Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1985, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1985, Page 3
DV. FÖSTUDAGUR12. JOLl 1985. 21 Vegaþjónusta FlB 32 ára: Við erum með þjónustunet um allt land" — segir Jónas Bjarnason, framkvæmdastjóri FÍB „Það má segja að við séum nú komnir á fulla ferð,” sagði Jónas Bjarnason, framkvæmdastjóri FlB, en nú eru 32 ár liðin síðan FlB hóf rekstur vegaþjónustu fyrir félags- menn sína og aðra vegfarendur á þjóðvegum landsins. Þjónustan hófst í ár, eins og undanfarin ár, um hvíta- sunnuhelgina og henni lýkur helgina eftir verslunarmannahelgina. „Við höfum 19 þjónustubifreiðar til ráðstöfunar, þar af fimmtán í fullu úthaldi um verslunarmanna- helgina. Þetta er aukning frá því í fyrra, en þá vorum við með átján bif- reiðar og þrettán í fullu úthaldi,” sagði Jónas. Jónas sagði að ein ný bækistöð bættist við í ár, i Strandasýslu. „Við verðum einnig með bækistöð á Snæ- fellsnesi og áfram verðum við með bækistöðvar á Isafirði og i Búðardal, en þær bækistöðvar voru teknar í gagnið í fyrra. Annars höfum við alltaf miðað við hringveginn þegar við höfum skipulagt starfsemi okkar. Viö fáum upplýsingar hverju sinni hjá lögreglunni og öðrum hvar mesta umferðin er á hverjum tíma og högum starfi okkar eftir því. Eins og undanfarin ár er umferðin mest í Borgarfirði, Árnes- og Rangárvalla- sýslu. Á þessum stöðum erum við með bestu bílana okkar eða þá bíla sem eru búnir bestum fjarskipta- tækjum, eins og t.d. nýjum bíla- símum,” sagði Jónas. Dregnir frítt 40 km „Við tókum það upp í fyrra að veita félagsmönnum FlB þá þjónustu að þeir fá viðgerð í allt að eina klukkustund án endurgjalds með öllu, ásamt því að biluð bifreið er dregin frítt allt að 40 km. Með þessu reynum við að gera meira fyrir félagsmenn okkar,” sagði Jónas. Þjónustunet um allt land Oskar sagöi að náöst hefðu samn- ingar við bifvélavirkja á hverjum stað eða í hverri bækistöð. Þannig eru fagmenn á öllum bílum okkar. Þá hafa náðst samningar við bif- vélavirkja eða verkstæði í nær hverju einasta þorpi á landinu um að vera í viöbragðsstöðu og veita okkur þjónustu þegar kall kemur. Þá sagði Jónas að sjálfboðaliöar ynnu mikið starf við vegaþjónustu- vakt um helgar — á skrifstofu félags- ins. „Það hefur margsýnt sig að vega- þjónusta FlB er nauðsynleg þrátt fyrir að bundið slitlag sé komið víðs Jónas Bjarnason, framkvæmdastjóri FÍB. vegar um landið og bílakostur lands- manna sé orðinn betri en áður,” sagði Jónas. -SOS mm rr * m Hór ó myndinni sjóst tveir starfsmenn vegaþjónustu FÍB, Karl Herbertsson og Óskar Gunnlaugsson, við bilana FÍB13 og FÍB12. Tónleikahelgi 1 Skálholti: Helga, Camilla og Ólöf leika verk eftir Bach og Handel Camilla Söderberg, Helga Ingólfsdóttir og Ólöf Sesselja Óskars- dóttir. Á morgun hefst önnur hátíðar- helgi Sumartónleika í Skálholts- kirkju. Kl. 15 leikur Helga Ingólfs- dóttir sembaltónsmíðar sem J.S. Bach gaf eiginkonu sinni, Onnu Magdalenu. Hér verða fluttar þrjár „franskar” svítur og tvö stutt sálma- lög. Helga lék eina þessara svíta í Kristskirkju á listahátíð í fyrra og kölluðu gagnrýnendur þann sembal- leik „uppljómun” og „stórviðburð” og „glæsilegan forleik að Bach-ári”. Kl. 17 hljóma fleiri Bach-verk í Skálholti ásamt tónverkum Handels. Camilla Söderberg leikur á altblokk- flautu, Olöf Sesselja Oskarsdóttir á viola da gamba og Helga Ingólfs- dóttir á sembal sónötur eftir Bach og Hándel. Kl. 15 á sunnudag verður þessi samleikur endurtekinn. Kl. 17 er síðan messa þar sem prestur er sr. Karl Sigurbjörnsson. Áætlunarferðir eru báða dagana frá Umferðarmið- stöðinni tveim timum fyrir tónleika. Fólki er ráðlagt að koma tímanlega — um síðustu helgi var húsfyllir Skálholtskirkju. „Tiroddu þér inn í tjaldið hjá mér — um 1000 manns verða í Þórsmörk um helgina Þórsmörk hefur lengi þótt vinsæll staður fyrir fólk að fara og njóta úti- vistar og fallegs umhverfis. Það er alltaf að færast í vöxt aö félagssam- tök og vinnuhópar taki sig saman og fari í Þórsmörk. Mikill f jöldi manna leggur land undir fót nú um helgina, heldur til Þórsmerkur og slær þar upp tjaldbúöum. DV veit um tvo stóra hópa, sem fara yfir Krossá í kvöld, JC-menn á Reykjanesi og starfsmenn Mjólkur- samsölunnar. Einnig verða þar nokkrir smærri hópar einkafyrir- tækja. Þá eru nokkur ferðafélög með reglulegar feröir í Þórsmörk. Við fengum þær upplýsingar hjá Utivist, að það sé farið þrisvar í viku til Þórs- merkur: á miðvikudögum, föstu- dögum og sunnudögum, þannig að fólk getur valið um þriggja daga ferð, hálfa viku eða vikuferð. Boðið er upp á gistingu i skála, fararstjórn, gönguferðir, kvöldvöku á laugardagskvöld og ýmislegt fleira. Ferðalangar hafa verið mjög ánægðir með þessar ferðir. Otivist býður einnig upp á ferðir að Veiðivötnum og Lakagígum um helgina. Það verður haldiö í báðar þessar ferðir í kvöld kl. 20 og komið aftur til Reykjavíkur á sunnudags- kvöldið. -SOS Hundadagahátlðin á Akureyri: Bikarleikur endurtekinn Bikarleikur IBA og lA frá 1969 verður endurtekinn í kvöld, föstu- dagskvöld, á hundadagahátíðinni á Akureyri. Af öðrum viðburöum þar í kvöld má nefna djass á torginu frá 21 til 23 og Glimmersystur í Kjallaran- um. Á morgun, laugardag, verður hápunktur hundadagahátíðarinnar. Skrúðganga fer frá Laxdalshúsi kl. 13. Burtreiðar verða í íshokkíhringn- um við Drottningarbraut kl. 14.30. Vatnsknattspyma verður kl. 15.30 og kl. 16 verður keppt í skriffinnsku og nefndarstörfum. Klukkan 16.30 sýnir íþróttadeild hestamannafélagsins Léttis framan við Dynheima. Sam- eiginlegur dansleikur verður um kvöldið í Sjallanum, H—100 og Hótel KEA. Síðasti dagur hátiðarinnar er sunnudagurinn 14. júlí. Þá verða úr- slit Akureyrarmóts í sjómanni og seinni umferð svokallaðra Islands- leika fer fram í Sundhöll Akureyrar og hefst kl. 13. JBH/Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.