Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Blaðsíða 1
NGAR OG AFGR
alst,óháð dagblað
DAGBLAÐIЗVISIR
133. TBL. - 75. og 11. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ1985.
Málþóf Al-
þýðubanda-
lagsins
Þrír þingmenn Alþýöubanda-
lagsins, þeir Hjörleifur Gutt-
ormsson, Svavar Gestssón og
Steingrímur J. Sigfússon, héldu uppi
málþófi á Alþingi í gærkveldi. Þeir
fluttu allir alllangar ræöur um
Byggðastofnun og tóku reyndar
byggöamálin fyrir á ítarlegan hátt.
Það sem vakir fyrir þingmönnunum
er ekki að tefja fyrir frumvarpi um
Byggöastofnun sérstaklega, heldur
munu þeir vera að mótmæla vinnu-
brögðum stjómarflokkanna nú í lok
þingsins. Þeir segja að ríkisstjómin
ætli nú með offorsi að keyra í gegn
fjölmörg mál og haf i ekkert hugað að
því að semja um þingslit við
stjórnarandstöðuna.
Umræðan um Byggðastofnun stóð í
rúma fimm klukkutima og töluðu
fyrrgreindir þingmenn megnið af
þeim tíma. Iðnaðarráöherra sakaði
þá um málþóf. Þeirri ásökun vísaði
Sva var Gestsson á bug og sagði þetta
ekki vera neitt méilþóf. Hjörleifur
Guttormsson kannaðist heldur
ekkertviðmálþóf.
„Við erum ekkert meö slíkt. For-
sætisráöherra hefur ekki óskað eftir
samstarfi um þingslit og hefur látið i
það skína að hér yrði setið í sumar.
Við teljum byggðamál vera
mikilvæg mál, sem verður að f jalla
itarlega um,” sagði Hjörleifur.
Þingfundur stóð fram á rauða nótt.
__________________ -APH.
Hvelangtvill
Alþýðubanda-
lagið ganga?
„Þetta var mjög hressilegur
fundur og menn vildu greinilega
ræöa betur hversu langt Alþýðu-
bandalagið vill ganga,” sagði Mar-
grét S. Björnsdóttir þjóöfélags-
fræðingur við DV í morgun. I
gærkvöldi var Margrét
framsögumaður á fundi hjá Alþýðu-
bandalaginu í Reykjavík ásamt
Sigurjóni Péturssyni, borgarfulltrúa
Alþýðubandalagsins í Reykjavík.
Umræðuefnið var hugsanleg
samstaða minnihlutans í borgar-
stjórn við næstu sveitarstjórnar-
kosningar. Ákveðið var að loka
engum leiðum og halda viðræðum
áfram. -ÞG.
BSRB ogríkið:
Vikufrestun
A fundi samninganefnda ríkisins
og BSRB var ákveðið að fresta
viðræðum þar til í næstu viku. Báðir
aðilar telja nauðsynlegt að fá
umhugsunarfrest í ljósi þess að
slitnað hefur upp úr viðræðum ASI
°gVSl. ,APH.
Ný kollsteypa f ramundan, leyniviðræður „sterku” f lokkanna:
STERKAR LÍKUR Á
HAUSTKOSNINGUM
Eftir að viðræður um nýja, al-
menna kjarasamninga eru sama og
strandaöar stefnir í átök á vinnu-
markaðnum og sprengisamninga.
Það táknar að jafnframt stefnir rak-
leitt í haustkosningar til Alþingis.
Staða „steiku” flokkanna, Sjálfstæð-
isflokks og Alþýðuflokks, og al-
mennt, pólitískt ástand ýtir fast und-
irkosningar.
Formenn beggja núverandi stjóm-
arflokka hafa lýst því margoft yfir
að þeir muni ekki láta nýja koll-
steypu ganga yfir ríkisstjórnina.
Jafnframt eiga samningar að vera
frjálsir og lagaboð gegn kollsteypu-
samningum kemur ekki til greina.
Stjórnin á því ekki annarra kosta völ
en að leggja árar í bát. Kraftaverk
þarf til að fresta þessum örlögum
hennar.
Niöurstöður skoöanakannana hafa
mánuðum saman sýnt yfirburða-
styrk Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
flokks meðal kjósenda. A bak við
tjöldin hafa faríö fram viöræður
milli áhrifamikilla einstaklinga í
þessum flokkum um að nýta byrinn í
haustkosningum og stefna að sam-
eiginlegrí stjórnarmyndun, nýrri
svokallaðri viðreisnarstjórn.
Það ýtir mjög undir þessar bolla-
leggingar að Alþýðubandalagið hef-
ur misst helming fylgis síns, sam-
kvæmt skoðanakönnunum og að Al-
þýðuflokksmenn eru ekki of vissir
umað JóniBaldvin, formanni, endist
dampurinn til lengdar nema bardag-
'inn harðni fljótlega í kosningum. A
hinn bóginn sækir nokkur efi að s jálf-
stæðismönnum um samstarf við Jón
Baldvin.
Þeir telja að komi Alþýðuflokkur-
inn á nýtt þing meö fjölmennan þing-
flokk muni Jón Baldvin gera kröfur í
stjórnarsamstarfi, sem gangi um of
yfir stefnu Sjálfstæðisflokksins í
framkvæmd. Hinir ungu forystu-
menn hans ætla hins vegar að
„standa á stefnunni”. Til greina
kemur jafnframt að Bandalag jafn-
aðarmanna veröi þriðja hjól undir
vagninum.
HERB
Til deilu kom um borð í fiskiskipinu
Freyju RE 38 síðdegis í gær þegar
senda átti skipið til veiða. Þustu verk-
fallsverðir um borö. Frestaði út-
gerðarmaðurinn för þess og á niunda
tímanum í morgun lá Freyja enn í
Reykjavíkurhöfn.
Verkfallsverðir litu svo á aö út-
gerðarmaðurinn væri aö brjóla sjó-
mannaverkfallið ef skipiö héldi til
veiða. Hugðust skipverjamir, sem
allir eru yfirmenn, taka með sér
háseta skráöan sem kokk, en bannað
er að breyta skráningu skipverja í
verkfalli. Og ef þeir færu án hásetans
væru yfirmenn að ganga í störf undir-
manna.
Lét útgerðarmaðurinn sér segjast
við fortölur verkfallsvarða og frestaði
brottför. -KÞ
:r
Fulltrúar Sjómannafélags Reykjavlkur
ræða við Freyju-menn í gær. Útgerðar-
maður skipsins frestaði brottför skips-
ins og í morgun var það enn í höfn.
DV-mynd S.
Einkarétturinn afnuminn:
Fríálst útvarp frá áramótum
Utvarps- og sjónvarpsrekstur
verður gefinn fr jáls f rá og með næstu
áramótum, samkvæmt nýjum út-
varpslögum sem samþykkt voru í
gær.
Mikil spenna ríkti í efri deild í gær
þegar útvarpslögin voru samþykkt í
óbreyttri mynd. Stjómarflokkamir
ásamt Bandalagi jafnaðarmanna
samþykktu frumvarpið en stjórnar-
andstæðingar aðrir í efri deild voru á
móti. Atkvæðagreiðslan fór þannig
að 13 vom meö, 5 á móti og tveir
þingmenn vom f jarstaddir.
Davíð Aðalsteinsson, Framsóknar-
flokki, lagði fram breytingartillögu
fyrir hönd framsóknarmanna og
sagði að ef hún yrði samþykkt þá
kæmist á þjóðarsátt í þessu máli.
Hans tillaga fólst í því að útvarps-
réttamefnd gæti ákveðið hlutfall
auglýsinga, að gerðir yrðu samning-
ar viö Póst og síma og sveitarfélög
um boðveitur og að lokum yrði
ákveðinn kvóti í stjórnmálaumræðu í
öllum fjölmiðlum sem féllu undir
frumvarpið.
Alþýðuflokkur bar einnig upp
breytingartillögu sem f jallaði um að
útvarpsnefnd og stjóm menningar-
sjóðs útvarpsstöðva tækju til starfa
nú á þessu ári og einnig að tryggt
yrði aö lögin yrðu endurskoðuð að
þremur árum liðnum.
APH