Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Síða 30
42 DV. FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985. SANTANA - BEYOND APPERANCES SPARI- FATA- POPP Nú oröiö er Phil Collins oröinn það vel þekktur að óhætt er að nefna hann án þess að rekja f ortíð hans sem söngv- ara og forkólfs hljómsveitarinnar Genesis eftir að Peter Gabriel hætti þar. A síðustu árum hefur Phil Collins hlotið mun almennarí vinsældir og meiri hróður en nokkur hinna félaga hans í Genesis eða hljómsveitin í heild. Sérstaklega hefur hann fallið Banda- ríkjamönnum vel í geð. Meginorsök þessara vinsælda eru tvær fyrri sóló- plötur hans en þar að auki hefur hann aðstoðað marga fræga kappa á þeirra plötum. Nýjasta piata Phil Coliins, No Jacket Required, hefur nóð ágætum vinsældum enda er hún gerð eftir sömu formúlu og hinar fýrri. Laglínurnar grípandi, kraftmikill söngur og hress- andi lúðraþytur, þó minna áberandi nú en áður. Textamir eru lélegir sem fyrr, — æ lov jú, væ dónt jú lov mi — samsetningur. Textarnir fylgja ekki prentaðir, sem betur f er. Ekki er um að ræða miklar breyt- ingar á stíl milli platna, enda hvers vegna skyldi Phil Collins vera aö breyta því sem hefur gert það svona ljómandi gott á vinsælda- og sölulist- um? Sum laganna eru líka gerð til þess aö smella þar beint inn i efstu sætin, dægurflugur eins og Sussudio. Rólegu ballöðumar, t.d. One more night sem margir þekkja og Long long way to go em mér hins vegar meira að skapi, þar nýtur Phil sín betur þó stundum sé stutt í væmnina. Af aðstoðarmönnum meistarans má nefna þá frægustu, Peter Gabriel og Sting sem báðir raula ofuríítiö með, en stórgóöur gítaríeikarí, David Stuerm- er.eráberandi. Þegar allt kemur til alls verð ég að telja Phil Collins til betri poppara og játa að mér finnst hann sífellt skemmtilegri. Tónlist hans hefur þann eina tilang að vera skemmtileg og nær honum án þess að vera klisjukennd eða endurtekningasöm. Á þessa plötu er hægt aö hlusta oft sértilupplyftingar. -Járn. LIFIRENNA FORNRIFÆGD Eg efast um aö nokkur hljómsveit í sögu rokksins hafi gengið í gegnum jafnmargar og miklar breytingar og hljómsveitin Santana. Ekki nóg með að mannabreytingar innan hljómsveit- arinnar hafi verið tiðarí en hjá opin- berum stofnunum hér á landi — heldur hefur hljómsveitin líka fengist við allar helstu tónlistarstefnur og strauma sem upp hafa komið innan rokksins síðastliöin 15 ár. Upphaflega sló Santana í gegn á latin-ameríska rokkinu sem hljóm- sveitin kynnti fyrir heiminum. Síðan lá leiðin smám saman yfir í jassrokkiö — þaðan í fönkiö og á tímabili var tónlist hljómsveitarinnar helguö einhverri sértrúarstefnu sem Carlos Santana haföi ánetjast. Eftir aö hann var laus úr viðjum trúarinnar söðlaöi hann gjörsamlega um og diskóið ómaöi af plötumSantana. Og það gerir það að vissu marki enn því danstakturinn er ansi ríkjandi í lögum þeirrar plötu sem hér er til um- fjöllunar og kom út nú ó dögunum. En þrátt fyrir allar þær byltingar sem hafa orðið á hljómsveitinni og tón- list hennar er eitt sem ávallt hefur ver- iö til staðar. Og það er vörumerki hljómsveitarinnar — gítarleikur CarlosarSantana. Því miður hefur æ minna farið fyrir honum vegna þess aö hann er enginn diskógitarleikari en þó reynir hljóm- sveitin að koma fyrir svosum einsog einu sólói i hverju lagi — annars myndi maður ekki þekkja Santana frá hverri annarri diskógrúppu. En þrátt fyrir að þessi plata sé hin þokkalegasta er það af sem áöur var þegar Santana fór ótroðnar slóöir og maður beið hverrar plötu frá hljóm- sveitinni meö eftirvæntingu. Nú er leikiö eftir tiskustraumum og þaö svo rækilega aö í einu lagi plötunn- ar gat ég ekki heyrt betur en að Phil Collins væri genginn til liðs við Sant- ana. Ekki nóg með að lagið væri ekta Collins-lag og útsett sem slíkt með blásaradeildinni og öllu tilheyrandi heldur gerði söngvari Santana sér far um að ná rödd Collins sem best — rétt einsog hver önnur eftirherma. Vissulega er Phil Collins allra góöra gjalda verður en þetta finnst mér nokkuð langt gengið. En sem sagt ágætisplata. -SþS- KILLING JOKE — NIGHT TIME LELEGUR BRANDARI Sennilega muna ekki margir eftir bresku hljómsveitinni Killing Joke. Þó var þessi flokkur þónokkuð viöriöinn Islendinga fyrir nokkrum árum þegar vinskapur tókst með hljómsveitar- meðlimum í Þey og Killing Joke, einkanlega oddvita þeirra, Jaz Cole- man. Um hríð var sambandið það náið að vart mátti á milli greina hvar Þeyr- inn tók enda og Killing Joke tók við: Jaz yfirgaf sina bresku bræður og geröist heimilisfastur hér i nepjunni uns einhver snuröa hljóp á þráðinn, Jaz hvarf á braut og þessi þráður hefur mér vitanlega ekki verið tekinn upp síðan. Þeir í Killing Joke hafa löngum ver- ið uppteknir af margvíslegri dulrænu og fundið ýmis merki umhana. Þannig kenndu þeir hér dularkrafts jökla, álfa og trölla og sóttu innblástur hingað á klakann. Utkoman varð þung og tor- melt. Nóg um það. Nú er komin ný plata frá Killing Joke, — Night time. Sú er I ekki alveg eins óaðgengileg almúga — hlustendum og jöklapælingarnar hér áður fyrr en samt sem áöur ekkert sleikipinnapopp. Tónlistin er hrátt og pönkað rokk, hávaðasöm og svolítið þvæld og gamaldags. Textamir eru torskildir og fráhrindandi í fyrstu en sjálfsagt fullir af djúpri meiningu. Eg bara næ henni ekki. Lögin eru flest tilbreytingarlaus og gleöja ekki eyrað svona við fyrstu hlustanir en vera má að einhver þeirra vinni á síðarmeir. Undantekning er þó lagið Eighties sem er lokalag plöt- unnar, rokkari með snörpum ádeilu- texta. Ég veit ekki hvort þessi plata er fremur svanasöngur eða endurreisn þessara klassísku pönkara en mér líkar hún ekki. Til þess er hún alltof hrá, gróf og hávaðasöm og auk þess mjög fráhrindandi og óaðgengileg þeim sem ekki er þegar d júpt sokkinn í pælingarnar. Kannski hittir hún beint í mark hjá einhverjum gömlum djókara sem finnst hún vera toppurinn. Hann umþað. Jám SMÆLKI Sailnu! Ekkert lát Br á sóló plötum frá söngvurum þekktra hljómsverta eins og Rolling Ston es, Queen, J. Geils 8and og fleiri. í næsta mánuðí er væntanleg sólóplata frá Sting, söngvara Políce. og kemur út á þjóðfiátíðar daginn okkar, þann sautjánda, og iögin eru öll samín af söngvatan um sjálfum ... í nassta mánuði, örlitið fyrr, þann sjötta, ætti að sjást hér í verslunum ný sólópiata Bubba Morthens, Kona að nafni ... Meira íslenskt: Hljómsveiiin Cosanostra sem vakti athygli sjónvarpsóhorfenda þegar hún lék lagið um rauðu fjöðrina i sjón- varpssal fyrir skemmstu hljóöritar sfna fyrstu plötu t sumar, diskólög með enskum textum að þvi er heimildir herma ... Qrðrómur um samstarf Bronski Beat og Mark Almond eftir brottför Jimi Somet ville mun ekki á rökum reistur. Hins vegar hefur Somerville breytt nafni hljómsveitar sinnar úr Committee í Body Politíc... Snotra hjartalagið er aldrei langt undan þegar popparar eru annars vegar ems og dæmin sanna á síðustu mánuðum. Nú hafa nokkrir popparar, sam jafrt framt eru aðdáendur fótbohans, á kveóió að syngja iag inn á plötu til ágóóa fyrir sjóð sem hefði það markmió að liðsinna aðstand endum þeirra sem fórust á Brad fordleikvanginum. Meðal þeirra sem taka þátt i þessum styrktar söng er góðkunningi okkar Rod THE KANE GANG - THE BAD AND LOWDOWN WORLD OF... BILAÐUR ATTAVITI Breskar hljómsveitir og almennt breskir rokkunnendur sjá sóltónlistina í einhverjum hillingum þessi síðustu misseri; allt popplif í Bretlandi snýst meira og minna um sóltónlist og hver bandaríska sólstjarnan rekur aðra á breska listanum. Aukinheldur gengur mýgrútur af breskum poppurum með þann draum í maganum að ná góðum tökum á sóltónlistinni. Enn sem komið er hafa fæstir náð svo langt. Paul Young kannski. Og þó. The Kane Gang er hljómsveit frá Newcastle sem ég heyrði fyrst í síðast- liðið haust er gullfallegt lag hennar, Closest Thing to Heaven, fikraði sig upp á breska listann. Þetta lag gaf góð fyrirheit og sólfílingurinn virtist nokk- uð ósvikinn. Framhald varð hins vegar ekki á velgengninni þó skoðana- kannanir um áramót sýndu aö þessi hljómsveit frá Newcastle væri í hópi þeirra efnilegustu. Þessi fyrsta breiðskífa The Kane Gang sýnir okkur tvístígandi hljóm- sveit með bilaðan áttavita, rammvillta í frumskógi poppsins. I svona tilvikum þýðir ekkert að kalla út hjálparsveitir, engin hætta er á ferðum og týndu sauðirnir verða sjálfir að finna réttu leiðina út úr skóginum. Meö jákvæðu hugarfari má segja að rauði þráðurinn í plötunni sé einhvers- konar missterk tilfinning fyrir sól- tónlist en sannast sagna er enginn þráður, hvorki rauður .. . né öðruvísi. Sum laganna eru þó óvitlaus og væri ég ekki margoft búinn að yfirfára plötu- miðann héldi ég enn að inni í plötuum- slagið hefði fyrir handvömm laumast léleg safnplata með ýmsum hljóm- sveitum. Síöustu fréttir af The Kane Gang herma að Paul Hardcastle eigi að stjórna upptökum á næstu breiðskífu. Mér er það hulin ráðgáta hvaða erindi hann á viö Kane Gang nema að söðla eigi gersamlega yfir í diskóið. Og til hvers var þá þessi samtíningur? -Gsal. Stewart, Elton John, George Michael og Kim Wilde ... Djass istinn heimskunni, trompetleik arinn Miles Oavis, gefur út smá skífu í þessari viku þar sem er að finna lag Cyndi Laupers. Time After Time ... Paul Hardcastle. sem átt hefur topplag breska popplistans síðustu vikur. hefui valdið nokkrum óróa í Bandaríkj unum meó lagi sínu um Víetnam striðið, Nineteen. Ein stærsta bandariska sjónvarpsstöðin, NBC, hefur neitað að sýna hluta úr vfdeóinu með laginu en flestar sjónvarps og útvarpsstöðvar hafa á hinn bóginn hampaó Paul Hard castle og lagió hans var valið sem þemasöngur á hátíð sem haldin var nýlega vestra í tilefni þess að tiu ár eru liðin-frá lokum stríðsins i Indókína ... Bowielagið, sem sýnt var í Skoorokki síðasta föstudag, er komið út á smáskifu, Loving The Alien af plötunni Tonight ... Melody Maker út nefndi á dögunum nokkur gáfuleg ustu lagaheiti sem sést hafa. Þar var að finna lög eins og Be-Bop A Lula. Agadoo, Da Doo Doo Doo Da Da Oa Da, Papa Oom Mow Now og Ob-La-Oi Ob La Da... Búió í bilí . GsaL i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.