Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1985, Blaðsíða 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Djúpsprengjur upp
í himinhvolfið?
Vesturlönd á báðum áttum með túlkun á Tass-orðsendingu
Erlendir sendimenn í Moskvu halda
ekki aö Sovétmenn muni koma fyrir
gervihnattasprengjum úti í geimnum,
eins og margir lásu hótanir um í orö-
sendingu Tass fréttastofunnar sovésku
ígær.
I Tass-orðsendingunni á ensku sagöi
aö ef Bandaríkin geröu alvöru úr aö
prófa gervihnattavopn þaö sem á aö
gera tilraunir meö síðar í þessum
mánuöi þá myndu Sovétríkin ekki
lengur telja sig bundin af tveggja ára
gömlu einhliöa banni á gervihnatta-
vopn.
Varnarmálaráðuneyti Banda-
ríkjanna gaf út tilkynningu um aö til-
raunir bandaríska hersins myndu vera
gerðar eins og fyrirhugaö var.
Tass fréttastofan talaöi um aö Sovét-
menn teldu sig frjálsa til aö „koma
fyrir gervihnattavopnum í geimnum.”
Þetta hafa margir sérfræöingar taliö
hótun um aö þeir hyggist koma fyrir
sprengjum í himinhvolfinu sem þeir
geta sett af staö hvenær sem þeir vilja.
Nú segja sendimennirnir að í
upphaflegu rússnesku útgáfu orðsend-
ingarinnar séu notuö orö sem þýöi
frekar að „senda upp” slíkar
sprengjur. Sovétmenn eigi því að
öllum líkindum ekki viö að þeir hyggist,
senda eins konar djúpsprengjur upp í
himinhvolfiö.
Gervihnattavopninu, sem Banda-
ríkjamenn ætla aö gera tilraunir meö,
er skotið frá F-15 orrustuþotu.
Umsjón: Guðmundur Pétursson
I Í1t 1 og Þórir Guðmundsson
JULIE BJARGAÐIBRADLEY
„Afnemið
fangelsi”
Forráöamenn ýmissa samtaka um
endurbætur í fangelsismálum frá
Noregi, Bretlandi og Italíu leggja til
aö fangelsi veröi lögö niöur. Þeir
vilja að Sameinuöu þjóðirnar haldi
ráöstefnu um máliö.
Martin Wright, forstjóri breska fé-
lagsins Howard League for Penal
Reform, sagöi aö fjöldi kannana
heföi sýnt fram á neikvæðar afleiö-
ingar fangelsisvistar. Samt héldu
dómstólar áfram að senda menn í
fangelsi.
Áhugamenn um máliö hafa fundað
undanfarið í Mílanó á Italíu.
Sóð eftir fangelsisganginum, þar
sem vistmenn eru hafðir i rimla-
búrum, en nýjasta kenningin er sú
að leggja fangelsi alveg niður.
Afganskir skæruliðar:
Hörfa
Sovétar?
Afganskir skæruliöar segjast hafa
brotiö á bak aftur sókn Sovétmanna í
Paktía héraði. Þeir segja aö eftir
haröa bardaga hafi þeir fengiö heri
Sovétmanna til aö hörfa.
Undanfarna daga hefur veriö tekiö á
móti hundruðum særöra skæruliöa í
Pakistan.
Skæruliöar segja aö Sovétmenn hafi
ráðist aö skæruliðum mjög nærri
landamærunum viö Pakistan til aö
skera á birgöalínur þeirra til Pakist-
ans. Þeir heföu náö aö hrekja Sovét-
menn í burtu af sumum svæðum eftir
gagnárás skæruliða á sunnudag.
Enginn óháöur aðili hefur getaö
staöfest fullyrðingar skæruliða.
Formaður eins stærsta stjórnmála-
flokksins sem tekur þátt í bardögunum
sagði aö 5.000 skæruliöar hefðu tekið
þátt í bardögunum.
Tíu ára gömul bresk skólastúlka
bjargaöi lífi smábarns á Grikk-
landi þegar handsprengjuárás var
gerö á hótel í Aþenu á þriðjudag.
Stúlkan, Julie Malton, var aö synda
meö Bradley, þriggja ára gömlum,
þegar þaö sem hún kallaði litinn
svartan kassa féll í laugina.
„Eg vissi ekki hvaö var í kassan-
um en ég hélt aö þaö gæti verið eit-
ur og Bradley myndi snerta þaö
svo ég tók hann meö hendinni og
setti hann á sundlaugarbarminn og
á meðan ég var aö koma mér upp
úr heyröi ég háan hvell í lauginni,”
sagöi Julieeftirá.
Tveimur handsprengjum var
kastaö. Þær særöu 18 breska ferða-
menn. Árásarmennirnir eru taldir
vilja aö palestínskur fangi, sem
játaöi aö hafa ætlað aö drepa sendi-
herra Jórdans í Grikklandi, veröi
látinn laus.
formannssætinu.
LÉK
ILLA
AF
SER
Þaö uröu hausavíxl í áströlskum
stjórnmálum í gær þegar leiðtoga-
skipti uröu í stjórnarandstööunni og
Andrew Peacock vék úr formannssæti
frjálslynda flokksins fyrir John
Howard, lögfræðingi í Sydney.
Á stormasömum þingflokksfundi í
gær tefldi Peacock á sitt tæpasta vað í
pólitískum ferli sínum þegar honum
mislíkaði aö Howard skyldi ekki taka
af skarið í vangaveltum fjölmiöla um
aö Howard sæktist eftir formannsstöö-
unnL — Boöaði Peacodc (oft kallaöur
„sólarlampastrákurinn” vegna ung-
legs og útilífslegs yfirbragðs) til fund-
arins og lýsti flokksforystuna lausa til
atkvæðagreiðslu og tilnefndi John
Moore (talsmann frjálslyndra í utan-
ríkismálum) framboðsefni til varafor-
manns.
En þingflokkurinn endurkaus
Howard og leit Peacock á þaö sem van-
traust á sig og sagði af sér. Howard
var þá kosinn flokksformaður meö 57
atkvæöum gegn 6. Neil Brown, tals-
maöur flokksins í dómsmálum, var
kosinn varaformaður.
Howard hefur þá stefnu í efnahags-
málum sem miöar aö því að „fá bákniö
burt”, draga úr ríkisafskiptum, selja
ríkisfyrirtæki, lækka skatta, fækka
opinberum starfsmönnum og draga úr
áhrifum stéttarfélaga.
Svalt í brúðarkjólnum
Gunnlaugur A. Jónsson, fréttaritari
DVíLundi:
„Ég var ákveöin í að fasta fyrir utan
sovéska sendiráðið í allan vetur,”
sagði sænska stúlkan Marieanne
Farrow í gærkvöldi er hún haföi lokiö
óvenjulega árangursríku hungurverk-
falli sinu.
Fyrir einum mánuöi hóf Marieanne
hungurverkfall sitt fyrir utan sovéska
sendiráöiö í Stokkhólmi í þeim tilgangi
aö knýja á sovésk yfirvöld að leyfa
sovéskum unnusta hennar, að nafni
Valentin Jurov, að flytjast frá Sovét-
ríkjunum.
Jurov kom í gærkvöldi meö flugi til
Stokkhólms og þar mætti honum mikill
fjöldi fréttamanna. Eru menn furðu
lostnir yfir því hversu fljótt sovésk
stjórnvöld brugðust viö. — Fyrstu við-
brögö þeirra viö beiöni Jurovs um aö
fá að flytja úr landi höfðu verið aö
setja hann inn á geðveikrahæli en eftir
aö unnustan hóf hungurverkfall fyrir
utan sendiráöiö, klædd í hvítan brúðar-
kjól, komst skriður á málið.
Jurov, semer gyöingur, fékk aö vita
aö hann fengi að fara úr landi ef hann
fengi boö frá Israel um aö flytjast
þangað. Honum var jafnframt tjáö aö
þaö mundi greiöa fyrir málinu ef unn-
usta hans hætti hungurverkfallinu.
Sænskir fjölmiðlar velta nú fyrir sér
hverju megi þakka þessi óvenjulega
skjótu viðbrögö sovéskra yfirvalda.
Einna helst hallast menn aö því aö
Sovétmönnum sé umhugaö um aö ekki
komi bakslag í batnandi samskipti viö
Svíþjóö sem nýlega voru sögð loksins
komin í eölilegt horf eftir kuldann í
kjölfar kaf bátamálanna. Eins auðveld-
aöi þaö lausn málsins aö Jurov haföi
ekki gegnt herþjónustu og var því ekki
talinn búa yfir ríkisleyndarmálum. —
Hinir bjartsýnustu gera sér hins vegar
vonir um aö hér sé um aö ræða stefnu-
breytingu hjá nýjum ráöamönnum í
Kreml.