Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Blaðsíða 44
44
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAI1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Larry Flynt heitir umdelldur
maður i Ameríku, cinna helst
þekktur fyrír að gefa út karl-
rembublaðið Hustler. Innihald
blaðsins gengur helst út á alls-
berar konur í hinum margvísleg-
ustu stellingum. Slíkt efni i mán-
aðarblaði vestanhafs virðist
ganga vel í Kanann, a.m.k. hefur
Fiynt hagnast vel á viðskiptun-
um.
Ekki eru allir sem sætta sig við
Flynt né umdellt blaðið, einn
þeirra gerði sér litið fyrlr og
reyndi aö ráða kiámkónginn af
dögum. Ekki tókst tilræðið alveg,
en síöan hefur Flynt þó verið
lamaður fyrir neðan mittl og
ferðast nú í hjólastól. Fiynt sótt-
ist opinberlega eftlr útnefningu
til forseta fyrir síðustu forseta-
kosningar í Bandarikjunum,
lagði fram hina fáránlegustu
stefnuskrá að flestra mati og
gerði óspart grín að öllu heila
kerfinu. Menn eru þó sammála
um að klámkóngurinn hafi eln-
ungis gert þetta til að vekja at-
hygli á sér og hafi á vissan hátt
óneitanlega tekistþað.
Paul McCartney og Michael
Jackson hafa sem kunnugt er
unnið mikið saman og gert það
feikigott.
Flest þekkjum viö lagið „This
girl is mine”, sem klifraði upp
alla vínsældalista og var á toppn-
um um allan heim í langan tlma.
Saman gerðu þeir myndbands-
spólu með laginu Say, say, say,
sem cinnig varð vinsæl mjög.
Það lag kom á nýlegri plötu
gamla Bítilsins, „Pipes of
peace”, sem auðvitað vakti
mikla athygli.
Á myndinni sjáum við félagana
búa sig undlr upptökur á mynd-
bandinu með laginu Say, say,
say. Auðvltað verða menn að
vera sæmilega rakaðir áður en
teklst er á við stórverkefni í
myndbandabransanum.
Hún litur út eins og hver annar
venjulegur túristi á frönsku Riví-
erunni stúlkan á myndinni en er
það i rauninni ekki. Hér er á ferð-
inni engin önnur en Noor drottn-
ing þeirra í Jórdaníu þar sem hún
var i einkaferðalagi með eigin-
manni sinum, Hussein konungi,
um Frakkland.
Hussein kóngur er 48 ára en
eiginkonan aðeins 32, með nýlega
fædda prinsessu, Iman að nafni.
Konungshjónin tóku það rólega á
frönsku Rivíerunni, fóru í stuttar
skemmtisiglingar, dreyptu á
rjómaís og höguðu sér i einu og
öllu eins og venjulegir túristar.
Inn á milil heilsuðu þau upp á
góða vini og kunningja í Frakk-
landi, hlttu þar m.a. Gemayel,
forseta Libanon, er var á ferða-
lagi í Frans.
„Nauðsynlegt fyrir kóngafólk
að komast aðcins i burt frá öllum
skyldustörfunum heima við,”
sagði Noor drottning og andvarp-
aði.
mm
Fyrra markið staðraynd. Eirikur Jónsson, númar 9, hefur þarna þrykkt boltanum f nat Moggamanna. Magnús Ólafsson, knattspyrnukappinn kunni,
fagnar innilega. Myndir-KAE.
STORLEIKURILAUGARDAL
Dagblaðið-Vísir og Morgunblaðið
berjast á hverjum degi um hylli
íslenskra blaðalesenda en á einum
sólardeginum í síðustu viku var bar-
áttan háð á öðrum vettvangi, liði fylkt
á nýja gervigrasvellinum í Laugardal
þar sem knáir knattspyrnukappar DV
og Moggans spiluðu einn leik í knatt-
spymu.
I báðum liðum fyrirfinnast gamlar
knattspymuhetjur og ekki vantaði
áhugann, tekið á af lífs- og sálar-
kröftum. Starfsmenn beggja blaöanna
hafa haldið sér í ágætis æfingu síðustu
mánuði, DV-menn eiga einn tíma í viku
á gervigrasinu þar sem úthaldið er
þanið og gömlum knattspyrnukúnstum
Sætur sigur i höfn. Lið DV, talið frá
vinstri, aftari röð: Ellert B. Schram,
Gunnar V. Andrésson, Herbert
Guðmundsson, Bergur Garðarsson,
úgmundur markvörður Kristins-
son, Þorsteinn J. Vilhjálmsson,
Hilmar Karlsson og Jön Karl Helga-
son. — Fremri röð frá vinstri:
Magnús Ólafsson, Frosti Eiðsson,
Kristján Már Unnarsson og Eiríkur
Jónsson.
DV-mynd KAE.
haldið við og Moggamenn hafa æft Leiknum lauk með sigri DV, bæði framlínumönnunum Eiríki Jónssyniog
knattspymuinnanhússívetur. mörkin skoruö í seinni hálfleik af Frosta Eiðssyni.
Baráttan i algleymingi, Ellert B. Schram og Kristinn Sigurþórsson berjast
um knöttinn. Í baksýn sést i ögmund Kristinsson og Bjarna Moggaljós-
myndara.
Hntta f uppsiglingu við Moggamarkið, varnarmenn Moggans við öllu
búnir, Friðþjófur Helgason i flugtaki.