Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Side 36
ir
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu '
efia vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-58. Fyrir
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og rfreifing, sími 27022.
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og !
3.000 krónur fyrir 1
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Vifi tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
'FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ1985.
Strandsigling
ASÍogVSÍ:
„Munum
ræða við
aðila”
— segir forsætisráð-
herra — Vonbrigði
segir Þorsteinn
„Eg geri ráð fyrir að við munum
ræða viö aðila,” sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra viö DV
í gær, aðspuröur um viðbrögð ríkis-
stjómarinnar við þeirri staöreynd að
nú hefði slitnað upp úr viðræðum aðila
vinnumarkaðarins. Hann sagði að ekki
hefði gefist tími, vegna anna við þing-
störf, að ræða við aðila vinnumarkað-
arins. „Þetta eru mikið vonbrigði, því
við höfðum bundið vonir við að grund-
völlur væri fyrir samningum. Ríkis-
stjómin hefur hvað eftir annað lýst því
yfir aö hún sé til í aö koma inn i málið
eins og aðilar óska,” sagði Steingrím-
ur.
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæöisflokksins, sagöist ekki vilja hafa
mörg orð um þetta á þessu stigi. Það
yrði að koma betur í ljós hver staðan
væri. „En það eru vissulega mikil von-
brigöi ef ekki tekst að tryggja vinnu-
friðinn og verja kaupmáttinn á þessum
vordögum,”sagðiÞorsteinn. APH
Sjómannaverkfallið:
Rif ist er
um molana
„Það gekk ekkert,” sagði Guðmund-
ur Hallvarðsson, formaður Sjómanna-
félags Reykjavíkur, eftir sáttafund
meö útgerðarmönnum í gær. „Það er
starfsaldurshækkunin sem allt strand-
ar á. Rifist er um molana því sú hækk-
un yfir árið jafngildir fyrir útgerðina
tapi í verkfallinu á einum sólarhring,
svo dýrt er prinsippið,” sagði Guð-
mundur.
Ekki var annar samningafundur
boðaður vegna verkfalla sjómanna í
Reykjavík.
A fundi miðstjórnar ASI í gær var
lýst yfir fullum stuöningi við verkfall
Sjómannafélags Reykjavíkur. -ÞG
TALSTÖÐVARBÍLAR
UM ALLA BORGINA
SÍMI 68-50-60.
ÞRÖSTUR
SIÐUMULA 10
LOKI
Fœr Seglbúða-Jón út-
flutningsbœtur með
rolluskjátunni?
VIII ftytja sauðfé
á fæti til Kanada
— meðal annars útvalda kind f rá sjálf um landbúnaðarráðherranum
„Þetta er sex ára gamall
draumur,” sagði Stefanía Svein-
bjamardóttir í viðtali við DV.
Stefania býr I Kanada og rekur þar
ásamt manni sínum f járbú og holda-
nautarækt. Hún hefur farið þess á
leit við islensk yfirvöld að hún fái að
flytja út sauðfé héðan á fæti. Til
stendur að flytja lífféð með leiguflugi
til Kanada 24. júni. Stefania fór
austur í Skaftafellssýslu og hefur
þegar valið niu ær og einn hrút og er
féðkomiðísóttkví.
„Eg fór austur vegna þess hversu
heilbrigt féð er þar því það eru
strangar heilbrigðiskröfur sem
Kanadamenn setja fyrir innflutningi
þessum.”
Nú þegar hafa blóðsýni verið tekin
af fénu og send í rannsókn. Enn eru
nokkrir endar lausir í þessu máli en
að sögn Stefaníu hefur undir-
búningurinn staðið yfir í tvö ár.
Ein ær í hinum útvalda hópi sem
Stefanía valdi er frá Seglbúðum, býli
landbúnaðarráðherra, Jóns Helga-
sonar.
Eftir því sem næst verður komist
hefur islenskt sauðfé ó fæti ekki
verið flutt út síðan rétt fyrir 1920 er
fé var flutt til Grænlands.
-ÞG
Haldið
Halla Bryndfs Jónsdóttir, fegurðardrottning Islands, mátar höfuðfat búningsins er hún hyggst nota í Miss
Universe keppninni; ieður, heifiin tákn og fuglsvængir. Mefi henni er hönnuðurinn, Karl Júliusson.
DV-mynd GVA
„Þetta er stilfærð útgáfa af vikinga-
búningi og hann er skreyttur með
heiðnum táknum,” sagði Karl
Júlíusson, hönnuður og leðursölu-
maður, í samtali við DV. Karl hefur að
undanfömu unnið aö gerð búnings
fyrir Höllu Bryndisi Jónsdóttur,
fegurðardrottningu Islands 1985.
Halla Bryndís er á fömm til Flórída i
Bandaríkjunum þar sem hún keppir
fyrir Islands hönd í keppninni um Miss
Universe. Og að sjálfsögðu vill hún
vera í einhverju islensku.
„Búningurinn er aðskorinn úr svörtu
og bleiku leðri og auk leðursins nota ég
hrosshár og fulgsvængi,” sagði Karl
sem þekktur er fyrir búninga þá er
hann gerði fyrir Hrafn Gunnlaugsson í
kvikmyndina Hrafninn flýgur. Annars
er aðalstarf listamannsins rekstur
verslunarinnar Leðursmiöjan á Skóla-
vörðustig og innflutningur á leðri.
„Vonandi á þessi búningur eftir að
fljúga viða, alla vega eiga 700 milljónir
sjónvarpsáhorfenda eftir aö berja
hann augum er Miss Universe
keppninni verður sjónvarpað um
næstu mánaðamót,” sagði Karl
Júlíusson.
-EIR.
Starfsmenntunarsjóð-
ur BSRB stendur tæpt
„Það er rétt, geta sjóðsins hefur
aldrei verið minni,” sagði Lárus
ögmundsson, formaður starfs-
menntunarsjóðs BSRB, í samtali við
DV.
Sjóður þessi var stofnaður haustiö
1980. Hefur hann tekjur úr ríkissjóði.
Fyrsta eina og hálfa árið var ekkert
veitt úr honum. Var það gert til að
safna fé í sjóðinn. I fyrra vöru 14 út-
hlutanir úr sjóðnum sem veittir vom
einstaklingum vegna náms. I ór eru
þærorðnar5talsins.
Um áramótin síðustu átti
—hefur bitnað á kennurum
Er
sjóðurinn tæpar milljón krónur
það minna en nokkm sinni fyrr.
„Tekjur sjóðsins á þessu ári nema
einni milljón og sex hundmð
þúsundum,” sagði Láms. „Við
höfum hins vegar veitt úr honum
rúma eina milijón og niu hundrað
þúsund krónur. Það sem eftir er, er
því um sex hundruö þúsund.
Þaö er deginum ljósara, að
s jóðurinn hefur rýmað smám saman
síðan 1982 og staða hans versnað með
aukinni eftirspum, enda mó segja að
markmið sjóðsins sé aö eiga ekki
peninga.”
— Hafiö þið þó haldið að ykkur
höndunum i úthlutun það sem af er
órinu?
„ Já, við höfum þurft að gera það.”
— Hafa einhverjar stéttir umfram
aörar orðið þar illa úti?
,Já, það má segja þaö. I síðustu
úthlutun, sem var í maí, héldum við
að okkur höndum varðandi umsóknir
kennara. Við frestuðum flestum
þeirra umsókna. Astæðan fyrir því
er einkum sú að sjóðurinn stendur
höllum fæti og svo hitt að kennarar
hafa fengið meira úr sjóðnum en
aðrir og ýmislegt virðist benda til að
þeir séu á leið út úr BSRB,” sagði
Lárus ögmundsson. -KÞ
Í
i
i
i
i
í
Í
i
i
i