Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1985, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1985, Blaðsíða 7
DV. FÖSTUDAGUR12. JULI1985. 29 Sveinn Sigur- bergsson — fagnar hann sigri? 3000 kylfingar verða á ferðinni Meistaramót allra golf klúbba verða um helgina Þaö er óhætt að segja að allir kylf- ingar landsins verði á ferð og flugi um helgina. Já, meira en 3000 kylf- ingar verða með golfpokana sína á fullri ferð, berjandi kúlur um holt og hæðir. Þá verða að sjálfsögðu að- stoðarmenn á ferðinni til að bera golfpoka eða draga kerrur á eftir sér. Framundan er mesta golfhelgi landsins eða nokkurs konar verslunarmannahelgi kylfinga. Kúlur verða slegnar allt frá Leirunni á Reykjanesi að golfveili þeirra Vopnfirðinga. Meistaramót allra golfklúbba landsins stendur nú yfir og verður keppt fram á sunnudag. Þá verða margir meistarar krýndir og mörgum verðlaunabikurum verður hampaö. >i6ARBf ^ MEÐAL EFNIS: i er á seyði um helgina?- Hvað er á seyði um helgina? sýningunni eru 30 málverk og teikning- ar, allar í eigu Kjarvalsstaða. Þar á meðal eru nokkur verk sem keypt hafa verið á síðustu árum og ekki hafa sést opinberlega fyrr. Sýningin er opin dag- lega frá kl. 14—22, fram til júlíloka. Laugardaginn 13. júlí verður opnuð í vestursal og á göngum Kjarvalsstaða sýning! á 164 ljósmyndum af íslenskum ustamönnum, eftir rússnesk-franska ljósmyndarann Vladimir Sichov. Sýningin verður opin daglega kl. 14-22 tU 28. júlí. Listmunahúsið, Lækjargötu 2 Sumarfrí til 17. ágúst. Listamiðstöðin v/Lækjartorg. Engin tilkynning borist um sýningu þessa helgi. Mokka kaffi v/Skólavörðustig Jón Axel Bjömsson sýnir grafík- myndir á Mokka. Þetta er í fyrsta skiptið sem Jón Axel sýunir grafík- myndir, en hann hefur eingöngu sýnt akryl- og olíumálverk fram að þessu. Myndirnar á Mokka eru unnar í kopar, dúk og tré. Nýlistasafnið, Vatnsstig Hollenski listamaðurinn Douwes Jans Bakker sýnir verk sín í Nýlistasafninu. Sýningin er opin frá kl. 16—20 alla daga til 21. júlí. Norræna húsið v/Hringbraut 1 kjallara hússins stendur yfir sýning á sjávarmyndum Gunnlaugs Scheving. I anddyri hússins sýnir norski lista- maðurinn Guttorm Guttormsgaard grafíkmyndir og stendur sú sýning til 22. júlí. Gallerí Grjót, Skólavörflustíg 4a Þar stendur yfir samsýning aðstand- enda gallerisins. Opið virka daga ki. 12—18, lokað um helgar. Galleri Langbrók, Amtmannsstíg 1 I Galleríi Langbrók stendur nú yfir sumarsýning Langbróka. Á sýningunni eru grafíkmyndir, kera- mik, glermyndir, vatnslitamyndir, textíl o. fl. Þetta er sölusýning og stendur hún fram í miðjan ágúst. Sýningin er opin virka daga frá kl. 12— 18 og um helgar kl. 14—18. Gallerí íslensk list, Vesturgötu 17. Engin sýning um þessa helgi. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning, opin á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14-16. Þjóðminjasafnifl Þar eru til sýnis myndir eftir Sölva Helgason. Opið á þriöjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum frá kl. 13.30—16. Er Stef- anía slæm? Napóleon prins # a íslandi Frakkar seilast til áhrifa á 19. öld| ,,Karpov er ekki lengur heimsmeistari — segir Kasparov // Húsaleigufrumskóg urinn G. Sal. Hrókur alls Hróarskeldufagnaðar — eða er hann orðinn of gamall?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.