Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1985, Síða 8
30
DV. FÖSTUDAGUR14. JUNl 1985.
Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd — Myndbönd
Ólöglegt myndbandaefni—3. hluti.
Hvernig horfir málið við kvik-
„Töpum gífurlegum
fjárhæðum,#
„Fyrirtækiö Hamrasel hefur mynd-
bandarétt á Warner hérlendis. Þeir
eiga ekki aö fá myndir fyrr en 6 mán-
uðum eftir aö ég sýni þær. Þessar ólög-
legu spólur eru því ekki frá þeim
komnar heldur er þeim smyglaö inn í
landið.” Svo mælir Ami Kristjánsson,
forstjóri Austurbæjarbíós. Eins og áö-
ur hefur komið fram voru myndimar
Police Academy og Purple Rain á boö-
stólum á myndbandaleigum, löngu
áöur en bíóið hóf sínar sýningar.
„Viö töpum gífurlegum fjárhæðum á
þessu. Það virðist bara vera fátt sem
getur stöövaö þennan ólöglega inn-
flutning.”
Myndirnar Police Academy og Purple
Rain voru nýlega sýndor i Austurbœjar-
bíói. Löngu áður var hœgt að fá þœr á
myndbandaleigum. ,,Fátt sem við getum
gert," aegir Arni Kristjónsson, forstjóri
biósins.
Vantar lög og reglur
— Er þessi ólöglegi innflutningur
þáóvinnandivígi?
„Þaö virðist vera. Þetta svindl er
beinlinis lögvemdað hér á Islandi.
Slíkt þekkist hvergi annars staöar í
heiminum. I Englandi t.d. em menn
umsvifalaust dæmdir fyrir svona lag-
aö og settir í f angelsi.
Þaö viröist vanta lög og reglugeröir
um myndbandamarkaðinn á Islandi.
Þetta er alit í lausu lofti.”
—Veistu hverjir það eru sem stunda
þennan ólöglega innflutning?
„Viö vitum af þeim. Það er bara fátt
sem við getum gert,” sagði Arni
Kristjánsson. -ÞJV.
„Vitum hverjir
þetta eru"
„Paramount er höfða mál vegna
myndarinnar Beverly Hills Cop. Sú
mynd hefur aldrei komiö út á mynd-
bandi. Viö erum sjálfir meö fjöldann
allan af málum í gangi, á hinum ýmsu
stigum dómskerfisins,” sagöi Friðbert
Pálsson, forstjóri Háskólabíós, aö-
spurður um viöbrögö bíósins viö ólög-
legu myndbandaefni. Áöumefnd
Beverly Hills Cop og t.d. Killing Fields
eru tvær þeirra mynda sem fluttar
hafa veriö inn ólöglega á myndbanda-
spólum.
„Löggjöfin er fyrir hendi,” hélt Friö-
bert áfram. „Gallinn er bara sá hve
kerfið ersvifaseint.”
Kvikmyndafyrirtœkið Paramount hefur nú
höfðað mól vegna myndarinnar Beverly
Hills Cop og Hóskólabíó er með fjölda
mála í gangi ó hinum ýmsu stigum dóms-
kerfisins. „Það er ekki hœgt að láta menn
komast upp meö að draga aór fó sem aör-
ir í rauninni eiga," segir Friöbert Pálsson,
forstjóri Háskólabíós.
„6—8 aðilar”
„Þaö er mikill fjöldi myndbanda-
leiga sem eru álitnar ólöglegar vegna
aögeröa fárra. Þaö eru fáir aöilar sem
flytja inn þetta ólöglega efni en þeir
hafa hins vegar mikil ums vif. ’ ’
—Vitiði hverjir þetta eru?
„Já, við teljum okkur vita þaö. Þetta
eru6—8aðilar.”
—Hefur þú verið beittur þrýstingi
vegna þeirra mála sem bíóið hefur
höföaö?
„Eg vil nú sem minnst um þaö segja.
En því er ekki að neita aö mér hefur
veriö hótað og nokkrir aöilar hafa hætt
að kaupa af mér efni beint en keypt
það áf ram í gegnum þrið ja aðila.
Þessi ólöglegi innflutningur hefur
vissulega áhrif á fjárhagslega afkomu
okkar. Þaö er ekki hægt að láta menn
komast upp meö aö draga sér fé
sem aðrir í rauninni eiga. Þaö veröur
aö fara aö lögum ó þessu sviði sem
öðrum,” sagði Friöbert Pálsson. -ÞJV.
MYNDIR:
1. ROMANCING THE STONE
2. SPLASH
3. THE NATURAL
4. RHINE STONE
6. RITA HAYWARTH
7. COMPANY OF WOLVES
8. MARATHON MAN
9. CONAN 2
10. ELECTRIC DREAMS
ÞÆTTIR:
1. RETURN TO EDEN
2. WIDOWS
3. ATLANTA CHILDMURDERS
4. ONCEUPON ATIME...
5. EVERGREEN
6. MALLENCE
7. STRUMPARNIR
8. BLOOD OF OTHERS
9. ELLISISLAND
10. FALCON CREST
Vinsældalisti DV er byggflur á upplýsingum frá 10 myndbandaleigum
vifls vegar um landið.
TÓNLIST
Flmt 'Tb« ExOfcitf, OwjMjg
Leikstjóri: John Schlesinger
Aðalhlutverk: Dustin Hoffman, Lauronce Olivior, Roy
Scheider
Tími: 125 min.
Dustin Hoffman kann greinilega vel viö sig
undir stjórn John Schlesinger. Þeir unnu saman
að óskarsverðlaunamyndinni Midnigth Cowboy
og í myndinni um Maraþonmanninn fer Hoff-
man enn á kostum.
Hann er hér í hlutverki háskólastúdents sem
óafvitandi flækist inn í ráöabrugg gamals nas-
ista (Olivier). Sá á mikinn sjóð gimsteina í
banka í Bandaríkjunum og svífst einskis til aö
nólgast þessi auöæfi. I rauninni eru steinarnir
alls ekki hans eign heldur eru þetta verðmæti
sem hann hirti af gyðingum í stríðinu. Nasistinn
kemur loks sjólfur til Bandaríkjanna í því skyni
að ná í steinana og fljótlega kemur í ljós að deild
í bandarísku leyniþjónustunni er meö honum í
ráöum. Og Hoffman greyiö fær illilega fyrir
feröina vegna afskipta bróður hans af málinu.
Þessi mynd er virkilega vel leikin enda vanir
menn í hverju hlutverki. Aö öðrum ólöstuöum
skarar Hoffman fram úr. Jafnframt býöur
Maraþonmaðurinn upp á fyrirtaks spennu og
það er virkilega þess viröi aö eyða kvöldstund í
aðhorfaáhana.
Prívate Dancer.
Tlmi: ca 15 mín.
Sagan segir aö Tina Turner sé búin aö vera
lengi í „bransanum”. Hún ber þaö vissulega
líka meö sér, augnskuggi og annar andlitsfarði
ná ekki að hylja þreytumerkin.
Umrædd Tina gaf út ekki alls fyrir löngu
plötuna Private Dancer, þá fyrstu í nokkum
tíma. Af þessari plötu náöu nokkur lög vinsæld-
um, nægir í því sambandi aö nefna Whats love
got.... A þessu tónlistarmyndbandi er að finna
fjögur lög af þessari seinustu plötu Tinu. Allt
eru þetta lög sem nokkuð voru spiluö hér, mis-
mikiö þó, og sennilega hefur besta lag plötunnar
heyrst minnst. Þetta er titillagiö Private
Dancer sem er eftir þann ágæta tónlistarmann
Mark Knopfler. Lagiö sjálft er frábært. Textinn
fjaliar um gleöikonu sem á sér draum um aö
komast burt úr ömurleikanum sem hún lifir í.
En maður getur ekki annaö en veriö ósóttur viö
myndbandsútgáfuna á þessu stórgóöa lagi. Um-
fjöllunarefni lagsins er aö mestu látið liggja
milli hluta og danssýningum og öðru „sjóvi”
bætt inn í staöinn. Þrátt fyrir þetta er laginu
Private Dancer gefnar þær tvær stjömur sem
myndbandið fær.
Leikstjórí: Peter Medak.
Aflalhlutverk: George C. Scott.
Timi: 113 min.
Ohugnaöurinn í algleymingi. Maður nokkur
leigir hús. Húsiö er gamalt og þar fara aö gerast
undarlegirhlutir.
Hryllingsmyndir á borö viö þessa eiga sér
tryggan hóp aödáenda. Astæðan er mér hulin
ráögáta. Ég hef aldrei séö hryllingsmynd sem
mér hefur þótt gaman aö enda mun þaö ekki
vera markmiö þeirra sem framleiöa myndimar
að fólk beinlínis skemmti sér viö að horfa á þær.
Ahorfandinn á aö skjálfa á beinunum, helst æpa.
Þá komum við aö kjama málsins. Mér finnst
heimskulegt að horfa á bíómynd til þess eins að
veröa skelkaður. Undarleg útrás það.
Hér er endurtekin gömul saga um dularfullt
hús. Þar var eitt sinn framiö morð og nýi leigj-
andinn á ekki sjö dagana sæla. Myndin er í
sjálfu sér ekki Úla gerð en þessi ástríöa, aö
hræða áhorfandann í tíma og ótíma, fer í taug-
arnarámér.
Myndin um Umskiptinginn er vafalaust kær-
komin „ánægja” fyrir unnendur hryllings-
mjmda. Aöeins miölungs fyrir okkur hin.
Leikstjóri: John Cassavetes
Aflalhlutverk: Gena Rowlands, Juan Adames.
Tími: 120 mín.
Mafian er á höttunum eftir konu og dreng.
Gloria er fyrrum viðhald mafíuleiðtoga. Hún
lendir í þeirri aöstöðu aö fá í hendurnar bam
sem mafían ætlar að drepa. Vinkona hennar á
barniö. Gtaria er ekki par hrifin af börnum en
getur ekki horft aðgeröalaus á morö meö köldu
blóði. Hún bregöur þvi á það ráö að flýja með
krakkann en kemst aö því aö ekki er auðvelt að
sleppa undan mafíunni. En Gloria er hörð í horn
aðtaka. Hún hikar ekki viö að nota byssunasína
og á endanum fer allt vel.
Leikstjóri þessarar myndar er hinn kunni
Casavetes. Honum hefur tekist að gera ágæta
spennumynd með tilfinningalegu ívafi. Sam-
band Gtariu viö drenginn er í fyrstu stirt og
gengur á ýmsu áöur en þau fallast í faöma í lok-
in. Þaö atriði er raunar sýnt hægt og er hið
vemmilegasta. Leikur Rowlands og Adames er
hins vegar í heild prýöilegur, sérstaklega er
Rowland góð í hlutverki hörkutólsins Gtoriu.
Góð afþreying fyrir þá sem hafa gaman af
amerískum eltingaleikjum meö tilheyrandi til-
finninganæmni.
oUwrmaa.
★ ★ ★ ★ Fróbœr
★ ★★1Góð
★ ★ Miðlungs
★ Léleg
O Afleit
-ÞJV