Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1985, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1985, Blaðsíða 6
DV. FÖSTUDAGUR 4. OKTOBER1985. Leikhús — Leikhús — Leikhús — Leikhús Þjóðleikhúsið Grímudansleikur Uppselt hefur verið á allar sýning- ar Þjóðleikhússins á óperu Verdis, Grímudansleik. Um helgina verða tvær sýningar, á föstudags- og laug- ardagskvöld, sem eru 7. og 8. sýning, og er þegar uppselt á þær báöar. Þar með lýkur kortasýningunum og auk- ast þá líkur til að ná í miða fyrir þá sem ekki eru með áskrifendakort, en nú eru fáar sýningar eftir. I aðalhlut- verkum eru Kristján Jóhannsson, Kristinn Sigmundsson, Elísabet F. Eiríksdóttir, Katrín Sigurðardóttir, Sigríður Ella Magnúsdóttir, Viöar Gunnarsson og Robert Becker. Reykjavíkurfrumsýning á „Ekkó" Stúdentaleikhúsið er nú komið til höfuöborgarinnar eftir að hafa verið á tæplega mánaðar leikför um landiö og var sýnt á 22 stööum. Reykjavík- urfrumsýningin verður á sunnudags- kvöld í Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut og hefst kl. 21. önnur sýning verður á mánudagskvöld kl. 21. „Ekkó” eöa guðimir ungu er eftir Claes Andersson og fjallar verkiö um unglinginn, samskipti hans við hitt kynið, foreldra og klíkuna. Aðal- áherslan er lögð á klíkuna og á sögu Ekkó og Narsa, sem leikin er af örnu Valsdóttur og Ara Matthiassyni. Frumsýningílðnó: Land míns föður Söngleikur Kjartans Ragnarsson- ar Land mms föður, verður frun> sýndur í kvöld, föstudagskvöld. Þetta verk er eitthvert hið viöamesta sem LR hefur ráðist í frá upphafi. Yfir 30 manns koma fram í sýning- unni, söngvarar, leikarar, dansarar og tónlistarmenn. önnur sýning verður á morgun og þriðja sýning á sunnudag. Leikurinn hefst þann 9. maí árið 1940 og spannar yfir öll stríðsárin. Fjallað er um samskipti Islendinga við herinn, Bretavinnu, stríðsgróða, ástandið o.fl. Einnig kemur stofnun lýðveldisins við sögu, svo og íslensk stjórnmál þeirra tíma. Með helstu hlutverk fara Helgi Björnsson, Sig- rún Edda Björnsdóttir, Jón Sigur- björnsson, Margrét Helga Jóhanns- dóttir, Hallmar Sigurösson, Aöal- steinn Bergdal, Sigríður Arnardóttir, Steinunn Olína Þorsteinsdóttir og Ágúst Guðmundsson. Tónlist er eftir Atla Heimi Sveins- son, Jóhann G. Jóhannsson er hljóm- sveitarstjóri, Olafía Bjarnleifsdóttir er höfundur dansa, Guörún Erla Geirsdóttir (Gerla) gerði búninga en Steinþór Sigurðsson leikmynd. Leik- stjóri er Kjartan Ragnarsson. Ólafur Haukur Símonarson þýddi verkið og samdi söngtexta, Ragn- hildur Gísladóttir, Stuðmaður, frum- samdi tónlist fyrir verkið og er þetta jafnframt frumraun hennar í að semja fyrir leikhús. Karl Aspelund gerði leikmynd og búninga, Guðný B. Richards hannaði leikbrúður, Egill Árnason annaöist lýsingu og Ándrés Sigurvinsson leikstýrði. Alls koma 13 leikarar fram: Auk Örnu Vaisdóttur og Ara Matthíasson- ar koma fram Anna E. Borg, Ásta Arnardóttir, Björn Karlsson, Börkur Baldvinsson, Einar Gunnlaugsson, Guðmundur Karl Friöjónsson, Halla Helgadóttir, Soffía Karlsdóttir, Stef- án Jónsson og Svanbjörg Einarsdótt- ir. íslandsklukkan Afmælissýning Þjóðleikhússins á Islandsklukku Halldórs Laxness er nú komin á fjalirnar á ný, en gera má ráð fyrir fáum sýningum á verk- inu. Næsta sýning verður að kvöldi sunnudagsins 6. október. Með helstu hlutverk í sýningunni fara Helgi Skúlason, Tinna Gunnlaugsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Arnar Jóns- son, Róbert Arnfinnsson, Sigurður Sigurjónsson og Pétur Einarsson en alls koma yfir 30 leikarar fram í þessari uppfærslu á Islandsklukk- unni. Kvikmyndahús — Kvikmyndahús Stjörnubíó Á fullri ferð nefnist ný dans- og söngvamynd sem frumsýnd hefur verið í Stjörnubíói. Er hún, eins og dansmyndir í dag, aðallega fyrir yngri kynslóöina. Fjalla.r myndin um nokkra krakka sem hafa dans að aöaláhugamáli sem öll koma til New York í framaleit meðal annars. Af öðrum myndum má nefna hina ágætu mynd John Carpenters, Starman, sem fjallar um veru utan úr geimi sem verður strandaglópur á jörðinni. Nýja bíó Það eru þrjár kvikmyndir í kvik- myndahúsum höfuðborgarinnar sem státa af því að hafa Dudley Moore í aðalhlutverki. Nýja bíó sýnir gaman- myndina Abbó, hvað (Unfaithfully Yours) þar sem Dudley Moore leikur hljómsveitarstjóra sem hættir sér út á hála braut gagnvart eiginkonu sinni sem leikin er af Natassja Kinski. Háskólabíó: Það eru sjálfsagt margir sem hafa beðið með óþreyju eftir hinni marg- verðlaunuðu mynd, Amadeus. Nú er þeirri bið lokið og aðeins eftir að skoða dýrðina. Leikstjóri myndar- innar er Milos Forman. Kvikmyndin er byggð á samnefndu leikriti Peter Schaffer sem lýsir leikritinu sem hugarórum byggöum á staðreynd- um. Snemma á 19. öld var uppi sá orðrómur að Mozart hefði verið byrl- að eitur af keppinaut sínum, Antoni Salieri, sem ætið fann til smæðar sinnar gagnvart Mozart. Tónabíó Ragtime er kvikmynd sem Milos Forman stjórnaði næst á undan Amadeus svo að þaö er svo sannar- lega kominn timi til að hana reki á fjörur okkar. Myndin er gerð eftir þekktri bók sem komið hefur út á íslensku og gerist í byrjun aldarinnar. Þótt ekki hafi hún hlotið jafnmikið lof og Amadeus hlaut hún góöar viötökur gagnrýnenda á sínum tíma. Austurbæjarbíó 1 aðalsal Austurbæjarbíós er sýnd ný mynd fyrir táninga. Vafasöm viðskipti (Risky Business) nefnist hún og er aðalpersónan Joel sem leikinn er af Tom Cruise. Eins og á við um flesta unglingsstráka eru aöaláhugamál hans bílar og stúlkur. Austurbæjarbíó sýnir einnig úrvals- myndina Zelig þar sem Woody Allen tekst á snilldarlegan hátt aö tengja saman heimildarform kvikmynda LAGARÁSBÍÓ MILLJÓNAERFINGINN Richard Bryorc er einhver vinsæl- asti gamanleikari vestanhafs. Nokkrum kvikmyndum hefur hann leikið í með misjöfnum árangri. Nýj- asta kvikmynd hans, Milljónaerfing- inn (Brewster’s Million), er frum- sýns í Laugarásbíói í dag. Richard Pryor leikur þar horna- boltaleikara er nefnist Monty Brewster. Einn daginn fréttir hann að gamall ættingi hans hafi látist og hann hafi erft 300 milljón dollara. Einn galli er þó á gjöf Njaröar, ef hægt er að kalla galla: Brewster þarf sem sagt aö eyða 30 milljónum doll- ara á 30 dögum til að eignast arfinn. Um þessa eyðslu fjallar myndin. Milljónaerfinginn er farsakennd gamanmynd fyrir alla. Þá sýnir Laugarásbíó einnig Grímu (Mask), mynd sem snertir flesta. Kvikmyndahús við skáldaðan söguþráö. Þetta er mynd fyrir alla áhugamenn um kvik- myndir. Bíóhöllin Aö vanda eru margar myndir, sem velja má um, í Bíóhöllinni og ættu flestir að finna eitthvaö fyrir sig. I aöalsalnum er sýnd táningamyndin Á puttanum (The Sure Thing). Mynd þessi hefur fengið lofsamlega dóma erlendis. Aðdáendur Stephen King fá sinn skammt í Auga kattarins (Cat’s Eye), nýjustu kvikmyndinni sem gerð er eftir sögum hans. Þá má nefna tvær ólíkar sakamálamyndir, Ar drekans (Year Of The Dragon), og nýjustu James Bond myndina Víg í sjónmáli (A View To A Kill). Regnboginn 1 dag frumsýnir Regnboginn The Mean Season, sakamálamynd þar sem Kurt Russel og Mariel Heming- way eru í aðalhlutverkum. Myndin segir frá blaðamanni sem kemst í „heitt” mál en það verður honum afdrifaríkt. I Regnboganum er einnig sýnd hin ágæta gamanmynd Örvæntingarfull leit að Susan (Desperately Seeking Susan) sem státar meðal annars af því aö hafa hina frægu Madonnu í einu aðalhlut- verkanna. Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina — Hvað Sýningar Kjarvalsstaðir v/Miklatún Þar stendur yfir á vegum Listahátíðar kvenna myndlistarsýningin Hér og nú. Opið daglega kl. 14—22 og lýkur sýn- ingunni á sunnudagskvöld. Nýlistasafnið, ^Vatnsstig Þar stendur yfir ljósmyndasýningin Augnablik á vegum Listahátíðar kvenna. Er þetta samsýning 20 kvenna. Opið virka daga kl. 16—22 en frá kl. 14—22 um helgar. Gallerí Borg, Pósthússtrœti 9 Opið virka daga frá kl. 12—18 en milli kl. 14 og 18 laugardaga og sunnudaga. Gallerí Grjót, Skólavörðustig Þar stendur yfir sýning á nokkrum skúlptúrverkum og smámunum eftir Magnús Tómasson. Sýningin ber heitið Konan til gagns og gamans. Verkin eru öll úr málmi og hafa sum þeirra verið sýnd áður hér heima og erlendis. Sýn- ingin er opin daglega frá kl. 12—18 virka daga en kl. 14—18 um helgar. Sýningin stendur til 10. október. Listasafn Islands I tilefni af Listahátíö kvenna stendur nú yfir í Listasafni Islands sýning á verkum 19 íslenskra myndlistar- kvenna sem fæddar eru 1888—1930. Á sýningunni eru 80 listaverk, högg- myndir, klippimyndir, olíumálverk, vatnslitamyndir og vefnaður, öll í eigu safnsins. Sýningin er opin daglega frá kl. 13.30—16 virka daga og frá kl. 13.30—22 um helgar. Galleri Langbrók, Amtmannsstig Sýning á vegum listahátíðar kvenna. Ásrún Kristjánsdóttir sýnir verk sín. Hafnarborg, Hafnarfirði Engin tilkynning hefur borist um sýningu þessa helgi. Ásgrimssafn, Bergstaðastræti 74 Opnunartími safnsins er á þriðjudög- um, fimmtudögum og sunnudögum frá kl. 13.30-16. Ásmundarsalur v/Freyjugötu Sýning á verkum 13 ísl. kvenarkitekta, þar er einnig finnsk litskyggnusýning sem sýnir sögulegt yfirlit yfir verk finnskra kvenarkitekta. Sýningar standa til 6. október. Mokka kaffi, Skólavörðustíg Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir og Sól- veig Aðalsteinsdóttir sýna grafík og teikningar. Árbæjarsafn Safnið opið eftir samkomulagi. Hægt er að hringja í síma 84412, mánudaga— föstudaga milli kl. 9 og 10, og panta tíma. Ásmundarsafn v/Sigtún Nú stendur yfir í Ásmundarsafni sýn- ing sem nefnist Konan í list Asmundar Sveinssonar. Er hér um að ræöa mynd- efni sem tekur yfir mestalian feril Ás- mundar og birtist í fjölbreytilegum út- færslum. Sýningin er opin í vetur á þriðjudögum, fimmtudögum, laugar- dögum og sunnudögum frá kl. 14—17. Listmunahúsiö, Lækjargötu 2 Eyjólfur Einarsson sýnir 40 málverk og vatnslitamyndir unnar á sl. tveim árum, meðal annars í Hollandi, þar sem hann dvaldi sl. vetur. Sýningin, sem er sölusýning, er opin virka daga frá kl. 10—18, laugardaga og sunnu- daga kl. 14—18. Lokað á mánudögum. Sýningunni lýkur 13. október. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning, opin á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14-16. Listasafn Háskóla íslands I Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið daglega kl. 13.30—17. Þar eru til sýnis 90 verk úr eigu safnsins, aöallega eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Aðgang- ur er ókeypis að sýningunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.