt geysilegu valdi á knettinum. Þórólfur haföi lítiö fyrir því aö leika á hvern strákinn á fætur öörum á vellinum. Þaö kom einnig fljótlega fram að hann haföi næmt skyn á því hvaö flokkaleikur var — hvernig ætti aö leika til þess aö liðið sem heild næði árangri. Þórólfur tryggöi sér gullmerki KSI fyrir knattþrautir 1957, þá 17 ára. Hann var þar meö einn af þrem- ur fyrstu gulldrengjum Islands. Hin- ir voru örn Steinsen og Skúli B. 01- afsson. Skoraðisexmörk KR-ingar ákváöu að fara aö yngja upp 1. deildariið sitt 1957 en þá var vesturbæjarliðið aö berjast fyrir tilveru sinni í 1. deild. Þurfti aö leika aukaleik við Akureyri um fallið. Þeim leik lauk með sigri KR og skoraöi Ellert B. Schram þá sigur- markið, 1—0. Þórólfur Beck opnaöi marka- reikning sinn hjá KR þaö sumar, þegar hann skoraði sex mörk í leik gegn Þrótti, er KR-ingar sigruöu 13—1 í haustmóti Reykjavíkurfélag- anna. Þórólfur vakti þá mikla athygli fyrir leik sinn og voru mörg marka hans afar glæsileg. Sigurganga KR hefst Þaö var fljótt ljóst aö KR-liðið var illsigrandi. 1958 hafnar KR í öðru sæti í 1. deild, með átta stig — aðeins einu stigi á eftir Islandsmeisturum Akraness og 1959 nær KR-liöið þeim frábæra árangri aö vinna 1. deildar keppnina meö fullu húsi stiga — bar sigur úr býtum í öllum tíu leikjum sínum, skoraöi 41 mark en fékk aðeins á sig sex mörk. Þórólfur varö markakóngur — skoraði 11 mörk. „Auðvelt að vera góður leikmaður ígóðuliði” — Eg man alltaf eftir þessum árum meö KR. Það var valinn maður í hverri stöðu — góð blanda af ungum og eldri leikmönnum. — Já, þaö er mjög auðvelt aö vera góöur leik- maöur í góöu liði. Andinn var frábær hjá okkur og viö vorum meö snjallan þjálfara, Ola B. Jónsson, sagöi Þór- ólfur, þegar viö spuröum hann um velgengni KR-liösins. — Hver var aðall liösins á þessum árum? — Þaö var fyrst og fremst hvað leikmenn höföu yfir mikilli tækni aö ráða og þá var leikskipulag liösins mjög gott. Þaö var ekkert gróft til í leik liðsins, sagöi Þórólfur og hann bætti við: — KR var þá kallað Há- skólaliðið. Allir leikmenn liösins nema 2—3 voru í námi í háskólanum. Þórólfur sagöi að hann heföi átt því láni að fagna að leika með mjög góðum framlínuspilurum. Gunnar Guömannsson og öm Steinsen voru á köntunum og þeir Sveinn Jónsson og Ellert B. Schram viö hliðina á mér. Fyrir aftan okkur voru leik- menn eins og Garöar Ámason, Helgi Jónsson, Höröur Felixson, Hreiðar Ársælsson, Bjarni Felixson og Heim- ir Guöjónsson stóð í markinu. Setti markamet Þórólfur varö fljótt mikill marka- hrellir, skoraöi 15 mörk 1960 og setti markamet 1961, er hann skoraöi 16 mörk. Þá skoraöi hann t.d. fimm mörk í leik gegn Akureyri. KR og Akranes böröust um Islandsmeist- aratitilinn 1961. Þórólfur var óstööv- andi í úrslitaleiknum — skoraöi þrjú mörk í leiknum, sem KR-ingar unnu 4—0. Um 8 þús. áhorfendur sáu leik- inn og Þórólf fara á kostum. Þórólfur gæti komist í enskt landslið Þórólfur skoraði og skoraöi — og þaö voru fáir markverðir sem gátu varið frá honum. — Hvert er eftirminnilegasta markiö sem hann skoraði? — Eg hef skorað mörg eftirminni- leg mörk, en þaö er þó eitt mark sem ég held alltaf mikið upp á. Það var jöfnunarmark KR, 5—5, gegn Akra- nes/Arsenal á Laugardalsvellinum. Skagamenn styrktu liö sitt þá með þremur leikmönnum Arsenal, sem voru hér í heimsókn hjá Skagamönn- um. Þaö voru þeir Jack Kelsy mark- vöröur, Bill Dodgin miðvörður og Clampton sóknarleikmaöur. Skagamenn komust í 4—1 eftir aöeins 21 mín. og þeir voru síðan yfir 5—3, og þegar nokkrar sek. voru til leiksloka var staðan 5—4. Þá fékk ég knöttinn fyrir utan vítateig, náöi að leika á Dodgin og skaut síðan aö m Þórólfur Beck — gat gert allt við knöttinn, nema að lóta hann tala. í tilefni þess aö Island og Skotland leika á Laugardals-' vellinum í HM-keppninni í knatt- spyrnu höfum við ákveðið að rif ja upp knattspyrnuferil Þórólfs Beck í stuttu máli. Þórólfur lék með skosku liöunum St. Mlrren og Glasgow Rangers á árunum 1961 til 1966 og var hann þá í hópi bestu knattspyrnumanna skosku knatt- spyraunnar. Fyrsti hluti frásagnar um knatt- spyrauferil hans, sem byggður er á biaðaummælum úr skoskum blöðum og viötali við hann, er hér á síðunni. Um næstu helgi — í helgar- blaðl DV, verður annar hlut birtur. -SOS Fyrsti hluti marki — knötturinn hafnaöi efst uppi í markhorninu, sagði Þórólfur. Eftir leikinn sagöi Dodgin þetta í blaðaviðtali: „Eg er fullviss um aö Þórólfur hefur hæfileika til aö komast í enska landsliðiö. Þessir hæfileikar hans komu hvað eftir annaö fram í leiknum.” — Haföir þú hug á að komast í at- vinnumennsku, Þórólfur? — Já, ég átti þann draum — strax þegar ég var ungur, en félagar mínir brostu þá. Það var svo 1961 sem ég fékk tilboð til aö koma til St. Mirren í Skotlandi. Félagið hafði þá verið hér á keppnisferð og ég stóð mig vel í leikjum gegn þvi. Skoraði t.d. fjögur mörk fyrir S-Vesturlandsúrvaliö, sem lagöi St. Mirren að velli, 7—1. — Þú ákveður að taka tilboðinu frá St. Mirren? — Já, ég fór til Skotlands og kunni vel viö mig hjá félaginu og nafn heimavallar St. Mirren hafði að- dráttarafl. Hann heitir Love Street. „Eigiö þið ekki fleiri slíka leikmenn?” Þórólfur fékk óskabyrjun hjá St. Mirren, er hann lék sinn fyrsta leik með félaginu laugardaginn 28. októ- ber 1961. Hallur Símonarson, íþróttafrétta- maöur DV, var svo heppinn að vera staddur í Glasgow, þegar Þórólfur lék sinn fyrsta leik með St. Mirren. Hann skrifaði eitt sinn þetta um byrj- un Þórólfs í Skotlandi: „Eigið þiö ekki fleiri slíka leik- menn á Islandi — það væri ekki ónýtt, að fá þá í lið hjá sér,” sagði framkvæmdastjóri Stirling Albion, þar sem viö sátum í djúp- um hægindastólum í stúkunni á „Stirling”-leikvellinum og horföum á „St. Mirren” leika við heimaliðið á aflíðandi grasbrekku, sem átti aö heita leikvöllur þeirra Stirling- manna. Og leikmaðurinn, sem hann átti viö, var Þórólfur Beck, sem lék þar sinn fyrsta leik á útivelli meö aðailiöi ,,St. Mirren” sem áhuga- maður, og ég var svo heppinn aö fá tækifæri til aö sjá þann leik. Og vissulega gátu menn hrifizt af leikni Þórólfs og auga fyrir samleik í þeim leik. Hvaö eftir annaö tætti hann vöm Stirlings í sundur með frá- bærum sendingum, skoraöi eitt mark sjálfur, og samherjum hans tókst að nýta opnanir hans í tveimur tilfellum, sem var heldur lélegt hjá þeim. En „St. Mirren” sigraöi með 3—0 „og maðurinn bak viö þennan fyrsta sigur St. Mirren í mörg ár í Stirling var hinn nýi leikmaður liðs- ins, hinn ljóshæröi Islendingur Þór- ólfur Beck” — eins og skozku blöðin sögðu eftir leikinn. Þórólfur sló svo sannarlega í gegn, þegar hann lék sinn fyrsta leik og varð eitt aðalefni á íþróttasiöum skosku blaðanna, og Willie Reed, H0T STUFF HfUlffl riCE C00L BECKl Fyrirsögn úr einu skosku blaðanna, þar sem sagt er í greininni að Þórólfur sé tvífari Di Stafanos. St. Mirren. Þórólfur Beck er sitjandi — annar frá hœgri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.