Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Síða 16
16 DV. FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985. Spurningin Fórst þú á landsleikinn við Skota um daginn? Elías Haraldsson deildarstjóri: Nei, en ég sá hann í sjónvarpinu. Þetta var ansi svekkjandi. Páll Heiðar Hauksson neml: Nei, ég sá hann ekki. Kolbrún Pálsdóttir skrifstofumær: Nei, ég missti því miður af honum. Jðn Alvar Sævarsson nemi: Já, og mér fannst þetta nokkuð góður leikur. Stemmningin á vellinum var frábær en grátlegt að tapa honum svona. Svanhildur Pétursdóttlr bankastarfs- maður: Nei, ég sá hann í sjónvarpinu. Islensku leikmennirnir léku vel. Það var synd að þeir skyldu tapa. Kjartan I. Hrannarsson versiunar- maður: Nei, ég var að vinna. Eg sá hann i sjónvarpinu. Islendingarnir áttu að vinna, þeir stóðu sig mun betur enSkotar. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Konur eru til bölv- unar í umferðinni ökugikkur skrifar: Vitið þið hvers vegna umferðin er svo stirð og treg og vond í Reykja- vík? Það veit ég og mér finnst ekki nema sanngjamt að aðrir fái að vita það einnig. Eg uppgötvaði svarið í Lundúnum suöur fyrir skemmstu. Fyrstu dagana var ég alveg agn- dofa — umferöin gekk svo greiðlega, sama hvað þétt hún var og aðstæður erfiðar. Eg saup hveljur af hrifningu yfir leikni ökuþóranna bresku, hve lip- urlega þeir smugu inn í eyður, nýttu sér svigrúm, hjálpuðu öðrum, slógu ekki af hraðanum aö tilefnislausu. Á fjórða degi rann upp fyrir mér loga- gyllt ljós: þaö var undantekning að kona sæist undir stýri! Þegar ég kom aftur heim og fór að aka um götur borgarinnar, steytandi hnefann á hverju homi, sótbölvandi og hálfsnöktandi af bræði vegna sein- lætis og klaufaskapar allt í kringum mig, þá sá ég samanburðinn: hér er allt morandi af konum i umferöinni. Og þær eru alls staðar til bölvunar. Þær lötrast áf ram eftir götunum þótt enginn sé fyrir framan þær en fyrir aftan þær hlykkjast langar bílalestir með sárgrömum bílstjórum, gníst- andi tönnum af óþolinmæði. Þær koma að gatnamótum, nema staðar þótt enginn bíll sé i augsýn, góna til allra átta og himinsins lika og bíða þess að eitthvað gerist. Þær rykkja loksins af staö en sjá sig um hönd og klossbremsa af engu sýnilegu tilefni með þeim afleiöingum aö næsti bíll rekst aftan á þær. Auövitað eru þær dæmdar í rétti, þótt allir viti aö þær séu valdar að slysinu. Kæra fósturlandsins Freyja: Hættu að rembast við að keyra úr því að þú getur það ekki. Taktu leigubíl eða strætó eða fáðu þér hressandi göngutúr en láttu okkur karlana um að key ra. Þá verður umferðin betri. Verið varkár á erlendri grund Sigurjón skrifar: Fyrir stuttu mátti lesa í blöðum frétt um íslensk ungmenni sem urðu fyrir því að öllum farangri þeirra og pening- um var stolið í feröalagi erlendis. Þessi saga er ekkert einsdæmi. Það er aldrei brýnt nægjanlega fyrir fólki að vera varkárt á erlendri grund, þar sem all- ar gerðir af skúrkum vaða uppi. Við er- um svo vön örygginu hér heima að við gerum okkur ekki grein fýrir hættunni erlendis fyrr en kannski þegar það er um seinan. Ég gæti þess alltaf i mínum ferðum að geyma alla mína peninga, skilríki og þess háttar í buddu sem ég bind við mittið og geymi innan við nær- buxurnar. Svo reyni ég að hafa sem minnst af verðmætum í farangrinum, t.d. skil ég myndavélina aldrei við mig nema þegar ég sef og fer í sturtu. Sé farið að dæmi mínu er hættan á skakkaföllum eins lítil og hún getur verið. £8 Hringið kl. 13-15 eða SKRIFIÐ Bréfritari er ekki hlynntur því aö sjó konur við stjórn ökutækja. Þessi ferðaiangur hefur Itklega orðið fyrir barðinu é fingralöng- um skúrkum. Bíllinn valt og 1 honum allt. Endursýnið þáttinn með Jóni Páli Hótmar skrifar: Er hægt að fá þáttinn með keppninni um sterkasta mann heims endursýnd- an í sjónvarpinu? Hann var sýndur 20. mai og eins og flestum er kunnugt bar Jón Páll sigur úr býtum í keppninni. Eg vona að forráðamenn sjónvarps taki þessa ósk til greina. ÁFENGISÚTSALA í FJÖRÐINN Hafnfirðlngur hringdl: fyrir helgar um leið og þeir bregða Það hafa einhverjir drífandi menn sér í áfengisútsölurnar í bænum. sett á stað undirskriftasöfnun fyrir Þetta ætti því að vera sameiginlegt áfengisútsölu í Hafnarfirði. Eg skora hagsmunamál alira Hafnfirðinga, á Hafnfirðinga að taka vel í þessa borgara, verslunarrekenda og söfnun. Það er vitað mál að Hafn- bæjarstjómar. firðingar versla mikið í Reykjavik Nú eiga sjónvarpsáhorfendur von á þvi að sjá þær stöllur Pamelu og Sue EUen á skjánum á nýjan leik ásamt öðrum úr Dallasfjölskyldunni. Dallas sýnt aftur Tvær úr Kópavogi hringdu: Við sáum í DV að það á að fara að sýna Dallas aftur í sjónvarpinu. Okkur langar til að þakka fyrir þessa ákvörð- un sjónvarpsins, það hafa margir beð- ið lengi eftir að DaUas birtist aftur á skjánum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.