Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Síða 5
DV. FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985. 5 Reykviskur myndlistarnemi styflur vifl skorstein á húsþaki í Amster- dam: — Oooo, teskeiflarnar hverfa líka hérna. DV-myndir -EIR. segir vinkonan á skorsteininum. „Annars hefur þetta breyst svo mikið á undanfömum árum. Hér áöur fyrr reyktu allir hass og það var í tísku aö vera í dópinu. Nú er fólk annað hvort í þessu eða ekki — og þá alveg á fullu. Þetta með tiskuna skiptir ofsalega miklu máli, það þykir einfaldlega ekki smart lengur að vera dópaður. Nú vill fólk vera í góðu líkamlegu formi og hugsa skýrt, það tímir ekki að dópa sig.” Það er farið að síga á seinni hlutann og gestimir farnir að síga niður þakiö, sumir alla leið inn í litlu 20 fermetra íbúöina því nú er orðið rýmra þar inni. Enda er afmælisbarnið orðið 31 árs. -EIR. SmyglíLaxá: Skinka leyndist milli þilja Tollverðir fundu talsvert magn af smyglvamingi í flutningaskipinu Laxá sem kom frá Póllandi í gær. Var vam- ingurinn falinn víðsvegar í skipinu; milli þilja í herbergjum skipverja, í brúargólfi og tanki í vélarrúmi. 1 skipinu fundust 103 flöskur af sterku áfengi af ýmsum gerðum, 55 kíló af skinku og 7 kassar af sterkum bjór. Tíu skipverjar, þar á meðal nokkrir yfirmenn, hafa viðurkennt að eiga smyglið. Málið er að mestu upplýst en verið er aö kanna hvort fleiri um borð eigihlutaömáli. -EH. Leiðrétting Nafn norska sendiherrans á Islandi, Annemarie Lorentzen, misritaðist í sviðsljósi sl. miðvikudag. Að auki var sagt aö lúörasveit fró norska Hjálpræðishemum hefði komið hingað til lands gagngert til aö spila á þjóðhátíðardegi Norðmanna 17. maí, en tilefni komunnar var 90 ára afmæli íslenska Hjálpræðishersins. Fjáröf lunarleiðir stjórnarf lokkanna í húsnæðismálum opinberaðar: Um 430 milljóna aflað til ársloka Fjáröflunarleiðir stjómarflokkanna í húsnæðismálum fela í sér að aflað verði allt að 430 milljóna á þessu ári. Fyrsta leiðin felur í sér að söluskatt- ur verður hækkaður úr 24 prósentum upp í 25 prósent. Þessar breytingar geta hugsanlega aflað ríkinu 250 milljóna til ársloka. Reyndar hefur ekki enn verið ákveðið hvort miðað verður við 1. júní eða 1. júlí við gildis- töku. Ef seinni dagsetningin verður fyrir valinu koma ekki nema um 200 milljónir í kassann. önnur leið er skyldusparnaöur sem settur verður á hátekjumenn. A þess- ari leið er miðað viö að inn komi 40 milljónir. Þessi skattur verður settur á tekjur síöasta árs og kemur því til út- Stjóm Verslunarmannafélags Reykjavíkur telur að það eigi strax að ganga til viðræðna við vinnuveitendur á grundvelli tilboös VSI. „Okkur er ekkert að vanbúnaði að ganga nú þegar til viðræðna. Mér þætti miöur ef Vinnuveitendasambandið héldi aö sér höndum bara vegna þess að einhverjir fáir hefðu ekki áhuga á borgunar nú í haust. Þá er miðaö við að endurgreiðsla á þessum spamaði fari fram 1986 og 1987. Enn hefur ekki verið nefndur sá tekjuskattsstofn sem miðað verður við. I þessu sambandi má geta þess að stjóraarandstaðan er alfarið á móti því að þessi skattur verði settur á. Þeir benda .á að hús- byggjendur tilheyri oft á tíðum tekju- hærri hópunum vegna óstjórnlegrar vinnu. Með þessu væri því verið að bjóða þeim „rófuna” á sjálfum sér. Þriöja leiðin semkann að verða far- in er að settur verði á eignaskattsvið- auki. Þessi leið getur aflaö 90 milljóna. Frá félögum er gert ráð fyrir að komi 70 milljónir. Enn hefur ekki verið nefnt við hvað verður miðað í þessu sam- að semja núna,” sagði Magnús Sveinsson, formaður Verslunar- mannafélags Reykjavíkur, í viðtali við DV. Stjórn félagsins samþykkti einróma að félagið væri reiöubúiö til að ræða við vinnuveitendur þegar í stað enda fy rir- sjáanleg kaupmáttarrýrnun á næstu vikum. bandi. Frá einstaklingum er hins vegar gert ráð fy rir að komi 20 milljón- ir. Reyndar hefur einnig heyrst að þaö geti orðið 30 milljónir. I þessu sam- bandi verður miðaö við skatt á þá sem eiga skuldlausa eign upp á 1750 þúsund eöa meira. Fjórða leiðin er þekkt og felst í því að hækka verð á brennivíni og tóbaki. Þessi leið getur fært ríkinu allt að 40 milljónum ef að líkum lætur. Samkvæmt heimildum DV er ráð- gert aö söluskattshækkunin haldist á næsta ári og einnig eignaskattsaukinn og aö það f é sem aflast með þessu móti verði eymamerkt húsnæðismálum áfram. Vinnuveitendasambandinu hafa verið tilkynnt þessi tiðindi. „Eg fagna þessu,” segir Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSI. Hann segir að enn hafi ekki verið tekin afstaöa til þess hvort gengið verði til samninga við einstök félög. -APH. Fjórir stórir á aldarafmæli Listasafnsins — ogvegleg myndlistar- og safnsaga I Listasafni Islands er að hef jast meiriháttar sýning í tilefni af aldarafmæli safnsins sem var í haust. 111 verk Þórarins B. Þor- lákssonar, Asgríms Jónssonar, Jóns Stefánssonar og Jóhannesar S. Kjarval verða sýnd. Sýningin verður opnuð á laugardag og mun standa út ágústmánuö. Jafnframt kemur út vegleg saga íslenskrar myndlistar og Lista- safnsins, 1884—1984, með 167 lit- myndum af öndvegisverkum í myndlistinni, einnig fjölmörgum svarthvítum myndum. Bókin er einnig heimildar- og uppsláttarrit með f jölmörgum upplýsingum. APH VR vill viðræður strax AÐ ÖLLU LEYTI NÝR FJÓRHJÓLADRIFINN BÍLL EN BYGGÐURÁ LANGRI REYNSLU. Ný vél með reimdrifnum, yfirliggjandi knastásum, sparneytnari, þýðari og kraftmeiri en gamla vélin. Nú fimm gíra í stað fjögurra áður og auðvitað með háu og lágu drifi að auki. Eiginlega er SUBARU með tíu gíra áfram og tvo gíra afturábak. Slaglöng, sjálfstæð gormafjöðrun að aftan í stað flexitora áður. Endurbætt fjöðrun að framan. Stærri að ytra og innra máli en áður, óneitanlega fallegri. Nýtt og fjölbreytt litaúrval. Hlaðinn alls konar þægindaaukum, svo sem aflstýri, „central” hurðalæsingar, skuthurð og bensínlok eru opnanleg innanfrá, mjög rúmgóð, lokuð geymsluhóf í skut, hill holder, hljóðeinangraður, hæðarstilling á bílstjórasæti, rafknúin fjarstýring útispergla, stillanleg stýrishæð, snúninghraðamælir, tölvuklukka og margt fleira. AKIÐ EKKI ÚT í ÓVISSUNA - AKIÐ Á SUBARU. MUNIÐ BÍLASÝNINGAR OKKAR ALLAR HELGAR KL. 14 17. INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.