Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Page 14
Kennarar Skólastjóra og kennara vantar að Gerðaskóla í Garði. Almennar kennslugreinar auk handavinnu stúlkna og íþrótta. Upplýsingar í símum 92-7053, 92-7211 og 92- 7177. NÁMSGAGNASTOFNUM NÁMSSTEFNA UM NÁMS- EFNISGERÐ Dagana 19.—21. ágúst gangast Námsgagnastofnun, skólaþróunardeild menntamálaráðuneytisins, Kennara- háskóli Islands og Hagþenkir fyrir námsstefnu um námsefnisgerð í Kennslumiðstöð Námsgagnastofnunar, Laugavegi 166 Reykjavík. Hámarksfjöldi þátttakenda er 25. Námskeiðið er ætlað kennurum og öðrum þeim sem áhuga hafa á gerð fræðsluefnis fyrir börn og unglinga. Dagskrá: 1. Námsefnisgerð, undirbúningur og aðdragandi. Fagleg, kennslufræðileg og þjóðfélagsleg sjónar- mið. Gagnasöfnun, heimildir, samanburður og tengsl. 2. Námsefni, gerð, útlit og mat. Tölvuvinnsla/rit- vinnsla. Handrit, myndir og hljóðefni. 3. Vettvangsferðir og samantekt. Innritun fer fram í síma Námsgagnastofnunar, 28088, og stendur til 1. júlí næstkomandi. Nauðungaruppboð Að kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Njarðvíkurbæjar og ýmissa lög- manna veröur haldiö nauðungaruppboð til sölu lausafjármuna, eign ismat hf. Veröur uppboöiö haldiö föstudaginn 7. júní nk. kl. 14.00, aö Brekkustíg 40 Njarðvík. Meðal þeirra muna, er seldir verða, er'u kjötaf- greiðsluborð, farsvél, pylsusprauta, kæliborð, pökkunarvél, símtæki, auk þess bifreiöin U-4350 Mercedes Benz 1978. Greiðsla fari fram viö hamarshögg. Uppboðsskilmálar liggja frammi á skrifstofunni. Uppboöshaldarinn Njarðvík. Lausafjáruppboð Opinbert uppboö á reiöhjólum og öðrum óskilamunum i vörslum lög- reglunnar í Hafnarfirði fer fram föstudaginn 7. júní 1985 og hefst kl. 16.00 að Flatahrauni 2, Hafnarfiröi. Munir þessir veröa til sýnis á sama stað mánudaginn 3. júní og þriðjudaginn 4. júni kl. 14.00 — 17.00. Þar og þá eiga menn þess kost aö sanna rétt sinn til munanna. Greiösla við hamarshögg. Uppboðshaldarinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 102. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 og 2. og 8. tbl. þess 1985 á hluta í Þjóttuseli 1, þingl. eign Leifs Jónssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavík og Ara isberg hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 3. júni 1985 kl. 14.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 102. tbl. Lögbirtingablaös 1984 og 2. og 8. tbl. þess 1985 á hluta í Vesturgötu 23, þingl. eign Sólrúnar Katrínar Helgadóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar I Reykjavík á eigninni sjálfri mánudaginn 3. júní 1985 kl. 10.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Rjúpufelli 46, þingl. eign Eysteins G. Guðmundssonar og Auðbjargar Kristinsdóttur, fer fram eftir kröfu Ævars Guðmundssonar hdl. og Guð- mundar Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 3. júni 1985 kl. 14.30. Borgarfógetaembættið I Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 102. tbl. Lögbirtingablaðs 1984, 2. og 8. tbl. þess 1985 á hluta í Unufelli 29, þingl. eign Kristínar Eiríksdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri mánudaginn 3. júní 1985 kl. 15.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 42., 51. og 57. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í Möðrufelli 11, þingl. eign Guðrúnar Axelsdóttur, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins og Helga V. Jónssonar hrl. á eigninni sjálfri mánudaginn 3. júní 1985 kl. 14.45. Borgarfógetaembættiö í Reykjavík. DV. FÖSTUDAGUR 31. MAI1985. Menning Menning Menning Indæl vorkveðja Ténleikar Tónlistarfélagsins í Háskólabíói 25. maí. Flytjendur: Janice Taylor og Dalton Bald- wln. Efnisskrá: Gömul spönsk lög i útsetningum Dorumsgaard; Hector Berlloz: Söngvar úr Les Nuits d’Été; Ottorlno Respighi: Canto funebre og La Fine; Claude Debussy: Le Jet d’Eau, Receuillement og La Mort des Am- ants; Gustav Mahler: Friihlingsmorgen, Hans und Grete, Erinnerung, Scheiden und melden. Tíundu tónleika sína á þessu starfs- ári hélt Tónlistarfélagið í Háskólabíói síðastliöinn laugardag. Góðvinur ís- lenskra ljóðaunnenda, Dalton Bald- win, var við píanóið til aö leika meö söngkonu sem kölluö hefur verið ein af þjóðargersemum Kanada sakir raddar sinnar og hæfileika, Janice Taylor. Ekki er mér kunnugt um hver fann upp þetta viðurnefni söngkonunnar sem óspart mun notað í allri kynningu á henni og hennar kostum enda skiptir það ekki máli. Hitt þykir mér merki- legra að til skuli þaö fólk sem viöur- kenni að söngrödd geti talist þjóðar- gersemi og væri betur að slíkt væri gert á fleiri bæjum. Engin stöðlun Víst er að rödd Janice Taylor er sér- stæð og laus viö þann keim stöðiunar sem einkennir svo margar velskólaðar raddir nútímans. Hún valdi sér ýms fá- heyrð lög til flutnings, að minnsta kosti ef tekið er mið af efnisvali söngvara okkar og nágrannalandanna. Fyrst er að taka gömlu spönsku lögin, eftir Mudarra, De La Torre, Esteve, Anchi- eta og Gabriel. Sérstæð og heillandi falleg lög sem hæföu rödd og karakter söngkonunnar einstaklega vel. Síðan komu fimm lög úr Sumamóttum Berli- oz við ljóð Gautiers, þess sem barðist manna harðast fyrir frelsun listarinn- Tónleikar Eyjólfur Melsted ar undan hinu siðræna oki og orti svo formströng ljóð. Sumamætur eru perl- ur og hér voru þær einstaklega vel fluttar. Ekki spillti að hafa við höndina snjallar þýðingar Þorsteins Gylfason- ar sem fylgdu með efnisskrá. Seinni hluti tónleikanna hélt áfram í svipuðum dúr. Magnþrungin lög Respighis komu fyrst, en eins og menn vita er það aöeins eitt sem Respighi hefur aldrei kunnað í sönglagagerð — að hafa miskunn meö söngvaranum. Vart þarf fram að taka að þaö misk- unnarleysi hrein hvorki á söngvara né meöleikara og hafandi ljóöaþýöinguna við höndina hygg ég að hver einasti tónleikagestur hafi getað notið þessara stórkostlegu ljóðsöngva til fulls. Ljóð Debussys létu kannski hvað kunnuglegast í eyrum tónleikagesta, yndisleg, ljúf og tregablandin og svo í lokin komu Mahlerljóðin. Textameð- ferð Taylor var mjög góð, vægast sagt, en svo eðlileg sem mér hafði fundist hún á hinum málunum kom hún mér heldur „lærð” fyrir eyru á þýskunni. Vönduð var hún, en mér fannst eins og hjá henni skorti þessi eðlilegu tengsl textans og músíkurinnar sem fyrir hendi voru þegar hún söng á hinum málunum. Við þaö lof sem fyrr hefur verið á Dalton Baldwin hlaðið er engu að bæta. Hann er sá sem ætíð kann að slá rétta tóninn, meðréttum blæ og af rétt- um styrk, á réttum tíma, en stundum hvarflar að manni hvort ekki væri púð- ,ur í ef þessi fullkomni söngvarans þjónn gerði uppreisn og krefðist þess að fá að leika sjáifstætt, en likast til er hann búinn að því áður en til tónleik- anna kemur. Það fer víst enginn í graf- götur um hversu mótandi áhrif svo makalaus meöleikari hefur á söngvar- ann og fullkomnun listar hans birtist kannski gleggst í þvi sem lítur út sem algjör undirgefni við „aðalstjörnuna”, en fara samt sínu fram. Með þessum tónieikum sendi Tónlistarfélagiö öllum sem meötaka vildu indæla vorkveðju. Höfuðlausn Gyrðis Gyrðir Etlasson: einskonar höfuö lausn. Mil og menning 1985,36 Ijóð é 44 bls. Nýlega skrifaði ég ritdóm um ljóöa- bók (Sigurlaugs, bróður Gyrðis, hann gerir kápumynd þessarar bókar) og kvartaði yfir því að ekki væri efnisyfir- lit. Það er ekki heldur í þessari bók, enda yrði það undarlegt, ljóðin heita algengum táknum, sem sum gætu ver- ið komin af veðurkorti, önnur ekki, en allt virðist vera valið af fullkomnu handahófi. örlítiðsýnishom: W asa 0.25 6 1 2 I fréttatilkynningu útgefanda segir réttilega, að í þessari bók séu ekki f rá- sagnir, heldur augnabliksmyndir. Þessir textar eru einmitt mjög mynd- rænir, og ef eitthvað gerist, þá sjáum við yfirleitt aöeins einn, dramatískan atburð, ekki atburðarás. Gjaman hefj- ast ijóðin í miðjum klíðum, t.d. á orð- inuog(semþá erstafsett: &).Enhvað er sýnt? Oft er það herbergi um nótt, stundum götumynd, oft í Reykjavík, en stundum í þorpi, að því er virðist, eða sveitabæ, einstaka sinnum i bíl úti á þjóðveginum. Nótt er mun meira áber- andi en dagur. Hversdagsleikinn yfir- gnæfir í lýsingunum, mér sýnist lögð áhersla á hann, en þá er hann lika and- stæður ööru, það er eitthvað annarlegt. Þetta er með ýmsu móti, lítum á nokk- ur dæmi. Eitt kvæði er fyrirsagnar- laust, endasegir: „afsakið! fyrir mistök í prentsmiðju hefur slæðst hér inni slitur af miöa sem fannst ásamt stolnu útvarpstæki í herbergi númer 24 á hótelheklu föstudaginn lánga anno domini 1947” Og hvaða skilaboð skyldu nú vera á miða, sem er tengdur ofbeldi, einhveiju spennandi, sem rýfur hversdagsleik- ann, miða sem hefur varðveist svona lengi? Þar stendur það eitt, að farirðu út, mætir þér örugglega ekkert nema hversdagsgráminn. Dagsetningin undirstrikar hve sígilt þetta er. Og það sem stolið var, er útvarpstæki, en ein- mitt útvarpið er einskonar stef í þess- ari ljóðabók, fulltrúi hversdagsleik- ans, t.d. þegar lýkur indjánahasar- myndinni í leikfangalestinni í ljóðinu — (bls.17) þá heyrist dæmigerð setn- ing úr útvarpi. Gyrðir notar gjaman reyfara, teiknimyndasögur og annan bófahasar, kvikmyndir, t.d., til að skapa andstæðu viö kunnuglegt um- hverfilslendinga. Sjáumt.d.: W & upp spretta (snapp) sem á snögg/klipptri (x) filmu rimlarnir úr stofugólf inu nema við loft skellur glamur í lyklum snúið í skrá situr einn læstur í andránni næstu frá DV & TV um aldur & ískaldar raddir sem hvískra að utan um 99 ár daga nætur uppá vatn & brauð f rysta klefann Þetta er atriði úr bófamynd (eða teiknimyndasögu) í klassískum stíl, stofugólf reynist búa yfir gildru, allt í einu smellur stálbúr uppúr því utanum söguhetjuna. Nú ætti næst að laumast inn .JCínamaður með stóran sting”, og vissulega er nú hvislað hótunum um að Bókmenntir Örn Ólafsson fangelsið verði ævilangt, frá röddum sem eru svo ískaldar, að klefinn frýs, en hverju er fanginn sviptur? DV & TV (sjónvarpi)! Þaö er kannski ljótt að skrifa það í þetta blað, en mig meir en grunar, að þessar skammstafanir eig; aö tákna það rislægsta i hversdagsleik ■ anum. Það er því kaldhæðnislegt a , segja að fanginn „frjósi af skelfingu” þegar honum er hótað missi þessa! Athugum nú annað ljóð, þar hefi ég undirstrikað orö úr yfirborðslegustu heimsmynd biaöanna (já, þær eru jafnan fleiri en ein í sama blaði, eða heimsmyndin er á fleiti en einni hæð), en feitletraö orð úr veðurfræði. Gyrðir beitir hér tvíræðni, alkunna er að felli- byljir bera kvennanöfn: P glerkennd augu lognmolla brennidepill haustsól á niðurleiö (geislasneitt ozonlag) tvær stúlkur haveacokeanda- smile skilti f jallhringur azúrbiár andstuttir bílar að hraða sér heim (fellibylurinn diana væntanleg á leiö sinni suöaustur til buckingham) mistursemþéttist Eitthvað kann að orka tvímælis í þessum merkingum mínum, en það skiptir varla miklu. Sama gildir um túlkanir mínar, þær geta verið um- deilanlegar, en ég vona að þær veki þá lesendur til andsvara! Aöalpersónan í þessu ljóði er nánast ósýnileg, það eru svo hversdagslegir miðaldra menn, sem eru persónugerðir meö líking- unni: „andstuttir bílar”, af því aðþeir eru alltaf að flýta sér heim til sín, eða þá í vinnuna, allavega í rútinuna. Og yfir líf þessa fólks ryðjast auglýsingar og fréttir af kóngafólki, rétt einsog veðrið. Lítið ber á fólki i þessum ljóðum, og það segir þar helst eitthvað mjög lág- kúrulegt eða sviplaust, það er einsog segir á bls. 15: „sér á blápúnkt með kúpli & litlausu tvívíöu fólki á flökti.” I einu ljóðinú (sb hér fyrir aftan) eru andstæðumar þær, að inní bíl er næsta andlaus vaðall af ýmsu tagi, landafræði, saga og grín, en útum gluggann birtist fögur mynd. Reyndar sýnir landafræðitalið hve breytiíeg er mynd veruleikans og tilbúin, ekki einu- sinni á hreinu hvað London merkir. Athugið orð um liti og lögun (feit- letruð hér): Dökkur þríhyrningur með beinum línum, hvítur með bogmynduð- um linum og rauö boglina. Gyrðir beit- ir iðulega óvenjulegri orðskiptingu milli lína, hún miðast viö það að skapa orð úr orðhlutum, til að orðin geti merkt tvennt í senn. Ymislegt er enn órætt í ljóöinu, lesendum skal sérstak- lega bent á að athuga 3. línu þess. And- stæðumar í þessu Ijóði, sb, skýra kannski hversvegna skáldið leggur sig svo fram um að draga upp sérkenni- legar myndir. Bók hans ætti að geta orðiö mörgum til uppljómunar í hvers- dagsgrámanum. sb né ha hvassiru o é sem hélt london væri amríku skrúfar upp rúðuna mazdan áfram regntiöarþök báöumegin holtsins &þáng að liggur beinn &---blakkur pýramíði fjall hár skorinn í himin kapeila bog mynduð hvit segl rauð vík &gírskiptíng svar eftir stundarþögn já vissulega í amriku & f rekar þrjár en ein a: london, canada.. . 43o00’N81°15’W london, kentucky 37oll’N84o05’W london, ohio.. . 39°54’N83°28’W en samtsemáöur mestmegnis við thamesána & lóðrétta núllbauginn ef mérskjátlast ekki því meir & leikhúsin & shakespeare gamli ritóður á sinni tiö frá stratford upon avon minnir mig altaf sama djöfuls þokan heyri ég & ekki leingur gasljósin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.