Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Side 10
10 DV. FÖSTUDAGUR 31. MAÍ1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Grísku kosningarnar á sunnudag: Getur Mitso- takis stððvað Papandreou? Kosningamar í Grikklandi á sunnudag eru hápunkturinn í langri og biturri kosningabaráttu sem hefur leitt saman tvo persónulega og hugmyndafræðilega erkióvini. Grikkir hafa skipaö sér í tvær hreyfingar; Pasok, flokk Andreas Papandreou forsætisráöherra, og Nýtt lýöræði, flokk Konstantín Mitso- takis. Þessir tveir stjómmálaleiötogar hafa yfirgnæft kosningabaráttuna og þeir eru erkióvinir frá fomu fari. Papandreou er 66 ára skapheitur persónurisi, sem er aö sækjast eftir nýju fjögurra ára tímabili við stjóm- völ griska ríkisins til að ljúka viö þær endurbætur í málefnum Grikklands sem hann hóf fyrir fjórum árum. Mitsotakis er jafngamall andstæð- ingi sínum. Hann er þrekvaxinn og skapstilltur, hægfara íhaldsmaöur sem vili bæta samskipti viö Bandaríkin og Vestur-Evrópu og opna efnahagskerfi Grikkja. Jafnir Sumar skoöanakannanir sina Nýtt lýöræöi og Pasok nokkum veginn jafna en glæný skoöanakönnun, sem birt var í tímaritinu Ena, sýnir Pasok-sósíalistaflokk Papandreous f jórum prósentum á undan Mitsotak- is. Báöir frambjóðendurnir spá því aö þeir muni vinna meö nokkrum meiri- hluta. Báðir hafa haldið gífurlega stóra kosningafundi víðs vegar um landiö. Vestrænir fréttamenn hafa tekið eftir því að svo virðist sem einungis stuöningsmenn mæti á þessa fundi. Þegar Papandreou talar á fundi í einhverjum bæ þá á hann bæinn. Stuðningsmenn Nýs lýðræðis halda sig þá inni eins og sósíalistar gera þegar ihaldsmenn funda. Því hefur veriö lítiö um átök í kosningabaráttunni þrátt fyrir að mörg hörö orö hafi fallið. Efnahagsmál Lítiö hefur verið rætt um utanríkis- mál i þessari kosningabaráttu en því meira um efnahagsmál. Mitsotakis tók af skariö strax í upphafi og sagö- ist vilja hagkerfi sem byggðist mest á frjálsum markaösháttum. Hann lofaöi skattalækkunum til að lífga viö efnahag landsins. Papandreou tók sterklega á móti. Hann hefur kallað Mitsotakis „svik- ara” og „martröö.” Ræður hans eru flestar allsherjarfordæming á Mitso- takis og þvi sem hann kaliar „hægri arm” stjómmála í Grikklandi sem sósialistar saka um flest þaö sem aflaga hefur farið á Grikklandi fyrir stjómartíð sósíalista. Papandreou vill stofna ráögjafar- ráö fyrir iönaðinn sem í myndu vera fulltrúar staöarstjómvalda og ríkis- stjómar sem myndu hafa almennt eftirlit með iönfyrirtækjum og því að áætlunum ríkisins sé framfylgt. Hann vill einnig berjast gegn skatt- svindli hinnaríku. Mitsotakis vill skattalækkun Mitsotakis hefur lofað aö afnema innflutningsgjöld á bíla en á Grikk- landi em þau óhemjumikil. Hann hefur sagt aö þetta muni lækka kostnað á bílum um þriðjung. Merki kommúnistaflokksins, KKE, hangir uppi víða um Aþenu. Komast kommúnistar i oddastöðu eftir kosningarnar? DV-mynd Þ6G Þriöji aöalflokkurinn í baráttunni er gríski kommúnistaflokkurinn, KKE. Leiötogi hans, Charilaos Florakis, 71 árs gamall, hefur gagn- rýnt stjómvöld harðlega fyrir að hafa svikiö loforö sín um gagngerar breytingar sem sósíalistar gáfu fyrir kosningabaráttuna 1981. Sumir segja aö vinni Pasok flest sætin en án þess að fá meirihluta muni KKE ef til vill samþykkja að styöja stjóm sósíalista verði fyrst ákveöin einhver lágmarksáætlun um hvað skuli gera. Kommúnistar myndu vilja aö samskipti NATO og Grikklands yrðu fryst, aö stjómin nálgaðist Sovétríkin meira í utanríkismálum og nánari samvinna yrði við Austur-Evrópu og þróunar- ríki. Ef hins vegar Nýtt lýðræði fengi flest sætin án þess að fá meirihluta er meö öllu óhugsandi aö kommúnistar styddu stjóm ihalds- manna. Papandreou illur útfTyrki Helstu utanríkismálin, sem talaö er um, eru samskiptin við NATO og við Tyrkland vegna ágreinings um yfirráðarétt í Eyjahafi og vegna ágreiningsins um framtíð Kýpur. Papandreou segir að einungis verði hægt að hefja viöræður við Tyrki eftir að herliö þeirra verði á brott frá Kýpur og eftir að búið verði aö leysa Eyjahafsvandamálið á þann hátt sem Grikkir vilji. Mitsotakis segir hins vegar að til aö leysa þessi mál verði að tala við Tyrki. Umsjón: Þórir Guðmundsson Samband Grikklands við NATO er ekki upp á það besta. Grikkir neita að taka þátt í heræfingum Atlantshafsbandalagsins á meðan ekki er tekið tiilit til óska þeirra varðandi Eyjahaf, og sérstaklega á meöan ekki fara fram heræfingar í kringum eyjuna Lemnos. Tyrkir segja að Grikkir eigi að flytja allar hervéiar frá Lemnos í samræmi við samning frá 1923. Grikkir segja að sá samningur hafi fallið úr gildi með nýjum samningi 1936. Ihaldsmenn í Grikklandi eru sammála sósíalistum aðþessuleyti. Herstöðvar burt? Samkvæmt yfirlýsingum stjómar sósialista er Tyrkland höfuðóvinur Grikklands. Stjómin segir að Var- sjárbandalagslandið sem liggur að Grikklandi, Búigaria, svo og Júgóslavía og Albania, séu ekki hugsanlegir óvinir. Ihaldsmenn eru ekkisammála. Papandreou hefur lofað að loka bandarísku herstöðvunum fjórum sem em í Grikklandi. Arið 1983 skrif- aði hann undir samning um fimm ára framlengingu á vamarsamningi Grikkja og Bandaríkjamanna. Hann segir að þegar sá samningur renni út verði Bandaríkjamennimir aö fara. Ihaldsmenn vilja að þeir verði um kyrrt; segja að vamarsamningurinn þjóni hagsmunum Bandaríkjanna, NATO og Grikklands. Hann hefur einnig heitið miklum skattalækkunum og aö stytta herskyldutíma. Papandreou segir að verðbólga muni fara niður í 10 prósent úr 17,7 prósentum sem hún er í nú áður en hann ljúki öðru kjörtímabili sinu. Verðbólgan var 24,5 prósent þegar sósíaiistar tóku við stjóm fyrir fjórum árum. Opinberar tölur segja að um 300.000 verkamenn muni verða at- vinnuiausir við lok þessa árs en það er atvinnuleysi upp á 8,1 prósent. Papandreou hefur lofað að skapa 200.000 nýjar stöður á öðru kjörtíma- bili sínu og að hafa eytt atvinnuleys- inu fyrir 1990. Hann vill halda áfram aö beina miklu opinberu fjármagni í heilsu- gæslu og menntun og að tryggja kaupmátt þrátt fyrir verðbólguna. Opinberar tölur segja að halU á viöskiptum viö útlönd sé 12,4 miUjaröar dollara en þegar sósiaUst- ar tóku við var haliinn 7,9 miUjarðar. Ihaldsmenn segja þó aö hallinn nú sé í raun 20 miUjarðar. „Svikarinn" Papandreou reynir ekki að leyna óbeit sinni á Mitsotakis. Hún á rót sína að rekja aftur tU ársins 1965 þegar þeir voru báðir meölimir mið- stjómar George Papandreous, föður Andreasar. Papandreou vill fjögur ár i viöbót til að koma á þeim breytingum á grísku samfálagi sem hann lofaði árið 1981. Þaö ár gekk Mitsotakis úr stjóm- inni ásamt öðrum sem fylgdu honum. Hann sagðist óttast stjóm- málakreppu vegna deilna Papan- dreous eldri viö Konstantín konung annan. Síðan þá hafa sósiaUstar kaUað Mitsotakis „svikarann”. Mitsotakis er einn fárra stjóm- málamanna sem geta staðið i Papan- dreou i kappræðum. Hann hefur notað ræðumennskugáfu sina tU að etja íhaldsmönnum út í harða kosningabaráttu gegn sósíalistum. Barist um miöjuna Ræður og loforð beggja aðal- frambjóöendanna taka sitt mið af þvi aö þeir em aö sækjast sérstak- lega eftir atkvæðum þeirra 10 prósenta manna sem ekki hafa enn gert upp hug sinn um hvem þeir ætla Mitsotakis baðar sig i fagnaðarlát- um stuðningsmanna sinna. En eru þeir nógu margir til að koma honum f forsœtisráðherrastólinn? að kjósa. Bæði Pasok og Nýtt lýðræði reyna að bjóða fram miðjustefnu tU að heUla sem flesta kjósendur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.