Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Qupperneq 45
DV. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAl 1985. 45 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Namendur, foreldrar og kennarar i Snælandsskóla i Kópavogi hóldu upp ð Undir blaktandi islenskum fánum skunduðu íbúar Snælandshverfis um nó- tíu ára afmæli skólans meö mikilli skrúðgöngu og fjölbreyttri skemmtidag- grenni skólans, uppóbúnir með hina furðulegustu hatta. skrá. Vorhátíð í Snælandsskóla ekki eftir liggja, skelltu sór í skrúðgönguna með íslenska fánann við hönd. Myndir VHV. „Nei, hvað er nú þetta? Þetta er eins og Nonni frændi notar alltaf þegar hann kemurí heimsókn." Ungur nemur, gamall temur Þann ljóta ósiö að reykja þekkjum viö öll, annaöhvort af eigin reynslu eða' náungans. Þaö er auðvelt aö byrja reykingar en erfiðara aö láta sig hafa þaö að hætta. Um skaðsemi uppátæk- isins þarf ekki aö fjölyrða, hana þekkja allir. Kristján Ari ljósmyndari rakst á þennan unga svein ásamt vinkonu sinni i miðbænum um daginn. Sígarettustubburinn liggur á stéttinni, forvitni vaknar, „nú er ég orðinn eins og fullorðna fólkið,” hugs- arsveinninn. Snælandsskóli í Kópavogi er tíu ára um þessar mundir og hélt mikla vorhá- tíö til aö fagna hinum merku tíma- mótum. A vorhátíðinni var margt gert til skemmtunar og fróðleiks. Nemendur, foreldrar og kennarar fjölmenntu í mikla skrúðgöngu um Snælands- hverfið, ýmsir vel uppábúnir með hina skrautlegustu hatta. Handmennta- og tónmenntakennarar skólans höfðu umsjón með búningum skrúðgöngu- fóiks, auk þess að framkalla rétt stef við hina mismunandi göngumarsa. Að sögn Birnu Sigurjónsdóttur yfir- kennara var einnig haidin sýning á verkum nemenda. 8—9 ára böm unnu að verkefni í samfélagsfræði, „við sjávarsíðuna — Island” í höfuöið á samnefndri kennslubók í samfélags- fræðum. Unnin var myndasería þar sem sögu skólans var gerð skil, sett upp leiksýning auk þess sem nemendur í 9. bekk skipulögðu mynd- arlega tískusýningu á fötum er þeir höfðu sjálfir unnið yfir veturinn. Þátttaka í vorhátíð Snælandsskóla var mjög góð, fullt hús á kaffisölu og kökubasar nemenda á laugardeginum. Nemendur í Snælandsskóla eru í kringum 570, á aldrinum 6—16 ára. Göngumenn skemmtu sór konunglega, hver i sínu gervi, Sórðu Stína, nú er óg eins og hann Nonni frændi minn, svakatöffari. „Hvort sýgur nú eða blæs Nonni frændi?" Hm, ætli óg þurfi ekki eldspýtu?" „Ég bara vona að mamma sjái ekki til mfn núna." Ljósm. KAE. A1 Pacino Ieikur byssubófann Tony Montana í kvikmyndinni Scarface sem landanum er að góðukunn. Fjallar myndin um eiturlyfja- bófa í Flórída er mestmegnis lifa á kókainsmygliog-dreifingu. Ekki var áfallalaust að undir- búa kvikmyndun. Fyrst voru þaö samtök innflytjenda í Flórída er lögðust alfarið gegn hug- myndinni að kvikmyndinni, töldu hana ekki gefa rétta mynd af Flórída, allra síst Miami, þar sem sagan gerist. Of mikið væri gert úr eiturlyf jaspillingu á svæðinu og allsherjar bófahasar. Einnig komu morðhótanir til að- standenda kvikmyndafélagsins frá alvörubófum á svæðinu, hótuöu þeir öllu Ulu ef tökur færu fram, hræddir um að komast um of í sviðsljósiö, líkingin í myndinni jafnvel talin of lík raunveruleikanum í undir- heimum Flórída. Kvikmynda- takan gekk vel og ekki seldist myndin siður, enda A1 Pacino fær leikari og vinsæU mjög, ekta kar- akter í mynd um kúbanska bófa- séffa í eiturlyf jabraski. Hver man ekki eftir henni Amy litlu, dóttur Carters, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Amy stundar nú nám í litlum einka- skóla í borginni Plains í Georgíu- ríki, heimaborg foreldranna. Ekki er hér um mikla borg að ræða, nokkrir hnetubændur, fjórar bensínstöðvar og nokkur kaupfélög. Er sagt að Utla stelpan, sem eitt sinn á öUu að hafa ráðið í Hvíta húsinu, sé orðin þreytt á rólegheitunum í Plains og vUji nú halda út í hinn stóra heim. Hefur Amy mikinn áhuga á því að komast til Mexíkó, fyrirheitna landsins í hennar augum. Er stúlkan að gera aUa vitlausa í Plains með spænskublaðri sínu, Uggur í kennslubókum á spænsku og telur sig vera orðna sæmUega færa í fyrirheitna tungumálinu í landinu fyrir sunnan. Hér sjáum við f orsetadótturina • fyrrverandi. „Yo amo Mexico,” segir stúlkan af mikUU innUfun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.