Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Blaðsíða 4
22
DV. FÖSTUDAGUR14. JUNl 1985.
Hvað er á seyði
um helgina
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi sunnudaginn 16. júní
1985.
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Guðsþjón-
usta í safnaðarheimili Arbæjar-
sóknar kl. 11.00 árd. Organleikari Jón
Mýrdal. Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00.
Sr. Arni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 10.00 árd. Sr. Jón Bjarman
prédikar. Organleikari Guðni Þ.
Guðmundsson. Sr. OlafurSkúlason.
DÖMKIRKJAN: Prestsvígsla kl. 11.00.
Biskup Islands, Herra Pétur Sigur-
geirsson, vígir kandidata í guðfræöi:
Sigurð Ægisson til Djúpavogspresta-
kalis í Austfjaröaprófastsdæmi og
Helgu Soffíu Konráðsdóttur sem að-
stoðarprest í Fella- og Hólaprestakalli
í Reykjavíkurprófastsdæmi. Vígslu
lýsir sr. Kristinn Hóseasson prófastur í
Heydölum. Vígsluvottar auk hans:
Hólmfríður Pétursdóttir, sr. Hreinn
Hjartarson og sr. Olafur Skúlason,
dómprófastur sem annast altaris-
þjónustu ásamt sr. Agnesi M. Sig-
urðardóttur, æskulýðsfulltrúa. Dóm-
kórinn syngur, organleikari Marteinn
H. Friðriksson. 17. júni, þjóðhátíðarmessa
kL 11.15. Sr. Agnes M. Sigurðardóttir
æskulýðsfulltrúi messar. Einsöng syngur
Magnús Jónsson, óperusöngvari.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Messa kl.
14.00. Sr. Grímur Grímsson messar.
Félag fyrrverandi sóknarpresta.
FELLA— OG HÖLAKIRKJA:
Guðsþjónusta fellur niður vegna
prestsvígslu í Dómkirkju. Sr. Hreinn
Hjartarson.
FRÍKIRKJAN 1 REYKJAVÍK: Messa
og altarisganga kl. 14.00. Ræðuefni:
Mannfagnaöur Meistarans. Sunginn
verður sálmurinn „Eg er á langferð”,
Fríkirkjukórinn syngur. Orgel- og
söngstjóri Pavel Smid. 17. júní selja
kvenfélagskonur kaffi og vöfflur á
stéttinni við kirkjudyr frá kl. 14-17.
Bænastundir eru í Frikirkjunni
þriðjud., miðvikud., fimmtud. og
föstud. kl. 18.00 og standa í stundar-
f jórðung. Sr. Gunnar Björnsson.
GRENSASKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Organleikari Arni Arinbjamar-
son. Sr. Halldór S. Gröndal.
H ALLGRÍMSKIRK JA: Messa kl.
11.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Þriðjudag fyrirbænaguðþjónusta kl.
10.30, beðið fyrir sjúkum.
LANDSSPlTALINN: Guðsþjónusta kl.
10.00. Sr. RagnarFjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00.
Sr. Tómas Sveinsson.
BORGARSPtTALINN: Guðsþjónusta
kl. 10.00.
KOPAVOGSKIRK JA: Guðsþjónusta
kl. 11.00. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Guösþjónusta
kl. 11.00. Prestur sr. Arelíus Níelsson.
Organleikari Krístín ögmundsdóttir.
Ljóðakórinn syngur. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11.00. Norskir skólanemendur
syngja. Þriðjudag 18. júní bænaguðs-
þjónusta kl. 18.00, altarisganga. Ath.
sumarferð safnaðarins verður 23.júní,
nánar auglýst síðar. Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson.
NESKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr.
Frank M. Halldórsson. Miðvikudag 19.
Logi Eldon
sýnir í
Hveragerði
— „Þetta eru myndir sem ég hef
málað á þessu ári og í fyrra. Einnig
mun ég sýna eldri skissur og myndir,”
sagði Logi Eldon, sem opnar mál-
verkasýningu á morgun kl. 10 í félags-
heimili ölfusinga, Hveragerði.
Logi sýnir fjörutíu oliumálverk,
landslags- og mannlífsmyndir. Sýning-
in verður til 23. júní, opin frá kl. 10 til
22.
Logi hefur áður haldiö f jórar sýning-
ar á verkum sínum. „Það eru allir vel-
komnir á sýningu mína,” sagði Logi.
Reykjavík
— sýningu
Tryggva
Árnasonar
að Kjarvals-
stöðum lýkur á
mánudaginn
Kæra Reykjavík — sýningu
Tryggva Ámasonar að Kjarvalsstöð-
um, lýkur á mánudaginn 17. júní.
Tryggvi er kunnur grafiklistamaö-
ur og hafa verk hans vakið athygli.
Hann beitir nýrri aðferð silkiþrykks.
Tryggvi vinnur í s jálf stæðum litaföll-
um á silki sem er strekkt á ramma,
þar sem fletinum er lokað að öðru
leyti — litnum síðan þrykkt með
gúmmísköfu í gegnum silkið á
pappírina Þessir litafletir eru síðan
tengdir saman með silkiþrykktri
grafískri ljósmynd, oftast í þremur
litum — hverri ofan á aöra og dýpt
mynduð á þann hátt. Þessi aðferð er
lítt þekkt hér á landi en er mikiö not-
§ uð erlendis og hefur notið vinsælda.
S KæraReykjavíkergottnafnásýn-
£ ingunni, því að stór hluti mynda hans
•- er gerður eftir fyrirmyndum af hús-
® um í Reykjavík. Litameðferð
í> Tryggva er mjög góð og margar
myndir hans mjög vel unnar.
júní fyrirbænamessa kl. 19.30. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SELJASÖKN: Guðsþjónusta í
byggingu Seljakirkju kl. 14.00. Guðs-
þjónustan í Olduselsskólanum kl. 11.00
fellur niður. Fyrirbænasamvera
fimmtud. 20. júní kl. 20.30 í Tindaseli 3.
KEFLAVtKURKIRKJA: 17. júni. Hátíð-
arguðsþjónusta kL 13.00.
Ferðalög
Dagferðir Ferðafélagsins
15. júní kl. 13.00. Viðey. Fararstjóri: I.ýöur
Björnsson. Verftkr. 100.
16. júní kl. 10.00. Selvogssgatan-Herdísar-
vík-gömul gönguleið. Fararstjóri: Sigurður
Kristjánsson. Verð kr. 400.
16. júní, kl. 13.00. Eldborgin-Geitahlíð-
Herdísarvík. Fararstjóri: Þórunn Þórðar-
dóttir. Verð kr. 400.
17. júní, kl. 13.00. Selatangar-Grindavík.
Selatangar eru gömul verstöð milli Grinda-
víkur og Krýsuvíkur. Allmiklar verbúðarústir
eru þar. Þama er stórbrotið umhverfi og má
einkum netna Katlahraun vestan við
Tangana. Fararstjóri: Hjálmar Guðmunds-
son. Verðkr. 400.
Brottför í allar ferðirnar frá Umferðarmið-
stöðinni austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt
fyrir börn í fylgd fullorðinna.
Náttúruskoðunar- og
söguferð um Keflavík
NVSV fer náttúruskoðunar- og söguferð
laugardaginn 15. júní um Keflavík. Fariö
verður frá bamaskólanum við Sólvallagötu
kl. 14.45. Hægt verður að fara í bílinn í
Reykjavík viö Norræna húsið kl. 13.30.
Náttúrugripasafnið, Hverfisgötu 116 (við
Hlemm) kl. 13.45 og Náttúrufræðistofu Kópa-
vogs, Digranesvegi 12, kl. 14.00.
Leiðsögumenn verða Sigmundur Einars-
son, sem lýsir jarðfræði svæðisins, Guðleifur
Sigurjónsson, ræðir um gróðurfarið, og Skúli
Magnússon fræðir okkur um sögu- og ömefni.
Áætlað er að ferðinni ljúki við bamaskólann
kl. 18.30. Síðar er ekið að Norræna húsinu með
viðkomu á sömu stöðum og á leiðinni suður-
eftir. Fargjald kr. 200 en 300 fyrir þá sem
koma á Reykjavíkursvæðinu. Frítt fyrir böm
í fylgd fullorðinna. öllum er heimil þátttaka.
ÚTI VI ST
Útivistarferðir um helgina
Helgin 14.-17. júní.
Kl. 9.00. Látrabjarg. Siglt yfir Breiðafjörð.
Svefnpokagisting.
Kl. 20.00.Höfðabrekkuafréttur. Ný ferð.
Stórkostlegt svæði í Mýrdal.
Kl. 20.00. Skaftafell-öræfi. Ýmsir mögu-
leikar. Gönguferðir um þjóðgarðinn.
Skoðunarferðir um öræfasveit. Möguleiki á
snjóbílaferð á Vatnajökul. Ganga á öræfa-
jökul fyrir þá sem vilja.
Kl. 20.00.Þórsmörk. Mjög góð gisting í Oti-
vistarskálanum Básum. Pantið tímanlega
vegna takmarkaðs gistipláss um helgina.
Ath. Otivist notar allt gistirými í Básum frá
14.-16.júní.
Dagsf erðir um helgina:
16. júní kl. 10.30. Geitafell-Strandagjá. Mjög
margt að skoða. Verö kr. 400.
16. júní kl. 13.00. Geitahlíð-Eldborgir. Frá-
bær útsýnisstaöur. Auðveld ganga. Verð kr.
400.
17. júní kl. 13.00. Ganga á Esjuna. Verð kr.
300.
Brottför í Otivistarferðir er frá bensínsölu
viðBSI.
Skógræktarfélag Reykja-
víkur
nemur land á Reynivöllum.
Laugardaginn 15. júní verður hópferð á
vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur að
Reynivöllum. Lagt verður af stað úr
Fossvogsstöð kl. 11.00. Rúta flytur þá er þess
óska, öðrum er velkomið að nota einkabíla
eða önnur farartæki til að komast til Reyni-
valla. Rútan mun aka beinustu leið að Reyni-
völlum og er Þorvaldur S. Þorvaldsson farar-
stjóri. Það verður sungið, leikið og gróður-
sett. Boðið verður upp á grillpylsur og gos-
vatn.
Til baka verður farið um Kjósarskarð og
Mosfellssveit og komið heim um fjögurleytið.
Þátttöku má tilkynna í s. 40313 og 44562.
Skógræktarfélagið girti landspildu aö
Reynivöllum í Kjós fyrir þremur árum og
hefur dálitlu verið plantað þar áriega. Fyrstu
plöntumar eru að vaxa úr grasi og mynda
vísa að griðlandi fyrir lúna vegfarendur.
Lifandi leiðsögn og fleira á
Þingvöllum
Göngur með leiösögn um Þingvelli
verða í sumar með eftirfarandi hætti:
Föstudaga og laugardaga kl. 13.
Skógarholtsganga. Lagt á stað frá
Þjónustumiðstöðinni á Leirum.
Föstudaga, laugardaga og sunnu-
daga kl. 16.30. Gengið um Þingvalla-
helgi. Lagt á stað frá Peningag já.
Þá verða kvöldvökur í Þingvalla-
kirkju á laugardögum kL 20.
Guðsþjónusta verður á sunnudögum
kl. 14.
Tilkyrmingar
Konur í Kópavogi
Munið gróðursetninguna að Fossá laugardag-
inn 15. júní nk. Lagt verður af stað frá félags-
heimili Kópavogs kl. 11 f.h. Tilkynnið þátt-
töku fyrir fimmtudaginn 13. júní til önnu s.
41566, Þórhöllu s. 41726 og Steinunnar s. 42365.
Geðhjálp með kaffisölu
Geðhjálp verður með kaffisölu 17. júní í
Veltusundi 3b. Þar veröur mikið af góðum
kökum og álegg á borðum ásamt kaffi frá kl.
15.00 til kl. 19.00. Spilað verður á hljóðfæri og
sungið, tekiö í spil og spjallað saman. Allir
velunnarar Geðhjálpar eru hvattir til að lita
inn og fá sér kaffi.
Hátíð þjóðarinnar
Stjörnusambandsboð
Félag nýalssinna boðar til fundar á Þing-
völlum 17. júní. Fundinum er ætlað að ná
fram heimsókn stjörnuhámenningar sem
breyta mun allri afstöðu, það er þekkingu
til heimsins. Til þess að fá fram heimsókn þá
þarf fólk að syngja og dansa. Nýalssinnar
hvetja fólk til að koma samhuga á Þingvöll
þann 17. júní.
Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar á ferð um
Suðurland.
Nú um helgina er hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar frá Sauðárkróki á ferð um Suður-
land. A föstudagskvöldið leikur hljómsveitin í
Inghól á Selfossi, laugardagskvöldið leikur
hún á hestamannadansleik á Hvoli og á
sunnudagskvöld á þjóðhátíðardansleik í Hótel
Borgamesi.
KRFÍ boðar til fundar 19.
júní
Kvenréttindafélag Islands heldur
hádegisfund 19. júní nk. að Litlu-
Brekku, Bankastræti, i tilefni þess að
þá verða liðin 70 ár síðan íslenskar
konur fengu kosningarétt og kjörgengi
til alþingis. Á fundinum verður Auður
Auðuns, fyrrverandi borgarstjóri
Reykjavíkur og ráðherra, gerð að
heiðursfélaga KRFI.
Til að minnast dagsins mun Kristín
Astgeirsdóttir sagnfræðingur flytja
stutt erindi um 19. júni 1915. Vinsam-
legast tilkynnið þátttöku í sima 18156.