Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Síða 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985.
Sjöunda og síðasta verð-
könnun í þessari umferð
Sjöunda vikulega verðkönnunin í
matvöruverslunum verður jafnframt
sú síöasta í þessari umferð. Sem fyrr
halda þeir stóru forystunni en margar
smærri verslanir fylgja þeim samt f ast
eftir.
Við heildarútreikning eru sömu
vörutegundir og áður — smjörvi,
molasykur, appelsínur, bananar,
kjötfars, kótelettur og nautahakk.
Þessar vörutegundir hafa fengist alis
staðar, nema molasykurinn reyndist
ekki fóanlegur í einni verslun í síðustu
verðkönnun og það sama varð uppi á
teningnum núna. Tegundin sem á
boðstólum var héma er hins vegar á
svipuðu verði og sama magn í næstum
eins pakkningu. Því látum við þessa
tegund gilda fyrir tvær verslanir —
Kjötmiöstööina við Laugalæk og
Verslunina Valgarð í Breiðholtinu.
Þessi síöasta verðkönnun er unnin úr
búðum í Breiöholti — svonefndum
Golanhæðum Islands. Viöurnefnið er
sennilega af svipuöum rótum runnið og
eldra nafn á öðru hverfi — Smáíbúöa-
og Bústaðahverfið hét manna á meðal
Kasablánka meðan það var aö byggj-
Verslanir: Tómat- sósa Smjörvi Mola- sykur Appel- sínur Bananar Kjöt- fars Kóte- lettur Nauta- hakk Maís- korn Fljót- andi Ajax Kaffi
Verslunin Ásgeir 35,50 93,00 22,35 69,00 75,00 125,00 269,00 295,00 43,55 74,40 182,40
Víðir, Breiðholti 32,10 89,50 19,00 69,00 59,00 119,00 239,00 228,00 39,60 69,70 ekki til
Breiðholtskjör 37,50 90,90 21,50 68,00 74,50 130,00 242,00 282,00 43,50 ekki til 170,20
Valgarður 37,55 96,95 24,15 55,50 81,00 135,00 235,00 230,00 46,25 ekki til 174,70
Kjöt og fiskur 32,40 97,00 23,30 66,00 76,00 142,00 265,00 266,00 43,55 ekki til 182,00
Hólagarður 35,90 88,90 19,80 59,00 58,00 125,00 239,00 229,00 39,81 68,00 166,80
Útkoman úr unnum verðkönnunum er eftirfarandi:
Hólagarður: 818,70
Víðir, Breiðholti: 822,50
Verslunin Valgarður: 857,60
JL-húsið: 858,15
Víðir,
Austurstrœti: 862,30
Víðir, Starmýri: 867,80
Hagkaup: 875,00
Vörumarkaðurinn,
Eiðistorgi: 878,20
Nóatún, Rofabœ: 886,85
Kjötmiðstöðin: 889,95
Kjötborg: 895,70
Vörumarkaðurinn,
Ármúla: 896,70
Mikligarður: 903,95
Austurborg: 908,80
Breiðholtskjör: 908,90
Múlakjör: 913,00
Áskjör: 914,60
Árbæjarkjör: 920,10
Verslun M. Gilsfjörð: 922,75
Hagabúðin: 928,20
Sundaval: 929,95
SS, Laugavegi: 930,25
Kjörbúð Hraunbæjar: 930,95
Kjöt og fiskur: 935,30
Grensáskjör: 935,25
Sunnukjör: 937,55
Matardeild SS: 941,45
Bústaðabúðin: 941,50
Kron, Tunguvegi: 948,20
Verslunin Ásgeir: 948,35
SS, Austurveri: 952,20
Kron, Dunhaga: 952,70
Melabúðin: 972,70
Kjöthöllin: 974,00
Kjötbúð Vesturbæjar: 975,95
Réttarholt: 997,00
300 g f itu-
klumpar af
sunnudags-
steikinni
Sunnudagsstelkin kostaði rúmar
900 kr. Þetta var að vísu stórt
lambalæri, rétt um 3 kg. En við
vorum mörg og það veittl ekkert af
þessu.
Þegar búa átti lærið undlr steik-
ingu kom í ljós að á því var óvenju-
mikið og þykkt fitulag og það
skorið mjög hátt upp. 1 búðinni, þar
sem lœrið var keypt, var sagt að
búið væri að hreinsa mestu fituna
af.
Skorið var utan af lærinu eins og
nauðsynlegt var talið til þess að
hsgt væri að snæða það. Það sem
skorið var af reyndist vega hvorkl
meira né minna en 290 g. Reiknað á
því kg verðl sem iærið kostaði var
það fyrlr 86 kr.
Nokkuö mlkil afföll!
Og svo ætla þelr enn að hækka
kjötið eftir nokkra daga. Það fer að
verða hverri meðalfjölskyldu of-
viða að kaupa sér lamb í sunnu-
dagsmatinn.
A.Bj.
ast. Þar áttu einungis blankir að búa
og börn talin ódælli en gerðist annars
staðar í borginni. Síðar fluttist þetta
orð á Breiðholtið því þar bjuggu þeir
auralitlu með sérdeilis erfið börn og
unglinga til skamms tima.
En niöurstaðan úr sjöundu
verðkönnun DV bendir til þess að sér-
deilis ódýrt hljóti að vera að versla í
Breiðholti — gleðilegt fyrir þá aura-
litlu ef einhverjir eru eftir af frum-
byggjunum. Þrjár efstu verslanir í
verðkönnuninni eru einmitt í Breið-
holtinu og hinar þrjár úr því sama
hverfi dreifast nokkuð örugglega um
miðju. Þannig að íbúar á staðnum eru
nokkuö vel í sveit settir hvað matvöru-
verslanir snertir.
Athugið að þótt í töflunni standi að
ekki fóist fljótandi Ajax eöa kaffi er
ekki þar með sagt að það fáist alls ekki
á staðnum. Þama vantar einungis
nákvæmlega það sem leitaö var að —
Ajaxið í 1,250 lítra brúsum og Braga-
kaffi í gulum kílópokum. Og vert er að
geta þess að verslunin Víðir var með
sértilboð á bönunum sem er óvenju-
hagstætt — 29 krónur kilóið — en það
er ekki inni í heildartölunni. Sama er
aö segja um nautahakk í versluninni
Asgeiri, þar var líka hægt að fá ódýr-
ara nautahakk á 220 krónur kílóið en
svolítið annan gæðaflokk. Fylgt var
fyrri reglum í þessu efni þar sem
meðal annars JL-húsið var með nauta-
hakk á tilboðsverði þegar verðkönnun
var gerð í vesturbænum. I því tilviki
var hærra verðið látið ráða og sitja því
allir við sama borð aö þessu leyti. Eins
er ekki úr vegi að taka fram að verö á
appelsínum er mjög misjafnt en reynt
var að taka venjulegar Jaffa-appelsín-
ur og ef þær ekki fengust að finna þá
aðrar sambærilegar. I næstu viku birt-
ast svo heildamiðurstöður þessara sjö
verökannana á vegum DV undanfarn-
ar vikur.
baj.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
UNDRAEFNIPR0FAÐ:
Uppfyllti ekki loforð
auglýsingarinnar
Svipaö efni en langtum ódýrara verið lengi til á markaðnum
auglýsingunni. Pakkinn kostar 554 kr. með „undraefninu” er mosinn alveg
og skv. leiðarvísi á hann að duga ó 50 jafnmikill. Engin breyting.
Til þess að taka af öll tvímæli
Undraefni sem eyöir mosa á
nokkrum mínútum var auglýst í út-
varpinu fyrir heigi. Margir hafa ugg-
laust rokið til og keypt þetta efni — og
orðið fýrir miklum vonbrigöum. Þetta
er róndýrt og gerir ekkert gagn, í það
minnsta ekki eins og lofað er í
m!.
Við á neytendasíöunni keyptum
okkur pakka og prófuðum strax. Það
gerðist nákvæmlega ekki neitt.
Fjómm dögum eftir að vökvað var
prófuöum við aftur. Aö þessu sinni
afmörkuðum við lítinn blett og
vökvuðum gaumgæfilega. Var magniö
af efninu um það bil þriðjungi sterkara
en gefið var upp að nota ætti, það er
notað á þrisvar sinnum minni blett.
Eftir um það bil 45 min. kom í ljós
svört rák þar sem vökvað hafði verið
mjög ríkulega. Rákin varð nokkuð
greinileg en síðan gerðist ekki neitt.
Þekktur mosaeyðir
I mosaeyðinum er klóoxúrín, járn-
súlfat og þvagefni. Við höfðum sam-
band við Pál Marteinsson, verslunar-
stjóra hjá Sölufélagi garðyrkjumanna,
og spurðum hann um þessi efni.
Járnsúlfat er þekkt mosaeyðiefni
sem selt er í Söufélaginu. 2 kg kosta
115 kr. og duga á 50—75 ferm blett.
Efninu er blandað saman við sand og
stráð á mosabreiðu og virkar eftir
nokkradaga.
Þvagefni (60% af innihaldinu) er
ekkert annaö en köfnunarefnis-
óburður.
Páll sagðist ekki þekkja undraefnið
nema úr auglýsingu og gat þvi ekki
tjáð sig um gæði þess.
Um járnsúlfatið sagði hann
ennfremur að það væri ekki eitrað en
fólki væri ráðlagt aö láta ekki ung böm
skríða ó blettinum í viku eftir að efnið
hefði verið notað.
Þá benti Páll á að sum eiturefni yrðu
ekki virk nema í 10—12 stiga hita. Því
er fólki alltaf ráðlagt að blanda eitur-
efni með vel volgu vatni, samt ekki
heitu, því það eykur eiturverkunina.
Þegar við prófuöum mosaeyðinn var
lofthiti varla miklu meiri en 5—6
gráður.
A.Bj.