Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Page 1
DAGBLAÐIÐ —VISIR
121. TBL. - 75. og 11. ÁRG. FÖSTUDAGUR 31. MAÍ1985.
Dularfullur
sjúkdómur
drepur
seiði!
MILUÓNATJÓN
HJÁ NORÐURLAXI
Frá Ingibjörgu Magnúsdóttur,
fréttaritara DV á Húsavík:
Undanfarnar 5—6 vikur hefur orö-
iö verulegur seiöadauði hjá laxeldis-
stööinni Norðurlax hf. viö Laxamýri
í S-Þingeyjarsýslu. Er hér um aö
ræða faraldur sem herjar á fyrsta
árs seiði og ekki hefur tekist aö
greina hvers eðlis hann er.
Nú er um hálf milljón seiöa dauð
og tjón er áætlað um 6 milljónir
króna en gæti orðið 8 milljónir ef
áframhald verður á seiöadauðanum.
Að sögn Bjöms Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Norðurlax hf., hafa
þeir sem starfa hjá fyrirtækinu
aldrei séð nokkuð þessu líkt. Allt hef-
ur verið reynt sem hugsast getur til
aö stöðva faraldurinn, en árangurs-
laust. Sjógönguseiöin í stöðinni virö-
ast vera ónæm fyrir þessari plágu en
að sögn Björns kemur hún á versta
tíma fyrir fyrsta árs seiðin, eða þeg-
ar þau eru viökvæmust. Seiðin átti að
selja í sumar og var búiö að lofa
þeim út um allt land.
Skortur mun verða á fyrsta árs
seiðum því Norðurlax hf. var stærsti
framleiðandi þeirra í fyrrasumar.
-EIR.
Áltekjurnar:
Steingrímur
heimtar
skýringar
„Eg tók þetta mál upp á rikis-
stjórnarfundi í morgun og óskaði eft-
ir skýringum, jafnframt að sam-
ræmi gætti frá einni nefnd til annarr-
ar aö þaö yrði einföld regla í þessum
málum,” sagöi Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra í gær.
Hann var þá spurður um kostnaö-
inn vegna samninganef ndar um stór-
iðju sem greint hefur verið frá í
fjölmiðlum. Upphæöimar hafa
komið almenningi á óvart, fólki
hefur blöskrað.
I skýrslu iönaöarráðherra var ekk-
ert minnsta á viðræður vegna Kísil-
málmverksmiðjunnar. Vegna þeirra
hækka til dæmis laun Guðmundar G.
Þórarinssonar um 115 þúsund kr., í
um630þúsund.
Heildarlaun Jóhannesar Nordal
vegna samninganefndarinnar eru
yfir 400 þúsund kr. og Gunnars G.
Schram yf ir 500 þúsund krónur.
Þá hefur lögfræðikostnaður vegna
samninganefndarinnar vakið mikla
athygli, nemur milljónum. Um þessi
mál er ítarlega fjallað á bls. 2.
— sjá f réttaljós
ábls.2
„Þettaeraf-
þreyingfyrír
sálaríífið”
— sagði Reynir Pétur
þarsem hann skeiðaði
eftir Skeiðarársandi
ígærdag
„Hvaö segiöi, komuð þiö fljúgandi
bara til að tala við mig? En unaðs-
legt,” sagði Reynir Pétur Ingvarsson,
göngugarpurinn mikli, þar sem hann
skeiðaöi eftir Skeiðarársandi um miöj-
an dag i gær.
Eins og alkunna er er Reynir að
ganga í kringum landið til að safna
peningum fyrir íþróttahús á Sólheim-
um í Grímsnesi.
„Eg er búinn að labba 310 kílómetra,
svo ég á ekki nema 1104 eftir. Þetta
hefur veriö svo skemmtilegt. Fólk er
alltaf að stoppa og tala við mig og láta
mig hafa vegapeninga.”
— Vegapeninga?
„Já, það eru sko kunningjar mínir
sem stoppa og rétta að mér hundraö
kalli og hundrað kalli. Fyrir kóki eða
svoleiðis, skilurðu. En ég kaupi ekki
kók fyrir vegapeningana. Eg læt þá í
sjóöinn. Svoleiöis hef ég fengið 3.200
krónur.”
— Hvemig leggst svo ferðin í þig?
,JVIjög vel, en fyrst og fremst er
þetta afþreying fyrir sálarlífið,” sagði
Reynir og skeiðaöi áfram í áttina að
Fagurhólsmýri þar sem hann ætlaöi að
gista í nótt.
-KÞ
íslenskur sjónarvottur að harmleiknum í Brussel:
„Allir voru skíthræddir”
„Þegar maður sá að fólkiö var lát-
ið liggja þar sem það var komið geröi
maöur sér fyrst grein fyrir að dauð-
inn var með i spilinu. Það var hreint
ótrúlegt að verða vitni að þessu,”
sagði Guðmundur Sæmundsson
verslunarmaöur en hann varö vitni
að blóðbaðinu á knattspymuvellin-
um í Brussel í fyrradag.
Guðmundur fór á leikinn ásamt
kunningja sínum, Halldóri Gústafs-
syni, og fengu þeir miða fyrir miðju
vallar. Harmleikurinn átti sér aftur
á móti staö fyrir endamörkum.
„Þetta geröist svo snöggt að mað-
ur náði ekki aö átta sig og eiginlega
er ég ekki búinn að því ennþá,” sagði
Guðmundur er DV hafði samband
við hann á hótelherbergi hans í
Brussel í gærkvöldi. „Það var eins og
lögreglan hefði ekki hugmynd um
hvernig hún ætti aö bregðast við og
reyndar vorum við félagamir að
ræða um það skömmu áður hversu
lítið lið lögreglu væri á staönum.”
— Hvernig leið ykkur meðan beðiö
varátekta?
„Það voru allir skíthræddir og á
okkur dundu fyrirmæli úr gjallar-
homum um að vera rólegir og hreyfa
okkur ekki. Þvi hlýddu flestir þótt
enginn vissi í raun hvaö gerst hafði.
Það var eins og allt púður væri úr
fólki, það var undarlegt að standa
þama.”
— Hvernig var svo að fylgjast með
leiknum?
„Leikurinn var ágætur, vel spilað-
ur, en hér tala menn um að leik-
mönnunum hafi ekki verið sagt frá
hversu alvarlegt ástandið var fyrr
en eftir leikinn. Einhvem veginn
fannst mér eins og leikmennirnir
spiluöu til þess eins að halda fólki
góðu,” sagði Guðmundur Sæmunds-
son.
-EIR.
Sjá einnig bls. 8-9 og íþróttir í miðopnu