Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Síða 3
DV. FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985.
3
EV SALURINN í FIATHÚSINU - EV SALURINN í FIATHÚSINU - EV SALURINN í FIATHÚSINU
Lögfræðingur og bókhald-
ari játa skjalafalsið
Höfðu þegar selt fölsuð skuldabréf fyrir eina milljón
Mennirnir tveir, sem grunaðir
voru um að falsa skuldabréf og selja
þau, hafa báðir játað. Eins og DV
skýrði frá í gær var annar maðurinn
handtekinn á skrifstofu borgarfógeta
í fyrradag þegar hann var að sækja
fölsuö skuldabréf úr þinglýsingu.
Hinn maðurinn er héraðsdómslög-
maöur og var hann handtekinn
skömmu síðar á heimili sínu.
Að sögn Erlu Jónsdóttur hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins er um að
ræða þrjár seríur af bréfum og er
hver þeirra að upphæð ein milljón
króna. Tókst mönnunum að selja
eina seríuna hjá veröbréfafyrirtæki í
borginni. Fengust 800 þúsund krónur
fyrir bréfin. Annar maðurinn, sem
var handtekinn, er ekki löggiltur
endurskoöandi, eins og greint var frá
i gær. Hann hefur hins vegar unnið
við bókhaldsstörf og starfrækt bók-
haldsaðstoð um nokkurt skeið. Aö
sögn Erlu Jónsdóttur er málið að
fullu upplýst. Rannsóknarhagsmun-
ir krefjast ekki að fariö sé fram á
gæsluvarðhald.
..\0u9a'
*****
Vönduð nýtísku-
húsgögn frá
Svafnsófi i sérflokki, fallagur sófi á daginn, gott rúm á nóttunni.
Varflkr. 27.500,-
Síðumúla 30.
Takið eftir verðinu.
Homsófi, fallegur, fyrirferðariitill.
Varfl: áklœði 39.000, leður 64.000,-
Lada Sport 1980
Simca 1100 1980
Renault 51980
Ford Futura 1978
Peugout504 1978
1929 EGILL VILHJÁLMSSON, 1985 SMIÐJUVEGI4, KÓPAVOGI, SÍMAR 79944 OG 79775.
Við bjóðum stórkostlagt úrval sófasetta ■ fjölda lita i leflri og á-
klœfli.
Verflfrákr. 42.000,-
Góðir greiflsluskilmálar.
TM-HÚSGÖGN
Síðumúla 30, sími 68-68-22.
HSÍI
Nemendur í átta ára bekk Langholtsskóla komu í heimsókn i Bœjarútgerð Reykjavikur í vetur. Þeir gerflu
síðan i skólanum myndir frá heimsókninni. i gœr gáfu nemendurnir Bœjarútgerflinni eina þessara mynda.
DV-mynd: S
Framkvæmdastjóri Samherja á Akureyri:
„Hljótum að standa
vtó tilboðið í BÚH”
Hvaða f yrirtæki er þessi Samherji sem hefur fjármagn til að
kaupa Bæjarútgerðina í Hafnarfirði?
„Viðræður eru að fara í gang, við
munum ræða við bæjarstjórann í
Hafnarfirði og fleiri á næstunni,” sagði
Þorsteinn Már Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Samher ja á Akureyri.
Samherji hefur gert tilboð í
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar, býðst til
að kaupa fiskvinnsluna og tvo togara,
Apríl og Maí. Þetta er óneitanlega
athyglisvert tilboð því BUH hefur ver-
ið rekið meö miklu tapi undanfarin ár.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur
samþykkt að ganga til samninga við
Samherja, þó ekki alveg þegjandi og
hljóðalaust. Fulltrúar Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags, 3 að tölu, gengu út
af fundinum þar sem þetta var sam-
þykkt.
En hvaða fyrirtæki er þessi Sam-
herji á Akureyri sem skyndilega meö
nokkrum öðrum einstaklingum ryðst
fram á sjónarsviðið og býður í eitt af
stærstu fyrirtækjum landsins í sjávar-
útvegi?
Samherji er að mestu í eign þriggja
manna, að sögn Þorsteins Más Bald-
vinssonar, hans og bræðranna Þor-
steins og Kristjáns Vilhelmssona. Þeir
bræöur eru báðir á Akureyrinni, frysti-
togara Samherja.
Þeir eru synir Vilhelms Þorsteins-
sonar, framkvæmdastjóra Utgerðar-
félags Akureyrar. Þorsteinn var áður
á togurum UA og mun vera mikil afla-
kló. Kristján er hins vegar vélstjóri.
En hvaðan hafa ungir menn, sem
stofnuöu fyrirtækið Samherja fyrir
tveimur árum, peninga til aö kaupa
Bæjarútgerð Hafnarf jarðar?
„Eg vil ekkert um málið segja á
þessari stundu, það er á umræðustigi,”
svaraði Þorsteinn Már. Og þeir ætla að
standa við tilboðið. „Viö hljótum að
standa við tilboðið en ég ítreka að
viðræður eru að fara i gang og í þeim
hlýtur ýmislegt að koma upp á sem
þarf að ræöa og ganga að.
En ég vil ekki tjá mig frekar um
þetta mál, talaöu við mig eftir svona 14
daga.”
-JGH
Deilan um skattamálin:
„Þetta er fráleitt”
— segir Þorsteinn Pálsson um fullyrðingar Alberts í DV
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, telur það vera víðs
fjarri að auknir skattar til lausnar
húsnæðisvandanum séu í andstöðu
við stefnu flokksins og þingflokkur-
inn standi heill á bak við þessar
leiðir. Albert Guðmundsson segir
þessar leiöir hins vegar stangast á
viðstefnuflokksins.
„Þaö er fráleitt aö leggja málið
upp þannig," segir Þorsteinn. „Við
teljum okkur rétt og skylt aö afla
fjármagns til þess aö koma til móts
við húsbyggjendur. Það verður ekki
gert með öðrum hætti en meö tekju-
öflun því við höfum hafnaö að taka
meiri erlend lán í þessu skyni. Og því
fer víðs fjarri aö þessar leiðir séu í
andstöðu viö stefnu flokksins.” Þor-
steinn segir það vera yf irlýsta stef nu
flokksins að viöhalda sjálfseignar-
stefnunni í húsnæðismálum.
„Ef menn ætla að skjótast undan
merkjum er þaö i samræmi við eitt-
hvað annaö en yfirlýst fy rirheit sjálf-
stæðismanna,” segir Albert. Um það
hvort Albert sé að skjótast undan
merkjum vill hann ekki fjölyrða.
Hann segir að reynt hafi verið að
fara eins vægilega í skattamálin eins
og unnt hafi verið. Stóreignaskattur
veröur nú 1,2 prósent yfir ákveðnu
marki eins og hann var áður þegar
verðbólga geisaði hér. Hann hafi
verið lækkaöur niður í 0,95 prósent í
kjölfar minnkandt verðbólgu. Það sé
ekki óeðlilegt að grípa til þessara aö-
gerða nú þegar verðbóigan hefur
afturfariðuppáviö. APH