Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.1985, Qupperneq 32
44 DV. FÖSTUDAGUR 31. MAl 1985. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Karólína Mónakóprinsessa sést oft í heimspressunnl enda stúlkan starfsöm og eftirsótt f réttaefni. Karólína tók nýveriö þótt í miklu skátamóti sem haldiö var í glæsi- görðum Marchaishailarinnar rétt fyrir utan París. Stúlkan er vist ekki vön því að sjást á skátamótum á undanförnum árum en hér áöur fyrr var slfkt ekkert tiltölumál enda Karólína alvöruskáti þar til á 16. aldursári. Stundum segja menn nú einu sinni skátl, ávallt skáti og virðist það gilda ágætlega um prinsessuna. Karólina og hinar 70 stúlkurnar sem tóku þátt í skáta- mótinu við glæsihöllina sváfu þarna undir berum himni, grilluðu sinar pylsur og m.a.s. iæddust út i skóg til að pissa. Ekki má gleyma þvi að flysja þurfti kartöflurnar fyrir kvöldmatinn og auðvitað þvo upp alla diskana. „Þetta var allt eins og vera orðin tólf ára gömul aftur, frábær tími, en svakalega er nú eitthvað langt siðan,” sagði prinsessan hæstánægð með skáta- útileguna. Juan Carlos, konungur Spánar, og kona hans, Sofia, eru mikið skiðafólk og nota hvert tækifæri er gefst frá opinberum embættis- skyldum til að skreppa til fjalia á skiði. Spánn er nú reyndar ekkl mesta skiðaland í heimi og þekktur1 fyrir flest annað en fallegar skiða- brekkur. Hjónakornin konung- bornu skelltu sér þvi til paradísar skiðamannsins, Sviss, til borgar- innar Gstaad. Borgin er ekki eln- ungis þekkt fyrir skiðasvæðin í grenndinni heldur einnig fyrir að vera vlðkomustaður rikra og eðal- borinna er elska það að fara á skíði. En kapp er best með forsjá. Hinn konungbornl skiðameistari vaidi sér of bratta brekku elnn sólar- morguninn i Gstaad. Hann réð ekk- ert við hraðann á nýsmurðum úr- valsskiðunum, náði ekkl einni beygjunni og snarflaug á rassinn. Hann brákaðist illa á hægri hand- legg og var fluttur i skyndi á næsta spitala. Síðan flaug DC 8 einkaflugvélin með hann aftur heim í höllina þar sem kóngsi þurfti að hanga i heilan mánuð og sinna embættisskyldum sinum úr rúminu. Nancy Reagan, eiginkona Ron- alds Reagan, forseta Bandaríkj- anna, er sögð mikil húsmóöir og njóta sín einna best í eldhúsi Hvíta hússlns, þar sé hún laus frá öllum skarkala hins opinbera lifs. Auðvlt- að sér Nancy ekki um heimilishald í því stóra húsi en forsctafrúin fær þð af og til að læðast inn i eldhúsið og brasa eitthvað handa sjálfri sér og sinum ektamanni. Um daginn átti ein af frænkum Nancy frá Kaiiforniu afmæli og þá var aö sjálfsögðu boðið til smá- privatveisiu i Hvíta húsinu. Nancy vildi nú sjálf sjá um baksturinn og bakaði forkunnarfagra og aldeilis bragðgóða kókoshnetutertu með súkkulaöibragði. Síðan birtist for- setafrúin í stofunni, þar sem gestirnir biðu, með ilmandi af- raksturinn. Þaö voru meira en 450 manna er tóku þótt í hátíðarsýningunni á Chorus Line, átta ára velgengni og nýtt met á Broadway hvað tlma varöar. Söttg- leikjamet Fjölbrautaskólanum í Garðabæ var slitið í fyrsta sinn þann 18. maí síðast- liðinn og voru þá brautskráðir 17 stúd- entar. Fimm útskrifuðust af viðskipta- braut, þrír af málabraut, þrír af fé- lagsfræðibraut, tveir af uppeldisbraut, einn af íþróttabraut, einn af heilsu- gæslubraut, einn af eðlisfræöibraut og einn af tónlistarbraut. Eitt frægasta veitingahús Parísar- borgar heitir Maxims, þekkt fyrir glæstan mat og freyðandi kampavín auk nokkuö hárra reikninga. Annars skiptir upphæð reikninganna ekki öliu fyrir þá er Maxims sækja heim, yfir- leitt fólk er lætur sig verð kræsinganna litlu skipta, hugsar meir um bragð og meltingu. „Allt Broadwaystræti er hér í kvöld,” sagði leikstjórinn Joseph Papp á heljarinnar afmælissýningu ó söng- leiknum Chorus Line í New York. Atta ára velgengni söngleiksins og 3389. sýning á leiknum vinsæla var ástæða mikillar hátíðarsýningar fyrir Bestum námsárangri á stúdents- prófi náöi Margrét Einarsdóttir með A í nær öllum greinum. Hátíðleg athöfn var haldin í skólan- um og fluttu ávörp m.a. Þorsteinn Þor- steinsson skólameistari er afhenti prófskírteini, Arni Olafur Lárusson, forseti bæjarstjórnar Garöabæjar, og séra Bragi Friðriksson sóknarprestur. Maxims hefur nú sannarlega fært út kvíarnar, búinn að opna glæstan veit- ingastað í miðborg Peking, eigi langt frá Torgi hins himneska friðar, ef ein- hverjir skyldu vera á leiðinni. Nú gefst Kínverjunum tækifæri til að stinga prjónunum í sandinn, hvíla sig á hrís- grjónunum og smakka alvörufrans- mannamat með f rönskum eðalvínum. fullu húsi tiginna gesta. Chorus Line setti nýtt met á Broadway, leikhúsgöt- unni frægu, engin sýning hefur gengið eins lengi. Sá sem var hvað vinsælast- ur áöur en Papp og Chorus Line kom- ust á toppinn var söngleikurinn Grease. Meö stúdentahópnum á myndinni eru Gísli Ragnarsson aöstoðarskóla- meistari, til vinstri, og Þorsteinn Þor- steinsson, skólameistari Fjölbrauta- skólans í Garðabæ, til hægri. A vorönn voru nemendur skólans tæplega 300. Mikinn tíma tók að undirbúa ævin- týrið. Senda þurfti heila herdeild af kínverskum matreiðslumeisturum til Parísar til að kynna sér galdra”haute cuisine” þeirra fransmanna og lengi stóðu menn i stríði við kínversk yfir- völd er voru ei of hrifin af hugmynd- inni. Alls hafa meira en 22 milljónir manna séð söngleikinn í gegnum árin og borgaö ófáar krónumar í vasa leik- hússins og þess fyrirtækis er sá um að setja söngleikinn upp. Samfelld sigur- ganga Chorus Line. Victoría Príncipai hofur fulia ástœðu til að brosa út að eyrum é myndinni, nýtrúlofuð önd- vegismannl auk þess sem sjónvarpsmynda- flokkur hennar, hinn vinsœli Dalias, er búinn að vera á toppnum hvað hylli varðar i nokkur ár. Pamela giftirsig Pamela Ewing, eða réttu nafni Victoria Principal, er vinsælt augna- yndi, blaðamenn og ljósmyndarar þyrpast að hvar sem ungfrúin sýnir sig. Annars verður Victoria ekki ung- frú mjög lengi í viðbót þvi stúlkan er í giftingarhugleiðingum, og þaö í alvör- unni. Biðill hennar og ástmaður er kunnur skurðlæknir í Kalifomiu, dr. Harry Glassman, og hafa þau verið saman fyrir alvöru á annað ár. Hljómsveltln Bucks Flzz lót ei delgan siga þrótt fyrlr alvarlegt umferðarelye og elaem malflel tveggja maðlima. Þau Mlka Nolan, Charyl Baker, Bobby Gee og Jay Aston hafa óetœðu til að vera glöð þessa dagana. Bucks Fizz komin á ról Hljómsveitin Bucks Fizz er aftur komin á ról eftir að tveir meölima hennar lentu í alvarlegu umferðarslysi fy rir réttum fimm mónuöum. Mike Nolan og Cheryl Baker hentust margra metra út úr ökutæki hljóm- sveitarinnar er það rakst af öllu afli á vörubíl á þjóðvegi nálægt Newcastle í Norðvestur-Englandi. Nolan var meövitundarlaus í fimm daga og um tíma var honum ekki hug- aðlíf. Á fimm mánuðum hefur margt breyst. Hljómsveitarmeölimir eru heilir heilsu og ákveðnir í að láta óhappið engu breyta um framtíðar- áformin. Það var fullt hús aðdáenda í Birmingham þann 22. mai síöastliðinn er hljómsveitin kom loks fram aftur og skemmti gestum eins og hún hefði ekki annaö gert síðustu f imm mánuði. Fjölbrautaskólanum í Garðabæ var slitið I fyrsta sinn hinn 18. maí síðastliðinn. I vor útskrifuð- ust alls 17 nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum. A myndinni sjóum við hinn föngulega hóp nýstúdenta, Gísla Ragnarsson aðstoðarskólameistara, til vinstri, og Þorstein Þorsteinsson skólameistara, til hægri. Útskríft Fjölbrauta- skólans í Garöabæ Allt tilbúið, krœsingarnar krauma í pottinum. „Ég brúka kapitalismann til að þjóna sósíalismanum," sagði franski yfirkokkurinn og vísaði nokkrum innfæddum til sætis. Forstjóri Maxim, Le Jarre, með her kinverskra þjóna sem eru tilbúnir í slaginn. FRANSKIR KOKKAR í PEKING

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.