Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Blaðsíða 33
DV. FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER1985.
45
Sviðsljósið Sviðsljósið
LÍSA í UNDRALANDI
Natalie Gregory,
aðeins níu ára i
hlutverki Lisu í
Undralandi, á
milli rauðu og
hvitu drottning-
anna, þeirra
Ann Jillian og
Carol Canning.
Fyrir neðan sjá-
um við enga
aðra en Donnu
Mills úr Knotts
Landing i einum
rósarunna
Undralands.
Konungur stórslysamyndanna
frægu í Hollywood, Irwin nokkur
Allen, er nú upptekinn við það
þessa dagana að kvikmynda ævin-
týrið gamalkunna um Lísu í
Undralandi. Verkið kostar litlar 16
milljónir dollara og er fjármagn-
að af bandarísku sjónvarpsstöð-
inni CBS og verður frumsýnt um
jólin um gervöll Bandaríkin í
stöðvum sjónvarpsrisans.
Mikið er lagt í kvikmyndatök-
una og segja kunnugir að stíll leik-
stjórans og spennusenur úr mynd-
um eins og Póseidon slysið og Log-
andi víti fái aö njóta sín og séu
áberandi þó efni og söguþráöur sé
af annarri gerð. Aðalhlutverkið í
sjónvarpsmyndinni, hlutverk
sjálfrar Lísu, er í höndum níu ára
gamallar stúlku, Natalie Gregory
að nafni. „Það er stórkostlegt að
vinna með litlu Natalíu,” segir
Paul Zastupnevich búningahönn-
uður. „Hún er með eindæmum vel
gefin og skemmtileg. Hún vinnur
með yfir 42 leikurum og hefur stol-
ið senunni frá flestum þeirra. ’ ’
Nokkuð af þekktum andlitum úr
iioliywood kemur fyrir í myndinni
óg sjáum við eitthvað at þeim á
meðfylgjandi myndum.
Lisa með flugskrimslum, að hálfu
Ijón og að hálfu örn, og uppistand-
andi skjaldböku, þeim Sid Caesar
og fyrrverandi Bitlinum Ringo
Starr. Til hægri er Sammy Davís
yngri tilbúinn fyrir töku í stórflugu-
gervi sinu.
Til vinstri Jonatan Winters og sér-
kennilegur egglaga búningur hans.
Segir sagan að hann hafi fengið
viftu tengda fyrir innan gervið til að
svala sér í sumarhitanum á meðan
upptökur fóru fram. Til hægri sjá-
um við Karl Malden vigalegan með
skögultennur tvær i hlutverki rost-
ungsins.
„Þegarþeir skjálfa
líðurmérver
Þóra Steffensen sem stundar nám
við hebreska liáskólann i Jerú-
salem.
„Þegar Israelar skjálfa úr kulda
finnst mér hitinn vera þægilegur,” seg-
ir Þóra Steffensen í viðtali viö skóla-
blað háskólans sem hún stundar nám
við. Þóra hefur verið að nema he-
bresku í ísrael í sumar.
Þóra kom fyrst til Israel í fyrra og
segist vera oröin ástfangin af iandinu.
„Mér finnst notalegt að vita til þess
með vissu að sólin skín á morgun,”
segir Þóra sem hefur komist að því að
á það megi treysta í Israel.
Hún segist vel geta hugsað sér að
flytja til Israel en fyrst ætli hún að ná
fullum tökum á hebreskunni.
„Það er reyndar erfitt að útskýra
hvers vegna mig langar að flytja hing-
aö,” segir hún. „En ég kann vel við
fólkið og landið. Einnig finnst mér
gaman að andstæðunum á milli lands-
lagsins og fólksins hér.”
Samkvæmt þessari frétt er Þóra
dóttir þeirra Björns og Agnesar Steff-
ensen og er búsett í Reykjavík. Á vet-
urna stundar hún nám í læknisf ræði við
Háskóla íslands.
VERKFRÆÐINGUR -
TÆKNIFRÆÐINGUR
Til starfa við þróun á tækjum og búnaði til sjávarútvegs
og fiskvinnslu óskum við eftir að ráða vélaverkfræðing
eða véltæknifræðing.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf skulu berast fyrir 25. september.
VÉLSMIÐJAN ODDI HF.
Strandgötu 49, Akureyri.
Sími 96-21244.
Ritmo, kr. 695, nr. 36-41
Olympia, kr. 370, nr. 30—41
Kreditkort i
LaugavegiH 21675
Tilboðsverð
Vegna hagstæðra innkaupa getum við boðið ('
þennan þýska skrifborðsstól „MÓDEL
SILKE" á sérstöku TILBOÐSVERÐI á meðan
birgðir endast.
KR. 2.450,00
Sendum í póstkröfu hvert á land sem er.
FGRUHCISÍÐ HF.!
SUÐURLANDSBRAUT 30— SlMI 687080