Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1985, Page 48
.1 * FRETTASKOTIÐ (68) * (7?) • (58) Sími ritstjórnar: 68 66 11. Auglýsingar, áskrift og tfreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ1985. Víðtæk leitað tveimur mönnum: Sofnuðu í jeppanum Mennirnir tveir sem saknað var á Hveravöllum um helgina fundust í gær heilu og höldnu. Komu þeir í leitimar um miönætti í nágrenni Fjórðungsöldu á Kjalvegi á milli Hveravalla og Kerl- ingarf jalla. Voru þeir á leið suður í bif- reið. Ferðalangarnir eru norðan af Blönduósi og Blöndudal og hugðust heimsækja vin sinn sem býr í Arnes- sýslu. Lögðu þeir af stað um kvöldmat- arleytið á laugardag. Leit hófst að mönnunum seinni partinn í gær þegar þeir höfðu ekki skilað sér til byggöa. Að sögn sofnuðu mennirnir í bílnum á Hveravöllum og tafði það för þeirra. Grunur leikur á að ölvun hafi verið í spilinu og voru mennimir með bmgg í farangrinum þegar þeir fundust. -EH. / Bílskúr og þrír bílar skemmdust Mikið tjón varð þegar eldur kom ur?) í bílskúr að Miöengi 8 á Selfossi um hádegisbilið á sunnudag. Bíl- skúrinn er ónýtur, ásamt einum bíl, og tveir bílar stórskemmdir, Range RoverogPeugeot. Þegar slökkviliðiö kom á staðinn var bílskúrinn orðinn alelda. Einnig loguðu tveir bílar sem vom á hlaðinu fyrir framan skúrinn. Þá var eldurinn að teygja sig í íbúðarhúsið. Slökkvistarf gekk vel og var því lokið eftir um hálf a klukkustund. Að sögn Eggerts Vigfússonar, slökkviliðsstjóra á Selfossi, mun maður hafa verið að gera viö bíl inni í bflskúrnum. Hann brá sér frá stutta stund og var allt orðið alelda þegar hannkomtilbaka. Maðurinn mun hafa verið að log- sjóða, en þó er engan veginn víst aö þaö sér orsök eldsins. Ibúðarhús- næðið bjargaðist að mestu. -JGH ómissandi •mm&' LOKI Og þá er að leggja Skota! a Þingvallavatni: Þau sáust sigla út á vatnið Stafán Þór Hafsteinsson, Álfa- skeiði 86 Hafnarfirði, 25 óra. Sigrún Bjarnadóttir, Bergþóru- götu 31 Reykjavik, 21 árs. Sigurður öm Aðalsteinsson, Borgarholtsbraut 25 Kópavogi, 29 ára. Engir sjónarvottar voru aö slysinu á Þingvallavatní snemma á sunnu- dagsmorgun. Talið er að það hafi orðið á tímabilinu 4 til fimm um morguninn. ÞAU FÓRUST A Komið hefur í ljós að sumarbú- staðareigandi sá bát sigla út með ströndinni um þetta leyti morguns. Nóttin var björt og þótti siglingin í sjálfu sér ekkert merkileg. Þá er vitaö um annað tilvik þar sem sumarbústaðareigandi heyrði vélarhljóð frá báti úti á vatninu um þettaleytimorguns. MNGVALLAVATNI Þau sem fundust um hádegisbilið á sunnudag voru ekki í venjulegum björgunarvestum heldur svokölluð- um flotjökkum líkt og hafnsögumenn munu klæöast í starfi sínu. Nöfn unga fólksins sem drukknaði í Þingvallavatni snemma á sunnu- dagsmorgun eru þessi: Stefán Þór Hafsteinsson, Alfa- skeiöi 86 Hafnarfiröi. Hann var fædd- ur 2. maí 1960 og þvi 25 ára. Stefán Þór var giftur. Sigrún Bjarnadóttir, Bergþóru- götu 31 Reykjavík. Hún var fædd 16. september 1963 og því 21 árs. Sigrún áttiunnusta. Sigurður öm Aöalsteinsson, Borg- arholtsbraut 25 Kópavogi. Hann var fæddur 8. október 1955 og því 29 ára. Sigurðurvargiftur. Þau Sigurður öm og Sigrún fund- ust um hádegisbilið á sunnudag. Stefán Þór hefur enn ekki fundist. Leit hefur staðið yfir á Þingvalla- vatni frá því þeirra þriggja var fyrst saknað. Leitað var til mið- nættis á sunnudag og aftur til mið- nættisígærkvöldi. Sá þremenninganna sem enn hefur ekki fundist var hvotki í björgunar- vesti né flotjakka líkt og hin. -JGH Leit að Stef áni hófst aftur í morgun og verður leitaði dag. -JGH sjáeinnig bls.5 Skotar hand- teknir tvisvar — um hundrað lögreglumenn í viðbragðsstöðu vegna leiksins í kvöld í í i 4 4 4 4 Skotamir tveir sem handteknir vom um helgina fyrir að ráöast á lögreglu- bil frömdu fleiri illvirki um helgina. Að sögn lögreglunnar bárust fleiri kæmr á mennina stuttu eftir að þeir voru látnir lausir í gær. Kom leigubílstjóri að máli við lögregluna og sagðist hafa séð mennina, sem vom mikið ölvaðir, með skæri í fórum sínum. Lögreglumenn fóra þvi á stúfana og handtóku menn- ina að nýju. Þeir hafa nú verið iátnir lausir á nýjan leik. Samkvæmt þeim upplýsingum lög- reglunnar verður 80—100 manna lög- reglulið í viðbragðs'Stöðu á Laugar- dalsvelli í kvöld. Þá verður fylgst með því að ekki sé borið áfengi inn á völl- inn. Að sögn lögreglu er sérstakur við- búnaður viðhafður vegna þess að oft vill koma til uppþota þegar stórir hóp- ar manna fylgja kappliðum en talið er aö um 1200 Skotar séu hér á landi gagn- gert til þess að sjá leikinn í kvöld. -EH. Kókaínfanginn seg- ist vera með AIDS Rod Stewart og vinkona hans, Kelly Amberg, koma til landsins. DV-mynd GVA. Italski maöurinn sem handtekinn var í síðustu viku fyrir að smygla kókaíni í sendibréfum frá Brasilíu segist vera með sjúkdóminn AIDS eða alnæmi. Að sögn fíkniefnalög- reglunnar f ór maðurinn að kvarta und- an vanlíðan stuttu eftir að hann var handtekinn og segist hann vera haldinn sj úkdómnum. Italinn situr nú í fangageymslu lög- reglunnar. Ekki hefur þótt ástæða til að leggja hann á sjúkrahús. I samtali við DV sagði Lúðvík Eiðsson hjá fíkni- efnadeild lögreglunnar að ekkert væri vitað nánar um málið á þessu stigi. Fíkniefnalögreglan hefði aðeins viljað koma þessum upplýsingum á framfæri viö landlækni sem hefur látið rannsaka mannrnn. 1 samtali við DV sagði Guðjón Magnússon landlæknir, að hann gæti ekki tjáð sig um þetta mál. -EH. 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.