Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Qupperneq 15
DV. FÖSTUDAGUR14. JUNl 1985.
15
Menning
Menning
Menning
Menning
NÝSKÖPUN OG
FORN FRÆGÐ
Sýning Listmálarafélagsins að Kjarvalsstöðum
Þeir sitja ekki auðum höndum i
íslensku akademiunni, Listmálara-
félaginu. I Galleriinu að Vesturgötu 17
sýna þeir með reglulegu millibili „það
besta í íslenskri myndlist”, eins og
segir aftan á nýlegri sýningarskrá, en
hafa nú auk þess tekið ailan vestursal-
inn að Kjarvalsstöðum á leigu fyrir
hópsýningu.
Eg hef áður látiö í ljós þá skoöun
mina aö mér þykir Listmálarafélagið
skrýtið fyrirbæri og gamaldags og
nenni varla að útlista hana frekar. Hér
stöndum við einfaldlega andspænis
hópsýningu með öllum sinum kostum
og göllum. Og hópsýningar geta víst
aldrei orðiö heilsteyptar. En þær geta
verið skemmtilegar og fjölbreyttar, og
það er sýning Listmálarafélagsins
ekki nema að takmörkuðu leyti.
Endumýjun
Ef á heildina er litið komast fígúra-
tífir expressjónistar og landslagsmál-
arar betur frá sýningunni en afstrakt-
málaramir. Nýsköpun og hefð haldast
betur í hendur í verkum hinna fyrr-
nefndu, meðan hinir síðarnefndu reiða
sig á forna frægð og enn eldra mynd-
máL Þó er nokkrum afstrakt málurum
gefið aö endumýja sig í hverju verki.
Hér á ég fyrst og fremst við þá
Kristján Davíðsson og Elías B.
Halldórsson — hinn siðarnefnda með
nokkrum fyrirvörum. Kristján ber
varla liti á striga án þess að þeir slái
neista hver af öðrum, og tekst að halda
fullum dampi þótt myndflöturinn sé
kominn upp í fimm fermetra. Elías B.
hefur haft tilhneigingu til skreytni í
verkum sínum, er ekki alveg laus við
hana að þessu sinni, en nær samt að
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
yfirstíga hana og tilheyrandi
viökvæmni í stórbrotinni myndgerð.
Sjá, JC/hvalræði” og „Blá saklaus”.
Umfangsmeiri
Pétur Már Pétursson kannast ég
ekki við, en verk hans lofa góðu. Lista-
maðurinn virðist i fljótu bragði binda
trúss sitt við ýmsa sígilda afstrakt
expressjónista, t.a.m. de Kooning,
steypir saman frjálslega máluðum
formum og líkamsleifum af talsveröu
öryggi. Svo mikil eru umsvifin í
myndum Péturs, að hann mætti að
ósekju hugsa í umf angsmeiri verkum.
Af hinum hlutbundnu expressjón-
istum risa þeir einna hæst bræðumir
Siguröur og Hrólfur, svo og Jóhannes
Geir. Einkasýningar Jóhannesar Geirs
er stuttlega getið hér á síöunni,
og hef litlu að bæta við þá umsögn
nema frekara lofi. Sigurður virðist
hins vegar allur færast í aukana sem
myndlistarmaður í ellinnL „Vor í
hrauninu” eftir hann er traust og hrif-
andi verk, og myndir Hrólfs hafa til aö
bera slagkraft langt umfram stærð.
Það hefði þótt saga til næsta bæjar hér
fyrir þrjátíu árum, að endumýjunar
islenskrar málaralistar væri helst að
vænta í landslagsmálverkinu. Svei
mér þá ef ekki er eitthvað til í því.
-AL
Elias B. Halldórsson - K/hvalrœði (nr. 47).
Sigurður Sigurðsson — Vor í hrauninu (nr. 36).
Aðalsteinn Ingólfsson
brögðum listamannsins með olíu og
pastelliti.
Sérstaða
Efniviður Jóhannesar Geirs hefur
svosem ekki tekið miklum stakka-
skiptum á undanfömum árum. Ut um
gluggann sinn sér hann Elliöaárstífl-
una i öllum veðrum, eða þá að hann
skýst upp í Heiðmörk, jafnvel til
Grindavíkur. Þetta eru sjaldnast ferð-
ir út í óvissuna, því listamaðurinn veit
hvað hann vill finna og finnur það. Við
sjáum hesta og hestamenn, báta, álftir
á flugi, gömul hús, en öll þessi mótif
em sem nótnablöö sem Jóhannes Geir
notar til að skrá á þau stef sem hann
hefur verið að þróa í meir en aldar-
fjórðung. Þannig enda allar hugleið-
ingar um málara sem tjá sig gegnum
liti: í meira og minna subjektífum tón-
listarlíkingum. En þótt slíkar likingar
séu nærtækar, verður samt ekki horft
framhjá því sem málað er, hinu frið-
samlega sambýli manns og umhverfis,
hinni hljóðu dagsins önn. Þessi sýning
Jóhannesar Geirs markar að sönnu
ekki tímamót á ferli hans, en hún stað-
festir sérstöðu hans i islensku
myndlistarlifL
AI
Sýning Jóhannesar Geirs
„Nú er rétti tíminn til að mála,”
segja málningarkaupmenn i bænum og
keppast viö að auglýsa aldeilis ótrúlegt
úrval lita, pensla, lakka og aðskiljan-
legra efnablandna. Brátt líður að þvi
að þök, veggir og gluggapóstar lifni við
eftir veturinn, og Reykjavik verður
óumdeilanlega litríkasta höfuðborg
Evrópu.
En besta litasjóiö í bænum er nú
samt að finna á sýningu Jóhannesar
Geirs í Galleríinu að Vesturgötu 17.
Þar er listamaöurinn upp á sitt besta,
með ótrúlegt úrval lita undir kontról,
eins og kaupmennimir mundu segja.
Þurfa menn aö vera sjóndaufir í meira
lagi til að hafa ekki ánægju af töfra-
Jóhannes Geir vifl eitt verka sinna.
Myndlist
í DAGSINS
ÖNN
mmj
er komin!
í sve
Misstu ekki
VIKU
úr lífi þlnul
VIKAN
á öllum
blaðsölustöðum