Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Side 3
DV. FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER1985.
3
Guðmundur J. Guðmundsson, f ormaður Verkamannasambandsins:
Stutt í að f rystihúsin
hafi engan að semja við
- hvergi eins mikill fólksf lótti - hrynur þegar skólarnir byrja
„Gangi þetta ekki saman held ég
aö þaö sé stutt í það að þeir hafi eng-
an til aö semja viö. Þvi að ég held aö
þaö sé engin atvinnugrein sem jafn-
mikill flótti er úr og þessi,” sagöi
Guðmundur J. Guömundsson, for-
maöur Verkamannasambandsins,
um bónussamningana og fiskvinnsl-
una.
„ÞiÖ blaöamenn og fjölmiðlar eruð
meö stórfelldar fréttir af því aö þaö
þurfi aö loka einni, tveimur eöa
þremur deildum á barnaheimili.
Þetta eru kannski tiu-tuttugu manns.
Þaö er tíundað nákvæmlega — ég
er ekki aö gera lítið úr þessu fólki —
hvort þaö séu fimm eöa sjö kennarar
sem vantar í heilt kjördæmi.
Þaö vantaði tvö þúsund manns í
fiskísumar!
Og meirihlutinn í heilu frystihús-
unum voru börn yngri en 16 ára og
útlendingar!
Hér í Reykjavík í dag er unnið bæði
í Bæjarútgerðinni og tsbirninum við
eitt borð af hverjum þremur. Fólk
fæst ekki í þessar stöður.
Þetta hrynur niöur þegar skólarnir
byrja. Afleiöingarnar af þessu eru
alveg geigvænlegar.
Verömismunur á pakkningum,
hinum ýmsu pakkningum, hvort þaö
eru þær ódýrustu eöa dýrustu, er það
mikill að það er meira heldur en allt
kaupið í frystihúsunum. t frystihús-
unum er reiknað með að tæplega
einn f jóröi hluti kostnaðar sé vinnu-
laun.
Mörg frystihúsin hafa framleitt
nótt og dag. Það er komið með sprikl-
andi þorsk allan tímann. Samt hafa
mörg mjög slæma útkomu. Þrátt fyr-
ir gífurlegan afla hafa þau framleitt
það ódýra vöru aö þau standa illa.
Þaö sagöi mér frystihúsmaöur aö
vandinn væri ekki aö þaö vantaöi
fisk, — heldur fólk,” sagöi Guðmund-
ur J.Guðmundsson.
-KMU.
• „Afleiðingar þessa eru alveg
geigvænlegar," segir Guðmundur
J. Guðmundsson.
• Magnús Ólafsson, fyrrum IMT-rit
stjóri.
„Framsóknar-
flokkurinn
steinrunninn”
„Framsóknarflokkurinn er stein-
runninn,” segir Magnús Olafsson,
burtrekinn ritstjóri af NT og varafor-
maöur Félags ungra framsóknar-
manna, í viötali við DV.
Magnús hefur nú tekiö viö starfi á
vegum ríkisstjórnarinnar — hann á aö
stjórna vinnubrögöum þeirrar nefndar
sem sinnir „framtíöarkönnun á vegum
ríkisstjórnarinnar”.
Framsóknarflokkurinn er mjög til
umræöu í viðtalinu — og Magnús segir
hann aðeins eiga fjóra „hæfa” menn —
sem hann nafngreinir.
Viðtalið birtist í Helgarblaöi DV á
morgun.
-GG.
Hagnaður
hjá Hinu
leikhúsinu
Hagnaöur varð af rekstri Hins leik-
hússins á síöasta vetri. Hart nær 30
þúsund manns sáu Litlu hryllingsbúö-
ina sem sýnd var 65 sinnum fyrir nær
fullu húsi í hvert sinn. Aö jafnaði var
sætanýtingin um 93%. Alls sóttu um 37
þúsund manns dagskrár á vegum leik-
hússins. I haust er ætlunin aö sýna
Litlu hryllingsbúöina 20 sinnum til viö-
bótar í Gamla bíói. Ekki hafa enn veriö
ákveðin verkefni Hins leikhússins á
næsta leikári sem hefst um áramót.
GK.
SUZUKI
FOX PICKUP
Bíllsem býður upp á marga möguleika
Aflmikill og lipur jeppi og umfram allt ótrúlega sparneytinn.
ísparaksturskeppni BIKR ogDV9. júnísl. eyddi Suzuki Fox 413 aðeins 6.2 Itr. pr. 100 km.
Nú getum við boðið upp á vönduð trefjaplasthús á Suzuki Fox pickup.
Þar sem Fox pickupinn er 57 cm lengri en Fox jeppinn, þá hentar hann mjög vel fyrir
alla þá sem þurfa á miklu farangursrými að halda.
Verð: Suzuki Fox 410 pickup 4 gíra kr. 349.000.-
Suzuki Fox 413 pickup 5 gíra kr. 398.000.-
Trefjaplasthús kr. 68.000.-
Reynsluakið SUZUKI FOX
Því meira sem þú ekur SUZUKI - því meira sparar þú
Opið virka daga frá kl. 9-18 - laugardaga frá kl. 13-17.
SVEINN EGILSSON HF.
Skeifunni 17. Sími 68!
PÁV