Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Blaðsíða 8
8 Útlönd Útlönd Útlönd DV. FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985. Útlönd SkákíMoskvu Alþjóöaskáksambandiö hefur ákveöiö aö halda heimsmeistara- einvígiö í skák í Moskvu eftir allt saman. Aöur höfðu menn gert því skóna að keppnin yrði haldin í Frakklandi. Skákeinvígið á milli Gary Kasp-' arov og Anatoly Karpov á aö hefj- ast 2. september. Þeir uröu að hætta viö einvígi sitt fyrr á þessu ári eftir 48 leiki. I ein- víginu í haust veröa skákirnar tak- markaöar viö 24. Ef hvorugur hef- ur sigrað eftir 24 skákir mun Karp- ov heimsmeistari halda titlinum. PLO vill ræða við ísrael Hussein Jórdaniukonungur sagöi í Bandaríkjunum aö Frelsissamtök Palestinumanna, PLO, væru reiöu- búin að hefja beinar samningaviö- ræður við Israelsmenn á grundvelli tveggja mikilvægra samþykkta Sameinuöu þjóöanna. Ef rétt er þá er þetta talsverð stefnubreyting hjá PLO. Hussein sagöi á blaöamanna- fundi í Washington aö þessar viö- ræður yrðu að vera innan ramma alþjóölegrar ráöstefnu um vanda- mál Miðausturlanda og að Sovét- menn yröu að fá að taka þátt í ráö- stefnunni. En hann sagði aö aöal- viöræðumar ættu aö vera á milli sameiginlegrar samninganefndar Jórdaníumanna og PLO og Israela. Ofnígangáný Bandariskir eftirlitsmenn hafa gefiö forráðamönnum kjamorku- ofnsins á Þriggja mílna eyju leyfi til aö setja ofninn sem stoppaöi vegna leka árið 1979 í gang á ný. Ríkisstjóri Pennsylvaníu og báð- ir öldungadeildarþingmenn fylkis- ins og fjölmargir félagahópar hafa mótmælt ákvörðuninni. Ofninn sem var settur í gang var ekki sá sem lak áriö 1979 en hann var stoppaður stuttu eftir aö systurofn hans f 6r að leka. Fíknilyf japróf Bandaríski herinn hyggst prófa borgaralega starfsmenn sína í við- kvæmum stööum til aö athuga hvort þeir séu fíknilyfjanotendur. Pentagonið hefur beöiö landher, flota og flugher aö senda sér áætlun um hvemig slíkar prófanir geti; farið fram. Láta veröur starfsmenn sem á aö prófa vita fyrirfram aö þeir geti átt von á að þurfa að pissa í rannsókn- arglas hvenær sem er. Þeir sem ekki vilja láta prófa sig eiga á hættu aö missa starfiö. Flugsýning Mikill viöbúnaöur var á flugsýn- ingunni í París i gær. Flugsýningin hefst í dag en í gær voru blaöa- mönnum kynntar helstu flugvél- arnar. Um 1.000 aðilar sýna á sýn- ingunni. A siöustu sýningu, fyrir tveimur árum, drógu sumir sýnendur sig til baka vegna kreppunnar sem þá var i öUu flugi, en nú er uppgangs- tími i fluginu og nógir sem vilja sýna. Sovétmenn, sem tóku ekki þátt áriö 1983 vegna stirös sambands viö Frakkland i kjölfar brottvisun- ar sovéskra sendimanna frá Frakklandi, sýna nú flugvél sem >eir segja aö sé stærsta flutninga- vél í heimi, Antonov 124. Einnig má sjá líkan af Mirage 2000 vélinni, jróuöustu orrastuflugvél Frakka. Fær Sýrlandsher lög- regluvald í Líbanon? Amin Gemayel, forseti Líbanon, hef- ur gefið i skyn aö Libanir kunni að fá Sýrlendinga til aö aöstoða við öryggis- gæslu í Líbanon. Gemayel er nú í Sýr- landi þar sem hann hefur rætt við Ass- adforseta. Gemayel sagöi aö einungis yf irgrips- miklar umbætur á stjómmálasviöinu gætu komiö landinu úr þeirri klípu sem það er í nú og sýrlenskur her gæti hjálpaö til við að koma þeim á. Hann sagöi aö „sýrlenski herinn gæti mynd- að sterkt afl sem gæti komið slikri áætlun í gagniö i samvinnu við hinn löglega her Líbanon.” Forsetinn lagði áherslu á aö Líbanon væri arabaland, og það myndi í fram- tiðinni styöja sig viö Sýrland. Gemayel sagöi aö hann og Assad heföu gert drög aö stjómmálabreyt- ingum sem þyrfti að gera og að þau drög væra byggö á hugmyndum þjóö- stjórnar Karamis forsætisráðherra. Gemayel og Assad eru einnig sagðir hafa rætt um fjöldamoröin í palestínsku flóttamannabúöunum í Beirút. Nú hafa 300 manns látiö lífiö þar og 1.100 hafa særst. Shíta-múslím- ar hafa barist þar gegn liösmönnum Freisissamtaka Palestinumanna. Öryggisráðið fundar Fundur öryggisráös Sameinuöu þjóöanna um ástandið í Líbanon á aö hefjast í dag, að beiðni Egyptalands. Oliklegt er þó talið aö nokkuö komi út úr þeim fundi því aö Sýrlendingar og Libanir era á móti því aö fundurinn sé haldinn. Egyptar vilja að rætt verði um að- stæöur Palestínumanna í flóttamanna- búðunum í Beirút og fjöldamorð á þeim sem shíta-múslímar era taldir hafa framið. Egyptar hafa rætt um að nota her- menn Sameinuðu þjóðanna sem stadd- ir era í Libanon til aö sinna öryggis- gæslu í búöunum. Þetta þyrfti þó ör- yggisráðiö að samþykkja og líklega myndu Sovétmenn nota neitunarvald gegnþeirri tillögu. Hl pp wm - j pplt'' ' } ■ ■ * 1 Skœruliðar shita-múslima skjóta sprengju úr sprengivörpu gagn flóttamannabúðum Palestinumanna I Beirút. Öskubakkinn á 27.000 kr. — aömírállinn sem keypti hann rekinn Caspar Weinberger, vamarmála- ráðherra Bandaríkjanna, hefur leyst aðmírál og tvo aðra hermenn frá störf- um eftir að upp komst aö þeir heföu samþykkt kaup á öskubökkum í flug- vélar og kostuðu þeir rúmar 27.000 krónur. Weinberger sagði aö slíkar aögerðir ættu aö vera sjálfsagöar hvenær sem slík tilfelli kæmu upp. Það var Grumman-flugvélafyrirtæk- ið sem framleiddi öskubakkana. Þaö lækkaöi veröið niöur í um 2.000 krónur eftir aö málið varö upplýst. Fyrirtócið hélt því þó fram að upp- haflegt verö heföi veriö sanngjarnt. Einungis heföu verið pantaðir nokkrir sérhannaðir öskubakkar. Þeir heföu veriö sértilbúnir f yrir s jóherinn. Weinberger hefur oft verið gagn- rýndur fyrir aö taka of vægt á yfir- mönnum sem láta kaupa alls kyns smááhöid á mörg þúsund krónur. Á blaðamannafundi lagöi Weinberger til aö ein leið til að leysa reykinga- vandamál um borð væri hreinlega að reykja ekki eöa nota „hinar gömlu, en tiltölulega öraggu mæjoneskrukkur. ” Weinberger sagðist ekki myndu borga 50 dollara, og heldur ekki 10 doll- ara fyrir öskubakkana. Sjóherínn er einnig aö rannsaka kaup á 16.000 króna skrúflyklum frá Grumman og hvemig lítiö áhald gat hakkað í verði frá um 100 dollurum upp i 2.700 dollara á einu árL Páfi hundeltur? Byssa sem fannst á Tyrkja sem var handtekinn í Hollandi fyrir tveim vik- um kom úr sömu sendingu byssufram- leiöandans og byssa sem notuö var til að skjóta Páfa i Róm árið 1981. Byssan var meöal 21 byssu sem framleiðand- inn sendi til Sviss. Nú velta menn fýrir sér hvert sambandið sé á milli. Tyrkinn var handtekinn á síöasta degi heimsóknar Páfa til Hollands. Hlaöin 9 mm sjálfvirk Browning byssa var i farangrí hans. Lögregla yfirheyr- ir nú Tyrkjann til aö athuga hvort hann hafi veriö í slagtogi meö Tyrkjunum og Búlgörum sem ákærðir eru fyrir morö- tilræðið viö páfa 1981. Svona hugsar taiknari Dagans Nyhetar sér ratsjórflugvélina nýju sam kemst I gagnifl ó nnstu órum. Svíar búa til ratsjárflugvél Svíar era í þann veginn aö framleiöa ratsjárflugvél sem getur aukið mjög loftvarnagetu sænska hersons. Ratsjá Svía myndi vera sett á búk Saab- Fairchild 340 flugvélar og myndi hún virka líkt og ratsjárnar á Awacs flug- vélum Bandaríkjamanna. Sænska blaöiö Dagends Nyheter segir aö vélin myndi ekki sist verða notuð á vesturlandamærum Svíþjóðar við Noreg, til að sýna Sovétmönnum aö Svium sé atvara þegar þeir lýsa sig hlutlausa. Blaðið bendir á að nær óhjá- kvæmilegt sé fyrír kjarnorkuvopnaða kafbáta Atlantshafsbandalagsins aö skjóta skeytum á Sovétríkin án þess að þau skeyti fari yfir Svíþjóð. Þetta á sérstaklega viö þá kafbáta sem staðsettir eru milli Islands og Noregs. Gert er ráð fyrir aö vinna við vélina hefjist á þessu ári, en hún verði tilbúin árið 1990 til notkunar svo einhverju nemi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.