Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Blaðsíða 1
DV. FÖSTUDAGUR14. JUNl 1985.
19
Dansstaðir — Matsölustaðir — Leikhús — Sýningar —
Vorblót í Árnesi
— um helgina. Fjölskylduskemmtun
á sunnudaginn
Lítiö var um að vera á Suður-
landi um hvítasunnuhelgina og
verður nú bætt úr því með vorblóti í
Arnesi, Gnúpverjahreppi, dagana 15.
og 16. júní í tengslum við þjóð-
hátíðardaginn. Tjaldstæði verða opin
í Arnesi öllum að kostnaðarlausu auk
þess sem Árnes sér um veitingar og
aðra þjónustu. Veröur margt til
skemmtunar, svo sem Baldur
Brjánsson töframaður, Johnny King
kántrí-rokkari, hinn ungi töframaður
Ingólfur Ragnarsson og söngflokkur-
inn Hálft í hvoru. Einnig veröur
diskótek Ara Páls og hljómsveitin
KAKTUS leikur fyrir dansi í Árnesi
frákl. 22.00 til 03 á laugardagskvöld
og 22.00 til 02 á sunnudagskvöld. En
kl. 15.00 á sunnudag verður efnt til
fjölskylduskemmtunar með
skemmtiatriöum, söngvum og tónlist
fyrir alla aldurshópa. Vorblótiö hefst
kl. 22.00 laugardaginn 15. júní.
Myndbönd o.fl.
Hljómsveitin Kaktus.
Kristinn
í Hell-
inum
Kristinn Vilhelmsson, fyrrum
meðlimur í Big band Bjama
Böðvarssonar og Neo-tríósins, er nú
staddur hér á landi. Kristinn, sem
hefur verið búsettur í Danmörku,
skemmtir nú gestum veitingahússins
Hellisins við Tryggvagötu meö orgel-
leik.
Hann leikur á orgel fyrir Hellis-
gesti í kvöld en tekur sér síðan frí á
laugardags- og sunnudagskvöld. Þá
verða það þeir Andri Backmann og
Grétar örvarsson sem leika fyrir
gesti staðarins.
-sos
Kristinn Vilhelmsson sést hér við
orgelið.
Mezzoforte á hljómleikum.
Mezzoforte í Súlnasalnum:
Er á leið
til Barcelona
— Sviss, V-Þýskalands,
Finnlands og Danmerkur
— Við komum fram í Súlna-
salnum að Hótel Sögu nú um helgina,
föstudags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld, og leikum þar í 40
mínútur, sagði Eyþór Gunnarsson,
hljóðfæraleikari í Mezzoforte.
Eyþór sagði að tveir erlendir
listamenn myndu leika með Mezzo-
forte. Danski saxófónleikarinn Nils
Macholm og Englendingurinn
Westan Foster sem mun syngja
nokkur lög. — Það er tilraun hjá
okkur aö vera með söngvara, sagði
Eyþór.
Mezzoforte heldur síðan til Barce-
lona á Spáni 20. júní þar sem hljóm-
sveitin mun taka þátt í mikilli úti-
hátíð þar sem veröa saman kómin
100 þús. manns. Frá Barcelona fer
hljómsveitin til Sviss og leikur á St.
Gallen Rock Festival, síðan til V-
Þýskalands, Finnlands og Dan-
merkur þar sem hún leikur í Tívolí í
Kaupmannahöfn 21. júlí. Frá Dan-
mörku heldur hljómsveitin svo til V-
Þýskalands.
Þess má geta að dansleikirnir í
Súlnasal verða frá kl. 22 til 03.00.
Hljómsveit Magnúsar Kjartans-
sonarleikurfyrirdansi. -SOS
The Tremelos.
The Tremelos
í Broadway
Það verður tekin létt sveifla í
Broadway um helgina. Enska hljóm-
sveitin The Tremelos er komin til
landsins og verður í sviðsljósinu í
Broadway — fyrst í kvöld og síöan
annað kvöld og mánudagskvöldiö 17.
júní.
The Tremelos var stofnuö 1959.
Hefur hljómsveitin átt mörg vinsæl
lög. Þau verða sungin í Broadway og
má fastlega reikna með að mikið
stuðverðiþar.
Þá má geta þess að á sunnudags-
kvöld verður Ríó í Broadway. -SOS
Ef þú vilt dansa
Ártún
Vagnhöfða 11 Reykjavík, sími 685090.
Diskótek á föstudagskvöld. Berti
Möller kynnir vinsælustu lög rokkár-
anna. A laugardagskvöld leikur hljóm-
sveitin Goðgá fyrir dansi, Sæmi rokk
og Didda skemmta.
Broadway
Alfabakka 8 Reykjavík, sími 77500.
Tremelos skemmta á föstudags- og
laugardags- og mánudagskvöld. Á
sunnudagskvöld skemmtir Ríó trió i
allra síðasta sinn.
Glæsibær
v/Álfheima Reykjavík, sími 685660.
Hljómsveitin Glæsir leikur fyrir dansi
föstudags-, laugardags- og sunnudags-
kvöld. ölver opið alla daga vikunnar.
Hótel Borg
Pósthússtræti 10 Reykjavík, sími
11440. Dansleikir Orators, félags laga-
nema, hefjast aftur eftir gagngerar
breytingar á húsnæðinu. Opið verður
föstudags- og laugardagskvöld. Á
sunnudagskvöld verður einka-
samkvæmi.
Hollywood
Ármúla 5 Reykjavík, sími 81585.
Diskótek föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
Hótel Saga
v/Hagatorg Reykjavík, sími 20221.
Dansleikir föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2 Reykjavík, simi
82200. Á föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld leika Guðmundur
Haukur og félagar. Tískusýning öll
fimmtudagskvöld.
Klúbburinn
Borgartúni 32 Reykjavík, sími 35355.
Opið á öllum hæðum alla helgina,
diskótek.
Leikhúskjallarinn
v/Hverfisgötu Reykjavík, sími 19636.
Diskótek á föstudags- og laugardags-
kvöld.
Naust
Vesturgötu 6—8 Reykjavík, sími 17750.
Haukur Morthens og félagar leika
fyrir dansi á föstudags- og laugardags-
kvöld.
Óðal
v/Austurvöll Reykjavík, sími 11630.
Diskótek föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld.
Villti tryllti Villi
Skúlagötu 30 Reykjavík, sími 11555.
Dansiball fyrir alla, 16 ára og eldri, á
föstudags- og laugardagskvöld.
Sigtún
v/Suðurlandsbraut Reykjavík, sími
685733. Diskótek föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Ypsilon
Smiðjuvegi 14D Kópavogi, sími 72177.
Diskótek um helgina.
Þórscafé
Brautarholti 20 Reykjavík. Dansó-Tek
á neðri hæðinni, hljómsveitin Hafrót
sér um fjörið á efri hæðinni.
Traffic
Laugavegi 116 Reykjavík, sími 10312.
Dsikótek fyrir alla, 16 ára og eldri, á
föstudags- og laugardagskvöld.
Akureyri
H-100
Diskótek á öllum hæðum föstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld til kl.
3.00.17. júní veröur opið til kl. 2.00.
Sjallinn
Hljómsveit Ingimars Eydal leikur
fyrir dansi á föstudags- og laugardags-
kvöld. 16. júní skemmta Tremelos.
Janis Carol syngur fyrir matargesti
alla helgina. 17. júní verður
nýstúdentaball.