Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Síða 33
DV. FÖSTUUAGUR14. JUN! 1985.
Sviðsljósið Sviðsljósið
Spjallað saman í kringum grillið og beðið eftir bita. Á myndinni eru m.a. Sigmar Óttarsson,
Guðmundur, Jensína Valdimarsdóttir og Elisabet Konráðsdóttir. Þau Sigmar, Jensína og
Elisabet hafa lokið námi og eru á leið heim.
Vorfundur FÍSNar
Félag íslenskra námsmanna í
Noregi hélt vorfund sinn viö
Sognsvatn við Osló nú í vor. Á vor-
fundinum var eins og venja
kveðjuathöfn fyrir þá námsmenn
sem hafa lokið námi og eru á leið
heim á skerið.
Fundurinn fór vel fram þrátt
fyrir aö veðurguðirnir vildu
minna íslensku námsmennina á
að engin útihátið er án rigningar.
Námsmennirnir létu vætuna ekki
á sig fá og grilluðu og skemmtu
sér sem mest þeir máttu fram
eftir degi. Um kvöldið kynnti ungt
skáld, Finnur Gunnlaugsson, sína
fyrstu ljóðabók fyrir FÍSNar-
félögum uppi á Stofu eins og að-
setur námsmanna í Osló heitir.
Gunnar Einarsson handboltamaður gleymdi regnhlífinni heima en lét það ekki á sig fá og not-
aði bara kassa í staöinn til að verjast utanaðkomandi vætu. Hann er hér í hrókasamræðum
við Jón nokkurn sem mun vera fóstra og virðist Jóni standa á sama þó að hann vökni.
Eins og þeir vita, sem á annað borð fara i bíó, er venjulega mikill kvennafans sem birtist i hverri mynd um
spæjarann mikla, James Bond. Í nýjustu myndinni, A View to a Kill, er ekki gerð undantekning frá þeirri
reglu og safnað var saman búnti af fögrum fraukum til að prýða myndina. Þær stilltu sér upp til mynda-
töku ásamt hetjunni sjálfri, þ.e. Roger Moore sem fer með hiutverk 007, kannski i siðasta sinn. Bíóhöllin
mun væntanlega sýna A View to a Kill nú í sumar.
Guðni Guðbergsson var ánægður með kveðjugjöfina sem hann fékk frá
FÍSN en hann var að Ijúka framhaldsnámi í liffræði og starfar nú hjá Veiði-
málastofnun. Myndir Elin Björk Unnarsdóttir.
Útboð
Tilboð óskast í að steypa upp vegg og gera tilbúið undir
tréverk bankahús á Stokkseyri. Húsið verður ein hæð,
án kjailara, 202 fermetrar, 754 rúmmetrar. Útboðsgögn
verða afhent hjá Skipuiagsdeiíd Landsbankans, Áifa-
bakka 10, annarri hæð, Reykjavík, gegn skiiatryggingu að
upphæð kr. 6000,-.
Tiiboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 2. júií ki.
11.00.
Landsbanki íslands
Hraðskreiðasti bátur á
íslandi til sölu
Báturinn er 21 fet norskur
sérsmíðaður keppnisbátur
Vél: 350 chevy Borg Warner gírkassi Stern Power
keppnisdrif. Með bátnum fylgir 2ja hásinga vagn með
fjöðrum, dempurum, bremsum og Ijósum
Upplýsingar gefur Gunnar í vinnusíma 84473 alla
virka daga.
Báturinn er staðsettur á athafnasvæði Snarfara í
Elliðavogi.
Utsalan
heldur áfram
Alltaf eitthvað nýtt að koma inn.
Einnig veittur
10% afsláttur
af öllum nýjum vörum.
Kreditkortaþjónusta.